Morgunblaðið - 26.10.2018, Page 28

Morgunblaðið - 26.10.2018, Page 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2018 ✝ Þorkell Skúla-son fæddist í Hólsgerði, Köldu- kinn, Suður- Þingeyjarsýslu 20. júní 1925. Hann lést á Hjúkrunarheim- ilinu Sunnuhlíð í Kópavogi 13. októ- ber 2018. Foreldrar hans voru hjónin Sigur- veig Jakobína Jó- hannesdóttir, f. 26. ágúst 1880, d. 6. júní 1967, og Skúli Ágústs- son, f. 18. september 1875, d. 4. desember 1934, bændur í Hóls- gerði. Systkini Þorkels eru: Jó- hannes, f. 1911, Jónas, f. 1913, Guðrún, f. 1916, Skúli, f. 1918, Jóhanna, f. 1920, Kristveig, f. 1923, og Þorsteinn, f. 1926. Þau eru öll látin. Þann 1. janúar 1949 kvæntist Þorkell eftirlifandi eiginkonu sinni Ólafíu Katrínu Hansdóttur húsfreyju, f. 30. júlí 1923 að Ketilstöðum í Hörðudal, Dala- sýslu. Foreldrar hennar voru Ingiríður Kristín Helgadóttir ljósmóðir, f. 28. júní 1890, d. 21. desember 1972, og Hans Ágúst Kristjánsson búfræðingur og oddviti, f. 5. ágúst 1897, d. 11. desember 1944. Börn Þorkels og Ólafíu eru: 1) Drengur andvana fæddur, 19. janúar 1950. 2) Ingiríður Hanna, fv. ráðherraritari, f. 31. mars 1951. Fyrrverandi sambýlis- þórsson rennismiður, f. 9. maí 1948, d. 25. mars 2010. Börn Anna sendiherra, f. 7. desember 1968, maki Jón Örn Brynjarsson viðskiptafræðingur, f. 1969, Ey- þór Kristinn verkamaður, f. 23. maí 1972. Langafa- og stjúplang- afabörn eru þrettán. Þorkell lauk námi frá Héraðs- skólann að Laugum í Reykjadal 1945 og frá Samvinnuskólanum 1947. Hann varð löggiltur endurskoðandi 1970. Samhliða námi við Samvinnuskólann stundaði hann tungumálanám í ensku og þýsku. Vann við skrif- stofustörf hjá SÍS frá 1947 til 1964, þar af forstöðumaður endurskoðunardeildar frá 1952 til 1961. Þorkell var aðalbókari Ferðaskrifstofu ríkisins 1947 til 1962, framkvæmdastjóri BSÍ og Félags sérleyfishafa 1962 til 1964. Frá 1964 til loka árs 1970 var Þorkell aðalendurskoðandi Samvinnubanka Íslands. Hann var form. stjórnar Byggingar- samvinnufélags starfsm. SÍS 1959 til 1970. 1971 stofnaði hann eigin endurskoðunarskrifstofu að Hamraborg 5 í Kópavogi. Hann starfaði við endurskoðun heima meðan þrek leyfði. Þorkell var einn af stofn- félögum Kiwanisklúbbsins Eld- eyjar í Kópavogi og forseti 1974 til 1975. Hann var virkur í Fram- sóknarfélagi Kópavogs um ára- bil og formaður 1970 til 1973. Útför Þorkels fer fram frá Hjallakirkju í Kópavogi í dag, 26. október 2018, og hefst klukk- an 13. Jarðsett verður í Kópa- vogskirkjugarði. maður er Guðjón Friðriksson sagn- fræðingur, f. 9. mars 1945. Dóttir Úlfhildur hjúkr- unarfræðingur, f. 3. desember 1978, sambýlismaður Sig- urður Grétar Ólafs- son verkefnastjóri, f. 1978. 3) Elsa Sigurveig lögfræð- ingur, f. 6. júní 1953, maki Már Guðmundsson seðlabankastjóri, f. 21. júní 1954. Börn Andrés lögfræðingur, f. 4. júní 1984, sambýliskona Jóna María Ólafsdóttir verkefna- stjóri, f. 1991, Vigdís Þóra há- skólanemi, f. 22. apríl 1992, og Katrín Svava háskólanemi, f. 19. apríl 1995. 