Morgunblaðið - 26.10.2018, Page 32

Morgunblaðið - 26.10.2018, Page 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2018 ✝ Ómar IngiFriðleifsson fæddist í Reykjavík 19. mars 1970. Hann lést á líknar- deild Landspítalans 13. október 2018 eftir erfið veikindi. Foreldrar Ómars eru Friðleifur Björnsson, f. 10.5. 1940, og Elva Reg- ína Guðbrands- dóttir, f. 30.7. 1941. Bróðir Óm- ars er Gunnar Þór Friðleifsson, f. 10.6. 1962, kvæntur Ingu Guð- mundsdóttur, f. 20.7. 1966. Börn Gunnars og Ingu eru Katrín Elva Gunnarsdóttir, f. 5.12. 1995, og Karl Friðleifur Gunnarsson, f. 6.7. 2001. Árið 1990 trúlofaðist Ómar Signýju Mörtu Böðvarsdóttur, f. dóttir, f. 15.7. 1936, d. 19.6. 1995. Systkini Svölu eru Ómar Ægisson, f. 29.1. 1956, d. 28.11. 2016, Jón Guðni Ægisson, f. 16.2. 1957, Gísli Theodór Ægis- son, f. 16.5. 1958, d. 3.10. 2010, Álfheiður Hulda Ægisdóttir, f. 4.4. 1959, og Guðný Ægisdóttir, f. 21.12. 1962. Synir Svölu, sem Ómar gekk í föðurstað, eru Anice Theodór Chebout, f. 17.2. 1997, og Abraham Amin Cheb- out, f. 4.6. 1998. Ómar ólst upp í Laugarnes- hverfinu í Reykjavík. Hann starfaði hjá Sambíóunum frá unga aldri á hinum ýmsu svið- um, lengst af sem sölustjóri Samfilm. Ómar var mikill áhugamaður um kvikmyndir og tónlist. Hann var þáttastjórn- andi ýmissa tónlistarþátta í út- varpi í gegnum árin, m.a. hjá Stjörnunni og X-inu, og skrifaði ýmsar greinar um tónlist og kvikmyndir í dægurmiðla. Útför Ómars fer fram frá Langholtskirkju í dag, 26. októ- ber 2018, og hefst athöfnin klukkan 15. 29.7. 1970 og eign- uðust þau soninn Oliver Ómarsson, f. 23.8. 1990. Þau slitu samvistum sama ár. Kærasta Olivers er Arna Björk Óðinsdóttir, f. 1.8. 1995, og eiga þau soninn Mikael Frey Oliversson, f. 15.3. 2018. Árið 1998 kvænt- ist Ómar Sigríði Ingólfsdóttur, f. 29.1. 1973, og eignuðust þau soninn Inga Þór Ómarsson, f. 18.11. 1997. Þau skildu árið 2003. Sumarið 2017 kvæntist Ómar Svölu Lind Ægisdóttur, f. 27.10. 1970. Foreldrar Svölu voru Ást- þór Ægir Gíslason, f. 25.9. 1932, d. 8.3. 1990, og Sólveig Jóns- Elsku ástin mín, maðurinn minn, besti vinur minn, sálufélagi minn og hjartagullið mitt. Að þú sért farinn frá mér er mér óbærilegt, þrátt fyrir erfiðan tíma undanfarna mánuði þá var ég viss um að þú myndir hafa bet- ur, þú ætlaðir að sigra í þessari baráttu, og þú barðist af þvílíkum krafti og æðruleysi og alltaf með bros á vör. Þú ert svo mikið hetj- an mín. Ég get ekki hugsað það til enda að þú komir ekki aftur, að þú komir ekki inn um dyrnar á hverri stundu brosandi fallegur að kyssa mig og segja mér hvað þú hafir saknað mín í dag og hafir hlakkað svo til að koma heim til að umfaðma mig með ást þinni sem ég fann svo sannarlega fyrir alltaf. Að við höfum ekki átt meiri tíma saman er svo sárt, þá loksins ég fann þig. Þú spilaðir það svo oft fyrir mig, „Loksins ég fann þig“ með Björgvini Halldórs, og sagðir mér hvað þú værir þakk- látur fyrir að hafa fundið mig, ástin mín eina. Það var best í heimi að vera elskuð af þér, að hlæja með þér og gráta. Þú varst svo góður við mig alltaf og ég er þér svo þakk- lát. Þegar þú komst inn í líf mitt breyttist allt, við urðum eitt, gerðum allt saman og nutum lífs- ins