Morgunblaðið - 26.10.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2018
Þorsteinn Víglundsson hafnar þvíað bera saman epli og epli, en
telur eðlilegra að bera epli saman
við banana. Þetta má lesa út úr við-
brögðum hans við ábendingu Sigríð-
ar Andersen dómsmálaráðherra um
að launamunur hér á
landi mælist mun
minni en stundum er
haldið fram.
Málið snýst umhvort horfa
eigi á óleiðréttan
launamun, sem sagt
bera saman epli og
banana, eða hvort
bera eigi saman þá
sem eru í sambæri-
legum störfum, sem
sagt leitast við að
bera saman epli og
epli.
Sigríður fjallaði um rangfærslurum mælingu á launamun karla
og kvenna og sagði: „Tölfræði Hag-
stofunnar um atvinnutekjur manna
tekur ekki tillit til vinnu manna,
vinnutíma, menntunar, reynslu,
mannaforráða eða annarra þátta
sem jafnan er litið til í launakönn-
unum sem gerðar eru til að kanna
kynbundinn launamun.
Í könnunum um kynbundinnlaunamun, þegar leiðrétt er fyrir
þessum mælanlegu þáttum, stendur
eftir um 5% tölfræðilega marktækur
munur á kynjum körlum í vil. Þessi
kynbundni munur gefur þó ekki til-
efni til að álykta nokkuð um kyn-
bundið misrétti. Launakannanir eru
of takmarkaðar í eðli sínu til þess að
slá nokkru föstu um það.“
Að auki benti Sigríður á að ungarkonur hjá hinu opinbera væru
með hærri laun en ungir karlar. Það
er því óhætt að segja að heilmikill
árangur hafi náðst í baráttunni um
launajafnrétti og mikilvægt að hann
sé viðurkenndur.
Sigríður
Andersen
Epli eða bananar?
STAKSTEINAR
Þorsteinn
Víglundsson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Í fyrsta skipti síðan makrílveiðar
hófust af krafti hér við land veiddist
meira en helmingur aflans utan ís-
lenskrar lögsögu á nýlokinni vertíð,
að því er fram kemur á heimasíðu
Landssambands smábátaeigenda.
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri
LS, gerði þróun makrílveiða hér við
land að umræðuefni á aðalfundi LS í
síðustu viku og hvatti stjórnvöld til
að gefa færaveiðar smábáta frjálsar,
öll höft á veiðarnar við strendur
landsins væru óþörf. Þar sem upp-
sjávarskipin þyrftu í vaxandi mæli
að leita á mið utan landhelginnar til
að ná heimildum sínum ætti að efla
færaveiðar eins mikið og hægt væri,
að því er segir á heimasíðu LS.
Alls veiddu smábátar 3.751 tonn
af makríl á árinu 2018 og nam afla-
verðmæti þess um 250 milljónum.
Hlutdeild smábáta í því sem veidd-
ist í landhelginni var 6%.
Í ályktun aðalfundar LS um
makríl er lagt til að reglugerð sem
gefin var út fyrir fjórum árum
verði felld úr gildi og heildarúthlut-
un til smábáta verði 16% af heild-
inni. Ennfremur er lagt til að
„leigupottur makríls (ráðherrapott-
ur) verði festur í sessi og að ónýtt-
ar makrílveiðiheimildir umfram
leyfilega tilfærslu milli ára verði
færðar sem viðbót við leigupott
næstu makrílvertíðar“.
aij@mbl.is
Meira veiddist af
makríl utan lögsögu
Vilja að færaveiðar verði frjálsar
Skipting makrílafla eftir veiðisvæðum
Tonn afla 2014-2018
Ár Leyfilegur afli Afli í lögsögu Afli á NEAFC Afli Alls
2014 154.100 157.490 3.314 160.804
2015 179.833 148.280 19.507 167.787
2016 167.767 152.849 11.403 164.252
2017 176.192 105.253 58.668 163.921
2018 146.155 61.855 74.697 136.552
Samtals 824.047 625.727 167.589 793.316
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Samþykkt var á fundi skipulags- og
samgönguráðs Reykjavíkurborgar í
fyrradag að leggja bann við akstri
hópbifreiða upp Njarðargötu. Að
óbreyttu verður bannið merkt með
umferðarmerki sem á stendur: „Inn-
akstur hópbifreiða bannaður“.
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir,
borgarfulltrúi Pírata og formaður
ráðsins, segir íbúa við Njarðargötu
lengi hafa kallað eftir aðgerðum
vegna ónæðis frá umferð og að stórir
hópbílar hafi ekið utan í ökutæki
vegna mikilla þrengsla þar.
„Það er mjög erfitt fyrir þessar
stóru rútur að mætast vegna þess
hve lítil og þröng gatan er. Og þess-
ar rútur hafa í raun verið að skemma
bíla í götunni og auðvitað valdið
ónæði,“ segir Sigurborg Ósk og
bendir á að ákvörðun um fyrrgreint
bann sé niðurstaða mjög víðtæks
samráðs. Akstur rútubíla niður
Njarðargötu verður aftur á móti
heimilaður áfram.
Sumarið 2017 tók gildi breytt fyr-
irkomulag um akstur hópbifreiða í
miðborg Reykjavíkur. Aðspurð segir
Sigurborg Ósk reynsluna af breyttu
akstursfyrirkomulagi almennt góða.
„Það hefur skapast mikil sátt og við
eigum í góðu samstarfi við rútufyrir-
tækin,“ segir hún.
Hópbílar aki ekki upp Njarðargötu
Íbúar lengi kvartað undan mikilli umferð og bílar skemmast vegna þrengsla
Morgunblaðið/Ófeigur
Miðborg Víða má finna safnstæði.