Morgunblaðið - 22.10.2018, Síða 10

Morgunblaðið - 22.10.2018, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2018 Orlofssjóður BHM (OBHM) óskar eftir að taka á leigu sumarhús eða íbúðir um land allt og annars staðar í Evrópu til að framleigja til sjóðfélaga sumarið 2019. Húsnæðið þarf að vera í mjög góðu ástandi, fullbúið húsgögnum og öðrum viðeigandi húsbúnaði. Þar þarf jafnframt að vera pláss fyrir a.m.k. 6 til 8 manns í gistingu. Áhugasamir húseigendur sendi tölvupóst með myndum af eigninni á obhm@bhm.is Gott væri að fram kæmu upplýsingar um staðsetningu, byggingarár, ástand, stærð, fjölda svefnplássa og hugmyndir um leiguverð. ÁTT ÞÚ ORLOFSHÚS SEM ÞÚ VILT LEIGJA? „Þetta eru miklu betri viðtökur en við áttum von á. Við erum rasandi yf- ir þessu öllu saman,“ segir Hulda Jónasdóttir, sem stendur að tón- leikum í Salnum í Kópavogi föstu- dagskvöldið 2. nóvember nk. Þar verða flutt um 20 lög úr danslaga- keppni sem Kvenfélag Sauðárkróks stóð fyrir á árunum 1957-1971. Vegna góðra undirtekta var ákveðið að endurtaka tónleikana í Salnum, sem fóru þar fram í fyrra. Nokkrum mánuðum áður höfðu þeir verið frumfluttir á Sæluvikunni á Sauðárkróki vorið 2017. Uppselt var á hvora tveggja tónleikana og kom- ust færri að en vildu. Hulda segir að enn séu til nokkrir miðar í Salinn en þeir muni fljótt klárast. Fer miðasala fram á tix.is og salurinn.is. Frá síðustu tónleikum hefur einn söngvari bæst við; Svavar Knútur, sem á ættir að rekja í Skagafjörðinn. Aðrir flytjendur laganna eru Geir- mundur Valtýsson, Pétur Pétursson frá Álftagerði, María Ólafsdóttir, Ingibjörg Fríða Helgadóttir, Hrein- dís Ylva Garðarsdóttir Holm, Óli Ólafsson og Sigvaldi Helgi Gunn- arsson. Flytja þau lög eftir Eyþór Stefánsson, Jón Björnsson frá Haf- steinsstöðum, Guðrúnu Gísladóttur, Geirmund Valtýsson, Ragnheiði Bjarman, Þorbjörgu Ágústsdóttur, Angantýssystkinin og fleiri lagahöf- unda sem tóku þátt í danslagakeppn- inni á árum áður. Hljómsveitarstjóri og gítarleikari er Skagfirðingurinn Þórólfur Stef- ánsson, sem býr í Svíþjóð, en hann útsetti öll lögin sem og valdi þau ásamt Huldu. Höfðu þau úr 100 lög- um að moða en sum þeirra eru lands- þekkt, eins og Útlaginn og Nú kveð ég allt. Jón Rafnsson leikur á bassa, Agnar Már Magnússon á píanó og Halldór G. Hauksson á trommur. Kynnir á tónleikunum er sem fyrr Valgerður Erlingsdóttir og Sigfús Arnar Benediktsson sér um hljóðið. Að sögn Huldu hafa nokkur lög verið tekin upp en ekki hefur verið ákveðið hvort lögin verða gefin út á disk. „Það væri gaman að gefa þetta út,“ segir Hulda að endingu. Endurtaka dans- lögin í Salnum  Þriðju tónleikar með 20 skagfirsk- um danslögum  „Rasandi yfir þessu“ Morgunblaðið/Björn Jóhann Danslagakeppni Söngvarar og tónlistarfólk á sviðinu í Salnum í Kópavogi fyrir ári. Tónleikarnir verða endurfluttir 2. nóvember næstkomandi. SVIÐSLJÓS Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Bæjaryfirvöld í Stykkishólmi standa nú frammi fyrir því að tveir aðilar vilja fara af stað með þang- og þörungavinnslu í bænum, annars vegar Íslenska kalkþörungafélagið og hins vegar Acadian Seaplants, sem er kanadískt fyrirtæki. Fyrrnefnda félagið rekur kalkþör- ungavinnslu á Bíldudal og er með áform um samskonar vinnslu í Súðavík. Verið er að endurnýja verksmiðjuna á Bíldudal og sam- anlagt gæti fjárfestingin á þessum þremur stöðum hjá eigendum Íslenska kalkþörunga- félagsins orðið í kringum fjóra milljarða króna, gróft áætlað. Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri í Stykkishólmi, segir áhuga fyrirtækjanna til skoðunar í bæjarstjórn. Það muni skýrast á næstu vikum hvor aðilinn verði fenginn til frek- ari viðræðna. Horfa þurfi til nokkurra þátta, eins og með staðsetningu á þangvinnslu í bæn- um og hvort starfseminni fylgi frekari úr- vinnsla. Einnig þurfi að ráðast í frekari rann- sóknir á áhrifum vinnslunnar á náttúruna og vistkerfi sjávar. Jakob segir að kynna þurfi málið fyrir bæjarbúum og áformin séu því enn á frumstigi. Vilja vanda til verka Halldór Halldórsson, forstjóri Íslenska kalk- þörungafélagsins, segir 20 störf geta orðið til í Stykkishólmi í verksmiðju og hráefnaöflun, bæði störf ófaglærðra verkamanna og störf tæknimanna. Óbein störf gætu orðið 12 talsins. Halldór segir að til að byrja með verði starfs- menn þó færri þar sem starfsemin verði byggð í þrepum. Fyrsti hluti byggingarinnar þurfi að vera 2.200 fermetrar, með stækkunarmögu- leika upp í 4.400 fermetra í öðrum áfanga. „Það er mat Íslenska kalkþörungafélagins að staðsetning í Stykkishólmi sé heppileg með tilliti til þess að þar er starfsfólk líklegt til að vilja setjast að til langframa auk þess sem bæj- arfélagið getur verið aðlaðandi fyrir mennta- fólk, sem þörf er á til rannsókna á lífríki Breiðafjarðar og afurðum verksmiðjunnar,“ segir Halldór. Hann segir aðstöðuna þurfa að vera sem næst höfninni. Horft hefur verið til Skipavíkur- svæðisins en Halldór segir fleiri möguleika koma til greina. „Viðbrögðin hafa almennt verið jákvæð í Hólminum en báðir aðilar vilja eðlilega vanda sig í allri ákvarðanatöku og eiga samráð við íbúana. Við höfum nægan tíma. Það þarf til að Fjárfest í þara fyrir fjóra milljarða  Tveir aðilar sýna áhuga á þaravinnslu í Stykkishólmi  Íslenska kalk- þörungafélagið einnig með fjárfestingaráform í Súðavík og á Bíldudal Bíldudalur Farmi skipað út frá Íslenska kalkþörungafélaginu á Bíldudal. Félag- ið hefur áform um sambærilega vinnslu í Súðavík og Stykkishólmi. Vinna við aðal- og deiliskipulag stendur yfir hjá Súðavíkurhreppi vegna áforma Íslenska kalk- þörungafélagsins um að reisa 4.000 fermetra kalkþörungaverksmiðju í Súðavík, svipaða þeirri og á Bíldudal nema heldur umfangs- meiri. Að sögn Halldórs Halldórssonar er einnig unnið að gerð umhverfismats en talið er að á botni Ísafjarðardjúps og Jökulfjarða séu um 100 milljónir rúmmetra af kalkþörungaseti. Til samanburðar hafa rannsóknir sýnt að á botni Arnarfjarðar sé ríflega 21 milljón rúmmetra af vinnanlegu þörungaseti. Er ætlunin að þurrka setið í mjöl og aðrar afurðir, með árlega fram- leiðslugetu upp á 120 þúsund tonn. Þurrkunin krefst mikillar orku. Verksmiðja félagsins á Bíldudal notar um 3MW en að sögn Halldórs yrði orkuþörfin í Súðavík allt að 10MW. Viðræður standa yfir við Landsnet um hvernig tryggja megi aukna orku til Súðavíkur. „Það vantar meiri orku til Vestfjarða, þar er lítil orka framleidd og dreifikerfið brothætt,“ segir Halldór. Við verksmiðjuna á Bíldudal hafa starfað um 26 manns en nú stendur yfir endurnýjun á hluta verk- smiðjunnar þar sem 14-16 iðnaðarmenn hafa verið að störfum. Halldór segir fyrir- hugaða verksmiðju í Súða- vík skapa 42 bein og óbein störf fyrir norðanverða Vestfirði. Halldór er nýlega kominn heim frá Írlandi þar sem hann sat fundi og ráðstefnur með stjórnendum og eigendum Íslenska kalkþör- ungafélagsins. Hann segir mikla þróunarvinnu í gangi á afurðum kalkþörunga og þangs. Stærstur hluti afurðanna fari til húsdýra- fóðurs en stækkandi hluti fari til manneldis. Einnig sé verið að skoða möguleika á að nota kalkþörunga til lækninga á krabbameini, með svonefndri nanótækni. Eigendur félags- ins eru í samstarfi við bandaríska háskóla í þessu skyni. Þurrkun kalkþörunga gæti skapað allt að 42 störf ÁFORM UM KALKÞÖRUNGAVERKSMIÐJU Í SÚÐAVÍK Halldór Halldórsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.