Morgunblaðið - 26.10.2018, Side 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2018
Rafport ehf • Auðbrekka 9-11 • 200 Kópavogur • Sími 580 1900 • rafport@rafport.is
Með free@home hefur aldrei verið auðveldara og hagstæðara
að stjórna heimilinu, sumarbústaðnum eða fyrirtækinu.
Ertu að byggja, breyta eða bæta?
Endilega kynntu þér málið.
Snjalllausnir – nútíma raflögn
Sjanghæ. AFP. | Myndir af ungum
Kínverjum að velta sér upp úr auði
sínum hafa vakið mikla athygli á
samfélagsmiðlum í Kína og þeim
hefur verið svarað með því að not-
endur miðlanna keppast við að birta
myndir af sér með það fyrir augum
að hafa nýríka Kínverja að háði og
spotti. Slíkar myndir hafa verið
skoðaðar rúmlega 2,3 milljörðum
sinnum og rúm milljón athugasemda
hefur verið skrifuð um þær á kín-
verska samfélagsmiðlinum Weibo.
Hjarðhegðunin hófst á samfélags-
miðlum í Rússlandi í júlí þegar vin-
sæll rússneskur plötusnúður og upp-
tökustjóri tók að birta myndir af sér
liggjandi á gólfinu í einkaþotu sinni.
Sjónvarpsstjarna nokkur tók síðan
upp á því að birta myndir af sér
detta niður stiga lystisnekkju. Þær
vöktu talsverða athygli í Rússlandi,
þó ekki eins mikla og myndirnar í
Kína þegar þetta tískufyrirbæri
barst þangað.
Hegðunin felst í því að notendur
kínversku samfélagsmiðlanna birta
myndir af sér detta þegar þeir stíga
út úr bílum sínum og liggja á gang-
stéttinni innan um peninga,
greiðslukort, skartgripi, innkaupa-
poka frá tískuverslunum, raftæki og
ýmsan lúxusvarning.
Mikill hagvöxtur í Kína síðustu
áratugi hefur orðið til þess að þar
eru fleiri milljarðamæringar í
bandaríkjadölum en í nokkru öðru
landi, eða 620. Margir af kínversku
auðkýfingunum hafa ekki verið
feimnir við að monta sig af glæsi-
bifreiðum sínum og öðrum stöðu-
táknum.
Margir notendur samfélagsmiðl-
anna hafa birt skopstælingar á
myndunum til að hæðast að nýríku
Kínverjunum. Til dæmis var birt
mynd með fyrirsögninni „duglegur
starfsmaður“ af manni sem lá á
gangstétt við skrifstofubyggingu,
innan um þvottaefni, kústa og annan
búnað til ræstinga. Opinberir starfs-
menn hafa tekið þátt í þessu með því
að birta myndir af sér innan um hluti
sem þeir nota í vinnunni, þeirra á
meðal slökkviliðs- og lögreglumenn.
Mörgum þykir nóg um og í mörg-
um athugasemdanna er myndbirt-
ingunum lýst sem tímasóun. „Eru
þessir menn gengnir af göflunum?“
spurði einn þeirra. „Líf þeirra hlýtur
að vera mjög innantómt úr því að
þeir eyða tímanum í að finna nýjar
leiðir til að sanna tilveru sína.“
Nýríkir Kínverjar hafðir að háði og spotti
Myndir af fólki
að velta sér upp úr
auði skopstældar
AFP
Djásn og dýrmæti Vel til höfð kona liggur innan um dýrindisvörur í töskum.
AFP
Gull og gersemi Nýríkur Kínverji liggur á gólfinu, innan um gullstangir.