Morgunblaðið - 22.10.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 22.10.2018, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2018 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku Ath að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a 595 1000 Frá kr. 160.785 Örfá sæti laus yfir jólahátíðirnar u. Ath .a ðv er ðg etu rb re yst án fyr irv ar a. Kanaríeyjar Frá kr. 134.540 18. desember í 16 nætur Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Niðurstaða samtalsins á þinginu er samstaða um að við munum vinna áfram að því að tryggja að launafólk geti lifað af á dag- vinnulaunum, stytta vinnuvikuna og berjast fyrir bættu starfsum- hverfi okkar félagsmanna. Við ætlum líka að jafna launakjör milli almenna og opinbera vinnu- markaðarins, tryggja framhald launaþróunartryggingar og bæta stöðu vaktavinnufólks svo eitt- hvað sé nefnt,“ segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir, sem á föstudag var kjörin nýr formaður BSRB. Vildi meiri áhrif „Ég vil leggja mitt af mörk- um til að stuðla að betra sam- félagi og finna hugsjónum mín- um farveg. Ég hef unnið hjá bandalaginu í tíu ár, þekki vel til verkefnanna og aðildarfélag- anna. Vildi fá tækifæri til að hafa meiri áhrif á framkvæmd stefn- unnar,“ segir nýi formaðurinn, aðspurð um framboð sitt. Kjarasamningar á vinnu- markaði losna um komandi ára- mót og þegar hafa félög innan Starfsgreinasambandsins og VR kynnt kröfugerð sína, það er að eftir þrjú ár verði lágmarkslaun 425 þúsund kr. á mánuði. Um þessar kröfur segir Sonja Ýr að verið sé að bregðast við því að hækkanir síðustu kjarasamninga skiluðu sér ekki fyllilega og mis- skipting hafi aukist. Þá hafi stjórnvöld dregið úr tekjujöfn- unarhlutverki skattkerfsisins og húsnæðisbætur, vaxtabætur og barnabætur hafi verið skertar. Líklegt sé að krafa félaganna á almenna markaðnum gagnvart atvinnurekendum mótist af við- brögðum stjórnvalda. Það sama eigi við um kröfugerð BSRB- félaganna en samningar þeirra við viðsemjendur losna snemma á næsta ári. Okkar fólk fái leiðréttingu Fyrir tveimur árum voru gerðar breytingar á lífeyris- málum opinberra starfsmanna, það er að lífeyriskjör og laun þess og fólks á almenna mark- aðnum skyldu jöfnuð. Rann- sóknir sýna, segir Sonja Ýr, að þessi munur er að jafnaði um 17%. Nú sé verið að kortleggja hver munurinn sé í hverju starfi fyrir sig. Verði niðurstaðan lögð til grundvallar í undirbúningi kjarasamninga félaganna innan BSRB. „Já, ég greini verulega óánægju meðal félagsmanna BSRB vegna vaxandi launamun- ar. Þegar kjararáð ákvað á síð- asta ári að hækka laun æðstu embættismanna með þeim rökum að þær væru leiðrétting síðan úr hruni vakti það óánægju. Okkar félagsmenn, sem lögðu mikið á sig til að vinna okkur út úr hruninu eru ósáttir. Margt af þessu fólki býr enn við að færri hendur vinna verkefnin en fyrir hrun og hafa ekki fengið sam- bærilega leiðréttingu. Þetta mun vafalaust hafa veruleg áhrif á kröfurnar í kjarasamningsgerð- inni þar sem okkar fólk á ekki síður rétt á leiðréttingu en þeir hæst launuðu.