Morgunblaðið - 26.10.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 26.10.2018, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2018 ✝ Sigurlaug Sig-urðardóttir húsmóðir fæddist á Klöpp á Seltjarnar- nesi 28. júlí 1930. Hún lést á Heil- brigðisstofnun Vesturlands, Akra- nesi, 10. október 2018. Foreldrar henn- ar voru Sigurður B. Bjarnason, f. 1.12. 1901, d. 8.12. 1968, og Sigurlín Jónsdóttir, f. 4.7. 1908, d. 22.12. 1988. Bræður Sigurlaugar eru leifsdóttur. Hann hefur verið í sambúð með Marianne Elling- sen síðustu 23 ár. 3) Ægir Magnússon, f. 1.8. 1957, í sam- búð með Ragnheiði Gunnars- dóttur. Á hann þrjú börn úr fyrra hjónabandi með Guðríði Jóhannsdóttur, sem lést 10.10. 2001. 4) Hafsteinn Þór Magnús- son, f. 1.9. 1960, hann á eina dóttur með Laufeyju Loga- dóttur. Sigurlaug flutti á fyrsta ári til Akraness þar sem hún hefur bú- ið alla tíð og gekk þar í skóla. Ung fór hún að vinna í fisk- vinnslu, síðar í Apóteki Akra- ness og síðast starfaði hún í mötuneyti Íslenska járnblendi- félagsins. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju í dag, 26. októ- ber 2018, klukkan 13. Benedikt, f. 29.4. 1935, d. 11.10. 2017, Jón B., f. 6.10. 1936, d. 25.12. 1982, og Helgi, f. 5.4. 1942. Börn Sigur- laugar eru: 1) Sig- rún Rafnsdóttir, f. 21.10. 1951, maki Einar Jóhann Guð- leifsson, eiga þau þrjú börn. 2) Sig- urður Bjarni Gylfason, f. 1.8. 1955. Hann á tvö börn úr fyrra hjónabandi með Sólrúnu Guð- Í dag verður jarðsungin frá Akraneskirkju tengdamóðir mín, Sigurlaug Sigurðardóttir. Hún sagði við mig fyrir um ári þegar ég hélt því fram að hún yrði örugglega hundrað ára: Nei, það ætla ég svo rétt að vona ekki. Hún sagði að þetta væri orðið gott og að hún væri tilbúin. Sigurlaug, eða Lauga eins og hún var alltaf kölluð, náði háum aldri, eða 88 árum. Stærsta hluta ævinnar bjó hún ein. Hún eign- aðist fjögur börn. Sigrúnu, Sig- urð, Ægi og Þór. Sigrún var alin upp hjá móður- ömmu sinni og afa, Sigurlínu og Sigurði. Ég kynntist Laugu þeg- ar við Sigrún byrjuðum að búa saman á Gneistavöllum eða Kirkjubraut 7. Þrifnari konu hafði ég ekki kynnst fyrr, var þó kominn frá frekar þrifalegu heimili. Gulu gúmmíhanskarnir voru eins kon- ar vörumerki, en hún var oftast í þeim þegar hún var heima. Ég var þá að læra vélvirkjun og þvoði Lauga vinnufötin mín vikulega, og beið hún stundum eftir mér í þvottahúsinu með gulu hanskana. Einu sinni tókst mér ekki að taka launin úr vasa á gallabuxun- um og fengu þau þennan fína þvott, það varð ekki mikið eftir af hálfsmánaðar laununum, bara tægjur. Heimili Laugu var alltaf eins og enginn hefði verið þar, fínpúss- að í hólf og gólf. Lauga hafði mjög gaman af að sækja mannfagnaði og klæddi sig þá gjarnan í sitt fín- asta púss og setti upp flotta hatta. Drengina sína ól hún upp með glæsibrag þótt hún væri eina fyr- irvinnan og virtist aldrei skorta neitt. Hún skuldaði heldur engum neitt. Hún ferðaðist ekki mikið, enda átti hún ekki bíl og var ekki einu sinni með bílpróf. Mjög sterkar skoðanir hafði hún sem kom vel í ljós þegar bróðir hennar Benedikt lyfjafræðingur fékk ekki Apótek Akraness sem þá var laust til