Morgunblaðið - 22.10.2018, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 22.10.2018, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2018 ✝ Daníel Guð-brandsson fæddist í Reykjavík 19. maí 1961. Hann varð bráðkvaddur 5. október 2018. Foreldrar hans voru Áshildur Est- er Daníelsdóttir, húsmóðir, f. 1940 á Kollsá í Hrútafirði, og Guðbrandur Árnason, hag- ráðunautur, f. 1938 í Reykjavík, d. 2016. Bræður Daníels eru Árni Guðbrandsson, f. 1964, og Guð- brandur Guðbrandsson, f. 1966. Daníel kvæntist Birnu Bene- barn þeirra er Þórhildur Sara, f. 2018. Daníel ólst fyrstu árin upp á Tómasarhaga í Reykjavík. Á af- mælisdegi Daníels árið 1973 flutti fjölskyldan á Hjallaveg í Reykjavík. Þar bjó hann þegar hann kynntist Birnu og hófu þau sambúð þar. Eftir grunnskóla- nám fór hann í Menntaskólann við Sund og lauk þaðan stúd- entsprófi vorið 1981. Í kjölfarið starfaði hann sem sölumaður hjá S. Óskarssyni í nokkur ár. Daníel hóf störf hjá Egilsson ehf. árið 1988 og vann þar næstu 22 árin eða til ársins 2010. Þá söðlaði hann um og stofnaði Danson ehf., sitt eigið heildsölufyrirtæki sem hann rak síðan alla tíð. Daníel og Birna höfðu verið gift í 28 ár þegar hann féll frá. Útför Daníels fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 22. október 2018, klukkan 13. diktsdóttur, f. 26. október 1961, þann 29. september 1990 í Reykjavík. For- eldrar Birnu voru Benedikt Hafliða- son, f. 1919, d. 2004, og Þorsteina G.K. Sigurðar- dóttir, f. 1921, d. 2015. Synir Daníels og Birnu eru: 1) Steinar Þór, f. 5. apríl 1986, maki Ólöf Jóna Æv- arsdóttir, f. 1993, börn þeirra eru Benedikt Andri, f. 2014, og Matthildur Vala, f. 2016, 2) Guð- brandur, f. 23. ágúst 1993, maki Kristþóra Gísladóttir, f. 1995, Elsku tengdapabbi okkar er fallinn frá, langt fyrir aldur fram. Danni Danson eins og við áttum til að kalla hann var góður sölumað- ur, algjörlega hreinn og beinn. Honum þótti vinnan sín skemmti- leg, enda þekkjum við fáa sem nenna að vinna jafn mikið og hvað þá að keyra hringinn um landið, einn! Hann var kurteis, með hjart- að á réttum stað, lífsglaður, mikill húmoristi og alls ekki væminn, svo við reynum að skrifa sem minnst væmið. Hann var dásamlegur afi og á Benedikt Andri, besti afa- strákurinn hans, eftir að sakna hans sárt. Við vorum báðar á 20. aldursári þegar við komum inn í fjölskyld- una og frá degi eitt var okkur tek- ið opnum örmum. Það var alltaf líf og fjör í kringum Danna, hann bjó yfir þeim hæfileika að vera góður að segja sögur, með mikilli innlif- un og góðu gríni. Danni og Birna voru ótrúlega samstiga enda lang- bestu vinir, missirinn fyrir elsku Birnu er mikill. Steinar Þór og Guðbrandur voru miklir pabba- strákar enda var Danni með ein- dæmum góður pabbi og höfðu feðgarnir mjög gaman af því að vera saman. Allt sumar feðganna fór í að gera upp baðherbergið í Akró og gerðu strákarnir mikið grín að pabba sínum í gegnum það ferli. Tengdapabba og afa verður sárt saknað og við höldum fast í allar fallegu minningarnar. Takk fyrir allt og allt. Kveðja, tengdadætur þínar úr sveitinni, Kristþóra og Ólöf Jóna. Elsku Danni bróðir, ég veit að þú lest þetta og ætla því að reyna að gera mitt besta til að þú skammist þín ekki fyrir litla bróð- ur. Danni var ótrúleg manneskja sem auðgaði allt í kringum sig og gerði allt betra. Danni sá um okk- ur yngri bræðurna, mig og Árna, frá unga aldri á þeim tíma þegar foreldrar okkar voru í vinnu, þá bjuggum við á Tómasarhaga 9. Sú pössun fólst oftast í því að nota okkur dvergana í kerrukappakst- ur niður Tómasarhagann þar sem Bingi og Danni kepptu, tilraunir með flugelda og brunaþol yfir- hafna okkar bræðra eða hve lengi við hefðum þol í góða hnefaleika- keppni á móti eldri