saman, ég kynntist öllu góða fólkinu sem þér fylgdi sem stend- ur við hlið mér eins og klettar í dag á þessum erfiðu tímum. Mik- ið sem ég er þakklát fyrir það. Við gerðum svo margt saman, hversu magnaðir tímar, þú elsk- aðir lífið og það fundu allir fyrir því. Þú kunnir að njóta þess og varst stöðugt að hugsa hvað við gætum gert næst, alltaf með plön um eitthvað skemmtilegt að gera. Varst alltaf að koma mér á óvart og hugsaðir svo vel um mig og strákana. Þú ert fyrirmynd þeirra og gafst þeim svo mikið, þú gekkst þeim í föðurstað og fyrir það er ég líka svo þakklát því betri mann er ekki hægt að finna. Þeir sakna þín svo sárt og eru að passa mig svo vel fyrir þig. Elsku engillinn minn, ég sakna þín svo mikið og mér er svo illt í hjartanu mínu núna, en ég veit þú ert hjá mér og ég geymi hjá mér það sem þú sagðir við mig áður en þú kvaddir mig alltof fljótt. Þú ert fallegasta sál sem hef ég kynnst, með hlýjasta hjarta- lagið, fallegasta brosið, besta faðmlagið og hreinustu ástina. Til hamingju með daginn okk- ar á morgun, elsku ástin mín, það er ekki bara afmælisdagurinn minn heldur okkar, dagurinn sem við trúlofuðum okkur fyrir fjór- um árum. Ég elska þig af öllu mínu hjarta, elsku hjartans ástin mín. Þín Svala. Pabbi minn er látinn eftir að hafa barist hetjulega við krabba- mein. Hann var besti pabbi sem hægt var að óska sér. Ekkert kemur í hans stað og það er sárt að vita að ég sé hann aldrei aftur. Ég get aldrei þakkað honum nóg- samlega fyrir allar góðu stund- irnar og það mun aldrei líða sá dagur að ég muni ekki sakna hans. Takk, pabbi, ég elska þig, þá, nú og að eilífu. Ingi Þór Ómarsson. Elsku drengurinn okkar Ómar Ingi Friðleifsson er látinn um aldur fram, hann var alveg ein- stakt eintak, góður, samvisku- samur, trúr og gjafmildur. Hann var vinur vina sinna og þeir voru margir. Hann átti auðvelt með að eiga samskipti við eldra fólk og því var hann hjálpsamur. Hann var mik- ið hjá ömmu Dídi og afa Þorgeiri, sem sagði einu sinni „alveg er þetta einstakur drengur, þegar hann kemur til okkar og stoppar eitthvað þarf hann alltaf að fá að hringja í mömmu sína til að láta vita af sér“. Ungur að árum lað- aðist hann að tónlist og síðar bættist kvikmyndaáhuginn við. Öllum peningum sínum varði hann til plötukaupa sem mömmu þótti nóg um og sagði, ætlar þú að eyða öllum peningunum í plöt- ur og þá sagði hann er það ekki betra en að eyða þeim í brennivín og tóbak. Mikið og gott samband var á milli hans og bróður hans Gunnars Þórs þótt átta ár hafi verið á milli þeirra. Svo kynntist hann góðri stúlku, henni Signýju Mörtu Böðvarsdóttir, þau trúlof- uðust en það samband stóð stutt. Þau eignuðust soninn Oliver, sem var mikið hjá afa sínum og ömmu fyrstu árin sín. Oliver og sam- býliskona hans Arna Björk Óð- insdóttir eiga saman soninn Mikael Frey, sjö mánaða. Ómar var stoltur afi en of stutt var sam- vera þeirra. Seinna kynntist hann yndislega góðri stúlku, Sig- ríði Ingólfsdóttur, voru þau gift til fjölda ára og eignuðust soninn Inga Þór. Þau skildu. Sigga okk- ar, þakka þér fyrir hjálpsemina, þú sast hjá Ómari og leyfðir Svölu að skreppa heim. Þú hjálp- aðir henni eftir lát hans með fjöl- margt sem