4) Indriði hrl., f. 2. febrúar 1957. Börn hans og fyrri eiginkonu Helgu Gísladóttur, f. 24. febrúar 1960, eru Arnþór garðyrkjufræðingur, f. 26. októ- ber 1979, Gísli járnsmiður, f. 1. maí 1986, sambýliskona Line Wurtz nemi í skrúðgarðyrkju, f. 1990, og Ólafía Katrín félags- ráðgjafi, f. 26. maí 1989. Eigin- kona Indriða er Anna María Soffíudóttir starfsmaður á bóka- safni, f. 1954. Börn hennar og stjúpbörn Indriða eru tvö. Barn Þorkels með Sigur- björgu Helgadóttur, f. 30. nóvember 1919, d. 4. desember 1999, er Valdís Brynja kennari, f. 2. júní 1946. Maki Jóhann Ey- Öllum börnum finnst foreldri sitt einstakt og þannig á það að vera. Pabbi minn var einstakur. Dökkur á brún og brá, yfirveg- aður, hlýr, klár og skemmtilegur. Hann var hálfgerður sveita- drengur þótt hann byggi lengst á höfuðborgarsvæðinu. Hann elsk- aði Ísland, kenndi okkur að tala gott mál og að bækur væru hluti af lífinu. Það voru ekki jól nema að allir fengju bók. Á uppeldisárum mínum var verkaskipting kynjanna hefð- bundin. Mamma heimavinnandi, pabbi í vinnunni. Hann vann á kvöldin og flestar helgar á Ferðaskrifstofu ríkisins eða BSÍ. Kópavogur er bærinn þeirra pabba og mömmu en þangað fluttum við árið 1956. Frá árinu 1971 var Kópavogur einnig vinnustaðurinn hans. Þrátt fyrir mikla vinnu gaf hann okkur tíma. Sunnudagsmorgna fór hann með okkur og vinina í sund, alltaf Sundhöll Reykjavíkur. Bíllinn var þéttsetinn, enda bílbeltum ekki fyrir að fara. Á meðan eldaði mamma sunnudagssteikina. Þeg- ar teygja þurfti tímann fyrir hús- móðurina, var keyrt út á Reykja- víkurflugvöll til að skoða flugvélarnar eða niður á höfn til að skoða skipin. Þessir farar- skjótar höfðu yfir sér mikinn æv- intýrablæ enda ferðalög um borð í slíkum fyrirbærum ekki í boði. Eftir að pabbi hóf störf í Sam- vinnubankanum voru sumarfríin oftar en ekki ferðir um landið, viðkomustaðir þeir bæir þar sem bankinn var með útibú. Þar vann pabbi nokkra daga og síðan hald- ið af stað. Ætíð var komið við hjá ömmu og systkinum hans í Hóls- gerði og þar dvalið viku eða tvær. Þá var gaman og í minningunni alltaf sól. Jóhanna systir hans og frændsystkinin í Ytri-Tungu á Tjörnesi alltaf heimsótt sem og Kristveig á Siglufirði og frænd- systkin þar. Pabbi kenndi okkur nöfnin á bæjunum sem við keyrð- um fram hjá, fjöllunum, ánum og vötnunum. Hann sagði okkur frá þekktu fólki úr sveitinni, allt frá landsnámstíð. Síðar þegar við vorum farin að heiman, fóru þau í ferðir víðs vegar um landið. Pabbi naut þess að ganga í ís- lenskri náttúru, gekk á fjöll um tíma og fór á gönguskíði. Þau keyptu sér rúgbrauðsbíl sem þau innréttuðu. Á honum voru þeim flestir vegir færir. Hann las mik- ið, seinni árin mest ævisögur, þjóðlegan fróðleik, vísur og ljóð. Eins og sönnum Þingeyingi sæmir kunni hann ógrynni af vís- um utan að. Hann naut þess að fara með þær og ekki var það verra ef þær voru eftir Egil Jón- asson á Húsavík, frænda hans Indriða Þorkelsson á Fjalli eða aðra Þingeyinga. Hann orti sjálf- ur þó ekki hafi hann hampað því. Þau ferðuðust líka til útlanda. London var hans borg en þangað fór hann oft á árunum hjá SÍS. Pabbi og mamma, við systkin og makar fórum