Morgunblaðið - 22.10.2018, Page 20

Morgunblaðið - 22.10.2018, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2018 ✝ Geir Krist-jánsson fædd- ist í Reykjavík 12. janúar 1924. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 12. október 2018. Foreldrar hans voru Kristján Júl- íusson, f. 25. októ- ber 1889, d. 1986, og Geirlaug Páls- dóttir, f. 3. nóvem- ber 1886, d. 1954. Systkini Geirs eru Ingibergur, f. 1916, d. 1984. Sólveig, f. 1917, d. 2005. Pálína, f. 1918, d. 1935. Svava, f. 1922, d. 2015. Fann- ey, f. 1925, d. 2018. Júlíus, f. 1926, d. 2010. Adolf, f. 1927, d. 2016. Guðrún, f. 1930, bú- sett í Hveragerði. Geir giftist Guðfinnu Karls- dóttur, f. 16 janúar 1929, d. 7. júní 2016. Börn þeirra eru: 1) bert, f. 1949. Kona hans er Sigríður Ólafsdóttir, f. 1951. Saman eiga þau börnin a) Geir Ragnar, f. 1973, kona hans er Dröfn Stína Guð- mundsdóttir. Dóttir þeirra er Ásthildur Alda. b) Kjartan, f. 1976, kona hans er Karitas Jónasdóttir. Börn þeirra eru Dagbjört Erla, Tristan Dúi og Karen Emma. c) Róbert Ólafur, f. 1979, kona hans er Hrefna Núpdal. Börn þeirra eru Laura, Eygló og Erla. d) Finnur Örn, f. 1990. Geir Kristjánson fæddist og ólst upp í Reykjavík. Hann vann lengst af hjá Sameinuðu verksmiðjuafgreiðslunni og sá þar um skóverksmiðjuna. Er fyrirtækið lagðist af hóf hann störf hjá Brauði hf. (Myllan) og endaði starfs- ævina þar. Síðustu árin voru þau til heimilis á Skúlagötu 40. Jarðarförin fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi í dag, 22. október 2018, klukkan 13. Sólrún, f. 1947, sambýlismaður hennar er Sig- urður H. Helga- son. Hún var gift Baldri Hannes- syni, f. 1946, þau skildu. Börn þeirra eru: a) Hlynur, f. 1966, kona hans er Anna Kristín Gúst- avsdóttir, börn þeirra eru Birna Íris, Sól Mar- grét og Máni Björn. b) Lilja Björk, f. 1971, sambýlismaður hennar er Stefán Ólafur Guð- mundsson. Börn hennar eru Karen Ösp, Tinna Marín, Kristel Lind og Jökull Logi. c) Reynir, f. 1974, kona hans er Gladys Munoz, barn þeirra er Adrian Smári. Langalang- afabörnin eru tvö, þau Mar- grét Ylfa og Úlfur Ari. 2) Ró- Elsku pabbi, nú langar mig að skrifa nokkur orð um þitt æviskeið. Betri pabba var ekki hægt að hugsa sér, alltaf róleg- ur og yfirvegaður á hverju sem gekk. Pabbi var fæddur í Bjarna- borg, einn af níu systkinum sem nú eru öll fallin frá nema ein systir. Í þá daga voru börnin frjáls og léku sér oft við sjóinn fyrir neðan Bjarnaborg þar sem að minnsta kosti tvö þeirra duttu í sjóinn og voru mjög hætt komin en þeim var bjarg- að á síðustu stundu og annað af þeim var pabbi. Hann var harðduglegur, ósérhlífinn og eftirsóttur til vinnu. Hann vann í Skóverk- smiðju Reykjavíkur og var verksmiðjustjóri þar í mörg ár. Það var gaman að vera með honum í vinnunni og finna leð- urlyktina af skónum. Oft fékk ég nýja skó og oftast sýnishorn og þá var alveg sama þó að skórnir væru of litlir; ég vildi endilega eiga þá. Svo var skó- verksmiðjan flutt út á land til Egilsstaða og fylgdi hann því verkefni eftir og vann við hana þar í eitt ár og undi hag sínum vel. Pabbi vann lengi í Brauði hf. og síðan í Myllunni og var verkstjóri þar til hann varð 72 ára. Síðast bjó hann á Skúlagötu 