Morgunblaðið - 23.10.2018, Page 6

Morgunblaðið - 23.10.2018, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2018 Loftkæling Funahöfða 7, 110 Reykjavík, s. 577 6666 og varmadælur Guðni Einarsson gudni@mbl.is Það dró úr meðalfjölda ferða fólks út fyrir búsetusvæði á liðnu sumri, mið- að við fyrri kannanir. Þetta átti sér- staklega við um höfuðborgarsvæðið og er spurning hvort rigningin hafði þessi áhrif. Einkabíllinn var notaður í 87% ferða, sem er svipað hlutfall og áður. Heldur dró úr notkun strætó sumarið 2018 frá fyrri könnunum. Þá töldu um 22% svarenda að fjöldi erlendra ferðamanna hefði haft áhrif á ferðaáætlanir þeirra sumarið 2018. Það eru helmingi fleiri en í könnun 2014. Þetta kemur fram í skýrslu dr. Bjarna Reynarssonar, skipulags- fræðings hjá Land-ráði sf., Ferða- venjur sumarið 2018. Skýrslan var gerð fyrir Vegagerðina og byggist á könnun sem var gerð 7.-24. sept- ember að frumkvæði samgöngu- yfirvalda. Kannaðar voru ferðir sumarmánuðina júní-ágúst og var um að ræða netkönnun meðal álits- gjafa MMR. Alls svöruðu 1.385 manns könnuninni. Vegir út frá höfuðborginni Mikið er þrýst á samgöngu- yfirvöld að bæta vegakerfið. Flestir svarenda vilja sjá auknar fram- kvæmdir í samgöngumálum í sínum landshluta. Þar á meðal má nefna jarðgöng úti á landi, tvöföldun stofn- brauta út frá höfuðborgarsvæðinu og umbætur á stofnbrautakerfinu á höfuðborgarsvæðinu. Rúmlega helmingur svarenda telur að umbæt- ur á stofnbrautunum dugi best til að draga úr umferðartöfum á höfuð- borgarsvæðinu. Vaxandi þrýstingur er á aukið viðhald og endurbætur á hringveginum. Hlutfallslega færri nefna nú jarðgöng á landsbyggðinni en áður. Eins nefna hlutfallslega færri Suðurlandsveg til Selfoss vegna framkvæmda þar. Vaxandi krafa er um úrbætur á Vesturlands- vegi og margir í Reykjanesbæ nefndu þörf fyrir umbætur á Reykjanesbraut. Meirihluti svarenda í könnunum frá 2008 hefur viljað áframhaldandi flugstarfsemi í Vatnsmýri, oftast 55- 60% svarenda. Í þessari nýju könn- un var hlutfall þeirra sem vilja flugið þar áfram komið niður í rúm 50% en 30% voru sammála því að það færi burt. Um 47% Reykvíkinga vilja að flugstarfsemi fari úr Vatnsmýri en 53% vilja að hún verði þar áfram. Morgunblaðið/Eggert Umferðarteppa Margir telja að umbætur á stofnvegakerfi höfuðborgarsvæðisins myndu draga úr umferðartöfum. Þrýstingur á vegabætur í nýrri samgöngukönnun  Dregur úr stuðningi við Reykjavíkurflugvöll á sama stað Mikilvægasta framkvæmd við samgöngukerfið Heimild: Land-ráð sf. Tvöföldun Hvalfjarðarganga (ný hliðargöng) Bæta Vesturlandsveg milli Reykjavíkur og Akraness Bæta Suðurlandsveg milli Reykjavíkur og Selfoss Bæta stofnbrautakerfið á höfuðborgarsvæðinu Jarðgöng á landsbyggðinni Bæta hringveginn Bæta almenningssamgöngur Lagning Sundabrautar 1% 12% 11% 14% 9% 20% 15% 7% Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Nauðsynlegt er að fara í heildarend- urskoðun á þeim reglum sem gilda um skýrslutöku á sakborningum og vitnum með það fyrir augum að bæta réttarstöðu fatlaðs fólks. Þetta er meðal þess sem starfshópur um með- ferð kynferðisbrotamála þegar um fatlaða sakborninga og/eða brotaþola er að ræða leggur til í nýrri skýrslu. Við þá vinnu er lagt til að sérstök áhersla verði lögð á að skoða tilhögun skýrslutöku af fötluðu fólki og þá í samræmi við þá þróun sem orðið hef- ur annars staðar á Norðurlöndunum. Engin sérákvæði um tilhögun skýrslutöku af viðkvæmum vitnum/ sakborningum er nú að finna í núgild- andi lögum um meðferð sakamála. Hingað til hefur oftast verið stuðst við ákvæði sem segir að það megi taka dómsskýrslu af brotaþola eða vitnum á rannsóknarstigi ef slíkt er talið æskilegt með tilliti til hagsmuna þeirra, svo sem ef um börn er að ræða. Ákvæðið virðist þó vannýtt og gerði Hæstíréttur Íslands m.a. þá at- hugasemd í dómi frá 2017 að ákvæðið hefði ekki verið nýtt til þess að taka skýrslu af fatlaðri konu í máli sem varðaði meint kynferðisbrot bílstjóra hjá ferðaþjónustu