bróður, sem endaði alltaf á einn veg þegar Danni var búinn að missa áhug- ann. Á unglingsárum Danna, eftir að við vorum flutt á Hjallaveginn, fylgdum við Danna í ýmiss konar ævintýri. Alltaf var hann til staðar þegar við þurftum á honum að halda, sýndi ótrúlega væntum- þykju fyrir bræðrum sínum og þoldi alls ekki að sjá okkur þjást eða verða undir einhvers staðar. Hann bjargaði okkur litlu aulun- um oftar en ekki úr vandræðum sem við höfðum komið okkur í, þar sem brjálaður ökumaður elti okk- ur eftir að hafa fengið snjóbolta- skothríð í bílinn hjá sér eða veg- farandi vatnsblöðru í bakið á köldum vetrardegi. „Ekki segja pabba“ var oftast það eina sem við gátum sagt og hann átti því stóra greiða inni hjá okkur sem hann nýtti í alls kyns þjónustu sem við þurftum að sinna, eins og að hlaupa út á Sunnutorg að kaupa Sinalco og sígó eða þrífa bílinn. Á þessum árum kynnti hann fyrir fjölskyldunni Birnu sína sem var hans stoð og stytta allt til endaloka eða yfir 40 ár. Ást þeirra er ótrúlega falleg og sönn og sýnir hve mikilvægt er að rækta sam- bandið og eins hve Danni umvafði það sem honum var kærast. Fjöl- skyldan var Danna allt og þegar tveir fallegir synir þeirra voru komnir í hans líf fannst honum líf- ið fullkomið. Danni var afar vinnu- samur og duglegur og hefur kennt sonum sínum þann hátt sem sést á þeim gríðarlega dugnaði og elju sem þeir tveir og Birna hafa sýnt við að halda fyrirtæki Danna gangandi á þessum erfiðu tímum eftir að hann féll frá. Það er með ólíkindum að sjá hvað þau heiðra hans minningu með þeirri vinnu en einnig að sjá hve Danni var stór karakter í augum viðskiptavina sinna og hve mikið hann hafði unnið sér inn með mikilli vinnu og þjónustulund. Allt tekur þetta enda og við yfirgefum þetta líf ein- hvern tíma en Danni fór allt of snemma og allt of brátt. Enn og aftur: þar sem ég veit að þú lest þetta, því þú last allar minning- argreinar á lífi, þá get ég ekki lýst því hve mikið ég sakna þín, hve mikið ég elskaði þig og hve mikil- vægur þú varst mér hér á jörð. Þú varst alltaf fyrirmyndin mín, ég vildi alltaf verða eins og stóri bróð- ir minn, þú varst fyndnasti maður sem ég þekkti, þú varst besti, besti, besti bróðir minn (fyrir- gefðu Árni, þú ert líka ágætur). Í hinu sérkennilega orðavali okkar bræðranna langar mig að enda á þessu: „Halló bátar, halló skip, var einhver að kalla á Narfa – haltu samt kjafti.“ Farðu vel með þig, Danni minn, þangað til við knús- umst næst. Bróðir að eilífu, Guðbrandur Guðbrandsson (Búbbi litli bróðir). Það er ólýsanlega erfitt að setj- ast niður og skrifa minningar- grein um hann Danna bróður minn. Við vorum þrír bræðurnir og það var oft mjög fjörugt og mikil læti á æskuheimilinu, fyrst á Tóm- asarhaga og svo á Hjallaveginum. Danni var elstur af okkur, ég miðjubarnið og svo var Búbbi litli yngstur. Danni fékk snemma það hlutverk að passa okkur geml- ingana og oft fannst honum við ekkert sérstaklega hlýðnir og lét okkur heyra það ef við vorum ekki þar sem hann ætlaði að geyma okkur meðan hann lék sér við vini sína. Það var barnmargt á Tóm- asarhaganum á þessum árum og mikið leikið saman og margt brall- að. Þrátt fyrir að tekist væri stundum á var samband okkar bræðranna alltaf gott og við góðir vinir. Það sést vel á gömlu „slides“-myndunum sem pabbi tók, oftast yfir jólahátíðirnar. Æsku- og unglingsárin á Hjalla- veginum voru einnig mjög fjörug. Á unglingsárunum hafði Danni mikinn áhuga á að vera snyrtileg- ur og töffaralegur og var mjög laginn við að blása á sér hárið. 