40a, þá fannst honum hann vera kominn heim á bernsku- slóðir sínar þar sem hann lék sér í fjörunni fyrir neðan húsið og þar í kring og sagði margar sögur af því. Seinustu árin bjó hann á Hrafnistu í Hafnarfirði og tók þátt í dansi og öðru skemmtilegu á meðan heilsa leyfði. Orðatiltæki hans var „eigum við ekki að fara að sippa“ þegar hann vildi fara að halda heim úr heimsóknum og veislum. Hann hafði mjög gaman af að tefla en nú er ekki jafntefli lengur. Hvíl í friði, þín er sárt saknað. Sólrún Geirsdóttir. Það er erfitt að skrifa minn- ingargrein um hann afa Geir í fáum orðum, ég gæti skrifað heila bók um frábæran afa. Afi Geir var yndislegasti afi sem við afabörnin og langafa- börnin gátum átt, einstaklega skapgóður og hjartahlýr maður, það var alltaf stutt í hláturinn hjá honum, hann var einhvern veginn alltaf þessi hornsteinn í lífi okkar sem var alltaf til í að hlusta og gefa góð ráð. Geir afi var svona kall sem lagði sálina í allt sem hann tók sér fyrir hendur, hvort sem það var að smíða skó á Egilsstöðum eða pakka inn brauði hjá Myll- unni, hann var afar stoltur af öllu sem hann tók sér fyrir hendur. Sem barn man ég eftir því að hann var að segja manni frá innpökkunarvélinni sem hann stjórnaði og sagði manni hversu nákvæmt þyrfti að stilla þetta og hitt og manni fannst eins og hann væri að smíða geimflaug, svo mikla alúð og natni lagði hann í þau störf sem hann tók sér fyrir hendur um ævina. Afi var mjög laghentur mað- ur og var alla tíð að dunda sér við að laga hluti og smíða, heim- ili þeirra ömmu og afa bar þess mjög svo merki, allt var alltaf í 100% lagi. Man eiginlega ekki eftir afa Geir öðruvísi en að vera að mála eða lakka eitthvað, nýbúinn eða að fara að mála eða lakka. Hann var alltaf að dedúa eitthvað, annaðhvort í íbúðinni eða í bílskúrnum. Bílskúrinn var reyndar uppáhaldsstaðurinn hans afa, þar gat hann verið tímunum saman við að pússa eitthvað, saga eða skrúfa sam- an. Mér fannst sem krakka og reyndar alveg fram á fullorð- insár bílskúrinn hans vera æv- intýraheimur út af fyrir sig, þar mátti finna alls konar hluti og verkfæri, raðað upp eftir kúnstarinnar reglum og aldrei neinu hent nema það væri ekki séns að nýta það. Hann geymdi allt sem hugsanlega var hægt að nota seinna. Hann var langt á undan sinni samtíð í um- hverfisvernd. Elsku afi, hvar sem þú ert og hvert sem þú ferð, þá er ég viss um að þú ert kominn í faðm ömmu Doddu aftur, hvíl í friði. Hlynur Baldursson. Geir Kristjánsson ✝ ÞorbjörnHaukur Lilj- arsson fæddist 29. júní 1972. Hann lést 15. október 2018. Foreldrar Þor- bjarnar eru Guðrún Hauksdóttir, f. 1. september 1955, og Liljar Sveinn Heið- arsson, f. 5. desem- ber 1952. Systur Þor- bjarnar eru: Dagrún Fanný, f. 29. október 1981, sambýlis- maður hennar er Fannar Freyr Bjarnason, og Lilja Guðrún, f. 24. mars 1986, sambýlis- maður hennar er Styrmir Már Sig- mundsson. Dóttir Þor- bjarnar er Alex- andra Líf, f. 12. mars 2007, móðir hennar er Hanna Guðbjörg Þor- grímsdóttir. Útför Þorbjarnar fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 22. októ- ber 2018, klukkan 15. Að fylgja barni sínu til grafar er þyngra en tárum taki. Við það myndast tómarúm sem erfitt