Morgunblaðið - 22.10.2018, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. OKTÓBER 2018 21
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Bátar
Flatahrauni 25 - Hafnarfirði
Sími 564 0400
www.bilaraf.is
Mikið úrval í bæði
12V og 24V.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Stofnað 1986 • Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD .
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042,
Húsviðhald
Hreinsa
þakrennur,
fyrir veturinn
og tek að mér ýmis
smærri verkefni.
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-16. Leikfimi með Maríu kl. 9. Ganga
um nágrennið kl. 11. Handavinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16.
Félagsvist með vinningum kl. 13. Myndlist með Elsu kl. 16-20. Opið
fyrir úti- og innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-
15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700.
Boðinn Leikfimi kl. 10.30. Gréta Jakobsdóttir næringarfræðingur með
FRÆÐSLU um lífsstíl og næringu kl. 13.30 í salnum á efri hæð. Mynd-
list kl. 12.30. Bingó kl. 13. Vatnsleikfimi kl. 14.30. Spjallhópur kl. 15.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10-
10.30. Leikfimi kl. 12.50-13.30. Samprjón kl. 13.30-14.30. Bútasaums-
hópur kl. 13-16. Opið kaffihús kl. 14.30-15.15.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Opin handverksstofa kl. 9. Upplestur
kl. 10.10. Botsía kl.13.30. Kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir!
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 7.30 /8.15 /15.15. Kvennaleikfimi
Sjálandi kl. 9.30. Liðstyrkur Sjálandi kl. 10.15. Kvennaleikfimi Ásgarði
kl. 11.15. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Brids í Jónshúsi kl. 13.
Saumanámskeið í Jónshúsi kl. 14.10. Smiðja Kirkjuhvoli opin kl. 13-
16. Allir velkomnir. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.15.
Gerðuberg Opin handavinnustofan kl. 8.30-16. Útskurður með leið-
beinanda kl. 90-16. Leikfimi Maríu kl. 10-10.45. Leikfimi Helgu Ben kl.
11-11.30. Qigong kl. 10.30-11.30. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
10.50 jóga, kl. 13.15 kanasta.
Gullsmári Postulínshópur kl. 9. Jóga kl. 9.30. Handavinna/brids kl.
13. Jóga kl. 17. Félagsvist kl. 20.
Hraunsel Myndmennt kl. 9. Tyffanis í föndurstofu kl. 90-12. Gaflara-
kórinn kl. 11. Félagsvist kl. 13.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl
liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, jóga með Carynu kl. 9,
útvarpsleikfimi kl. 9.45, jóga með Carynu kl. 10 og samverustund kl.
10.30. Hádegismatur kl. 11.30, tálgun og listasmiðja kl. 13, frjáls spila-
mennska kl. 13, liðleiki á stólum og slökun með Önnu kl. 13.15 og
eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Hæðargarður 31 Opnar 8.50. Við hringborðið 8.50, boðið upp á
kaffi. Thai Chi með Guðnýju 9.00-10.00, mynd.námsk. hjá Margréti Z.
9.00-12.00, leikf. með Guðnýju 10.00-10.45, hádegism. 11.30, Spek-
ingar og spaugarar 10.45-11.45, Listasmiðjan er öllum opin frá 12.30,
Kríur myndlistarhópur 13.00, bridge 13.00-16.00, enska I 13.00-14.30,
kaffi 14.30. Enska II kl. 15. Uppl. s. 411 2790.
Korpúlfar Hugleiðsla og yoga með Ingibjörgu kl 9 í Borgum, ganga
frá Borgum, Grafarvogskirkju og inni í Egilshöll. Komið og dansið í
Borgum kl. 11 í dag. Prjónað til góðs kl. 13 og félagsvist kl. 13 í Borg-
um. Tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13 í dag og kóræfing Korpu-
systkina hjá Kristínu kórstjóra kl. 16 í dag fleiri velkomnir í hópinn.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl.8.30,morgunleikfimi kl.9.45,upplestur
kl.11,trésmiðja kl.13-16, ganga m.starfsmanni kl.14, bíó á 2.hæð
kl.15.30. Uppl. í s. 4112760.
