Morgunblaðið - 23.10.2018, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 23.10.2018, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2018 ✝ Skúli HeiðarÓskarsson fæddist í Reykja- vík 16. maí 1946. Hann lést á Land- spítalanum 14. október 2018. Foreldrar hans voru Óskar Rafn Magnússon, f. 5.1. 1916, d. 16.11. 1985, og Sigrún Halldóra Ágústs- dóttir, f. 1.6. 1917, d. 5.8. 1997. Hinn 4. nóvember 1967 kvæntist Skúli Ólöfu Birnu Ólafsdóttur, f. 9.10. 1946, d. Börn hennar eru Þorsteinn, Helena Ósk og Birnir Freyr. 4) Óskar Dan, f. 1980, kvæntur Dísu Friðleifsdóttur. Börn hans eru Hera Hrönn og Hekla Ósk. 5) Ólafur G., f. 1980, kvæntur Svanhvíti Friðriks- dóttur. Börn hans eru Friðrik Rafn, Ólöf Birna og Þóra Kristín. Eftirlifandi sambýliskona Skúla er Kristín Friðriksdótt- ir. Skúli lærði til flugmanns en tók svo meirapróf og vann lengst af við bifreiðaakstur. Hann keyrði m.a. mjólkurbíl, strætó og læknabíl en við leigubifreiðaakstur starfaði hann lengst. Útför Skúla fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 23. október 2018, og hefst at- höfnin klukkan 15. 14.11. 2004. Þau áttu fimm börn. Þau eru: 1) Sigrún Ragna, f. 1965, gift Jónasi Þór Kristinssyni. Börn hennar eru Birna Dís, Kristinn Vikt- or og Heiðar Snær. 2) Ragnhild- ur, f. 1967, gift Andrési Snorra- syni. Börn hennar eru Sandra Mjöll, Sigrún Hall- dóra, Snorri Heiðar og Snædís Ólöf. 3) Anna María, f. 1973, gift Hálfdani Þorsteinssyni. Elsku pabbi okkar er látinn. Það er erfitt að setjast niður og skrifa þessi orð – því þá verður það á einhvern hátt svo raun- verulegt. Hann er farinn. Við vorum svo heppin að alast upp með frábær- um foreldrum. Það reyndi mjög á okkur öll þegar mamma lést árið 2004. En eins og við var að búast af pabba stóð hann eins og klettur við bakið á okkur systk- inunum þrátt fyrir eigin sorg. Þannig var hann gerður. Hann var okkur ávallt innan handar. Við gátum leitað til hans hvenær sem var og hann var alltaf fyrstur á svæðið ef eitt- hvað bjátaði á. Pabbi var alltaf léttur í skapi. Það var stutt í grínið hjá honum, grínið sem gat farið svakalega í taugarnar á okkur þegar við vor- um unglingar en lærðum svo að meta þegar við komumst á full- orðinsár. Við eigum eftir að sakna brandaranna og innilega hláturs- ins sem þeim fylgdu. Það yljar okkur um hjartarætur að rifja upp öll þau prakkarastrik sem við systkinin fundum upp á og viðbrögð pabba við þeim. Þau einkenndust oftar en ekki af hlátri eftir vægan skammt af misalvarlegum ávítunum. Pabbi var leigubílstjóri og við systkinin nutum góðs af því enda var hann boðinn og búinn að skutla okkur út um allan bæ ef við þurftum á að halda. Oft var maður spurður af hverju maður tæki alltaf leigubíl í skólann. Alltaf þegar við sjáum taxa- merkið hugsum við til pabba. Við getum því með sanni sagt að hann muni vera okkur ofarlega í huga alla tíð. Eftir að mamma dó átti pabbi afar erfitt enda missti hann lífs- förunaut sinn til fjörutíu ára. Hann kynntist síðan Stínu sem varð hans stoð og stytta í lífinu. Hún var honum og okkur fjöl- skyldum afar góð. Elsku Stína, við samhryggj- umst þér innilega og færum þér þakkir fyrir allt sem þú hefur gert fyrir hann pabba okkar. Elsku pabbi, við vonum að þér líði betur núna hvar sem þú ert. Við viljum ímynda okkur að þú sért með ættingjum þínum og vinum á skemmtilegum stað þar sem hláturinn fær að njóta sín. Þú