er að meðhöndla. Hugurinn hreinlega snýst um sjálfan sig og maður nær engum áttum. Í gær átti ég þrjú börn, í dag aðeins tvö. Myndast hefur stórt skarð í fjölskyldu okkar við fráfall þitt, elsku sonur. Líf þitt var ekki auð- velt en samskipti okkar voru alltaf ljúf. Þinn grái húmor sem allir elskuðu, hlýjan og kærleikurinn voru mest áberandi er við hitt- umst. Þú varst mikill fjölskyldu- maður og í edrúmennsku þinni var það alltaf þitt fyrsta verk að hugsa til fjölskyldu þinnar og að eiga sem flestar stundir með okkur. Svo fæddist Alexandra Líf, prinsessan ykkar Hönnu, sem þú sást ekki sólina fyrir, á sjúkrahús- inu í Hróarskeldu hinn 12. mars 2007. Hve stoltur þú varst að til- kynna mér að fallegasta barn í heimi væri fætt. Hún er líka gull- falleg, vel gefin og hjartahlý stúlka sem á erfitt með að skilja það að pabbi sé dáinn. Þú getur verið svo stoltur af henni og getur treyst því að við hjálpumst að við að hlúa að Alexöndru og hafa hana alltaf í bænum okkar og með okkur. Stundirnar með Alexöndru Líf þinni voru þér dýrmætar. Systur þínar voru þér kærar og við for- eldrarnir alltaf ofarlega í huga þínum. Samband okkar einkennd- ist af miklum kærleik. Við fjöl- skyldan þín yljum okkur nú í sorg- inni við allar þær góðu stundir sem við höfum átt saman. Er mér voru færðar þær fréttir að þú værir dáinn var það mín fyrsta hugsun hvað við nutum samverunnar um daginn. Góði Guð hvað ég er þakklát fyrir þá gæðastund. Ég sótti þig í Gistiskýlið. Ég gekk á móti þér og við föðmuðust og settumst inn í bílinn. Við héld- umst í hendur, þér var svo kalt á höndunum. Þú lagðir hönd mína á hné mitt og báðar þínar hendur ofan á mína. Þarna fann ég þinn gleymda hæfileika; heilunina. Flæðið og hitinn sem kom frá þér var ótrú- legur. Við ókum fyrst niður á Ingólfs- torg, spjölluðum við vini þína, sem gaf mér mikið og ég veit þeim líka. Við ókum áfram, þú kysstir mig oft á kinnina og við héldumst í hendur. Þú sýndir mér staðina sem þú hefur sofið á undir berum himni þegar í ekkert hús er að venda eða náðir ekki í Gistiskýlið fyrir tiltekinn tíma. Mikið þótti þér vænt um starfsfólkið í skýlinu. Það hefur reynst þér svo vel. Við héldumst í hendur í bíln- um, okkur leið vel. Við töluðum um dauðann. Þú hræddist hann ekki. Þú hefur dáið áður, verið lífgaður við og vissir hvað beið þín. Mér fannst þú svo þrútinn þennan dag og spurði þig hvort þú fyndir eitthvað til, t.d. í sam- bandi við hjartað. Þú svaraðir snöggt: „Nei! Ég er stálhraust- ur.“ Móðurhjartað og innsæið sá annað; ég sá hvað þú varst þreytt- ur, þreyttur á sál og líkama. Við ætluðum að hittast aftur um jólin er ég kæmi til Íslands og eiga aftur svona góða stund saman. Við lukum þessari gæðasam- veru okkar á Ingólfstorgi. Við fórum út úr bílnum og föðmuðust. Ég horfði á eftir þér haltra niður tröppurnar og þú blandaðist vinum þínum. Vinum þínum sem voru þínir samferða- menn án heimilis og án öryggis og hlýju. Það voru mér þung skref að stíga inn í bílinn aftur og aka í burtu. Elsku yndislegi fallegi sonur, takk fyrir samveruna, við sjáumst síðar. Þín mamma. Meira: mbl.is/minningar Það er svo skrítið að vera að skrifa minningargrein um sonar- son sinn, en