þangað í helgarferð árið 2002. Carmina Burana í Royal Albert Hall var ógleym- anleg, hann heillaður. Þau ferð- uðust víðar, keyrðu á rúgbrauð- inu sínu um Noreg eitt sumarið, til Danmerkur ítrekað og heim- sóttu okkur árlega árin okkar í Basel. Síðustu tvö árin voru honum pabba mínum erfið, þrekið farið, svimi og stöðugur höfuðverkur hömluðu lífsgæðum hans. Hann hélt vitsmununum til síðasta dags og fyrir það ber að þakka. Takk fyrir allt, elsku pabbi minn. Elsa S. Þorkelsdóttir. Pabbi minn kvaddi þetta jarð- líf að kvöldi 13. október. Það var kyrrð og ró yfir öllu, andlátið friðsælt og fegurð í umhverfinu þó að loftið væri tregablandið. Hann náði 93 ára aldri og átti farsæla ævi. Hann var fæddur í Hólsgerði í Köldukinn og þó að hann færi snemma að heiman áttu æskustöðvarnar stóran sess í huga hans og þeirra vitjaði hann eins oft og hann gat. Hugur hans stefndi til mennta og hann fór bæði í Héraðsskól- ann á Laugum og svo í Sam- vinnuskólann á Bifröst og varð endurskoðandi. Það hefur þurft kjark og sterkan vilja til að ná þessu á uppvaxtarárum hans þegar flestir höfðu rétt til hnífs og skeiðar. Pabbi var gæfumaður í einkalífinu, Ólafía, kona hans, stóð ætíð við hlið hans og sam- stillt gengu þau í gegnum lífið og komu upp þremur börnum. Ég var ekki alin upp hjá hon- um og á mínum æskuárum var langt að norðan, suður til Reykjavíkur. Samstarf vegna barna var með allt öðrum hætti þá, en samband okkar pabba óx með árunum og þróaðist í þau bestu tengsl sem ég gat hugsað mér. Hann var vandaður að allri gerð, yfirvegaður og heilsteypt- ur. Pabbi var hlýr og þægileg nærvera fylgdi honum en hann var ekki maður margra orða og lét verkin tala. Hann gekk fús til margvíslegra félagsstarfa og þar voru honum falin fjölmörg ábyrgðar- og trúnaðarstörf. Hann var af þeirri kynslóð þar sem töluð orð höfðu merkingu og handsalað samkomulag var engu síðra en skriflegt. Pabbi stofnaði eigin endur- skoðendaskrifstofu í Hamraborg í Kópavogi. Hann starfrækti hana langt fram á áttræðisald- urinn og farnaðist vel. Hann naut trausts og vináttu margra í starfi. Við áttum margar góðar stundir þar sem við fórum yfir lífið í sveitinni fyrir norðan og stjórnmálin, hann hafði ákveðnar skoðanir og fylgdist vel með. Hann var líka mikill bókamaður, ljóðaunnandi og kunni ógrynni af kvæðum sem hann hafði gaman af að fara með hin síðari ár, hann var fróður og áhugasamur um menntun alla tíð. Ég fann þakklæti og væntum- þykju þegar ég leit inn hjá þeim hjónum hin síðari ár þegar hversdagurinn varð fábrotnari. Heilsu hans fór að hraka í byrjun þessa árs, hann kvartaði ekki og stóð á meðan stætt var, en veik- indin ágerðust og breytingar voru óumflýjanlegar. Í haust komst hann inn á hjúkrunar- heimilið Sunnuhlíð og naut þar góðrar aðhlynningar. Í erfiðum veikindum á lokakafla lífsins skynjaði ég þakklæti hans til alls. Pabbi var góð fyrirmynd og ég vona að einhverja af hans góðu eiginleikum megi finna hjá mér. Hvíl í friði, hafðu þökk fyrir allt. Þín dóttir, Valdís. Sólin er ein skín samt í ótal vötnum þannig er umhyggja þín sól í