Seltjarnarnes Gler á neðri hæð Félagsheimilisins v/Suðurströnd kl
9. og 13. Leir Skólabraut kl.9. Billjard Selinu kl. 0. Krossgátur og kaffi í
króknum kl.10.30. Jóga með Öldu í salnum kl.11. Handavinna Skóla-
braut kl.13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.40. Á morgun þriðjudag
er ferð í Perluna á Undur íslenskrar náttúru. Kaffi á eftir. Farið frá
Skólabraut kl. 13.15. Allar nánari upplýsingar í síma 8939800.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-16. Heitt á
könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Helgistund kl. 10.10.
Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15 og panta þarf matinn daginn áður.
Spiluð er félagsvist sem byrjar kl. 13.15. Kaffi og meðlæti er til sölu
frá kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er: 568-2586.
Stangarhylur 4 Zumba Gold námskeið fyrir styttra komna/byrjendur
kl. 9.45. ZUMBA Gold framhald kl. 10.30. STERK OG LIÐUG leikfimi kl.
11.30. Tanya leiðir alla hópanna.
þú það sem
á FINNA.is
IÐNAÐARMENN VERSLANIR
VEITINGAR VERKSTÆÐI
BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA
Smá- og raðauglýsingar
mbl.is
alltaf - allstaðar
✝ Ægir Þorvalds-son fæddist á
Víkurbakka í Ár-
skógshreppi í Eyja-
firði 22. september
1928. Hann lést á
Dvalarheimilinu
Hlíð á Akureyri 9.
október 2018.
Foreldrar hans
voru Þorvaldur
Árnason, f. 1900, d.
1988, og Sigríður
Þóra Björnsdóttir, f. 1903, d.
1984.
Systkini Ægis eru Reynald, f.
1925, d. 2011, Hermína, f. 1926,
d. 2012, Hákon, f. 1930, Bald-
vina, f. 1931, d. 2014, Anna
Björg, f. 1934, d. 1998, Björgvin,
f. 1939, d. 2015, Alda, f. 1941, og
Árni Anton, f. 1948.
Þann 4. júní 1949 kvæntist
Ægir Ölmu Stefánsdóttur, f. 1.
september 1929. Foreldrar
hennar voru Stefán Rögnvalds-
son, f. 1889, d. 1979, og Rann-
veig Jónsdóttir, f. 1886, d. 1964.
Synir Ægis og
Ölmu eru: 1) Gunn-
þór, f. 1950, d.
2005. 2) Gylfi, f.
1953, maki Björg
Malmquist, f. 1954.
Börn þeirra eru: a)
Garðar Malmquist,
f. 1977, maki Erla
Ósk Benedikts-
dóttir, f. 1978, synir
þeirra eru Bene-
dikt Darri, f. 2013,
og Brynjar Gylfi, f. 2015, b) Sig-
ríður Ragna Malmquist, f. 1979.
3) Garðar, f. 1957, fyrrverandi
maki Helga Björg Sigurð-
ardóttir, f. 1962. Börn þeirra
eru: a) Stefán Ragnar, f. 1984,
maki Hulda Jóhannsdóttir, f.
1980, dóttir þeirra er Nadía
Mist, f. 2010, synir Huldu eru
Anton Smári og Mikael Atli, b)
Ægir, f. 1986, maki Ásta Júlía
Ingibjörnsdóttir, f. 1980, börn
þeirra eru Garðar Ingi, f. 2016,
og Alma Rós, f. 2017, dætur
Ástu eru María Björg, Elsa Sól-
ey og Sara Sif, c) Sigurður Þór,
f. 1988, maki Bianka Weißflog,
f. 1989, d) Helga Björg, f. 1991,
maki Kristófer Jónasson, f.
1988, sonur þeirra er Jónas, f.
2018 e) Aron Freyr, f. 1997, d.
2016. Núverandi maki Garðars
er Bryndís Arna Reynisdóttir, f.
1961. Börn Bryndísar eru Davíð
Ingi, Elísabet Ýr og Reynir Már.
4) Stefán Ragnar, f. 1959, d.
1978.
Ægir var viðloðandi sjóinn
mestallt sitt líf. Eftir hefð-
bundna skólagöngu á Árskógs-
strönd lærði hann til vélstjórnar
á Akureyri og fluttist síðar inn á
Dalvík þar sem hann og Alma
byggðu sér heimili á Karlsbraut
20, síðar á Drafnarbraut 1.
Ægir stofnaði útgerðina Blika
hf. árið 1971 ásamt bræðrunum
Matthíasi og Ottó Jakobssonum.