15 ára kynntist hann Birnu sinni í Langholtsskóla og fljótlega fóru þau að búa saman í kjallara- íbúðinni hjá foreldrum okkar. Þau stofnuðu svo heimili saman og eignuðust tvo yndislega syni. Fjöl- skylda Danna og Birnu hefur allt- af verið einstaklega ástrík og sam- heldin. Birna og strákarnir voru í miklu fyrirrúmi hjá Danna og hann naut sín best með þeim. Eftir menntaskóla fór Danni að vinna við ýmis sölustörf og síðustu árin rak hann sitt eigið heildsölu- fyrirtæki þar sem meginuppistað- an var sala á jólavörum. Danni fór alltaf nokkrum sinnum á ári í sölu- ferðir um landið og á þessum ferð- um hringdi hann oft í okkur fjöl- skylduna til að stytta sér stundir við aksturinn. Voru þessi símtöl alltaf mjög skemmtileg og eins og svo oft áður endaði hann þau á sinn einstaka hátt, með orðunum: „En haltu samt kjafti.“ Húmorinn og grínið voru ávallt áberandi í samskiptum okkar bræðranna og þegar við komum saman á fullorð- insárunum var iðulega verið að rifja upp gömul prakkarastrik og sögur. Ég mun sakna Danna bróður míns mjög mikið en góðar minn- ingar hugga. Síðasta skiptið sem ég hitti Danna var daginn áður en hann lést, við hittumst heima hjá mömmu og yfir kaffibolla rifjuð- um við sem fyrr upp gamlar sögur og hlógum saman. Við heimferð kvöddumst við með innilegu faðm- lagi og ætluðum að hittast fljót- lega. Hugur minn er nú hjá mömmu, Birnu og strákunum, þeim Steinari og Bóbó, og litlu fjölskyldunum þeirra. Megi Guð halda verndarhendi yfir þeim í sorginni. Hvíl í friði, Danni minn. Árni. Kær vinur minn og svili, Daníel Guðbrandsson, er látinn langt um aldur fram. Það var mikið áfall að fá þær fréttir hinn 5. október sl. að hann hefði orðið bráðkvaddur fyrr um morguninn. Áfallið er þó mest hjá hans elskaðri fjölskyldu. Miss- ir þeirra er mikill. Á þessum sorglegu tímamótum leitar hugurinn til baka, til gleði- stunda sem við áttum saman. Tengsl og vinskapur fjölskyldna okkar var mikill og einlægur. Það var ýmislegt brallað á þeim 40 ár- um sem við höfum þekkst. Útileg- urnar á yngri árum, matarboðin, fjölskylduboðin, sumarbústaðar- ferðirnar, alltaf mikið fjör þar og Danni oftast hrókur alls fagnaðar. Danni var einfaldlega þannig að það var alltaf gaman að vera í kringum hann. Hann var mjög stríðinn en fór aldrei yfir strikið. Við tókum upp á því að setjast á skólabekk við Endurmenntun Há- skóla Íslands. Það voru góðar og gefandi stundir. Þá datt golfið inn hjá okkur fyrir nokkrum árum, fórum m.a. í frábæra golfferð til Valle De Este á Spáni ásamt eig- inkonum okkar. Margt fleira mætti nefna. Danni var mikill fjölskyldumað- ur og er alveg ljóst að Birna og strákarnir þeirra, Steinar Þór og Bóbó, voru hans allra bestu vinir. Síðar komu tengdadæturnar Ólöf og Kristþóra til sögunnar og þrjú yndisleg barnabörn. Birna mín, Steinar Þór, Bóbó og fjölskyldur, Ása og allir ástvin- ir, megi góður Guð styrkja ykkur á þessum erfiða tíma. Sorgin er mikil því að ástin og kærleikurinn var svo mikill. Kæri vinur, hvíl í friði. Steindór. Elsku Danni okkar. Takk fyrir vináttuna, hláturinn, gleðina og samfylgdina í rúm 40 ár gegnum lífið. Ferðalögin saman, innanlands sem utanlands, og matarboðin þar sem við fimm vor- um saman og mikið var hlegið. Við erum þakklát að hafa fengið að vera partur af þínu lífi, þínu og Birnu, þið voruð svo samrýmd hjón og bestu vinir. Við kveðjum þig með söknuði í hjarta. Ég kveð þig nú kæri vinur, Kveð þig í hinsta sinn. Íslenski eðalhlynur, einstaki vinur minn. (Valdimar Lárusson) Birnu, Steinari, Guðbrandi, tengdadætrum og barnabörnun- um, sem lýstu hjartað þitt þegar þú talaðir um þau, móður þinni, bræðrum og fjölskyldum sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Leifur, Helga og Hanna. Elsku Danni minn. Ég á mjög erfitt með að átta mig á því að þú hafir kvatt okkur svona snemma. Ég brosi og tárast til skiptis við að rifja upp þær minningar sem við eigum