Morgunblaðið - 26.10.2018, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 26.10.2018, Blaðsíða 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2018 www.hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10 | 200 Kópavogi Margverðlaunuð baðvifta Einstaklega hljóðlát 17-25dB (A) Innbyggður raka-, hita- og hreyfiskynjari. Vinnur sjálfvirkt 3W www.gilbert.is GÆÐA ARMBANDSÚR FYRIR DÖMUR OG HERRA KLASSÍSK ÍSLENSK Slysum á börnum í íbúðahverfum hefur því miður farið fjölg- andi eins og fram kemur í nýútkominni rannsóknarskýrslu sem styrkt var af Vegagerðinni. Við því verður að bregðast strax bæði með auk- inni fræðslu og sam- göngubótum sem auka öryggi barna í umferðinni. Á sama tíma og hvatt er til þess að börn fari gangandi eða hjólandi í skóla og í frístundir þarf umferðaröryggi að vera eins og best verður á kosið. Gera þarf átak í því að merkja gangbrautir en víða er pottur brotinn hvað slíkar merkingar snertir, meira og minna í öllum hverfum borgarinnar. Samræma þarf merkingar gangbrauta Þá er mikið ósamræmi í göngu- þverunum og ýmsar útfærslur not- aðar eins og t.d. upphækkanir, götumynstur í alls konar litum og með alls konar afbrigðum, götu- koddar og línur og það sem enn verra er að sums staðar eru alls engar merkingar þar sem gert er ráð fyrir gönguþverunum. Allt þetta misræmi í merkingum er til þess eins fallið að draga úr umferðaröryggi gangandi vegfar- enda sem auðveldlega geta ruglast í ríminu og ökumenn og vegfarendur eru ekki með það á hreinu hver hafi forgang. Sebramerktar gangbrautir í Reykjavík eru orðnar fáséðar og sömuleiðis vantar meira og minna skilti og merkingar sem sýna að um gangbraut sé að ræða. Auk þess sem lýsingu er mjög víða ábótavant við gangbrautir sem getur skapað verulega hættu. Þá er sýnileiki gangandi vegfarenda oft takmark- aður vegna þess að bílastæði og trjágróður er mjög nærri gang- brautum og skerða útsýni öku- manna þannig að erfitt getur verið að sjá þá sem standa við gang- brautina og þá sérstaklega börn sem ekki eru há í loftinu. Það er ljóst af þessu að umferð- arlögum og reglugerðum er ekki fylgt eftir og þær eru víða þver- brotnar. Í umferðarlögum er fjallað skýrt um gangbrautir, umferðar- rétt á þeim og hvernig þær skuli úr garði gerðar. Í 26. grein laganna segir m.a. að ökumaður skuli nema staðar, ef nauðsyn krefur til að veita hinum gangandi færi á að komast yfir akbrautina og í reglu- gerð 289/1995 er kveðið á um að gangbraut skuli merkt með umferðarmerki báðum megin akbraut- ar sem og á miðeyju þar sem hún er. Þá skal merkja gangbraut með yfirborðsmerking- um, hvítum línum þversum yfir akbraut (sebrabrautir). Réttur gangandi vegfarenda er því skýr þegar þessi skilyrði eru uppfyllt. Með því að notaðar séu samræmdar merk- ingar eins og lög kveða á um aukum við umferðaröryggið og ekki síst þegar börn eiga í hlut enda er þeim kennt í umferðarfræðslu hvernig fara eigi yfir götu á sérmerktum gangbrautum. Það vita það allir uppalendur og þeir sem vinna að uppeldismálum að reglur fyrir börn þurfa að vera skýrar og augljósar en alls ekki misvísandi. Í flestum sveitarfélögum í kring- um okkur er lagður metnaður í að merkja gangbrautir í samræmi við lög og reglugerðir enda eru gang- brautarmerkingar þar til fyrir- myndar en því miður hefur verið misbrestur á því í höfuðborginni og því full þörf á að gera bragarbót á því hið fyrsta. Forgangsröðum í þágu yngstu vegfarendanna Við eigum að forgangsraða í þágu yngstu vegfarendanna og byrja á að lagfæra gangbrautir á göngu- leiðum barna til og frá skóla og koma þar upp skiltum og góðri lýs- ingu eins og lög kveða á um. Í októ- ber fyrir ári síðan lögðum við sjálf- stæðismenn til í borgarstjórn að merkingar á gangbrautum yrðu lagfærðar og þær samræmdar, til- lögunni var vísað til umhverfis- og skipulagssviðs til meðferðar en því miður hefur lítið heyrst um hana síðan. Það er ljóst að umferðar- lögum og reglugerðum hefur ekki verið fylgt eftir í Reykjavík hvað gangbrautir snertir en úr því verð- ur að bæta hið fyrsta til að tryggja umferðaröryggi og koma í veg fyrir slys á börnum. Tryggjum öryggi barna í umferðinni Eftir Mörtu Guðjónsdóttur Marta Guðjónsdóttir » Forgangsraða þarf í þágu yngstu vegfar- endanna og byrja á að lagfæra gangbrautir á gönguleiðum barna til og frá skóla til að bæta umferðaröryggi þeirra. Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Það vakti mikla at- hygli og undrun þegar kjararáðið (sáluga) fór að ákvarða stjórn- málamönnum og emb- ættismönnum ofur- launahækkanir, sem ekki höfðu sést áður. Þó var það tilskilið að kjararáð ætti í störf- um sínu að taka tillit til launaþróunar. Sú röksemd var notuð, þegar laun ráðherra og æðstu embættismanna voru hækkuð upp úr öllu valdi, að segja, að laun þessara aðila hefðu verið fryst og skert á kreppuárunum eftir banka- hrunið. Þá rifjaðist það upp að líf- eyrir aldraðra og öryrkja var frystur á kreppuárunum en þó fengu launamenn umsamdar kaup- hækkanir. M.ö.o.: Á sama tíma og verkafólk fékk kauphækkanir var lífeyri aldraðra og öryrkja haldið niðri. En ekki nóg með það: Til viðbótar voru kjör aldraðra og ör- yrkja skert enn meira: Grunnlíf- eyrir var skertur. Frítekjumark vegna atvinnutekna var skert og tekjutryggingin var skert. Það hefði mátt ætla að þegar betur ár- aði í þjóðfélaginu hefði verið byrj- að á því að leiðrétta og bæta kjör aldraðra og öryrkja. En því miður: Þingmenn og ráðherrar töldu brýnna að „leiðrétta“ eigin kjör. Þess vegna voru laun þingmanna hækkuð í 1,1 milljón kr. á mánuði fyrir skatt auk alls konar auka- greiðslna og laun ráðherra voru hækkuð í 1,8-2 millj. kr. á mánuði fyrir skatt auk mikilla hlunninda af ýmsum toga. Grunnlífeyrir afnuminn Stjórnmálaforingjar sem setið hafa við völd frá lokum krepp- unnar segjast hafa afturkallað ein- hverja kjaraskerðingu aldraðra og öryrkja frá krepputímanum. En það er mjög óverulegt. Sem dæmi má nefna að grunnlífeyrir, sem skertur var af ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur (Sam- fylkingar og VG), var leiðréttur af ríkis- stjórn Sigmundar Davíðs vorið 2013, þ.e. skerðingin var tekin til baka. En það stóð ekki lengi, þar eð sömu flokkar, Fram- sókn og Sjálfstæðis- flokkur, afnámu grunnlífeyrinn alveg um áramótin 2016/ 2017. Við þá breytingu voru 4.500 eldri borg- arar strikaðir alveg út úr kerfi almannatrygginga þótt þeir hafi greitt til þeirra alla sína starfsævi; sumir frá 16 ára aldri í formi tryggingagjalds en síðan í sköttum. Í hinum ríkjum Norður- landanna er grunnlífeyrir í gildi. Og hér var grunnlífeyrir heilagur til skamms tíma. Það mátti ekki hrófla við honum. En Framsókn og Sjálfstæðisflokkur hafa afnumið hann. Skerðing tekjutryggingar rann út af sjálfu sér þar eð hún var tímabundin. Lögin féllu úr gildi að hinum tilskilda tíma liðnum. Kjaragliðnun mesta kjaraskerðingin Mesta kjaraskerðingin sem aldr- aðir og öryrkjar urðu fyrir á krepputímanum var vegna kjaragl- iðnunar. Með kjaragliðnun er átt við það að lífeyrir hækkar minna en laun. Aldraðir og öryrkjar verða fyrir kjaraskerðingu af þeim sökum. Félag eldri borgara í Reykjavík barðist harðlega fyrir því að þessi kjaragliðnun yrði leið- rétt. Kjaranefnd félagsins heim- sótti þingið og ræddi við alla þing- flokka um að fá þetta leiðrétt. Þáverandi stjórnarandstaða lofaði að gera það. Samþykkt var á landsfundi Sjálfstæðisflokksins 2013 eftirfarandi ályktun um mál- ið: Ellilífeyrir sé leiðréttur strax til samanburðar við þær hækkanir, sem orðið hafa á lægstu launum síðan í ársbyrjun 2009. Flokkurinn komst til valda og fékk fjármála- ráðherrann en stóð ekki við loforð- ið um leiðréttingu lífeyris vegna kjaragliðnunar. Framsóknarflokk- urinn samþykkti einnig ályktun um þetta mál á flokksþingi sínu 2013. Þar var þetta samþykkt: Líf- eyrir aldraðra og öryrkja verði hækkaður vegna kjaraskerðingar þeirra (og kjaragliðnunar) á krepputímanum. En það fór eins hjá Framsókn. Hún stóð ekki við loforðið. Flokkarnir voru saman í stjórn og urðu sammála um að efna ekki loforðið við eldri borgara og öryrkja! Lífeyri á að hækka um a.m.k. 30% Það þýðir ekki fyrir stjórnmála- foringja að berja sér á brjóst og segja að þeir hafi gert einhver ósköp fyrir eldri borgara og ör- yrkja, þegar þeir standa ekki við það sem skiptir mestu máli. Leið- rétting á lífeyri vegna kjaragliðn- unar krepputímans skiptir mestu máli; þýðir a.m.k. 30% hækkun líf- eyris. Það munar um það. Á valda- tíma Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins frá 2013 hefur síðan bæst við ný kjaragliðnun sem einnig á eftir að leiðrétta. Á meðan lífeyrir aldraðra og ör- yrkja frá almannatryggingum er svo lágur að hann dugar ekki til framfærslu geta aldraðir og ör- yrkjar ekki gefið eftir uppgjör á loforðum um að bæta kjaragliðnun liðins tíma. Þarna hefur myndast skuld við lífeyrisþega, sem þeir verða að fá greidda. Þeir hafa ekki efni á því að lána ríkinu þetta leng- ur. Ríkið borgi skuldina við aldr- aða og öryrkja strax Eftir Björgvin Guðmundsson » Það hefði mátt ætla að þegar betur áraði í þjóðfélaginu hefði ver- ið byrjað á því að leið- rétta og bæta kjör aldr- aðra og öryrkja. En, nei, því miður. Björgvin Guðmundsson Höfundur er fv. borgarfulltrúi. vennig@btnet.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.