svona getur lífið verið ótrúlegt! Þú komst til að kveðja í gær. Þú kvaddir og allt varð svo hljótt. Á glugganum frostrósin grær. Ég gat ekkert sofið í nótt. Hvert andvarp frá einmana sál. Hvert orð sem var myndað án hljóms nú greindist sem gaddfreðið mál í gervi hins lífvana blóms. En stormurinn brýst inn í bæ með brimgný frá klettóttri strönd. En reiðum og rjúkandi sæ hann réttir oft ögrandi hönd. Því krýp ég og bæn mína bið þá bæn sem í hjartanu er skráð. Ó, þyrmdu honum, gefðu honum grið. Hver gæti mér orð þessi láð? (Freymóður Jóhannsson) Guð styrki fjölskyldu Þorbjarn- ar Hauks á erfiðum tímum og verndi elsku dóttur hans og fjöl- skyldu hennar. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Hvíli í friði Þorbjörn Haukur. Þín amma og fjölskylda, Dagrún Kristjánsdóttir. Í fáeinum orðum vil ég minnast systursonar míns sem kvaddi þennan heim aðeins 46 ára gamall. Við erum fædd sama ár, árið 1972, og fylgdumst mikið að fyrstu árin. Hann var aldrei kallaður annað en Doddi fyrstu árin og Doddi var orkumikill, uppátækjasamur og mikill húmoristi. Við brölluðum ýmislegt og komum okkur meðal annars upp orðabanka sem enginn skildi nema við, orð eins og mjovi- nit og hrján, já skrítin orð sem okkur fannst óendanlega fyndið að nota í fáránlegum aðstæðum – og þið munuð aldrei vita hvað þau þýða. Við lékum oft á því svæði þar sem nú er Smáralind og auð- vitað í Bjarnaskógi, skóginum hans afa. Þorbjörn fluttist til Keflavíkur með fjölskyldu sinni og fór ég oft þangað. Við bjuggum stundum til kökukrem eins og sett er inn í mömmukökur og borðuðum það upp úr heilli skál, eintómt. Við horfðum líka stund- um klukkutímum saman á Skon- rokk en við vorum svo heppin að Liljar faðir hans tók upp alla þættina á beta-vídeótækið. Svo var það einn daginn að Doddi ákvað að hann héti ekki lengur Doddi. Núna skyldum við kalla hann Þorbjörn – það var jú nafnið hans. það varð úr að flestir fóru að nota Þorbjarnarnafnið og síðar einhverjir Tobbi. Eftir þennan dag notaði ég ekki aftur nafnið Doddi – Doddi var bara strákur. Þorbjörn fór á unglingsárum sínum að vinna á Kópavogshæli. Það átti vel við hann því hann var hjartahlýr og átti mjög auðvelt með að gefa af sér. Við unnum sitt á hvorri deildinni um tíma og það var auðséð að hann hafði gaman af vinnunni. Hann var oft svo fyndinn og gat sett sig í ýmis hlut- verk. Ég hefði alveg getað séð hann fyrir mér verða leikara því hann átti auðvelt með að bregða sér í ýmis líki. Hann vissi fátt skemmtilegra en að keyra mótor- hjólið sitt og geystist á því á milli staða. Það er skrítið að staldra við núna þegar hann er farinn. Maður spyr sig svo margra spurninga. Lífsins leiðin sem hann Þorbjörn frændi fór var nefnilega alveg óendanlega erfið. Hún var grýtt, með hólum og hæðum og auðvitað líka með fallegum dölum inni á milli. Á leiðinni upplifði Þorbjörn ást og kærleika og hann á yndis- lega dóttur sem hann var afar stoltur af. Hann upplifði líka skuggahliðina í þessari veröld sem fæst okkar vilja sjá og vita af. Húmorinn var alltaf til staðar, al- veg sama hvað gekk á. Já, hann Þorbjörn átti auðvelt með að sjá það skondna í þessu lífi. Síðustu ár hef ég ekki séð hann Þorbjörn