Morgunblaðið - 22.10.2018, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2018
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Einstök
jólagjöf
Barna-
mynda-
tökur
STOFNAÐ 1956
Glæsileg íslensk
hönnun og smíði
á skrifstofuna
Bæjarlind 8–10
201 Kópavogur
Sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is
Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir
arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi
sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni
klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem
er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni.
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Donald Trump Bandaríkjaforseti
lýsti því yfir síðastliðinn laugardag
að Bandaríkin hygðust rifta afvopn-
unarsáttmála sem gerður var við
Sovétríkin á níunda áratugnum.
Ástæða ákvörðunar Trumps er
meint samningsrof af hálfu Rússa
en Rússar hafa nokkrum sinnum
verið sakaðir um að þróa eldflaugar
sem bannaðar eru í sáttmálanum
síðustu árin. Frá þessu er greint á
Reuters, The Guardian og AFP.
Samningurinn var undirritaður af
Ronald Reagan Bandaríkjaforseta
og Mikhaíl Gorbatsjev, aðalritara
sovéska kommúnistaflokksins, í
Washington árið 1987. Samningur-
inn kvað á um að bæði ríkin skyldu
farga stuttdrægum landvarnareld-
flaugum og meðallangdrægum
kjarnorkueldflaugum.
„Hafa samninginn að
háði og spotti“
„Rússland hefur því miður ekki
heiðrað samkomulagið svo við ætl-
um að rifta samkomulaginu og
draga okkur út,“ sagði Trump við
blaðamenn að lokinni fjöldasam-
komu stuðningsmanna sinnna í
Nevada. „Rússar hafa brotið á sam-
komulaginu. Þeir hafa brotið á því í
mörg ár. Ég veit ekki hvers vegna
Obama forseti samdi ekki eða rifti
því. Og við ætlum ekki að leyfa þeim
að brjóta á kjarnorkusamningi og
leyfa þeim að búa til vopn á meðan
við megum það ekki.“
Ákvörðun Trumps hefur vakið
misjöfn viðbrögð á alþjóðavísu.
Gavin Williamson, varnarmálaráð-
herra Bretlands, hefur lýst yfir
stuðningi við ákvörðunina fyrir
hönd bresku ríkisstjórnarinnar, og
hvatti Kremlverja til þess að „gera
hreint fyrir sínum dyrum“. William-
son segir að rússnesk stjórnvöld
hafi haft samninginn að háði og
spotti og Bandaríkin eigi engra ann-
arra kosta völ en rifta því.
„Bandaríkin eru auðvitað náinn
langtímabandamaður okkar og við
munum standa sem fastast með
þeim við að senda skýr skilaboð til
Rússa um að virða skuldbindingarn-
ar sem þeir hafa fallist á,“ sagði
Williamson í viðtali við Financial
Times.
Varað við „hættulegum
skrefum“
Ákvörðunin hefur vakið harðari
viðbrögð á meginlandi Evrópu og í
Rússlandi sjálfu. Mikhaíl Gorbatsj-
ev er meðal þeirra sem hafa gagn-
rýnt hana: „Er virkilega svona erfitt
að skilja að það að rifta þessum
samkomulögum sýnir fram á dóm-
greindarleysi?“ spurði Gorbatsjev í
viðtali við fréttaveituna Interfax.
„Öll samkomulögin sneru að af-
kjarnavopnun og halda verður í tak-
markanir á kjarnavopnum til þess
að bjarga lífi á jörðinni.“
Sergei Rjabkov, aðstoðarutanrík-
isráðherra Rússlands, varaði við því
að Bandaríkjamenn tækju „mjög
hættulegt skref“ með því að rifta
samkomulaginu. Rjabkov hélt því
jafnframt fram að Rússar hefðu
ávallt virt skilmála samkomulagsins
og sagði að Bandaríkin stæðu
frammi fyrir alþjóðlegri fordæm-
ingu fyrir að sækjast með þessu
móti eftir „algerum yfirburðum“ í
hernaðarmálum. Rjabkov hét því að
Rússar myndu ekki taka því þegj-
andi og hljóðalaust ef Bandaríkja-
menn drægju sig út úr samkomulag-
inu en fór ekki nánar út í það hver
viðbrögð þeirra yrðu.