þurfti að gera. Fyrir fjórum árum kom Svala Lind Ægisdóttir inn í líf hans, þau voru ástfangin og samhent og gerðu margt saman á stuttum tíma. Svala sat og svaf hjá honum í þær átta vikur sem hann dvaldi á sjúkrahúsum. Þau giftu sig svo 8. júlí 2017. Svala átti tvo drengi áð- ur, Anice og Abraham. Þeim þótti vænt um Ómar og honum um þá. Svala mín, þakka þér fyrir að elska hann Ómar okkar og gera honum lífið léttara. Við eigum öll eftir að sakna hans. Við trúum því að hann sitji núna í blóma- brekkunni með ömmum sínum og öfum og líti eftir Árna litla frænda sínum. Við þökkum þér fyrir allt sem þú varst. Sjáumst seinna, elsku drengurinn okkar, mamma og pabbi. Nú hefur Ómar bróðir minn yfirgefið þennan heim eftir hetju- lega baráttu við krabbamein. Mig langar til að þakka þér, litli bróð- ir, fyrir allar gleðistundirnar sem við áttum saman. Þú varst litli bróðir minn þar sem þú varst átta árum yngri, en ég gat líka kallað þig stóra bróður þar sem þú á unglingsárum náðir að verða töluvert hærri en ég. Þú varst einstaklega góðhjart- aður og hjálpsamur, gerðir eng- um manni mein og aðstoðaðir þá sem voru í neyð. Þú sagðir aldrei nei þegar ég var að biðja þig um aðstoð og man ég sérstaklega eft- ir því þegar ég keypti mér risa- stórt sjónvarp, 85 kg að þyngd, og ég þurfti að koma því upp á þriðju hæð og auðvitað varstu mættur og af því að þú varst stærri og sterkari þá tókstu að þér að vera fyrir aftan tækið sem þýddi að þú hélst á því nánast aleinn og það frá kjallaranum því það reyndist of stórt til að komast inn um aðalinnganginn. Það var í fyrsta sinn sem ég sá þig svitna eitthvað að ráði. Við vorum báðir með sama áhugamálið sem var tónlist og bíómyndir. Við gleypt- um þetta í okkur og fljótlega varstu kominn með það mikla þekkingu á þessum heimi að þú fórst að vinna við að miðla tónlist til almennings í gegnum ljós- vakamiðla í gegnum þína eigin þætti Hvíta tjaldið og Danslistinn og komst líka fram í PartyZone. Ég dáðist að þekkingu þinni og það var mikil skemmtun að hlusta á þig og ekki má gleyma rappinu því að þú varst braut- ryðjandi í flutningi á slíkri tónlist hér á Íslandi, þótt hún væri ekki hátt skrifuð hjá mér. Þú tengdist svo kvikmynda- og myndbanda- heiminum í gegnum SAMbíóin, fyrst sem dyravörður í Bíóhöll- inni og Bíóborginni og vannst síð- ar til fjölda ára sem sölustjóri hjá SAMFilm. Það var svo skemmti- legt og minnisstætt að fá þig í heimsókn á jólunum, þú gladdir börnin okkar svo mikið með gjöf- unum þínum sem tengdust þess- um skemmtanaheimi og þú varst í miklu uppáhaldi hjá þeim að sjálfsögðu. Lífið er ekki alltaf sanngjarnt og þú sem aldrei varst veikur greinist svo með krabbamein og hverfur frá okk- ur. En það góða við að hafa verið útvarpsmaður er að rödd þín var tekin upp svo ég get haldið áfram að hlusta á þig, bróðir sæll, um ókomna tíð þangað til við hitt- umst aftur. Gunnar Þór og fjölskylda. Það er sárara en tárum taki að kveðja þig, kæri, kæri Ómar. Að sitja eftir full tómleika en fljóta þó áfram í straumi minninganna. Ég var bara 17 ára þegar við hitt- umst, þú 20 ára. Við smullum saman, eins ólík og við vorum, þá var eins og við hefðum alltaf þekkst. Við gátum