saman í Akraseli. Þegar ég var yngri var fátt betra en að fá að gista hjá ykkur Birnu um helgar. Það átti senni- lega stóran þátt að hitta Bóbó og Steinar og spila Football Manager og Rome langt fram á nótt. Ástin og vináttan var svo mikil á milli okkar allra að mér hefur alltaf lið- ið eins og þriðja syninum. Þér fannst fátt skemmtilegra en að stríða og láta fólk fara hjá sér. Ég gleymi því seint þegar ég var nýbyrjaður að vinna og ég sat inni á kaffistofu með samstarfs- félögum og allir hrukku við. Stóð þá minn maður í dyragættinni eft- ir að hafa hrópað yfir hópinn með miklu gríni „mér finnst svo gaman í sveitinni“. Allir horfa hver á ann- an og velta því fyrir sér hver þessi maður sé, þar til ég stóð upp vand- ræðalegur og sagði „hæ Danni minn“. Sögur sem þessar, ásamt ferðum upp í bústað við Apavatn um verslunarmannahelgi, matar- boð í kjúklingavængina hennar Birnu, heimsóknir til ykkar á að- fangadag og margar aðrar minn- ingar, eru það sem ég mun ávallt varðveita. Það verður tómlegt án þín í Akraseli en ég veit að þú munt vaka yfir okkur. Elska þig Danni, „Mamahúhú“. Gunnar Helgi Steindórsson. Í dag kveðjum við kæran æsku- vin, Daníel Guðbrandsson, hann Danna eins og við kölluðum hann, en hann lést óvænt og langt um aldur fram aðeins 57 ára. Danni var hrókur alls fagnaðar og ekki var komið að tómum kof- unum hjá honum ef gamanmál voru á ferðinni. Hann hafði gott skopskyn og hafði unun af því að segja gamansögur. En hann var líka einlægur og traustur vinur. Á hugann leita margar minn- ingar um allar þær góðu samveru- stundir sem við höfum átt saman. Minningar um ánægjustundir í matarklúbbnum undanfarna ára- tugi og á Akureyri nú í lok sept- ember. Minningar sem munu lifa áfram. Sá sem sat við hliðina á Danna við matarborðið mátti allt- af búast við einhverju óvæntu. Hann gat komið með einhverja frasa upp úr þurru, góða brandara eða þá að menn fengju klip í hnés- bótina eða síðuna. Það var auðvit- að karlpeningurinn sem átti von á klipi því herramaðurinn Danni hefði aldrei farið að klípa kven- fólkið. Matarklúbburinn hefur hist 4-5 sinnum á ári í áratugi og farið í styttri ferðir hér heima og einnig erlendis. Alltaf hefur hópurinn staðið saman og eigum við margar skemmtilegar minningar um Danna. Í skíðaferð fyrir margt löngu kom íþróttamaðurinn fram í Danna þegar hann skíðaði eins og þrælvanur skíðamaður þrátt fyrir að hafa ekki farið á skíði í fjölda ára. Á árum áður var oft farið í körfubolta og þar var Danni í ess- inu sínu og keppnismaðurinn Danni þoldi ekki að tapa. Birna og Danni hafa alla tíð verið drífandi í að hópurinn komi saman og það er ekki síst þeim hjónum að þakka hvað matar- klúbburinn okkar hefur dafnað vel og lengi. Birna og Danni hafa ver- ið lengur saman en elstu menn muna og einhver sagði að Danni hefði líklega lært að ganga til þess að geta elst við Birnu sína. Ein úr matarklúbbnum varð þannig óvænt vitni að því þegar maður á rauðu ljósi hoppaði út úr bíl sínum með músíkina á fullu og byrjaði að dansa á umferðareyj- unni. Auðvitað var það Danni að dansa við Birnu sína sem var í næsta bíl á eftir. Engum nema Danna hefði dottið þetta skemmti- lega uppátæki í hug og þorað að framkvæma það. Jólaklúbburinn hefur oft verið haldinn hjá Birnu og Danna, enda varla hægt að hafa jólalegra en hjá þeim hjón- um, fallega jólatréð og jólaskreyt- ingarnar guðdómlega smekkleg- ar, enda vann Danni meðal annars við að selja ýmsar jólavörur. Og ekki var síður frábær matur og fá- ir geta toppað alvöru nauta- steikina hans Danna, hvað þá heit- reykta laxinn svo fátt eitt sé nefnt. Það voru líka mjög ánægjuleg- ar stundir sem hluti af okkur átti með Danna í golfferðinni til Eng- lands nú í lok