Morgunblaðið - 22.10.2018, Síða 14

Morgunblaðið - 22.10.2018, Síða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2018 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á BAKSVIÐ Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Þegar efnahagsáföll dynja á virðist það smáum þjóðum ekki endilega til gagns að vera undir verndarvæng stærri þjóða og ríkjasambanda. Hilmar Þór Hilmarsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, segir þetta hafa komið í ljós þegar Eystrasalts- löndin tókust á við afleiðingar alþjóð- legu fjármálakreppunnar. Var þeim ekki gefinn kostur á að fella eigið gengi og voru beitt þrýstingi til að leysa fjármálageirann úr snörunni á kostnað almennings. „Lönd með sveigjanlegri efnahags- stefnu – þ.e. sjálfstæðan gjaldmiðil og meira frelsi í ríkisútgjöldum – geta vænst þess að ná meiri árangri en lönd sem tekið hafa upp evruna og þurfa að beita miklu aðhaldi í ríkis- fjármálum samkvæmt forskrift myntbandalagsins,“ segir hann. „Fastgengisstefna samhliða miklum niðurskurði í ríkisfjármálum er held- ur ekki líkleg til að leiða til mikils hag- vaxtar, sér í lagi í hjá nýmarkaðsríkj- um eins og Eystrasaltsríkjunum.“ Hilmar er höfundur nýrrar bókar um þessi mál: The Economic Crisis and its Aftermath in the Nordic and Baltic Countries: Do as We Say and Not as We Do, og er hún gefin út af Routledge. Erlent fjármagn blés upp banka- og fasteignabólu Í bókinni ber Hilmar saman hvern- ig Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin hafa tekist á við fjármálakreppur og skoðar hann m.a. bankakreppuna í Finnlandi og Svíþjóð 1992 og afleið- ingar alþjóðlegu fjármálakreppunnar í Eystrasalti 2008. „Á Norðurlöndunum var varla, að Íslandi undanskildu, hægt að tala um alvarlega kreppu árið 2008 og helst í Finnlandi að samdrátturinn hafi orðið ögn skarpari. Er réttara að tala um skammvinna niðursveiflu hjá Noregi, Danmörku, Svíþjóð og Finnlandi á meðan Eystrasaltsríkin glímdu við mun alvarlegra áfall enda hafði hag- vöxturinn þar árin fyrir hrun einkum verið drifinn áfram af erlendu fjár- magni, aðallega frá Norðurlöndun- um, sem streymdi inn í bankageirann og kynti undir banka- og fasteigna- bólu.“ Að sögn Hilmars flækti það stöðu Eystrasaltsríkjanna að efnahags- stefna þeirra hefur byggt á að reyna að laða að erlenda fjárfesta með lág- um sköttum, litlu regluverki og smáu félagslegu kerfi. Þegar höggið kom hafi úrræði stjórnvalda verið fá og engir góðir valkostir í boði. „Sænskir aðilar höfðu verið duglegastir að fjár- festa í bankageirum landanna og var t.d. forsætisráðherra Lettlands boð- aður til fundar á Arlanda-flugvelli þar sem sænski fjármálaráðherrann lagði honum línurnar um hvernig ætti að bregðast við fjármálahruninu.“ ESB og Svíar leyfðu ekki gengisfellingu Eystrasaltslöndin, sem nota evr- una í dag, höfðu á þessum tíma tengt gjaldmiðla sína við evrópska gjald- miðilinn. Segir Hilmar að hugmynd þarlendra stjórnmálamanna hafi meðal annars verið sú að með því að eiga í sem nánustu sambandi við ESB yrðu Eistland, Lettland og Litháen betur varin gegn mögulegum yfir- gangi Rússa og betur stödd í fé- lagsskap stórþjóða Evrópu en ein og afskipt. Þegar á reyndi hafi hins veg- ar takmörkuð efnahagsaðstoð verið veitt og vinaþjóðirnar jafnvel gert þeim erfiðara fyrir. „Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lagði til 15% gengisfellingu í Lettlandi en því hafnaði ESB sem og Svíar sem eiga að mestu bankakerfi Lettlands, og raunar bankakerfi allra Eystra- saltsríkjanna,“ útskýrir Hilmar. „Annað var uppi á teningnum í sænsku og finnsku fjármálakreppun- um 1992 en þá felldu stjórnvöld geng- ið til að bæta samkeppnishæfni atvinnulífsins og réðust ekki í neinn niðurskurð á velferðarkerinu svo nokkru næmi ef borið er saman við það sem gert var í Eystrasaltsríkj- unum 2008. Svipað sjáum við gerast á Íslandi 2008 þegar gengið hrynur og fyrir vikið að staða útflutningsgreina batnar og mikill uppgangur verður í ferðaþjónustu.