setið tímunum saman og rætt um lífið og til- veruna. Tónlist og kvikmyndir voru auðvitað oftast umræðu- efnið. Við tókum stundum daga þar sem við fórum í 5, 7, 9 og 11 bíó og svo var rúntað á eftir og spjallað um myndirnar. Kvöldin voru alltaf ung með þér. Við deildum gleði og sorg og leiddumst út í lífið, ungt fólk með sameiginlegar vonir og vænting- ar. Við stofnuðum heimili. Þú átt- ir Oliver þinn frá fyrra sambandi og svo eignuðumst við hann Inga Þór okkar. Þó að leiðir okkar hafi skilið og við slitið okkar samvistum þá ríkti alltaf virðing og vinátta okk- ar í milli. Það var svo einkenn- andi fyrir þig. Þú, þessi stóri og sterki maður, hafðir líka stórt og hlýtt hjarta. Ég er svo þakklát fyrir að hafa verið nálægt þessar síðustu vik- ur. Það var óendanlega dýrmætt að sitja hjá þér og bara horfa saman á sjónvarp. Skiptast á stuttum samræðum, því að langt spjall var bara orðið þér of erfitt. Síðasta kvöldið sem ég eyddi með þér var uppi á líknardeild. Afa- strákurinn Mikael var í heimsókn ásamt foreldrum sínum. Anice bisaði við að halda nettenging- unni í gangi svo hægt væri að horfa á landsleikinn. Svala þín flögrandi í kringum þig. Notaleg fjölskyldustund. Þegar ég kvaddi þig kyssti ég þig á kinnina í kveðjuskyni. Þú straukst mér um vangann, horfðir í augun á mér og sagðir: „Takk fyrir allt.“ Þeg- ar ég snéri mér við í dyrunum spurðir þú: „Hvar er Ingi minn?“ Ég sagði „við Ingi komum á morgun“ en það varð ekkert á morgun. Minningin lifir áfram, elsku Ómar, um stóran mann með stórt hjarta, yndislegan pabba og góð- an vin. Sigríður Ingólfsdóttir. Mikil er sorg mín eftir að dásamlegur maður er fallinn frá. Hann var svo sannarlega top- peintak af manni sem mér þótti svo undurvænt um. Faðir Inga Þórs barnabarns míns. Mikill er missir hans. Mikill er missir Svölu minnar og Siggu minnar sem staðið hafa eins og klettur við hlið Ómars í þessum erfiðu veikindum. Ég held að þetta sé eitt það fallegasta sem ég hef séð í mannlegum samskiptum. Það er gott að vita til þess að það er til gott fólk í þessum heimi. Fólk sem lætur sig varða um erfiðleika og sorg. Fólk sem lætur ekki for- tíðina eyða ást sem maður hefur á öðrum. Hvernig sem lífið fer á hvolf. Um leið og kveð þig, X-ið mitt, með þakklæti fyrir allt og allt, sendi ég öllum aðstandend- um mínar dýpstu samúðarkveðj- ur. Þín Björg. Fallinn er frá kær frændi okk- ar, Ómar Friðleifsson. Feður okkar eru systkinabörn og því lágu leiðir okkar saman í gegnum uppeldisárin og síðar. Við minn- umst Ómars frænda með hlýju og kærleika. Það voru ófá afmælis- boðin haldin hjá þeim bræðrum Ómari og Gunnari Þór á Sund- laugaveginum og hjá okkur á Unnarbrautinni á Seltjarnarnesi, sem rifjast nú upp við fráfall Óm- ars. Í boðunum var Ómar hrókur alls fagnaðar. Hann var glettinn, léttur í lund og hafði gaman af því að segja sögur. Ekki átti hann langt að sækja það. Bæði Elva og Dúddi, foreldrar hans, og bróðir hans, Gunnar Þór, eru gædd sömu eiginleikum. Ómar hafði siglfirska sögugenið, eins og við systkinin köllum þennan eigin- leika á góðri stundu. Ekki fór framhjá neinum að Ómar hafði yndi af tónlist og kvikmyndum. Hann vann í Sambíóunum frá unglingsaldri og