varst frábær faðir, tengda- faðir, afi og langafi. Við eigum eftir að sakna þín. Guð geymi þig. Sigrún Ragna, Ragnhildur, Anna María, Óskar Dan og Ólafur Guðbjörn. Elsku afi, þegar við hugsum til baka þá minnumst við þess þegar við komum og fengum að gista hjá ykkur ömmu, alltaf fengum við að velja hvað var í kvöldmatinn. Þið fóruð með okkur í Hag- kaup í Kringlunni þar sem amma vann og við völdum yfirleitt allt- af spaghetti í dós og pylsur eða kjötfarsbollur í matinn. Okkur fannst mjög mikið sport að fá að sofa í vatnsrúminu sem þið átt- uð. Þegar við sitjum hér og rifjum upp gamla tíma þá er það fyrsta sem kemur í hugann þinn inni- legi hlátur og verðum við að minnast á góðu lyktina þína. Oft þegar við komum í heim- sókn til ykkar fannst okkur svo gott að þefa að ilmvötnunum ykkar ömmu. Þótt erfitt sé að kveðja þig vit- um við að nú líður þér betur og án efa hafa orðið fagnaðarfundir þegar þú hittir loks ömmu aftur. En nú þegar þú hefur kvatt þennan heim kveðjum við þig með þakklæti í huga fyrir alla umhyggjusemi þína og kærleik. Hvíldu í friði elsku afi, við mun- um sakna þín. Þín barnabörn, Sandra Mjöll, Sigrún Halldóra, Snorri Heiðar og Snædís Ólöf Andrésarbörn. Elsku hjartans Skúli minn, nú ertu farinn héðan og dvelur núna á betri stað. En mikið sakna ég þín, minn kæri. Ég sakna fallega brossins þíns og hláturs þíns. Ég sakna blíðunnar sem streymdi frá þér og þessarar einstöku nærveru sem þú hafðir til að bera. Núna streyma minningar lífsgöngu okkar fram. Þær eru svo margar og dýrmætar. Við kynntumst fyrir 13 árum síðan. Þú varst í sárum eftir andlát maka þíns og þú varst að reyna að halda áfram lífinu og áttir erf- iðan tíma. Þú sagðist vera skotinn í mér og bauðst mér út að borða og síðan þróaðist samband okkar í fallega ást sem lifði með okkur til þessa dags. Þrátt fyrir veik- indi þín þá gafstu svo mikið af þér til allra sem kynntust þér. Ég gæti skrifað heila bók um all- ar okkar góðu stundir en vil frekar geyma þær í ástarhólfi hjartans. Elsku vinurinn minn með bláu augun, ég kveð þig núna með þakklæti fyrir allt. Þú ert og verður ástin mín. Takk, Birna, fyrir lánið á fallegum dreng. Ég veit að þú passar upp á hann þarna í Sumarlandinu. Hvíl í friði, elsku Skúli minn, Stínan hugsar til þín. Kristín Friðriksdóttir. Í dag kveðjum við Skúla Heið- ar Óskarsson, yndislegan tengdaföður minn. Skúli hafði alltaf mikinn áhuga á bílum og flugvélum. Hann hóf flugnám og var það hans helsta áhugamál lengi. Þeg- ar fjölskyldan stækkaði þá tók annað við og varð akstur þá fyrir valinu. Hann var í nokkur ár hjá Mjólkursamsölunni, Strætis- vögnum Reykjavíkur, síðan var það leigubíllinn, læknabíllinn og stundum var farið á sjó og þá með fraktskipum. Skúli átti marga bíla í gegnum ævina og vissi maður aldrei á hvaða bíl hann væri á næst þeg- ar við hittum hann. Bílar hans voru alltaf svo hreinir, að innan sem utan, að mjög erfitt var að standast kröfur eiginkonu minn- ar þar sem hún hafði talsvert miklar væntingar sem dóttir Skúla. Einu sinni vorum við á ferð úti á landi með fjölskylduna. Bíllinn okkar bilaði í Hrútafirði seint um kvöld. Bifvélavirkjar á staðnum gátu ekki gert við bílinn en áður en nokkur vissi þá var Skúli kominn á staðinn frá Reykjavík til að draga bílinn í bæinn. Hann tók börnin og dóttur sína í sinn bíl og hann hafði talsvert gaman af að hafa mig og Óskar Dan í bilaða bílnum