umsóknar, þá bara hætti hún að vinna þar, en þar hafði hún unnið til fjölda ára og þekkt af frábærri þjónustulund og lipurð og ekki var hún síður vinsæl á Tanganum eða (Grundartanga) þar sem hún lauk starfsferlinum. Minni hafði Lauga betra en flestir, ættfróð með ólíkindum, hún hafði líka þann sið að rekja garnirnar úr öllum sem hún hitti, þó hún þekkti viðkomandi lítið. Moggann las hún spjaldanna á milli. Upp á útlitið passaði hún sérlega vel, fór í hárgreiðslu, nagla- og fótsnyrtingu reglulega. Það er ekki nema rúmur einn og hálfur mánuður síðan ég fór með hana í síðustu fótsnyrt- inguna. Það er svona eitt ár síðan að Laugu tók að hraka. Hún fékk hálfsmánaðar hvíldarinnlögn á Höfða og það sama á HVE Akra- nesi þaðan sem hún átti ekki afturkvæmt og lést þar 10. októ- ber síðastliðinn. Ég þakka Laugu allt það sem hún hefur verið mér og fjölskyldu minni. Blessuð sé minning Sigur- laugar Sigurðardóttur. Einar Jóhann Guðleifsson. Ég hitti Sigurlaugu fyrst fyrir 15 árum þegar ég fór að vera með Ægi syni hennar. Þegar hún heilsaði mér í fyrsta sinn spurði hún hvort þetta samband væri til frambúðar. Þetta lýsir Laugu vel. Hún sagði alltaf það sem hún hugsaði og var ekki feimin við það. Hún lét fólk alltaf heyra það ef henni mislíkaði en einnig ef hún var ánægð. Okkur kom alltaf vel saman og bar aldrei skugga á vin- skap okkar. Lauga var skemmtileg og geð- góð. Hún var nett og kvik í hreyf- ingum og fór hún allra sinna ferða gangandi um bæinn á meðan hún hafði heilsu. En hún var mjög heilsugóð fram yfir áttrætt. Lauga var dugleg í vinnu og hafði alið upp sína þrjá stráka ein og stjanað við þá. Hún var með eindæmum þrifin og á heimili hennar var alltaf allt hreint og allt í röð og reglu. Hún hafði mjög gaman af að punta sig og vera í fínum fötum. Fylgdist með tískunni og vildi alltaf eiga það nýjasta og flottasta þó svo að hún væri komin á ní- ræðisaldur. Margir eiga minning- ar um búðarferðir með henni þar sem hún var að skoða það nýjasta. Hún hafði mikinn áhuga á fólki og mér fannst sem hún þekkti alla á Akranesi og vissi deili á þeim. Ef eitthvað var í fréttum frá Akranesi var hringt í Laugu og þá vissi hún eitthvað um málið. Lauga fylgdist vel með öllu sínu fólki, var mjög frændrækin og var í góðu sambandi við bræður sína og þeirra fjölskyldur. Það var gott að koma í heim- sókn til Laugu. Hún var alltaf með tilbúið kaffiborð með skons- um, kleinum og ýmsu öðru góð- gæti. Ég á eftir að sakna þess að heimsækja hana á Skagann. Blessuð sé minning Sigurlaugar Sigurðardóttir. Ragnheiður Gunnarsdóttir. Nú er amma Lauga horfin á braut. Hún var skýr í hugsun al- veg fram á síðasta dag. Ég held að hugur hennar hafi verið nokkr- um áratugum yngri en skrokkur- inn og það var sárt undir það síð- asta að fylgjast með þessari síungu sál reskjast hratt. Lauga var mikil pæja og skvísa. Hún vandaði val á klæðnaði og klædd- ist nýjustu tísku. Að sjálfsögðu voru það tískustraumarnir í versl- unum á Akranesi sem réðu ferð- inni en á tyllidögum brá hún sér í borgina og keypti þar það allra fínasta. Lauga lá ekki á skoðun sinni og tilkynnti verslunareig- endum reglulega ef þeir