hafði alltaf á takteinum hvaða kvikmyndir væru bestar hverju sinni. Hann var sá besti í að ráðleggja hvað bæri að sjá. Fyrir nokkru veiktist Ómar. Hann tókst á við þau veik- indi af hetjuskap og æðruleysi. Hann var lánsamur að eiga sterka og góða fjölskyldu, sem studdi hann í hetjulegri baráttu hans gegn sjúkdómnum þar til yfir lauk. Að leiðarlokum þökkum við Ómari fyrir samverustundir okkar í gegnum árin. Við munum minnast þeirra með hlýju. Við vottum fjölskyldu og ástvinum Ómars okkar dýpstu samúð. Guð blessi minningu hans. Siv, Ingunn, Árni og Friðleifur Friðleifsbörn Síðustu dagar hafa verið skrítnir, tómir og einmanalegir. Maður hefur staðið sjálfan sig að því að vera að bíða eftir ein- hverju. Vanalega var maður í stöðugu sambandi við þig. Maður fær hnút í magann af sorg og tómleika þegar maður hugsar um þetta. Verður þetta bara svona? Að setjast niður og skrifa minn- ingarorð um besta vin sinn sem er fallinn frá er óraunverulegt. Kunningsskapur okkar frá upphafsárum X-ins og sameigin- leg ástríða okkar á tónlist leiddi okkur saman. Úr varð vinátta sem styrktist jafnt og þétt þang- að til að þú varst kominn í innsta kjarna í mínu lífi og orðinn minn besti vinur. Ómissandi þáttur nánast alla föstudaga eftir vinnu í öll þessi ár var að koma og hitta þig til að gera upp vikuna og fara yfir hlut- ina. Það var alveg sama hvað var búið að ganga á yfir vikuna; það hvarf um leið þegar maður settist hjá þér með einn ískaldan. Það voru ófáar góðar stundir hjá okk- ur vinunum. Þú varðst eiginlega að vera með í öllu sem maður tók sér fyr- ir hendur, hvort sem það var hnitfélagið, matarklúbburinn, landsleikir, tónlistarhátíðir, G, eða allar ferðirnar á Kaffibarinn. Ég veit ekki hve oft þú mættir einn manna og settist hjá mér á meðan ég var að plötusnúðast á hinum og þessum stöðum. Sú minning mun fylgja mér alla tíð. Allt upptalið og meira til er löðr- andi í mikilli vináttu og skemmti- legheitum. Við vorum alltaf eilífð- artáningar. Elsku vinur, takk fyrir öll „mómentin“ og dásamlegar minningar sem ylja manni núna á þessum erfiðu tímum. Takk fyrir: Hlátursköstin, til dæmis þegar þú komst og sóttir mig úr vinnunni og þurftir að leggja út í vegkant af því við hlógum svo mikið yfir vandræðalegu atviki í vinnunni. Kvöldið sem við eyddum sam- an á H12 hinn 30. desember sl., þar sem við slúttuðum árinu sam- an í tónlist, skáluðum og þú sagð- ir mér hluti. Dásamlega mómentið þegar við tókum mynd af okkur með Davíð Oddssyni. Að fá að vera með þér á ham- ingjustundum, til dæmis þegar þið Svala genguð í það heilaga. Öll giggin og tónlistarhátíðirn- ar sem við fórum saman á. Að láta þig hafa það að aðstoða Andrés við að bera mig heim eftir DJ Leffé-kvöldið. Að kynna mig fyrir Svölu og strákunum þínum. „HEY!