Árið 1998 þegar Ægir var hætt-
ur á sjónum og kominn í land
fluttu þau Alma inn á Akureyri
þar sem hann bjó síðustu árin og
nú síðustu mánuði á dvalarheim-
ilinu Hlíð.
Útför Ægis fer fram frá Gler-
árkirkju í dag, 22. október 2018,
klukkan 13.30.
Ég sé hann tengdapabba
minn alltaf fyrir mér á hlaupum,
eitthvað að bardúsa, redda
þessu og hinu, alltaf að. Skjótast
í Nettó fyrir Ölmu eða í apótek-
ið, meira að segja að kaupa
sokkabuxur handa henni. Það
var aldrei neinu frestað. Allt
sem aflaga fór var gert við í
hvelli. Ófáar ferðirnar fór hann
um allan bæ að leita að réttum
perum í jólseríurnar sem hann
hengdi upp af mikilli kostgæfni.
Hann sá um skreytingarnar. Ég
veit ekki hvort honum þótti það
eitthvað gaman en þetta þurfti
að gera og þá var bara farið í
það. Hann gat gert allt sem lýt-
ur að húsbyggingum. Hann
byggði yfir sig hús tvisvar á æv-
inni, bæði á Dalvík. Þegar þau
voru flutt í nýtt hús á Drafn-
arbraut 1 upp úr 1970 fór frúin
að tala um að gaman væri nú að
hafa sundlaug þar sem þáver-
andi laug á Dalvík var víst ekki
upp á marga fiska. Á lóðinni var
gerð innisundlaug sem kostaði
að mér skilst næstum jafnmikið
og húsið sjálft. Ekkert var of
gott fyrir hana Ölmu.
Öðru eins snyrtimenni hef ég
bara held ég aldrei kynnst.
Hann var alltaf svo hreinn og
fínn, með greiðu í brjóstvasan-
um. Ég átti eftir að færa honum
nýja greiðu. Heimilið þeirra bar
þessu fagurt vitni. Það var oft
gaman að sjá muninn á þeim
feðgum í þau ófáu skipti sem
þeir voru að vinna eitthvað sam-
an. Það sá ekki í fötin hans Gæja
fyrir málningu eða öðru slíku en
sá gamli alltaf jafn hreinn og
snyrtilegur.
Þegar hann heyrði skemmti-
lega dansmúsík fór hann að iða,
oft vorum við búin að taka spor-
ið á stofugólfinu í Myllunni.
Hann var frábær dansari.
Frægt er orðið í netheimum
þegar hann á kráarkvöldi í vor
stökk á fætur og dreif mig út á
gólfið en hann gleymdi því alveg
að hann var með súrefni í nefinu
og þar til gert tæki hangandi við
sig, Gæi rétt náði að grípa tæk-
ið, áður en það féll í gólfið og svo
elti hann okkur bara um salinn.
Á myndbandinu sem náðist af
athæfinu, er ekki að sjá að þar
fari tæplega níræður maður með
lungnabilun á lokastigi. Alltaf
jafn léttur á fæti.
Hann var einstakur afi og
langafi, það kom alveg sérstakur
ljómi í augun á honum þegar
hann var innan um börnin og
barnabörnin. Hann lá á gólfinu
og lék við þau á meðan hann gat.
Alltaf boðinn og búinn að að-
stoða okkur öll. Fjölskyldan var
honum allt.
Elsku Ægir minn, þótt ég hafi
komið inn í líf þitt fyrir aðeins
14 árum finnst mér eins og ég
hafi þekkt þig alla ævi. „Hvernig
er þetta með ykkur skötuhjú,
ætlið þið bara alltaf að reka
tvær íbúðir? Það finnst mér nú
ekki skynsamleg ráðstöfun.“ Og
þannig fór það að við Gæi fórum
að búa saman og keyptum
Sunnuhlíðina og seldum hinar
íbúðirnar. Þetta var sem sagt
allt þér að kenna eða þakka eftir
því hvernig á það er litið.
Það var svo gott að geta hald-
ið upp á 90 ára afmælið þitt í
Hlíð um daginn, svo gott að eiga
þær minningar þessa haust-
daga. Ég fékk það á tilfinn-
inguna þegar ég kvaddi þig um
kvöldið áður en við héldum af
stað til Grikklands að þetta væri
okkar kveðjustund og það
reyndist rétt. „Guð blessi þig“
voru þín lokaorð til mín.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Guð blessi þig.