Ríkisstjórn Þýskalands lýsti yfir
vonbrigðum með ákvörðun Banda-
ríkjaforseta. Heiko Maas, utanríkis-
ráðherra Þýskalands, sagði að
Bandaríkin ættu að hugsa um afleið-
ingar þess að ógilda sáttmála sem
ætlað væri að þurrka út heila teg-
und kjarnorkuvopna. „Sáttmálinn
hefur í 30 ár verið mikilvæg burðar-
súla evrópska öryggiskerfisins,“
sagði Maas í yfirlýsingu í gær. „Við
höfum oft hvatt Rússa til þess að
taka til skoðunar alvarlegar ásak-
anir um að þeir séu að brjóta á sátt-
málanum. Við hvetjum nú Banda-
ríkin til að íhuga hugsanlegar
afleiðingar.“
BNA rifta kjarnorku-
sáttmála við Rússa
Segja Rússa hafa „brotið á samkomulaginu í mörg ár“
AFP
BNA Trump lýsti því yfir á laugardag að hann myndi rifta afvopnunar-
samkomulagi við Rússa vegna brota þeirra gegn samningnum.
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Bretland, Frakkland og Þýskaland
hafa sent frá sér sameiginlega yfir-
lýsingu þar sem löndin fordæma
morðið á sádiarabíska blaðamann-
inum Jamal Khashoggi. Í yfirlýsing-
unni lýstu fulltrúar landanna því yfir
að sú skýring Sáda að Khashoggi
hefði látist í slagsmálum þyrfti frek-
ari rökstuðning til þess að geta talist
trúverðug. Frá þessu var sagt á
fréttavef BBC.
Samkvæmt frétt Le Monde um
mál Khashoggis, sem sást síðast
ganga inn í sendiráð Sádi-Arabíu í
Istanbúl, segjast Sádar ekki vita
hvar lík hans er. „Við höfum upp-
götvað að hann var drepinn í sendi-
ráðinu,“ sagði sádiarabíski utanrík-
isráðherrann Adel al-Jubeir í viðtali
við Fox News í gær. „Við vitum ekki
hvernig það gerðist í neinum smá-
atriðum. Við vitum heldur ekki hvar
líkið er. Einstaklingarnir sem unnu
verkið fóru út fyrir ábyrgðarsvið
sitt. Gríðarleg mistök voru gerð og
urðu enn verri vegna tilraunar
þeirra til að breiða yfir verknaðinn,“
sagði Adel al-Jubeir og bætti við að
krónprinsinn Múhameð bin Salman,
sem gjarnan er talinn hinn óformlegi
leiðtogi Sádi-Arabíu, hefði ekkert
vitað um málið. Jafnframt væri
Salman konungur staðráðinn í að
finna og refsa sökudólgunum.
Fulltrúar ESB segja gloppur í
frásögn Sáda og hafa óskað eftir
sjálfstæðri rannsókn á málinu.
Recep Tayyip Erdogan Tyrk-
landsforseti lofaði í gær að varpa
ljósi á málið. „Við viljum sjá fram-
gang réttlætisins og allur sannleik-
urinn verður því afhjúpaður,“ sagði
hann á fjöldasamkomu í Istanbúl.
Erdogan segist ætla að flytja yfir-
lýsingu um málið á morgun.
Dauði Khashoggis
„gríðarleg mistök“
Efasemdir um skýringar Sáda
AFP
Sádi Adel al-Jubeir, utanríkis-
ráðherra Sádi-Arabíu.
Atvinna