fatlaðra gegn henni. Raskar rannsóknarhagsmunum Starfshópurinn segir að skoða þurfi vel hvort rétt sé að hverfa frá því fyrirkomulagi að taka dóms- skýrslu á rannsóknarstigi af vitnum í viðkvæmri stöðu og börnum sem eru þolendur m.a. kynferðisbrota. „Ljóst er að það getur raskað rannsóknarhagsmunum þegar skýrsla er tekin af brotaþola í kyn- ferðisbrotamáli að viðstöddum verj- anda sakbornings, áður en eiginleg skýrsla er tekin af sakborningi sjálf- um. Í Noregi og Danmörku virðist hafa verið fallið frá þessu fyrirkomu- lagi og þess í stað byggt á skýrslum hjá lögreglu (aðlöguð skýrslutaka) sem teknar eru upp í hljóð og mynd og spilaðar við aðalmeðferð. Fram- kvæmdin þar er þá sú að fyrstu skýrslur af þolendum eru teknar án þess að sakborningur eða verjandi séu viðstaddir en sakborningur getur óskað eftir frekari skýrslu af brota- þola eftir að hann hefur sjálfur gefið skýrslu,“ segir í skýrslu starfshóps- ins. Sérákvæði um fatlað fólk Þá er lagt til að í lögin verði sett ákvæði um rétt fatlaðra brotaþola eða fólks í viðkvæmri stöðu til að hafa með sér stuðningsaðila við yfir- heyrslur, hvort sem er hjá lögreglu eða fyrir dómi. Þessi stuðningsaðili getur t.d. verið réttindagæslumaður fatlaðs fólks eða annar hæfur aðili sem sjálfur er ekki vitni í málinu. Starfshópurinn telur einnig að bæta eigi í lögin heimild fyrir dómara að kalla til sérkunnáttumenn við skýrslutökur ef taka á skýrslu af fötl- uðu fólki. Núgildandi lög gera ein- göngu ráð fyrir þessu þegar taka á skýrslu af barni fyrir dómi. Endurskoða þarf reglur um skýrslutökur Morgunblaðið/Þorkell Héraðsdómur Starfshópur telur að endurskoða þurfi reglur um skýrslu- töku á sakborningum og vitnum til að bæta réttarstöðu fatlaðs fólks.  Skýrsla starfshóps um meðferð kynferðisbrotamála gagnvart fötluðum sakborningum og/eða brota- þolum  Leggur til endurskoðun á ákvæðum í lögum um meðferð sakamála  Litið til Norðurlandanna Alls sóttu 98 manns um alþjóðlega vernd hér á landi í september síðast- liðnum og er það mesti fjöldi hælis- umsókna á einum mánuði það sem af er þessu ári. Samkvæmt tölum frá Út- lendingastofnun hafa 533 einstaklingar sótt um hæli á árinu, en þeir voru 885 á sama tíma í fyrra. Flestir hælisleitendur koma frá Írak, alls 89. Albanar koma næstir á eftir, 70 manns, Afganar eru 33 og Pakistanar 32. Fimmti fjölmennasti hópurinn er frá Sýrlandi, alls 31, en þar á eftir koma Georgía og Sómalía með 26 hælisleit- endur hvert. Þeir sem sækja um alþjóð- lega vernd hér á landi eru í langflestum tilfellum fullorðnir karlmenn sam- kvæmt gögnum frá Útlendingastofnun. Það sem af er þessu ári hafa 10 fylgd- arlaus börn sótt um alþjóðlega vernd hér, átta drengir og tvær stúlkur. Koma sex drengjanna frá Afganistan, einn frá Albaníu og einn frá Sómalíu. Stúlkurnar eru frá Pakistan og Sómal- íu. Allt árið í fyrra voru fylgdarlausir drengir alls 27. Sjö komu frá Sómalíu, sex frá Afganistan, fimm frá Albaníu og Írak og einn frá Pakistan, Marokkó, Tadsjíkistan og Barein. Umsóknir frá 60 ríkjum heims Umsækjendur um vernd á þessu ári koma frá 59 löndum. Eru þetta ríki á borð við Rússland, Egyptaland og Marokkó, öll með 10 einstaklinga hvert, Serbía níu manns og Bandarík- in alls sjö umsóknir. Næst koma Kól- umbía og Indland, sex umsóknir hvert, fimm frá Póllandi og fjórir frá Bangladess, Fílabeinsströndinni, Als- ír, Gana, Líbíu, Moldóvíu og Make- dóníu. Þá komu þrjár umsóknir um hæli frá einstaklingum frá Túnis og Jemen auk þess sem tvær umsóknir hafa borist frá fólki með ríkisfang í Aserbaídsjan, Erítreu, Bretlandi, Kenía, Kasakstan, Líbanon, Rúmen- íu, Sádí-Arabíu, Súdan, Senegal, Tyrklandi og Kósóvó. Þá hafa einnig Kanadabúi, Þjóðverji og Ísraelsmað- ur sótt hér um hæli auk fólks af öðru þjóðerni. Flestir sóttu um hæli í september  Alls hafa 533 sótt um hæli á þessu ári Ósáttir Frá mótmælum hælisleit- enda í dómsmálaráðuneytinu. Morgunblaðið/RAX

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.