Morgunblaðið - 26.10.2018, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2018
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Það getur nú varla talist stórmál
þótt svona hópur fari í smá göngutúr
um Þjórsárdal,“ segir Björgvin
Skafti Bjarnason, oddviti í Skeiða- og
Gnúpverjahreppi, í samtali við Morg-
unblaðið og vísar í máli sínu til hóps
bandarískra landgönguliða sem tóku
þátt í svokallaðri vetraræfingu 19. og
20. október síðastliðinn.
Fór æfingin þannig fram að her-
mennirnir gengu um 10 kílómetra
vegalengd með útbúnað sinn og
slógu upp nokkrum tjöldum á leið-
inni. Var tilgangur ferðarinnar sá að
leyfa landgönguliðunum að upplifa
hressilegt rok, rigningu og kulda.
Óverulegar gróðurskemmdir
Nokkuð hefur verið fjallað um
gönguferðina og sitt sýnist hverjum.
Meðal þeirra sem mótmæltu viðveru
hersins voru nokkrir íslenskir friðar-
sinnar sem mættu í Þjórsárdal á
sama tíma og landgönguliðarnir voru
þar.
Höfðu friðarsinnar einkum
áhyggjur af gróðri á svæðinu og í
kvöldfréttum RÚV sama dag var við-
tal við einn þeirra sem sýndi birki-
plöntu sem hafði slitnað upp með rót-
um. „Mér finnst það ótrúleg
smekkleysa að vísa her á æfingu þar
sem eru eins og upp í fimm ára gaml-
ar birkiplöntur,“ sagði sá í viðtali.
Björgvin Skafti segir skemmdir
á gróðri óverulegar. „Það koma
sennilega hátt í 100.000 manns á ári
inn í Þjórsárdal. Þetta er því dag-
skammtur sem þarna var á ferð.
Skógræktarmenn segja að þetta sé
ekkert mál. Þetta nær ekki 100
plöntum og tjónið hleypur á svona 20
til 30 þúsund krónum,“ segir hann og
bætir við: „Það er nú ekki mikið að
gerast ef þetta er aðalfréttin.“
Björgvin Skafti segir land-
gönguliðana hafa verið án skotfæra á
ferð sinni um Þjórsárdal og í fylgd
lögreglunnar á Suðurlandi og sér-
sveitar ríkislögreglustjóra. „Það
veitti kannski ekkert af fylgdinni, því
þeir hefðu ekki getað varið sig ef ráð-
ist hefði verið á þá,“ segir hann.
„Lýsir firringu okkar“
Á fundi sveitarstjórnar Skeiða-
og Gnúpverjahrepps síðastliðinn
miðvikudag lagði Anna Sigríður
Valdimarsdóttir sveitarstjórnar-
fulltrúi fram bókun þar sem hún
harmar æfinguna. „Að hafa æfingar í
tengslum við hernað í flimtingum
lýsir firringu okkar sem Vestur-
landaþjóðar blindaðrar af forrétt-
indum okkar, hafandi ekki upplifað
slíkar hörmungar á eigin skinni,“
segir þar, en talsverðar umræður
urðu um málið í sveitarstjórn í fram-
haldi af bókuninni. Björgvin Skafti
segist ekki eiga von á öðru en málið
sé útrætt og sumir hafi einfaldlega
„þurft að losa sig“ aðeins.
„Varla stórmál“ þótt
herinn fari í göngu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Kuldalegir Þeim virtist vera heldur kalt landgönguliðunum sem þrömmuðu 10 km í Þjórsárdal í roki og rigningu.
Kostnaður vegna gróðurskemmda 20-30 þúsund krónur
Ágúst Ingi Jónsson
mbl.is
Þriggja vikna greiðslustöðvun
rækjuvinnslunnar Hólmadrangs á
Hólmavík rennur út um mánaða-
mótin. Viktoría
Rán Ólafsdóttir,
stjórnarformaður
Hólmadrangs og
kaupfélagssstjóri
Kaupfélags
Steingrímsfjarð-
ar á Hólmavík,
segir að sótt verði
um framlengingu
á greiðslustöðv-
uninni til þriggja
mánaða. Á þeim
tíma verði unnið áfram að því að end-
urreisa fyrirtækið, m.a. með endur-
skipulagningu og sölu eigna.
Vinna hráefni í verktöku
Fyrirtækið er í fullum gangi, en í
stað þess að kaupa hráefni frá Kan-
ada eða Noregi, vinna það og selja
hefur verið stillt upp nýju rekstrar-
líkani. Núna er hráefni sem aðrir
eiga tekið inn í verktöku, en Hólma-
drangur vinnur það gegn þóknun.
Viktoría segir að þetta stytti allt
ferlið og á þennan hátt fáist tekjur
sem gangi þá til þess að minnka
skuldir fyrirtækisins. Það ætti að
leiða til þess að mögulegt verði að
semja við lánardrottna. Langtíma-
skuldir fyrirtækisins nema nú um
120 milljónum króna og rekstrar-
skuldir eru rúmlega sú upphæð, að
sögn Vktoríu.