“ Stuðlar að jafnrétti Á þingi BSRB var mótuð sú stefna að lögfesta eigi styttingu vinnuvikunnar í 35 stundir í dag- vinnu og að vinnuvika vakta- vinnufólks verði 80% af vinnu- tíma dagvinnufólks án launa- skerðingar. Um þetta segir Sonja Ýr að reynslan af tilraunaverk- efnum hjá Reykjavíkurborg og ríkinu sýni að stytting vinnuvik- unnar sé góð. Skemmri vinnutími auðveldi fólki að samþætta fjöl- skyldulíf og vinnu og stuðli al- mennt að betri líðan og aukinni starfsánægju. Tilraunirnar sýni jafnframt að hægt sé að stytta vinnuvikuna án þess að það hafi áhrif á afköst eða þjónustu. „Fjölskyldufólk segir að styttri vinnuvika hafi minnkað álagið á heimili. Með skemmri vinnutíma fjölgi gæðastundum. Mér finnst líka mega að vekja at- hygli á að samvera með fjölskyld- unni er ein besta forvörnin fyrir börn og unglinga. Svo stuðlar styttri vinnuvika að jafnrétti á vinnumarkaði, það er jafnari vinnutíma kvenna og karla og jafnari skiptingu heimilisverka og umönnunar barna,“ segir nýr formaður BSRB að síðustu. Aukin óánægja með vaxandi launamun, segir nýr formaður BSRB Morgunblaðið/Hari Forysta Okkar fólk á ekki síður rétt á leiðréttingu en þeir hæst launuðu, segir Sonja Ýr Þorbergsdóttir. Gæðastundum fjölgi  Sonja Ýr Þorbergsdóttir, nýr formaður BSRB, fæddist árið 1982 og er með B.Sc.-gráðu í viðskiptalögfræði og ML-gráðu í lögfræði frá Háskólanum á Bifröst. Lögfræðingur BSRB frá 2008. Sonja hefur setið í ýmsum opinberum stjórnsýslu- nefndum fyrir hönd BSRB í tengslum við vinnumarkaðinn, auk þess að sinna stunda- kennslu í háskólum. Hver er hún? Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Peter T. Örebech, prófessor í lög- fræði við Háskólann í Tromsö, segir að lögmaðurinn Birgir Tjörvi Péturs- son hafi dregið ályktanir sem ekki standist í greinargerð sinni um þriðja orkupakka Evrópusambandsins, sem hann vann að beiðni ferðamála-, iðn- aðar- og nýsköpunarráðherra. Þetta kemur fram í greinargerð, sem birt er á heimasíðu Heimssýnar. Í áliti sínu, sem birtist í september, sagði Birgir Tjörvi meðal annars að reglurnar í orkupakkanum myndu ekki hafa áhrif á eignarrétt á orku- auðlindum á Ís- landi, þar sem 125. grein EES- samningsins, um að samningurinn hafi ekki áhrif á reglur samnings- ríkis um skipan eignaréttarins, ætti að koma í veg fyrir það. Örebech segir hins vegar í sínu áliti að Evrópudómstóllinn hafi sýnt með dómum sínum að orkumál séu ekki undanþegin innri markaðn- um og fjórfrelsinu svonefnda, og að ríki EES muni ekki geta mismunað erlendum og innlendum aðilum þegar orkupakkinn taki gildi, nema þau ákveði að náttúruauðlindirnar verði að fullu í eigu ríkisins. Þá gagnrýnir Örebech þá afstöðu Birgis Tjörva að svo lengi sem Ísland sé ótengt innri markaði ESB með streng gildi 11., 12. og 13. grein EES- samningsins, sem snúa að banni á takmörkunum á viðskipti með raf- orku, ekki hér. Segir Örebech að það sé röng niðurstaða, og að reglurnar muni virkjast við innleiðingu þriðja orkupakkans. Örebech heldur því enn fremur fram að þessar greinar spanni þær „aðstæður að Ísland neiti t.d. einkaaðila sem rekur milliland- astrengi um að leggja slíka“, og að í slíkum ágreiningi myndi það falla í skaut ACER, Orkustofnun ESB, að ákveða hvort strengurinn yrði lagður. Heimssýn stendur fyrir opnum fundi um aukið vald Evrópusam- bandsins í orkumálum hér á landi kl. 