voru að kaupa inn eitthvað sem henni þótti „helvíti ljótt“. Hún var alltaf með langar pæjuneglur og lét hún húðflúra á sig nýjar augabrýr og blýantsstrik í kringum varirnar. Þannig viðhélt hún æskunni og vinkonum mínum þótti mikið til þess koma hve vel hún var á sig komin. Það er mér minnisstætt þegar Lauga kom eitt sinn í borg- ina, snaraði sér inn í verslunina 17 og kom út með sams konar leð- urjakka og vinkona mín var nýbú- in að kaupa. Hún hafði keypt tískuflík sem algengt var að kon- ur klæddust sem voru 30 til 40 ár- um yngri en hún. Vinkona mín lagði sínum jakka í kjölfarið. Lauga var lágvaxin, smágerð, hress og margir á Akranesi þekktu til hennar. Hún fylgdist vel með og var fljót að spyrja fólk hverra manna það væri. Hún fylgdist með helsta slúðrinu og við áttum löng samtöl á útgáfu- dögum Séð og heyrt enda taldi hún nauðsynlegt að fara vel yfir hagi glamúrliðsins og þá sérstak- lega óvænt sambandsslit. Lauga var góð húsmóðir og bauð alltaf upp á dýrindis veiting- ar. Þegar Benni minn var í námi sendi hún mér reglulega heima- bakað bakkelsi. Ég held að hún hafi talið að ég kynni ekkert að baka. Reyndar settist þetta allt á okkur í formi aukakílóa og ég er svo sem ekki viss um að hún hafi verið hrifin af því. Laugu fannst fuglakjöt ógeðfellt af einhverjum orsökum. Ég er enn með sam- viskubit yfir því að hafa tekið þátt í því að skrökva af henni að reykta kalkúnaskinkan sem var að boð- stólum í jólaboði væri svínakjöt. Ég og Lauga vorum afar góðar vinkonur og töluðum við saman í síma næstum hvern einasta dag. Hún tók því ekki alltaf vel ef ég gleymdi að hringja í hana en var þó fljót að jafna sig. Mig grunar að hún hafi litið á mig eins og dóttur. Hún dáðist að þeim sem öfluðu sér háskólamenntunar en var lítt menntuð sjálf og tók ekki einu sinni bílpróf. Um tíma vann hún í apóteki. Þegar ég réð mig til starfa í apóteki kom í ljósi að hún bar mikla virðingu fyrir starfs- fólki slíkra verslana og er hér um bil eina manneskjan sem ég veit til að hafi snobbað fyrir tiltekinni stétt verslunarmanna. Það verður erfitt að venjast því að Lauga sé farin. Við ræddum vanalega saman þegar ég var ný- komin úr vinnunni og það er ekki laust við að símanotkunin hafi dregist umtalsvert saman við frá- hvarf hennar. Ég hugga mig við að hún er eflaust að sýsla eitthvað með Benna bróður, fyrrverandi lyfsala í Keflavík. Veröldin geng- ur í hringi og það er því við hæfi að ímynda sér hún sé nú aftur far- in að vinna í apótekinu. Guðrún Einarsdóttir. Amma Lauga, eða frú Sigur- laug eins og ég kallaði þig stund- um því þú varst alltaf svo glæsileg kona, löngu neglurnar þínar sem voru alltaf lakkaðar, hárið alltaf blásið og fínt, svo voru fötin ekki síðri. Spurninguna „er ég ekki flott svona?