Erfiðleikar tengdir Brexit
Erfiðleika í rekstri fyrirtækisins
rekur Viktoría til ákvörðunar Breta
2016 að ganga úr Evrópusamband-
inu, en stærsti markaður fyrirtækis-
ins sé Bretland. Eftir Brexit hafi
gengi pundsins fallið og afurðasala
frosið. Engin hreyfing hafi verið á
rækjubirgðum Hólmadrangs og til-
raun til að koma hreyfingu á söluna
hafi leitt til óhagstæðra samninga og
um tíma hafi verið selt undir kostn-
aðarverði.
Síðustu ár hafi innkaupaverð verið
hátt en söluverðið lágt og frá 2016
hafi fyrirtækið velt skuldabagga á
undan sér. Undanfarið hafi gengið
tekið við sér til hagsbóta fyrir út-
flytjendur og segir Viktoría að hún
hefði viljað sjá það gerast fyrr.
„Í raun er allt undir“
Kaupfélag Steingrímsfjarðar á
50% í Hólmadrangi og FISK Sea-
food hinn helminginn. Nú starfa um
20 manns hjá Hólmadrangi og held-
ur fleiri hjá Kaupfélaginu. Þessi tvö
fyrirtæki eru burðarásar í atvinnulíf-
inu á Hólmavík og segir Viktoría að
hagsmunir fyrirtækjanna séu sam-
tvinnaðir og þau séu rekin sem sam-
stæða. „Í raun er allt undir og brott-
hvarf annars mundi hafa gríðarleg
áhrif á hitt og þá um leið á allt sam-
félagið hér á Hólmavík,“ segir Vikt-
oría Rán Ólafsdóttir. Hún bætir því
við að stjórnendur geri allt sem þeir
mögulega geti til að vinna úr þessum
erfiðu aðstæðum.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hólmavík Um 20 manns starfa við
rækjuvinnslu hjá Hólmadrangi.
Unnið er að því
að endurreisa
Hólmadrang
Óskað verður eftir lengri greiðslustöðvun
Viktoría Rán
Ólafsdóttir
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Á fundi sveitarstjórnar Skeiða- og
Gnúpverjahrepps, sem haldinn var
síðastliðinn miðvikudag, kemur fram
í bókun Önnu Sigríðar Valdimars-
dóttur sveitarstjórnarfulltrúa að hún
harmi að æfing landgönguliða hafi
verið leyfð í sveitarfélaginu.
„Ég harma að æfingar í þágu
hernaðar hafi verið leyfðar í sveitar-
félaginu Skeiða- og Gnúpverja-
hreppi og myndi kjósa að slíkar æf-
ingar færu ekki fram hér framar. Í
mínum huga er hvers kyns stuðning-
ur við hernað stuðningur við vald-
beitingu og ofbeldi. Ef ekki væri
ójöfnuður og misskipting í heiminum
tel ég að ekki væri þörf á hernaði og
vil ég því frekar beina kröftum mín-
um í að stuðla að jöfnuði í samfélög-
um manna,“ segir í bókun.
Komu ekki að leyfisveitingu
Björgvin Skafti Bjarnason oddviti
segir hvorki sveitarstjórn, sveitar-
stjóra né oddvita hafa gefið leyfi fyr-
ir göngu hermanna í Þjórsárdal.
„Haft var samband við oddvita
fyrir nokkrum vikum og hann látinn
vita að hugsanlega yrði hluti her-
æfinga sem fyrirhugaðar voru hafð-
ur í Þjórsárdal. Ekki voru nein önn-
ur samskipti við yfirvöld Skeiða- og
Gnúpverjahrepps fyrr en eftir að
oddviti frétti daginn fyrir sveitar-
stjórnarfund að heræfing stæði fyrir
dyrum. Haft var samband við utan-
ríkisráðuneytið. Þar fengust þær
upplýsingar að um gönguæfingu
væri að ræða og væri búið að hafa
samband við landeigendur. Oddviti
kynnti sveitarstjórnarmönnum í lok
sveitarstjórnarfundar daginn eftir
þessa niðurstöðu,“ segir í bókun
Björgvins Skafta á fundinum.
Að sögn hans er umrætt svæði
skilgreint sem þjóðlenda, en forsæt-
isráðuneytið fer með málefni slíkra
svæða. „Landeigandi í þessu tilfelli
er forsætisráðherra og forsætisráðu-
neytið. Utanríkisráðuneytið sagðist
hafa verið í sambandi við forsætis-
ráðuneytið vegna æfingarinnar,“
segir hann.
Harmar leyfisveit-
ingu æfingarinnar
Forsætisráðherra í hlutverki landeiganda
Allt um sjávarútveg