ótal vötnum. (Matthías Johannessen) Sól rís, sól sest. Líf fæðist, líf deyr. Stundaglasið tæmist. Margs er að minnast og margt ber að þakka þegar kemur að kveðjustund í lífi ástvinar. Elskulegur faðir minn hefur nú haldið í sína hinstu ferð, þá ferð sem bíður okkar allra. Lífs- sólin hans gekk til viðar og sett- ist að kvöldi laugardagsins 13. október sl. Andlát hans kom ekki á óvart, enda sólarlagið í lífi hans búið að reynast honum erfitt sök- um veikinda. Æðrulaus kvaddi hann. Hvíldin var kærkomin. Faðir minn var ekki aðeins faðir minn, heldur einnig minn besti vinur. Hann var kletturinn trausti í lífi mínu sem leiddi mig og verndaði frá fyrstu árum bernsku minnar. Hann kenndi mér að tala og rita fallegt mál, kenndi mér að unna ljóðum, bera virðingu fyrir náttúru og um- hverfi landsins sem ól okkur svo og þeim sem á undan eru gengn- ir, þeim sem við eigum lífið að þakka. En handan við fjöllin og handan við áttirnar og nóttina rís turn ljóssins þar sem tíminn sefur. Inn í frið hans og draum er förinni heitið. (Snorri Hjartarson) Full þakklætis fyrir að hafa átt jafn einstakan föður og hann föður minn, lýt ég nú höfði og leyfi minningunum að taka völd- in. Söknuðurinn er sár og án föð- ur míns verður lífið aldrei eins og áður, en hann mun lifa í hjarta mínu um ókomna tíð. Um leið trúi ég því að þegar ég legg upp í mína hinstu ferð, þá muni hann bíða mín „handan við fjöllin og handan við áttirnar og nóttina“ og leiða mig áfram veginn þar sem turn ljóssins rís og þar sem tíminn sefur. Ég óska þér góðrar heim- ferðar, elsku pabbi minn, hvíldu í friði. Þín, Ingiríður (Inga) Hanna. Ástkær fyrrverandi tengda- faðir, vinur, afi og langafi er fall- inn frá eftir langa fjölbreytta ævi. Ekki er hægt að minnast Þor- kels án þess að nefna Ólafíu. Þau hafa verið sameinuð frá okkar fyrstu kynnum. Þar sem Þorkell var heimsmaðurinn var Ólafía stoðin og styttan innan heimilis- ins og þar sem Þorkell gat gleymt sér í þungum þönkum var og er Ólafía ljósið. Saman fannst mér þau fullkomin. Þorkell var framsóknarmaður fram í fingurgóma og elskaði að ræða pólitík sem og allt fallegt og fágað. Hann hafði gott auga fyrir stærðum, formi og tísku, ég man hvað hann gat keypt flott föt á sig og okkur stelpurnar í útlönd- um og allt passaði. Ég fékk að keyra flotta Chevr- olettinn sem hann hafði flutt inn frá Ameríku, þvílík gleði. Börnin mín, sem börn, muna skeggið hans sem þau máttu toga í, flottu frakkana sem hann gekk í, og að það var þögn í húsinu þegar fréttir voru lesnar í út- varpinu. Eins ferðirnar í Hóls- gerði, með nesti fyrir ferðina sem notið var úti í náttúrunni. Og að það hvíldi stóísk ró yfir honum. Síðan við fluttum til Danmerk- ur heimsóttu Ólafía og Þorkell okkur svo lengi sem heilsan leyfði. Þegar svo Holger minn kom inn í fjölskylduna með sín börn voru þau öll samstundis tekin með í fjölskylduna hjá Ólafíu og Þorkeli. Þorkell naut þess að sitja hér og lesa dönsku blöðin og koma svo og biðja um að fá orð, eða fréttir, útskýrðar til hlítar. Þar gat hann virkilega sett mig í vinnu, og fengið mig, og