Þín
Bryndís Arna.
Ægir Þorvaldsson
✝ Paul RichardFawcett, Dick,
fæddist í Vestur-
Virginíuríki 18.
september 1938.
Hann lést 5. ágúst
2018.
Foreldrar hans
voru Rose og
William F. Faw-
cett. Hann átti tvo
bræður.
Dick kvæntist
Birnu Óskarsdóttur frá Vest-
mannaeyjum og bjuggu þau
hér á landi og víða erlendis,
síðast í Atlanta í
Georgíuríki
BNA. Dick vann
nær allan sinn
starfsaldur í
bandaríska flot-
anum og var
yfirmaður
öryggismála hjá
NASA, geim-
ferðastofnun
Bandaríkjanna, í
Flórídaríki síð-
ustu starfsár sín.
Dick lést 5. ágúst 2018.
Útförin hefur farið fram.
Þegar við Herdís hugsum til
hans Dicks koma upp margar
minningar. Ein er sú, þegar Dick
og Birna Óskarsdóttir náfrænka
mín og eiginkona hans komu eitt
sinn til Íslands og dvöldu hjá
henni móður minni, en þá kynnt-
ust þær Herdís og urðu strax
vinkonur. Sigtryggur bróðir var
þarna, og Herdís sagði við hann
að ef hún væri teiknimyndahöf-
undur myndi hún teikna hann
sem brennuvarg í sögunum sín-
um, því hann stríddi henni svo
mikið. Þau Sigtryggur urðu
miklir vinir út á þetta.
Birna var dóttir hennar Tollu
og Óskars en Tolla og mamma
voru óaðskiljanlegar vinkonur
og systkinabörn. Þegar Birna
átti heima sem barn úti í Eyjum
var mikill samgangur og var hún
oft heima hjá foreldrum mínum
á Heiðarvegi 20. Þegar við tví-
burar fæddumst hafði Guðrún
systir mín Birnu til þess að
keyra annan barnavagninn
ásamt henni Hrefnu Jóns vin-
konu sinni. Samgangurinn varð
ekki minni þegar við fluttum
suður.
Birna kynntist Dick sem var í
bandaríska hernum og flutti með
honum til Bandaríkjanna. Í
nokkur ár bjuggu þau í banda-
rísku herstöðinni á Miðnesheiði
og þá notaði Dick oft tímann til
þess að ferðast um landið á jepp-
anum sínum. Hann unni Íslandi
og var einn af upphafsmönnum
jeppaklúbbsins 4x4. Við heim-
sóttum þau Dick stundum til
Bandaríkjanna og var tekið með
kostum og kynjum.
Dick var hæglátur maður,
sagði ekki margt og lagði aldrei
illt orð til nokkurs manns. Hann
var launfyndinn. Þau höfðu búið
víða um heiminn þar sem hann
gegndi herþjónustu fyrir stór-
veldið í vestri í ýmsum löndum.
Hann tók m.a. þátt í Víetnam-
stríðinu og talaði aldrei um það.
Þegar Dick hætti í bandaríska
sjóhernum fór hann á bólakaf í
tölvur og allt sem þeim tengdist.
Hann var eins og alfræðiorðabók
á því sviði og leysti oft ýmsan
vanda bæði fyrir mig og aðra.
Síðasta opinbera starfið hans var
á Canaveral-höfða en þar var
hann yfirmaður öryggismála í
kringum geimflaugarnar sem
þaðan er skotið upp, og lýsti
starfinu þannig: „Ef eitthvað fer
úrskeiðis get ég auðveldlega
sprungið í loft upp.“
Dick ræktaði fjölskylduna vel,
eiginkonuna og börnin þrjú
ásamt tengdabörnum og barna-
börnum. Hann var mikið góð-
menni og mikill vinur sem vildi
allt fyrir alla gera. Hann kvaddi
þennan heim 5. ágúst sl. eftir
mjög erfið veikindi og það mynd-
aðist tómarúm í huga okkar
Herdísar. Við geymum svo
margar góðar minningar um
hann og Birnu. Blessuð sé minn-
ing hans.
Gísli Helgason.
Paul Richard
Fawcett