“ heyrði ég oft og þú vissir sjálf hversu glæsileg þú varst. Þú tókst alltaf eftir því ef ég var í einhverju nýju og ef þér fannst það flott þá var ég oftast send út í búð að kaupa eins handa þér. Þó að aldursmunurinn á okk- ur sé mikill skipti það ekki máli, því þú vildir alltaf vera í tískunni og passaðir alltaf að spyrja hvort fötin sem voru keypt væru ekki ný. „Er þetta ekki nýkomið“ heyrðist alltaf áður en var borgað. Þó að þú værir ein í heimili voru búðarferðirnar út í Krónu ansi margar í hverri viku því alltaf varð að vera til nóg af öllu og eitt- hvað með kaffinu því gestirnir fengu ekki að fara nema fá sér eitthvað að borða, þú passaðir alltaf upp á það. Hver búðarferð tók líka sinn tíma hvort sem þú varst með mér eða ekki því hlut- irnir voru ekki keyptir á sama stað, kleinurnar voru betri í Bón- us en flatbrauðið betra í Krón- unni og besta kjötið var í Einars- búðinni, lengi má telja upp fleiri búðir og hluti. Svo þurfti að spjalla við þá sem þú þekktir, hvað er að frétta? var alltaf fyrst spurt, þú vissir svo ótrúlega margt og þitt áhugamál var ætt- fræði. Ég þurfti oft að minna þig á að ég væri 64 árum yngri en þú og vissi ekki um hvern eða hvað þú værir að tala um frá þinni tíð og jafnvel eldri tíð. Síðustu dagar eftir að þú kvaddir hafa verið skrítnir, engin amma í gluggan- um á V11 að bíða eftir að maður komi í heimsókn, ef ég var ekki hjá þér þá hringdirðu í mig og spurðir hvort ég væri ekki að koma. Síðustu mánuðina sem þú varst sem veikust var ég mikið hjá þér og veitti þér þá aðstoð sem þú þurftir og eru þær stundir mér dýrmætar í dag þó svo að þær hafi tekið á og hefur það tek- ið á þig líka að vera háð öðrum, því þú varst vön að vera ein og hafa hlutina eins og þú vildir. Heimilið þitt var alltaf hreint og fínt enda varst þú með þrifnari manneskjum sem ég hef kynnst, elsku amma mín. Þú varst alltaf til í smá grín og tókst alltaf undir ef ég var að grínast í þér og hlóg- um við mikið saman og spiluðum einnig mikið. Þú varst einstök með allar þínar sérþarfir og sér- visku sem gerði þig svo skemmti- lega og eftirminnilega. Ég minn- ist þín sem elskulegrar ömmu og dugnaðarkonu sem hafði sína skoðun á hlutunum. Við pabbi eig- um þér margt að þakka og við vorum einstaklega heppin að eiga þig. Ég trúi því að afi Logi hafi tekið vel á móti þér enda voruð þið miklir vinir og höfðuð gaman hvort af öðru og þið fylgist með mér. Elsku amma, komið er að kveðjustund. Ég geymi þig í hjarta mínu um ókomna tíð. Takk fyrir allt, Hafdís Lilja Hafsteinsdóttir. Lauga frænka, sögðu börnin mín, en hún var mágkona mín. Hún var eina dóttir foreldra sinna og elst barna þeirra; á eftir komu þrír bræður. Hún var mjög falleg ung stúlka, var líka alltaf vel til- höfð og vildi vera naglalökkuð fram á síðasta dag. Hún hafði mjög sérstaka skapgerð, en var aldrei leiðinleg. En líf hennar varð ekki dans á rósum. Hún varð ung einstæð móðir með fjögur börn, þó að Sigrún, elsta barn hennar, hafi að mestu verið alin upp hjá foreldrum hennar. En hún fékk alla þá hjálp hjá þeim sem hægt var að veita. Hún vann í apótekinu á Akra- nesi um árabil hjá Fríðu Proppé lyfsala og Sverre Valtýssyni lyfja- fræðingi. Haft var í flimtingum á Akranesi hvert af þeim þremur talaði hraðast. Þau töluðu öll jafn- hratt, en skildu hvert annað mætavel. Þar að auki vafðist ekki fyrir þeim að lesa á lyfseðlana eins og læknarnir páruðu á þá í gamla daga. Þegar Fríða Proppé lést flutti Lauga sig um set og fór að vinna í eldhúsinu á Grundar- tanga, hún kunni