“-mómentið þegar þér tókst að láta okkur Svölu grenja út hlátri. Gæsahúðarmómentin á lands- leikjunum þar sem við grétum, fögnuðum í faðmlögum með blá- ókunnugum karlmönnum. HM-matarboðið okkar í sumar þar sem við enduðum saman á Kaffi Laugalæk. Í dag er það kvöld verðmæt minning. Allir G-föstudagsfundirnir okkar. Öll kvöldin þegar við dönsuð- um af okkur sokkana og elskuð- um tónlist. Að vera gleðigjafi í lífi dætra minna og Hörpu. Að vera besti vinur minn. Ég vil senda ást og innilegar samúðarkveðjur til Svölu, strák- anna þinna, allra aðstandenda og vina. Elsku Ommi minn, þakka þér fyrir ómetanlega vináttu og góðu stundirnar. Ég veit að þú bíður eftir mér með einn ískaldan og nýjasta skúbbið þegar við hitt- umst næst. Megir þú hvíla í friði. Minningin lifir. Þangað til næst. Hey! Þinn vinur, Helgi Már. Það er ólýsanlega erfitt að kveðja þig, kæri vinur, þar sem þú varst í blóma lífsins og áttir svo mikið af hamingju og ást skil- ið. Þú barðist eins og hetja við þennan illvíga sjúkdóm sem að lokum kallaði þig frá okkur allt of snemma. Það sem við dáðumst að þér hvað þú varst æðrulaus og mikil hetja í gegnum allt þetta erfiða verkefni sem þér var falið og varst alltaf léttur í lund og já- kvæður. Hugsaðir alltaf meira um þína nánustu og settir sjálfan þig í síðasta sæti. Takk fyrir ára- langa vináttu og endalaus samtöl um okkar helstu áhugamál sem voru kvikmyndir og allt tengt því. Við þekkjum engan sem var jafn fróður um bæði kvikmyndir og tónlist og var það sannarlega þín ástríða að lifa og hrærast í þeim bransa. Gátum við endalaust tal- að saman um allt sem tengdist því og oft var tekist á í skoðunum í þessum málum en alltaf í góðu. Við eigum eftir að sakna þess mikið að fá þig ekki oftar í kaffi til okkar í Senu og spjalla um brans- ann, börnin og allt milli himins og jarðar. Mikið fannst okkur ynd- islegt að fylgjast með þér og Svölu kynnast og sjá ást ykkar vaxa og dafna. Það sem þú varst ástfanginn af Svölu þinni og var ást ykkar svo einlæg, sönn og fal- leg og sást það langar leiðir hvað þið voruð miklir sálufélagar. Þú varst breyttur maður, ástfanginn upp fyrir haus og þorðir alveg að sýna það en fyrir okkur varstu alltaf þessi mjúki maður með stóra hjartað en þarna kom það bara svo augljóslega í ljós. Saman áttum við síðustu bíóferðina og þykir okkur óendanlega vænt um þá stund. Takk fyrir allt, elsku hjartans vinur, við munum aldrei gleyma þér né loforðinu. Elsku Svala, Óliver, Ingi Þór, Abraham, Anice og fjölskylda, missir ykkar er mikill og vottum við ykkur okkar innilegustu sam- úð. Minning um einstakan mann lifir. Sólveig og Konstantín. Elsku Ommi minn, orð fá ekki lýst hversu mikið ég sakna þín. Alltaf þegar ég mætti upp í bíó tókst þú á móti mér með hlýja brosinu þínu. Ég hugga mig við það að ég hef átt yndislegar minningar með þér sem ég mun varðveita í hjarta mínu. Það var enginn eins og þú, elsku Ommi minn, enda er sárt að þurfa að kveðja þig svona fljótt. Ég mun aldrei gleyma síðasta skiptinu sem við hittumst, mér þykir af- skaplega vænt um þá stund. Þá áttum við gott spjall um margt og mikið. Þetta er mér dýrmæt stund og er ég þakklát fyrir að hafa fengið að hitta þig og eiga góða stund með þér og þínum í síðasta skipti. Mér þykir óskap- lega vænt um þig og vildi ég að þú hefðir fengið að vera lengur með okkur. Ég mun hugsa vel um Svölu þína og vera alltaf til staðar fyrir hana. Ég votta Svölu og strákunum þínum mína dýpstu samúð. Þín „dúlla“ eins og þú kallaðir mig alltaf, Guðný Ásberg Alfreðsdóttir. Ómar Ingi Friðleifsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.