17:15 í stofu HT-102 á Háskólatorgi og verður Örebech þar fyrsti frum- mælandi. Vigdís Hauksdóttir, lög- fræðingur og borgarfulltrúi og Bjarni Jónsson rafmagnsverkfræðingur munu einnig flytja erindi. Virkjast við upptöku pakkans  Norskur lagaprófessor gagnrýnir lögfræðiálit um þriðja orkupakkann Peter T. Örebech Þórólfur Guðna- son sóttvarna- læknir staðfestir að eitt tilfelli af flensu hafi greinst á Land- spítalanum í haust. Hann seg- ir það ekki nýtt að eitt og eitt flensutilfelli stingi sér niður á haustin, slíkt hafi gerst undanfarin ár. „Flensutímabilið hefst vanalega ekki fyrr en um áramót. Það er ekki hægt að sjá út frá einu tilfelli hvernig flensan verður,“ segir Þór- ólfur, sem tekur fram að flensan hegði sér svipað milli ára. Fyrsta flensutilfelli haustsins staðfest Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Smári Sigurðsson, formaður Slysa- varnafélagsins Landsbjargar, segir að aukin fjölgun snjóflóða af manna- völdum komi ekki á óvart, þar sem hún haldist í hendur við stóraukna ástundun fólks á vetraríþróttum til fjalla, en greint var frá því í Morgun- blaðinu á laugardaginn að 63 tilfelli hefðu komið upp veturinn 2017-2018 af snjóflóðum af mannavöldum. Smári segir að mun fleiri séu nú á á vélsleðum og fjallaskíðum en fyrir áratug. Hann telur ekki að aukningin á snjóflóðum af mannavöldum sé í sama hlutfalli og sú gríðarlega aukn- ing sem orðið hafi á ástundun vetrar- íþrótta, þar sem útivistarfólk sé nú meðvitaðra um hætturnar sem geti skapast. Smári segir að blessunarlega hafi verið lítið um óhöpp þar sem skaði hafi orðið af snjóflóðum af manna- völdum. „Þetta hefur ekki verið íþyngjandi fyrir björgunarsveitirnar, það er ekki þannig að það sé alltaf verið að kalla þær út vegna snjóflóða af mannavöldum.“ Hann bætir við að mikið átak hafi verið unnið í öryggismálum til fjalla og fólk verið hvatt til að afla sér þekk- ingar um hættuna. Þá sé Veðurstofan farin að miðla meiri upplýsingum um snjóflóðahættu hverju sinni, og hafi munað mjög mikið um það. Þá segir Smári mikilvægt að hvetja fólk til þess að sýna ávallt árvekni, því snjóflóðaváin sé alltaf til staðar í bröttum hlíðum með mikinn snjó. Ófeimnara að tilkynna snjóflóð Jökull Bergmann, fjallaleiðsögu- maður hjá Bergmönnum, sem gerir út ferðir á Tröllaskaga, segir að gríðarleg aukning hafi verið á umferð um skagann síðustu 3-5 árin, sem aft- ur hafi skilað sér í að fleiri tilkynn- ingar um snjóflóð hafi borist. Hann bætir við að mikilvægt sé að menn séu ekki að skammast sín fyrir að hafa óvart sett af stað snjóflóð heldur tilkynni þau strax til Veður- stofunnar, sem nýti þær upplýsingar til þess að leggja betra mat á snjó- flóðahættuna hverju sinni. Aðspurður hvort fjölgun erlendra ferðamanna hafi ýtt undir þetta segir Jökull að alltaf sé farið mjög vel yfir öll öryggismál sem snúi að snjóflóð- um í upphafi ferðar. Hins vegar séu nokkur brögð að því að erlendir leið- sögumenn sem þekki verr til að- stæðna lendi í meiri vandræðum með sína hópa. Snjóflóð tengd aukinni umferð  Mikilvægt að sýna árvekni til fjalla Morgunblaðið/Ómar Vélsleðar Fjölgun ferðamanna á fjöllum hefur fjölgað snjóflóðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.