Morgunblaðið - 23.10.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. OKTÓBER 2018
Umræðan um endurgerðabraggann sem kostaði offjár
að gera upp heldur áfram. Nú síð-
ast var sagt frá deilum á milli
borgarinnar og Háskólans í
Reykjavík um það hvor stofnunin
færi með yfirráð
náðhúss við bragg-
ann, sem enn hefði
ekki tekist að ljúka
uppgerð á.
Sá, sem flösku-stúturinn lend-
ir endanlega á í
þeirri deilu, mun borga brúsann
við lúkningu viðgerða við náð-
húsið. Kostnaðaráætlun mun
liggja fyrir, en eftir er að marg-
falda hana með átta svo hún verði
á svipuðu róli og bragginn sjálfur.
Nú seinast gekk einn af fyrr-verandi öndvegiskólfum
borgarinnar fram og sagði að það
væri algjörlega öruggt að Dagur
B. Eggertsson borgarstjóri hefði
ekkert vitað um að viðgerð á
bragganum væri farin að slaga
upp í hálfan milljarð. „Hann vissi
ekkert. Það er alveg á hreinu,“
sagði embættismaðurinn fyrrver-
andi.
Nú voru aldrei uppi neinargrunsemdir um að Dagur
hefði vitað eitthvað um braggann
og hvað þá náðhúsið. Hvert málið
hefur komið upp á fætur öðru og
Dagur hefur aldrei vitað neitt.
Stundum hafa málin þó verið
þannig vaxin að allir héldu að
borgarstjórinn hefði vitað eitthvað
um þau.
En hann hefur þá brugðist fastvið og fengið vottorð hjá
næsta undirmanni sem hann rakst
á í lyftu Ráðhússins um að hann
hafi samt ekkert vitað og aldrei
hefði staðið til að hann vissi eitt
né neitt. Það hafi líka verið alveg
á hreinu.
Dagur B.
Eggertsson
Það er á hreinu
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála
hafnaði í gær kröfu Isavia ohf. um að
bráðabirgðaákvörðun Samkeppnis-
eftirlitsins um stöðvun gjaldtöku á
ytri rútustæðum við flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar yrði felld úr gildi. Ákvörð-
unin gildir því til næstu áramóta.
Byggði áfrýjunarnefndin niðurstöðu
sína meðal annars á því að Isavia væri
í einokunarstöðu og að samkeppnislög
gerðu mjög ríkar kröfur til slíkra
fyrirtækja.
Taldi áfrýjunarnefndin jafnframt
að undirbúningur Isavia að gjaldtök-
unni hefði verið óvandaður og fyrir-
tækið hefði ekki gert viðhlítandi grein
fyrir kostnaði við að veita þjónustu við
ytri rútustæðin. Þá væri sennilegt að
gjaldtaka Isavia væri óhófleg og ólög-
mæt og því hefði verið brýnt að bregð-
ast við henni.
Tildrög málsins voru þau að Sam-
keppniseftirlitið tók bráðabirgða-
ákvörðun hinn 17. júlí síðastliðinn, þar
sem Isavia ohf. var gert að stöðva
tímabundið gjaldtöku á ytri rútustæð-
unum, sem hófst 1. mars 2018. Þá
hafði staðið til hjá Isavaia að hækka
gjöldin verulega hinn 1. september
síðastliðinn. Taldi Samkeppniseftir-
litið að ekki væri hægt að bíða eftir
endanlegri ákvörðun um gjaldtökuna
og stöðvaði hana því til bráðabirgða.
Gjaldtaka stöðvuð á ytri rútustæðum
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hafnaði kröfu Isavia ohf.
Morgunblaðið/ÞÖK
Flugstöðin Áfrýjunarnefndin
hafnaði kröfu Isavia ohf.
Íslenska ríkið var á föstudag sýknað
af tæplega 77 milljóna króna skaða-
bótakröfu Guðlaugs Jakobs Karls-
sonar. Hafði hann höfðað mál á
hendur ríkinu til innheimtu skaða-
og miskabóta vegna tjóns sem hann
kvaðst hafa orðið fyrir og rekja
mætti til þess að tilgreindum aðilum
hefði verið heimilað að reka spila-
kassa með lögum nr. 13/1973 og 73/
1994 í andstöðu við 183. grein al-
mennra hegningarlaga.
Með dómnum staðfesti Landsrétt-
ur dóm Héraðsdóms Reykjavíkur
frá 28. mars 2018 og vísaði til þess að
umrædd lög væru sérlög andspænis
almennum hegningarlögum og væru
einnig yngri en ákvæði 183. gr. al-
mennra hegningarlaga. Gengju um-
rædd lög því framar almennum
hegningarlögum. Ekki var fallist á
það með Guðlaugi að íslenska ríkið
hefði með saknæmum og ólögmæt-
um hætti valdið honum tjóni né held-
ur að skilyrði bótaskyldu væru fyrir
hendi á öðrum grundvelli en al-
mennu sakarreglunnar. Var ríkið því
sýknað af kröfu Guðlaugs um
greiðslu skaðabóta.
Þá hefði Guðlaugi ekki tekist að
sýna fram á að íslenska ríkið hefði
valdið honum tjóni með ólögmætri
háttsemi eða háttsemi sem annars
yrði að telja ólögmæta meingerð
gegn honum og var íslenska ríkið því
einnig sýknað af kröfu um greiðslu
miskabóta.
Fram kemur í niðurstöðu Lands-
réttar að hinn áfrýjaði dómur hér-
aðsdóms skuli vera óraskaður og að
málskostnaður fyrir Landsrétti falli
niður. „Allur gjafsóknarkostnaður
áfrýjanda, Guðlaugs Jokobs Karls-
sonar, fyrir Landsrétti greiðist úr
ríkissjóði, þar með talinn málflutn-
ingskostnaður lögmanns hans,
1.000.000 króna,“ segir í dómsorðum
Landsréttar.
Ríkið sýknað í
máli spilafíkils
Bótakrafa upp á tæplega 77 milljónir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Við kassann Landsréttur staðfesti
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur.
Breiðumörk 1c, 810Hveragerði / www.hotelork.is / booking@hotelork.is / sími: +354 4834700 / fax: +354 4834775
Fallegt umhverfi og fjölmargir möguleikar
til afþreyingar tryggja betri fundarhlé.
Fundarfriður áHótelÖrk
ÁHótel Örk er öll aðstaða til fundahalda til fyrirmyndar. Starfsfólk okkar býr
yfir mikilli reynslu og metnaði til að aðstoða stóra og litla hópa, fyrirtæki og
félagasamtök við skipulagningu og undirbúning á fundum og ráðstefnum.