oft, við lifðum hvort í sínum heim- inum. Margt varð til þess í lífinu að ég þekkti ekki hans heim og hann ekki minn. Núna situr mað- ur eftir og hugsar svo margt … Ég samdi þetta litla ljóð til minningar um hann og er þess fullviss að núna finnur hann frið. Alheimsins klukkuverk er okkur oftast hulið. Við sjáum ei allt né skiljum og sam- hengið er dulið. Núna ertu frjáls og ég sé þig fyrir mér í skínandi ljósi andans með sannleikann innra með þér. (Ragnhildur Birna Hauksdóttir) Elsku Gurra, Liljar, Dagrún, Lilja Guðrún, Alexandra og fjöl- skyldur. Megi allir englar al- heimsins vera með ykkur. Ragnhildur Birna Hauksdóttir. Þorbjörn Haukur Liljarsson Í dag kveðjum við Odd Magna Guð- mundsson, frænda minn, í hinsta skipti. Hann er elsta barnabarn ömmu minnar og afa, Odds Sigurjóns- sonar og Magneu Bergvinsdóttur. Oddur Magni hafði glímt við erfið veikindi um nokkurra ára skeið, veikindi sem höfðu tekið mikinn toll af honum. Hann var búinn að berjast hetjulega, en á endanum hafði meinið hann. Það er hryggi- legt til þess að hugsa að maður á besta aldri skuli hafa þurft að heyja svo langa og harða baráttu fyrir lífi sínu. Höggvið hefur verið skarð í frændsystkinahópinn. Oddur Magni flutti ungur til Eyja. Sjórinn heillaði, hann fór í stýrimannaskólann og við tók það starf sem hann stundaði meðan hann hafði heilsu til, sjómennska. Lengi vel reri hann á Glófaxa VE 300 með frændum sínum. Einnig var hann lengi á uppsjávarskipum í eigu Sigurðar Einarssonar, út- gerðarmanns í Eyjum. Sjálfur reri ég með Oddi eina loðnuvertíð á Hörpu VE 25. Sök- um slyss um borð kom Oddur á miðri vetrarvertíð um borð til okkar og kláraði vertíðina með okkur. Við vorum báðir stýrimenn og ég minnist þess hve gott var að róa með Oddi. Hann var rólegur og yfirvegaður í störfum sínum og vissi upp á hár hvað hann var að gera. Það var vel valið að taka Oddur Magni Guðmundsson ✝ Oddur MagniGuðmundsson fæddist 1. maí 1959. Hann lést 3. október 2018. Útför Odds fór fram 12. október 2018. Odd um borð. Hann var bæði góður og traustur sjómaður fyrir utan að vera góður félagi. Oddur eignaðist marga vini og kunn- ingja á sjónum í gegnum tíðina og ég veit að margir minn- ast hans með sam- bærilegum hætti. Eftir að Oddur fór í land og hóf hótelreksturinn með fjölskyldu sinni lágu leiðir okkar oftar saman. Oft bar veik- indi hans á góma. Ég dáðist að æðruleysi og yfirveguðum bar- áttuvilja hans í þessum veik- indum. Létt lund og yfirvegunin kom honum langt. Minningin um góðan mann lifir. Ég vil að lokum senda mínar innilegustu samúðarkveðjur til Auðar eiginkonu Odds, sem misst hefur eiginmann sinn og sinn besta vin, sem og börnum þeirra og fjölskyldunni allri. Bátur líður út um Eyjasund, enn er vor um haf og land, syngur blærinn einn um aftanstund, aldan niðar blítt við sand. Ævintýrin eigum ég og þú, ólgar blóð og vaknar þrá. Fuglar hátt á syllum byggja bú, bjartar nætur vaka allir þá. Hvað er betra en vera ungur og ör, eiga vonir og æskufjör? Geta sungið, lifað leikið sér létt í spori hvar sem er og við öldunið um aftanstund eiga leyndarmál og ástarfund, (Jón Sigurðsson) Hrafn Sævaldsson. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.