vel að elda mat og var með eindæmum þrifin. Rykkorn voru ekki velkomin í hennar híbýlum. Ég kynntist henni fyrst þegar hún var ófrísk að fjórða barninu sínu og kærastinn að fara frá henni. Þetta var erfiður tími hjá Laugu minni en hún átti góða að. Á fyrsta árinu okkar Benna sam- an í Reykjavík kom hún í heim- sókn, gerði sér lítið fyrir og fór á tá að leita að ryki uppi á efsta skáp hjá okkur. Þetta fyrirgaf ég henni auðvitað og samband okkar varð með ágætum. Hún hringdi alltaf með jöfnu millibili til okkar, sagði okkur fréttir af Akranesi, hver væri veikur, dáinn, grafinn eða fluttur á Höfða, þangað ætl- aði hún sér aldrei að fara. Oft þeg- ar hún sagði mér fréttir og ég vissi ekki um hvern hún var að tala sagði hún: „Hvað, veistu ekki hver þetta er?“ eða þessi orð hennar: „Auðvitað veistu það.“ Hún gleymdi að taka með í reikn- inginn að ég átti ekki samfellt heima á Akranesi. Ef ég vissi ekki spurði ég Benna eða fór í bæk- urnar um Akurnesinga. Hún hafði mikinn áhuga á mönnum og málefnum en kunni þá list að þegja yfir leyndarmál- um. Nú hringir hún ekki oftar til mín að segja fréttir eða að fá fréttir af fjölskyldunni. Ég sé eft- ir henni. Blessuð sé minning hennar. Heiðrún Þorgeirsdóttir. Lauga mín, já nú ertu farin elsku vinkona, einstök vinkona sem ég hef átt í ansi mörg ár. Kynni okkar Laugu byrjuðu þeg- ar ég kom rúmlega tvítug að störfum í mötuneyti Íslenska járnblendifélagsins og vann ég þar með henni þar til hún lét af störfum vegna aldurs. Myndaðist með okkur gott og traust sam- band sem varað hefur allt til dagsins í dag. Lauga var góð vinkona og átti hún stundum það til að gleyma hver aldursmunurinn var á okk- ur, því þegar við áttum spjall saman var hún að rifja upp það sem gerðist á hennar yngri árum og átti ekki orð yfir að ég skyldi ekki muna eftir þessu eða hinu, jafnvel fólki sem var einhverjum árum eldra en hún sjálf, því minn- ið sem hún hafði var engu líkt. Böllin sem við fórum á saman þegar Geirmundur Valtýsson vin- ur okkar spilaði í Borgarnesi, þá fórum við saman kerlurnar sem unnum saman og það sem þér þótti gaman. Gafst ekkert eftir, dillaðir þér og dansaðir. Pönnukökurnar maður minn, ekki má gleyma þeim, því oft hef ég og mín börn notið góðs af þeim, og man ég eitt skipti þegar ég var ekki heima, þá hafðir þú hringt og sonur minn svarar og á spjall við þig og spyr þig hvenær þú ætlir að baka pönnukökur fyrir sig. Þá spyr Lauga: Kann mamma þín ekki að baka pönnukökur? Jú, sagði hann, en ekki eins góðar og þínar. Svo næsta eða þarnæsta dag hringir síminn, Lauga á lín- unni: Ætlar þú ekki að koma og sækja? Sækja hvað? Nú pönnu- kökurnar. Þá hafði stráksi ekki sagt mér að hann hefði beðið Laugu að baka fyrir sig og svo sannarlega er það rétt, bestu pönnsurnar komu frá Laugu, en hennar mælikvarði var sá í sam- bandi við þykktina á þeim að það ætti að vera hægt að lesa Morg- unblaðið í gegnum þær. Ekki hef- ur verið hægt að lesa Moggann í gegnum mínar! Mömmukökurn- ar, sviðasultan, sörurnar, jóla- kortin – ég get haldið áfram, sam- verustundirnar, símtölin, en læt hér staðar numið. Nú ertu sofnuð svefninum langa, elsku Lauga