ísköldum og ham- ast alla leiðina við að berjast við móðu á gluggum. Þetta lýsir Skúla vel, hann var alltaf fyrstur til að hjálpa ef einhver þurfti að- stoð, hann var líka alltaf með húmorinn í lagi hvað sem gekk á, alveg fram á seinustu stund. Elsku tengdafaðir, hvíl þú í friði. Það voru forréttindi að fá að kynnast þér. Elsku Stína, Sigrún Ragna, Ragnhildur, Anna María, Óskar Dan og Ólafur Guðbjörn, inni- legar samúðarkveðjur, Jónas Kristinsson. Elsku afi. Nú er komið að kveðjustund. Þú ert nú aftur sameinaður ömmu Birnu og við þá tilhugsun hlýnar manni um hjartarætur. Þú varst alltaf svo góður við okk- ur og alltaf þegar við hittum þig brostir þú þínu breiðasta brosi og erum við þakklát fyrir öll þau skipti sem við fengum að sjá bros þitt. Þú varst mikill brand- arakarl og hafðir gaman af því að snúa flestöllu því sem sagt var upp í grín og glens. Hér við skiljumst og hittast munum á feginsdegi fira; drottinn minn gefi dauðum ró, hinum líkn, er lifa. (Úr Sólarljóðum) Hvíl í friði, ástkæri afi okkar, minningin um þig mun lifa með okkur. Þín barnabörn, Birna Dís, Kristinn Viktor og Heiðar Snær. Skúli Heiðar Óskarsson ✝ ValgerðurHanna Sigurð- ardóttir fæddist í Stykkishólmi 15. janúar 1941. Hún lést á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja í Keflavík 11. októ- ber 2018 eftir löng og erfið veikindi. Foreldrar henn- ar voru Margrét Tómasdóttir, f. 23.8. 1913, d. 14.1. 1995, og Sig- urður Þorsteinsson, f. 2.1. 1916, d. 28.10. 1995. Systkini hennur eru Jónas, f. 6.10. 1944, kvæntur Ingibjörgu Ólafsdóttur, f. 24.2. 1946, og Þórleif Kristín, f. 23.1. 1948. Valgerður giftist 6.5. 1961 Árna Júlíussyni símsmið, f. 11.7. 1936 í Keflavík. Börn þeirra eru 1) Anna Birna, f. 29.10. 1958, gift Arnari Ingólfssyni, f. 22.12. 1961, börn þeirra eru Árni Júl- íus, f. 28.11. 1988, óskírð stúlka, d. 8.10. 1990, og Hall- dór, f. 11.11. 1991, Róbert Ingi, f. 8.10. 1997. 2) Sigurður Einar, f. 17.7. 1966, unnusta Ásborg Guðmundsdóttir, f. 8.3. 1967, dætur hans eru Val- gerður, f. 19.10. 1990, og Eva Rut, f. 27.8. 1998. 3) Ingvar Örn, f. 14.9. 1975, kvæntur Sonyu, f. 5.4. 1972, börn Tyson, f. 11.10. 2003, og Olivia, f. 10.11. 2006. Valgerður starfaði lengst af hjá Pósti og síma í Keflavík og Keflavíkurflugvelli, einnig um tíma hjá Íslenskum markaði á Keflavíkurflugvelli. Útförin fer fram frá Keflavík- urkirkju í dag, 23. október 2018, klukkan 13. Mig langar til að minnast ást- kærrar tengdamóður minnar, Val- gerðar H. Sigurðardóttur eða hennar Vallýjar eins og hún var alltaf kölluð. Kynni okkar hófust 1982 þegar ég dvaldi mína fyrstu nótt í kjall- aranum í Baugholtinu hjá einka- dótturinni. Það var föstudags- morgunn, Vallý og Árni að gera sig klár til vinnu og Bidda þurfti að ná í lyklana að Kortínunni, ég stóð frekar vandræðalegur frammi í anddyri þegar Vallý kemur þarna með miklum látum og horfir á þennan dreng, segir með bros á vör: „Stendur þú þarna, viltu ekki koma inn drengur og fá þér kaffi, hérna eru allir eins og heima hjá sér.