“ Útkoman úr aðgerðunum 2008 varð sú að efnahagur Eystrasaltsríkj- anna var lengur að jafna sig og lífs- kjör almennings versnuðu mikið. Ástandið jók enn frekar á fólksflótta frá löndunum þremur og er sú staða núna komin upp að Eystrasaltsríkin eru lent í vítahring þar sem unga og vel menntaða fólkið sem gæti eflt hagkerfið leitar út í heim eftir betri tækifærum og auknum lífsgæðum. Segir Hilmar að fólksflóttinn hafi verið svo mikill að tölur um að at- vinnuleysi sé á niðurleið gefi ranga mynd því í stað þess að mæla göt- urnar heima fyrir taki unga og menntaða fóllkið stefnuna á Þýska- land, Skandinavíu og Bretland þar sem betri tækifæri bjóðast. „Hag- vöxtur í Eystrasaltsríkjunum hefur líka verið hægur eftir hrun og hag- vöxtur á mann kann að vera ofmetinn því ungt menntað fólk flýr þessi lönd í mörgum tilvikum eftir útskrift úr há- skóla frekar en að fara á vinnumark- aðinn.“ Taki upp breytta stefnu Spurður hvað Eystrasaltslöndin ættu til bragðs að taka segir Hilmar að þessi ríki, og önnur smáríki, mættu gæta sín á að vera harðari í samskipt- um sínum við stærri ríki og ríkjasam- bönd eins t.d. ESB. „Ég held að bæði Svíþjóð og Evrópusambandið skuldi þessum löndum miklu meiri aðstoð og að eðlilegt væri að láta rannsókn fara fram á því hvernig samskiptunum við ESB og sænsk stjórnvöld var háttað í fjármálakreppunni. Væri líka æskilegt að ráðast í breytingar á skattkerfum Eystra- saltsríkjanna með það að markmiði að þeir sem hafa efni á því borgi meira í sameiginlega sjóði og axli hlutfalls- lega þyngri byrðar svo að svigrúm skapist til að efla mennta- og heil- brigðiskerfið, létta byrrðum af þeim sem hafa úr minnstu að moða og búa til mannvænna samfélag sem vonandi verður til þess að löndin missi færra ungt hæfileikafólk til ríkari landa.“ Sveigjanleg efnahags- stefna er styrkleiki Afskipti „AGS lagði til 15% gengisfellingu í Lettlandi en því hafnaði ESB sem og Svíar,“ segir Hilmar um viðbrögðin við fjármálakreppunni.  Kom sér illa fyrir Eystrasaltslöndin að geta ekki fellt gengið í fjármálakreppu 22. október 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 117.42 117.98 117.7 Sterlingspund 153.02 153.76 153.39 Kanadadalur 89.99 90.51 90.25 Dönsk króna 18.03 18.136 18.083 Norsk króna 14.238 14.322 14.28 Sænsk króna 13.001 13.077 13.039 Svissn. franki 117.89 118.55 118.22 Japanskt jen 1.0442 1.0504 1.0473 SDR 163.16 164.14 163.65 Evra 134.52 135.28 134.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 163.7355 Hrávöruverð Gull 1228.25 ($/únsa) Ál 2007.0 ($/tonn) LME Hráolía 79.44 ($/fatið) Brent Tansaníski milljarðamær- ingurinn Mo- hammed Dewji fannst heill á húfi í Dar es Salaam á laugardag. Dewji, sem er 43 ára gamall og yngsti millj- arðamæringur Afríku, var numinn á brott af mannræningjum 11. október síð- astliðinn þegar hann var á leið- inni í líkamsrækt. Að sögn Bloomberg stendur leit að mannræningjunum enn yf- ir en fjölskylda Dewjis hafði boð- ið hálfa milljón dala í verðlaun fyrir upplýsingar sem leitt gætu til þess að honum yrði bjargað. ai@mbl.is Milljarða- mæringur hólpinn Mohammed Dewji ● Í lok þessa mánaðar verður tækniris- inn Google að hækka það gjald sem snjallsímaframleiðendur greiða fyrir að selja síma með hugbúnaði á borð við leiðsöguforritið Google Maps og vafr- ann Chrome. Er þetta gert í samræmi við úrskurð Evrópusambandsins um að viðskiptahættir Google brjóti gegn samkeppnislögum. Að sögn Reuters gæti gjaldið numið allt að 40 dölum á hvert símtæki en upphæðin ræðst m.a. af stærð símans sem um ræðir og í hvaða landi hann er seldur. Að meðaltali ætti gjaldið að vera um það bil 20 dalir á hvert tæki. Framkvæmdastjórn ESB komst að þeirri niðurstöðu í júlí að Google hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína með því að hafa í reynd þvingað fram- leiðendur snjalltækja sem nota Andr- oid-stýrikerfið til að láta forritapakka Google fylgja hverjum síma. ai@mbl.is Google þarf að hækka verðið á snjallforritum Slagur Breytingin er til komin vegna úrskurðar framkvæmdastjórnar ESB. STUTT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.