mín, eins og þú sagðir stundum þegar þú varst að tala um svefnvenjur hjá unga fólkinu og öðrum: maður sefur víst nóg þegar maður er kominn í þessa hvítu. Bestu þakkir fyrir okkar kæru vináttu. P.s. Ég kom til skila þú veist. Ég vil gjarnan lítið ljóð láta af hendi rakna. Eftir kynni afargóð ég alltaf mun þín sakna. (Guðrún V. Gísladóttir) Írena vinkona og fjölskylda. Sigurlaug Sigurðardóttir Fallin er frá okkar kæra vinkona allt of fljótt. Við kynntumst fyrir margt löngu og áttum saman yndislegar stundir, bæði hérlendis og erlendis, vor- um í Enskuskóla Erlu Ara og sát- um alltaf saman alla þá vetur. Fórum allar saman til Eng- lands, bæði í ensku og golf, hún spilaði ekki en kom samt með. Við ætluðum að verða meistarar. Það var Setta okkar sem var meistarinn í öllu sem hún tók sér fyrir hendur – aldrei vandamál, bara hafa gaman stelpur, eins og hún sagði alltaf og brosti sínu fal- lega brosi. Þetta var dásamlegur tími. Við lærðum mikið af henni og situr eftir í minningunni um yndislega vinkonu. Blessuð sé minning hennar. Við vottum eiginmanni, börn- Sesselja Sigurrós Gísladóttir ✝ Sesselja Sig-urrós Gísladóttir fæddist 11. nóv- ember 1945. Hún lést 29. september 2018. Útför hennar fór fram 11. október 2018. um og aðstand- endum okkar dýpstu samúð. Jóhanna Kr. Sigurð- ardóttir og Erna Elías- dóttir. Elsku Setta. Nú ert þú komin á vit nýrra ævintýra í öðrum víddum. Þegar ég fékk símtalið sem til- kynnti mér þessa breytingu á högum þínum átti ég erfitt með að trúa því og á enn í erfiðleikum með að aðlaga mig að þeirri til- hugsun að við eigum ekki eftir að lenda í fleiri ævintýrum saman að sinni. Við kynntumst fyrir nokkrum árum og höfum ferðast talsvert saman, aðallega um hálendi Ís- lands, ásamt öðrum félögum í Hústrukkunum. Allar þessar ferðir hafa verið frábærar og áttir þú stóran þátt í að gera þær að því sem þær voru, yndislegri kona er vandfundin. Alltaf söfnuðumst við saman und- ir markísunni hjá ykkur Viggó eða inni í bíl hjá ykkur, dúkur og blóm á borðum og eitthvað til að nasla – allir velkomnir. Margar myndir koma upp í hugann þegar hugsað er til baka, m.a. þessar: Veiðivötn í nóvember, myrkrið algert en Ampinn auðfundinn þar sem þú varst búin að láta hengja upp seríur á hús og bíla og kerta- ljós loguðu við innganginn. Hvanngil eftir hellirigningu, komin uppstytta, markísan kom- in út og allir mættir til Settu og Góa. Ég kom aðeins seinna eftir að hafa gengið með prinsinn, þú vík- ur úr sæti og segir mér að setjast, ekki við annað komandi. Sjálf settist þú í tröppurnar á bílnum. Jökulgil í Landmannalaugum fyrir tæpum mánuði. Bændur að smala fé, við komum í humátt á eftir. Þarna í þessu stórfenglega og fallega landslagi áttum við síð- asta knúsið – afar viðeigandi því þannig varst þú, falleg að utan sem innan. Þetta er aðeins brotabrot af myndunum, afganginn geymi ég í albúmi minninganna. Kæra Setta, við Grétar þökk- um þér samfylgdina og biðjum góðan Guð að vera með þér um ókomna tíð. Viggó og fjölskyldu sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Sigurlína og Grétar Hrafn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.