“ Síðan þá var þeirra heimili hluti af mínu heimili. Allir sem kynntust Vallý kom- ust mjög fljótt að því hvernig manneskja hún var, hún var af- skaplega heil og heiðarleg mann- eskja, hún sagði sína skoðun hvort sem aðrir voru sammála eða ekki, hún líka virti skoðanir annarra. Það var gaman að ræða við hana, hún þekkti söguna vel. Ef hún fullyrti eitthvað og við vorum ekki sammála sem kom stundum fyrir, þá var eins gott að hafa góð rök til að hún breytti um skoðun. Vallý stjórnaði sínu heimili af miklum myndarskap. Vallý var mjög sjálfstæð og glæsileg kona og sannarlega góð fyrirmynd. Eitt af því skemmtilegasta sem Vallý gerði var að ferðast, við nut- um góðs af því, fórum nokkrar ferðir með þeim til Spánar og einu sinni til Flórída. Undanfarin ár voru Vallý mjög erfið bæði vegna hennar veikinda og annarra, hún bar það ekki á torg og lagði mikla áherslu á að við skyldum ekki láta það hafa áhrif á okkar áform, hún myndi bjarga sér. Árið 2013 fluttu þau á Nesvelli og bjuggu við hliðina á móður minni, á milli þeirra myndaðist góður vinskapur og ekki síst dýr- mætur félagsskapur sem ég er þakklátur fyrir, það verður mikil breyting hjá mömmu að geta ekki kíkt í kaffi til Vallýjar eða fengið hana í heimsókn. Vallý studdi okkur Biddu í öllu því sem við höfum tekið okkur fyrir hendur, hvort sem það var þegar við fluttum til Danmerkur, við pössun á okkar börnum, við húsbyggingar og ekki síst á okkar sorgar- og gleðistundum. Takk fyrir lífið, kæra tengdó, og hvíl þú í friði. Þinn uppáhalds tengdasonur, Arnar Ingólfsson. Valgerður Hanna Sigurðardóttir Elskulegur sonur okkar, bróðir, mágur og frændi, ÁRNI GRÉTARSSON, Gilstúni 9, Sauðárkróki, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri þriðjudaginn 16. október. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 27. október klukkan 14. Grétar Jónsson Ingibjörg Árnadóttir Petrea Grétarsdóttir Margrét Grétarsdóttir Páll Sighvatsson Jóhanna Grétarsdóttir Jón Grétarsson Hrefna Hafsteinsdóttir og systkinasynir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞORKELL SKÚLASON endurskoðandi, sem lést 13. október, verður jarðsunginn frá Hjallakirkju, Kópavogi, föstudaginn 26. október klukkan 13. Ólafía Katrín Hansdóttir Valdís Brynja Þorkelsdóttir Ingiríður H. Þorkelsdóttir Elsa Sigurveig Þorkelsdóttir Már Guðmundsson Indriði Þorkelsson Anna María Soffíudóttir barnabörn og barnabarnabörn Okkar yndislega SNÆDIS GUNNLAUGSDÓTTIR, lögfræðingur og jarðvinur, er látin. Fjölskyldan Kaldbak Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR ÖRN INGIMUNDARSON, lést 21. október á hjúkrunarheimilinu Hömrum, Mosfellsbæ. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 30. október klukkan 15. Lóa Ólafsdóttir Sigurður Rúnar Magnússon Karólína Ólafsdóttir Guðbrandur Einarsson og barnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, PÉTUR SIGURÐSSON, fv. forseti Alþýðusambands Vestfjarða, andaðist sunnudaginn 14. október. Minningarathöfn verður í Fossvogskirkju fimmtudaginn 25. október klukkan 15. Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 27. október klukkan 14. Þeir sem vilja minnast hans láti líknarfélög njóta þess. Hjördís Hjartardóttir Sigurður Pétursson Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir Edda Pétursdóttir Bergsteinn Baldursson og afabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GYÐA ARNDAL SVAVARSDÓTTIR, Sóltúni 2, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni fimmtudaginn 18. október. Útförin fer fram frá Hvítasunnukirkjunni í Reykjavík mánudaginn 29. október klukkan 13. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurborg Valdimarsdóttir Ásgeir Valdimarsson Þorgerður Hreiðarsdóttir Hörður Hreiðarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.