Morgunblaðið - 26.10.2018, Síða 14

Morgunblaðið - 26.10.2018, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2018 VÍKURVAGNAR EHF. STYRKUR, ÞJÓNUSTA og ÁREIÐANLEIKI Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfði 8. - 110 Reykjavík - Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is VÍKURVAGNAR EHF. MIKIÐ ÚRVAL AF KERRUM FYRIR IÐNAÐARMENNOGVERKTAKA BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Gengisáhrifin af veikingu krónunnar á efnahag samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur eru jákvæð um fimm milljarða króna það sem af er árinu. Þetta má lesa út úr ársskýrslu 2017 og þróun lykilstærða. Um helmingur skulda Orkuveit- unnar og dóttur- fyrirtækja er í er- lendri mynt og hinn helmingur- inn í krónum. Langtímaskuldir samstæðunnar voru um 144,5 milljarðar króna um síðustu ára- mót. Þar af um 81 milljarður í er- lendri mynt. Skuldir í erlendri mynt eru lang- tímaskuldir. Með skammtímaskuld- um voru skuldirnar 167,4 milljarðar um síðustu áramót. Þrjár myntir vega þyngst Samkvæmt ársskýrslu fyrirtækis- ins voru um 56% langtímaskulda í fyrra í erlendri mynt. Þrjár erlendar myntir vega þyngst í bókhaldinu; svissneskur franki, evra og banda- ríkjadalur. Skuldir í evrum og doll- urum voru alls um 60 milljarðar. Að sögn Ingvars Stefánssonar, fjármálastjóra Orkuveitunnar, er stærstur hluti erlendra lána í evrum og bandaríkjadal. Vægi sænskrar krónu, bresks punds og japansks jens sé orðið hverfandi í bókhaldinu. Gengi krónu hefur gefið eftir í haust. Til dæmis var miðgengi evru um 123 krónur í byrjun ágúst en var um 137 krónur síðdegis í gær. Ingvar segir aðspurður að veiking krónunnar hafi jákvæð áhrif á efna- hagsreikning félagsins. Virði eigna aukist meira en skuldir þegar hvort tveggja er umreiknað úr erlendri mynt. „Við eigum enda meiri eignir en skuldir í erlendri mynt. Gengisveik- ing hefur því jákvæð áhrif á eigna- stöðuna. Eignastaða samstæðunnar í erlendri mynt er jákvæð um rúma 30 milljarða,“ segir Ingvar og bendir svo á að allar eignir Orku náttúrunnar séu bókfærðar í bandaríkjadal. „Þar vega þyngst Hellisheiðar- virkjun og Nesjavallavirkjun. Sam- tals eru eignir ON um 100 milljarðar króna. Erlendar skuldir samstæð- unnar í erlendri mynt eru rúmir 80 milljarðar,“ segir Ingvar. Neikvæð áhrif á reksturinn Á móti jákvæðum áhrifum á efna- hag komi neikvæð áhrif gengisveik- ingar á reksturinn. Þar muni nokkur hundruð milljónum í ár. Ingvar segir bætt lánshæfismat ríkissjóðs hafa óbein jákvæð áhrif á lánakjör félagsins. Endurfjármögn- un sé fram undan. Samstæðan sé að fara að draga á langt erlent lán sem tilkynnt var um á sínum tíma. „Þessi þróun lánshæfisins hefur já- kvæð áhrif á erlend lán. Við erum til dæmis með lán hjá Norræna fjárfest- ingabankanum (NIB) sem er með vexti sem eru endurskoðaðir árlega. Þeir taka meðal annars mið af láns- hæfismati. Jafnframt hafa verið gerðir varn- arsamningar á vöxtum og gjaldmiðl- um til þess að verja okkur fyrir geng- issveiflum og breyttu vaxtastigi. Þar hefur bætt lánshæfismat líka áhrif. Við fáum betri kjör,“ segir Ingvar. Tekjur samstæðunnar jukust milli ára 2016 og 2017, úr 41,42 milljörðum í 44 milljarða. Ingvar segir aðspurður ólíklegt að veltan fari yfir 50 milljarða í ár. Hann segir aukna notkun skýra auknar tekjur, auk verðbólguáhrifa. Þá séu tæpir sjö milljarðar í erlendu tekju- flæði, nær eingöngu í bandaríkjadal. Þær tekjur aukist í krónum með veik- ingu krónunnar. Nýir samningar í evrum Stefnt er að því að gera nýja sölu- samninga í evrum til að draga úr gengisáhættu. „Við viljum gera nýja sölusamn- inga í evrum til að draga úr gengis- áhættu,“ segir Ingvar. Spurður hvort vaxtabyrðin sé að verða léttari miðað við tekjur bendir Ingvar á að fyrirtækið skuldi nú meira í íslenskum krónum. Þau lán beri hærri vexti en lán í erlendri mynt. Vaxtabyrðin minnki því ekki jafn hratt og hlutfall skulda. Reykjavíkurborg er langstærsti hluthafinn í Orkuveitu Reykjavíkur. Sveitarfélagið átti 93,5% hlut í byrjun árs en Akraneskaupstaður 5,5% og Borgarbyggð 0,93%. Undir samstæðuna heyra Veitur, Orka náttúrunnar og Gagnaveita Reykjavíkur. Skuldastaða Orkuveitunnar versn- aði til muna við efnahagshrunið 2008 og gengishrun krónunnar. Við því var brugðist með Planinu, áætlun um endurreisn félagsins. Planinu er lokið og er eiginfjárhlut- fallið nú um 46%. Eignir aukast með veikari krónu  Sviptingar í gengi krónunnar hafa að þessu sinni jákvæð áhrif á efnahag Orkuveitu Reykjavíkur  Fjármálastjóri félagsins segir því bjóðast betri lánakjör  Aukin lántaka í krónum þýðir hærri vexti Orkuveitan og erlendar skuldir Þrír erlendir gjaldmiðlar skapa einkum gengisáhættu Verðbætur og gengismunur lána 2016 2017 2018 Breyting Meðal- gengi Meðal- gengi Miðgengi 25.10. 2016- 2018 2017- 2018 Svissneskur franki 122,5 108,4 120,1 -1,9% 10,8% Evra 133,6 120,5 136,9 2,5% 13,6% Bandaríkjadalur 120,7 106,8 120,1 -0,5% 12,4% Þröng viðskiptavog Seðlabanka Íslands 179,6 160,4 169,7 -5,5% 5,8% Heimildir: Ársreikningur samstæðu 2017/gengisskráning 25.10.2018 2016 2017 -6.806 milljónir kr. 5.276 milljónir kr. Langtímaskuldir í erlendum gjaldmiðlum 2017 Svissneskur franki Evra Banda- ríkjadalur Sænsk króna Jen Aðrar myntir Erlendir gjaldmiðlar 2018: 50%* 2017: 56% Innlendir gjaldmiðlar 2018: 50%* 2017: 44% Langtímaskuldir Samtals 81 milljarður kr. 10,5 35,1 25 4,8 3,4 2,3 *Skv. áætlun OR Ingvar Stefánsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.