september síðastlið- ins. Hverjum gat dottið í hug að við ættum ekki eftir að spila golf oftar saman? Elsku Birna, Steinar Þór, Guð- brandur og fjölskylda, það er þyngra en tárum taki að hann Daníel skuli hafa verið tekinn frá okkur í blóma lífsins, hans er sárt saknað en fallegar minningar lifa. Guðni og Svanlaug Ingvar og Helga Kristján og Kristín Þór og Kristjana Katrín. Kæri vinur og félagi, Daníel Guðbrandsson, eða Danni eins og við kölluðum þig, ert farinn í þessa langferð sem kom öllum að óvör- um en við förum öll að lokum. Það var ekki kominn tími á þessa ferð hjá þér en svona getur heilsan brugðist með engum fyrirvara. Við félagarnir ég, þú og Kjartan ætluðum að hittast og borða sam- an heima hjá mér laugardaginn 6. október. Það var erfitt að heyra um morguninn að þú værir dáinn. Kjartan Már Másson kom til mín eins og fyrirhugað var og við eig- inlega biðum eftir að þú kæmir. Við litum oft á hurðina en dyrnar opnuðust ekki. Við félagarnir erum búnir að þekkjast síðan þið voruð hjá Egilsson og ég hjá Múlalundi þar sem ég starfa enn. Samskipti okk- ar voru mikil þó að við værum ekki að vinna hjá sama fyrirtæki. Þú varst sannur vinur og hafðir það fyrir reglu að standa við það sem þú sagðir. Það sem var sagt var eins og skriflegt og hefðu margir gott af því að læra þessa reglu í dag. Það var alltaf gaman að hitta þig og þú varst ekkert að skafa af hlutunum ef þér fannst eitthvað að. Þetta eru komin yfir 22 ár sem við höfum þekkst og þegar ég hugsa til baka hefur aldrei komið fyrir að við höfum rifist. Alltaf sáttir og alltaf hægt að brosa. Við hittumst erlendis á sýningum og það fór aldrei svo að við ræddum ekki saman þó að það væri stund- um flýtir á okkur. Við vorum búnir að plana að útvíkka þennan fé- lagsskap okkar en einhvern veg- inn höfðum við aldrei tíma. Vinnan eða einhver ferðalög að þvælast fyrir okkur. Þú varst mikill vinur og hafðir gaman af því að hitta okkur Kjart- an. Ég hitti þig daginn áður en þú lést og þú varst svo glaður yfir því að við ætluðum að snæða saman. Þú sem varst hvað spenntastur að mæta komst ekki og það veldur því að maður fer að hugsa um tímaleysið. Við töluðum stutt sam- an þegar við hittumst því við ætl- uðum að gefa okkur góðan tíma á laugardag. En þú hafðir gilda af- sökun. Við Kjartan eigum eftir að sakna þín mikið. Birnu, Guð- brandi, Steinari, öðrum ættingj- um og vinum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Hvíl í friði, kæri vinur. Helgi Kristófersson, Kjartan Már Másson. Daníel Guðbrandsson HINSTA KVEÐJA Sérhver draumur lifir aðeins eina nótt sérhver alda rís en hnígur jafnan skjótt hverju orði fylgir þögn og þögnin hverfur alltof fljótt. En þó að augnablikið aldrei fylli stund skaltu eiga við það mikilvægan fund því að tár sem þerrað burt aldrei nær að græða grund. Líttu sérhvert sólarlag, sem þitt hinsta væri það. Því morgni eftir orðinn dag enginn gengur vísum að. Þú veist að tímans köldu fjötra enginn flýr enginn frá hans löngu glímu aftur snýr. Því skaltu fanga þessa stund því fegurðin í henni býr. (Bragi Valdimar Skúlason) Elsku Danni. Við þökk- um allt, vináttuna, grínið og gleðina. Þín verður sárt saknað en minningarnar ylja. Fyrir hönd fjölskyldunn- ar í Vesturási, Ingibjörg Benediktsdóttir. Elskulegur sambýlismaður, faðir, tengdafaðir, afi og bróðir, ÚLFAR EYSTEINSSON, Leiðhömrum 44, Reykjavík, lést miðvikudaginn 10. október. Útför hans verður gerð frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 24. október klukkan 15. Ingibjörg Ólöf Magnúsdóttir Stefán Úlfarsson Bjarklind Guðlaugsdóttir Guðný Úlfarsdóttir Heimir Helgason barnabörn, barnabarnabörn og systkini hins látna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.