Holger, til að staldra við í lífskapphlaup- inu og hugsa dýpra. Þessara stunda naut ég, og þær fengu mig til að minnast lífsins með þeim í Birkigrundinni. Með þakklæti í huga yfir að hafa þekkt hann kveðjum við nú góðan mann. Við vottum elskulegri Ólafíu samúð okkar og öllum þeim sem stóðu honum nær. Helga og Holger, Arnþór og Arnlaugur Samúel, Gísli og Line, Ólafía Katrín og Alanis Katrín. Ég kynntist Þorkeli Skúlasyni tengdaföður mínum þegar við Elsa tókum saman í kringum 1990. Hann var þá á miðjum sjö- tugsaldri og enn í fullu starfi á endurskoðunarskrifstofu sinni í Hamraborg. Ég hafði að vísu átt lítils háttar samskipti við hann vegna frágangs mála verkfræði- stofu föður míns sem lést 1987. Það gekk allt vel og lipurlega eins og ég síðar átti eftir að kynnast svo oft hjá Þorkeli. Traust var hans einkenni. Þorkell var mikill fjölskyldu- maður. Heimili hans og Ólafíu í Birkigrund var miðstöð stórfjöl- skyldunnar þar sem börn, makar og barnabörn söfnuðust saman á sunnudögum. Ólafía var dag- mamma og mörg barnabarnanna nutu góðs af því. Þorkell hafði þann sið að koma gangandi heim í hádegismat. Þá ræddi hann við barnabörnin, uppfræddi og kenndi þeim vísur en grínaðist líka. Við Elsa fengum stundum skýrslur af því hvaða brandara afi hafði sagt þann daginn. Þorkell ólst upp í Köldukinn í Þingeyjarsýslu. Foreldrar hans voru venjulegt bændafólk með takmörkuð efni. Þeir voru ein- ungis tveir bræðurnir úr átta systkina hópi sem fóru í fram- haldsnám í héraðsskóla. Sam- vinnuhreyfingin varð hins vegar örlagavaldur í lífi Þorkels því hann hafði ekki efnahagslegar aðstæður til að fara í mennta- skóla og háskóla þó svo að hug- urinn hafi líklega stefnt þangað. Hann lærði hjá Jónasi frá Hriflu í Samvinnuskólanum og eftir að hann lauk þaðan prófi 1947 hóf hann störf hjá Sambandi ís- lenskra samvinnufélaga og síðar hjá Samvinnubankanum. Hann var alla tíð framsóknarmaður og um tíma virkur í starfi flokksins í Kópavogi. Þessi þráður var alla tíð sterk- ur í Þorkeli. Það var ljóst hvar hann stóð en hann var ekki ákafamaður í pólitík og hafði breiðan þjóðfélagslegan áhuga. Hann viðræðugóður og með op- inn hug. Þráðurinn birtist samt hvað skýrast í tryggðinni við sveitina og í þekkingu á sögu lands og þjóðar. Þorkell var í jákvæðri merk- ingu mikill sveitamaður. Hann undi sér vel í sveitinni, hvort sem það var á ættarsetrinu í Hóls- gerði eða í sumarbústaðnum í Svínadal. Og ekki spillti þegar börn og barnabörn komu í heim- sókn. Þorkell fór í verkin eins og tíðkast í sveitinni. Hann átti mik- ið safn verkfæra sem hann notaði til að leysa málin sjálfur. Þegar hann var upp á sitt besta var hann alltaf að. Ég minnist í þessu sambandi heimsóknar í Hólsgerði. Það var liðið á kvöld og Elsa og krakk- arnir voru búin að koma sér fyrir úti í tjaldi. Við Indriði sátum að góðu spjalli við Þorkel inn í eld- húsi og ég dró upp viskíflösku, sem varð til þess að umræðan teygðist yfir miðnættið. Mér þótti sjálfhætt þegar hún var bú- in en Þorkeli þótti ýmislegt órætt og dró óvænt upp aðra. Við átt- um gott spjall lengra inn í sum- arnóttina. Ég man að við Indriði fórum eitthvað seint úr tjöldum og vorum kannski ekki í besta formi. En það fyrsta sem ég sá var Þorkell að slætti með orfi og ljá fyrir framan bæinn. Hann lék á als oddi og ekki að sjá að hann hefði setið við sama borð og við kvöldið áður. Þannig var Þorkell. Ég kveð kæran tengdaföður og höfðingja sem skilaði miklu æviverki og hélt vel utan um sína. Már Guðmundsson. Elsku afi minn var einstakur maður; hjartahlýr, traustur, flug- gáfaður og fyndinn. Hjá ömmu og afa í Birkigrund áttum við alltaf öruggan samastað. Eftir leikskóla og grunnskóla gátum við labbað yfir til þeirra í eft- irmiðdagskaffið og leikið. Stóri garðurinn þeirra, gatan og Fossvogsdalurinn varð okkar ævintýraheimur. Bústaðarferð- irnar á Ketilstaði eru mér einnig eftirminnilegar, en þar gátum við alfarið leikið lausum hala. Þegar við urðum eldri var það svo Hlíðarhjallinn og núna seinast Kópavogsbrautin þar sem alltaf var gott að koma, ræða heims- málin og njóta kaffisopans. Afi var alltaf með puttann á púlsin- um og fannst fátt skemmtilegra en að ræða pólitíkina og forvitn- ast um líf okkar. Hann afi var mikill sérvitring- ur og þar með urðu til ýmsar fyndnar hefðir og leikir okkar á milli. Til dæmis þurftum við allt- af að klípa hann í stóru tána til að vekja hann frá lúrnum sínum, annars myndi hann einfaldlega ekki vakna. Svo kepptumst við krakkarnir um hver fengi að setja gervi- sykurinn í kaffið hans. Hann skammaði vegginn ef við rák- umst í hann og sagði honum að hætta að abbast upp á barna- börnin sín. Þannig var hann alltaf snöggur að breyta tárum í bros. Fyrir ekki svo löngu fórum við systkinin í eftirmiðdagskaffi til ömmu og afa, en þar sat afi að rifja upp vísu sem hann samdi ár- ið 1973 vegna Íslandsfarar Nix- ons Bandaríkjaforseta. Hann var alltaf tilbúinn með vísu fyrir hvaða aðstæður sem er og samdi meira að segja eina handa mér þegar ég hóf skólagöngu. Ég dáðist ávallt að virðingu hans fyrir íslenskri tungu og hans staðfasta minni. Í öðru sunnudagskaffi hjá ömmu og afa var honum mikið í mun að muna eftir texta sem hann hafði haft dálæti á sem ung- ur maður. Ég og bróðir minn fundum umrætt lag og spiluðum fyrir afa en textinn eftir Kristján frá Djúpalæk byrjaði svo; „Svo skotinn sem hann afi var í ömmu.“ Afi var nefnilega alltaf svo skotinn í henni ömmu og hefðu þau verið gift í sjötíu ár ný- Þorkell Skúlason Ástkær eiginkona mín og besti vinur, móðir, dóttir, systir og tengdadóttir, BIRGITTA RÓS BJÖRGVINSDÓTTIR lést á líknardeild LSH miðvikudaginn 17. október. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði mánudaginn 29. október klukkan 15. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á framtíðarreikning dóttur hennar, Camillu Mistar, reikn.nr. 322-13-303027, kt. 090502-2040. Andri Þór Ólafsson Camilla Mist S. Andradóttir Björgvin Th. Kristjánsson Sigríður Ingólfsdóttir Karitas Ósk Björgvinsdóttir Aron Björn Kristinsson Björgvin Pétur Björgvinsson Hildur Aðalsteinsdóttir Ólafur Ágúst Baldursson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.