Morgunblaðið - 26.10.2018, Síða 35

Morgunblaðið - 26.10.2018, Síða 35
Fylkis um níu ára skeið. Þá hefur hún leikið golf um árabil: „Ég byrjaði í golfi 1997 og hef stundað það síðan, auðvitað mismikið en held mér alltaf í æfingu. Ég hef keppt á nokkrum mótum og vann meistaramót GKG í 3. flokki kvenna árið 2001. Árið 2004 fór ég holu í höggi á Spáni og nú er ég á Madeira að spila golf í góðra vina hópi. Þegar þessum keppnis- íþróttum sleppir hef ég mjög gam- an af því að ferðast og áhuga á ljósmyndun.“ Fjölskylda Eiginmaður Bergljótar er Ágúst Ragnarsson, f. 17.12. 1952, tónlist- armaður. Foreldrar hans eru Ragnar Jón Jónsson, f. 22.3. 1929, forstjóri, búsettur í Kópavogi, og Lára Guðmundsdóttir, f. 13.9. 1929, húsfreyja, búsett í Hafnafirði. Börn Bergljótar og Ágústar eru Hlín Ágústsdóttir, f. 27.11. 1983, BS í tölvu- og rafmagnsverkfræði, með masterspróf í stærðfræði með kennsluréttindum og Diploma frá The American Academy of Drama- tic Arts í Los Angeles, búsett í Stokkhólmi og Los Angeles, og Ágúst Elí Ágústsson, f. 22.4. 1987, umhverfisverkfræðingur í Kópa- vogi en dóttir hans er Heiðrún Hlín, f. 2014. Stjúpdætur Bergljótar eru Eva Lind Ágústsdóttir, f. 28.10. 1971, byggingaverkfræðingur, búsett í Hafnarfirði; Heiða Ágústsdóttir, f. 24.9. 1974, umhverfisskipulags- fræðingur, búsett í Hafnarfirði, og Vaka Ágústsdóttir, f. 25.6. 1979, BS í sálfræði og M.Sc. í vinnu- staðasálfræði, búsett í Hafnarfirði. Systkini Bergljótar: Úlfar Ben- ónýsson, f. 13.5. 1941, d. 6.3. 2016, lengst af framkvæmdastjóri í Reykjavík; Ingibjörg Benónýs- dóttir, f. 15.5. 1943, d. 10.2. 2016, matráðs- og saumakona, búsett í Reykjavík; Kristinn Ólafur Benón- ýsson, f. 7.4. 1947, múrari í Reykjavík; Höskuldur Benónýsson, f. 1.10. 1950, vélamaður í Reykja- vík; Sæmundur Gunnar Benónýs- son, f. 22.12. 1952, bóndi að Bæ II í Hrútafirði; Bryndís Kristjana Benónýsdóttir, f. 7.3. 1955, starfs- maður hjá Póstinum, búsett í Reykjavík, og Dagur Benónýsson, f. 2.10. 1961, rekstrarstjóri hjá N1, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Bergljótar voru Ben- óný Guðjónsson, f. 16.5. 1915, d. 4.11. 1989, bóndi að Bæ II, Hrúta- firði, og k.h., Laufey Dagbjarts- dóttir, f. 20.10. 1920, d. 6.6. 2005, húsfreyja og bóndi að Bæ II, Hrútafirði. Þau fluttu til Reykja- víkur 1986 og bjuggu þar til dánar- dags. Bergljót Afmælisbarnið í göngu- ferð að taka sjálfsmynd á símann. Bergljót Benónýsdóttir Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Auða-Hrísdal Guðbjartur Brynjólfsson b. í Auða-Hrísdal í V-Barðastr.s. Kristín Bjarney Guðbjartsdóttir húsfreyja á Bæ I Laufey Dagbjartsdóttir b. og húsfreyja á Bæ II Sigríður Jónsdóttir húsfreyja í Guðlaugsvík, Strandas. Lýður Sæmundsson b. í Bakkaseli Björn Lýðsson b. í Bakkaseli Lýður Björnsson sagnfræðingur Þórður Sæmundsson símstöðvarstjóri á Hvammstanga Harpa Þórs- dóttir safnstjóri Listasafns Íslands Sigríður Jóhanna Þórðardóttir húsfreyja á Borðeyri og í Rvík Þór Magnússon fv. þjóðminja- vörður Sveinn Helgi Þórðarson skattstjóri Reykjanes- umdæmis Þórdís Helga Sveinsdóttir kennari Sæmundur Lýðsson b. í Bakkaseli í Bæjarhr., af Tröllatunguætt og Ennisætt Ingibjörg Sæmundsdóttir húsfreyja í Heydalsseli og Miðhúsum Guðjón Ólafur Ólafsson b. í Heydalsseli og Miðhúsum í Bæjarhr. Þuríður Ólafsdóttir húsfreyja á Litlu-Hvalsá og víðar Ólafur Ólafsson b. á Litlu-Hvalsá og víðar Úr frændgarði Bergljótar Benónýsdóttur Benóný Guðjónsson b. á Bæ II í Hrútafirði Jóhanna Sigríður Pétursdóttir kennari í Rvík Pétur G. Ingimarsson kennari við HÍ Heiðar Örn Ingimarsson læknir í Rvík Ólöf Guðrún Pétursdóttir hjúkrunarfræðingur og listakona Margrét Kristín Magnúsdóttir sálfræðingur í Rvík Magnús Þórir Pétursson flugumferðar­ stjóri í Rvík Guðmunda Dagbjarts- dóttir kaupm. í Rvík Kristín Jónsdóttir húsfreyja á Uppsölum Elías Oddsson sjóm. og b. á Uppsölum í Selárdal Dagbjartur Elíasson útvegsb. í Neðri-Hvestu í Arnarfirði ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2018 Dvergshöfða 2, 110 Reykjavík bilanaust@bilanaust.is Sími: 535 9000 | bilanaust.is Gæði, reynsla og gott verð Vottaðir hágæða VARAHLUTIR í flestar gerðir bifreiða Siðan 1962 Bílanaust er einnig í Hafnarfirði – Keflavík – Selfossi – Akureyri – Egilsstöðum Hjörleifur Sigurðsson fæddistí Reykjavík 26.10. 1925.Hann var sonur hjónanna Sigurðar Kristinssonar, alþingis- manns og forstjóra SÍS, og Guð- laugar Hjörleifsdóttur húsfreyju. Sigurður var bróðir Hallgríms, fyrsta forstjóra SÍS. Hann var sonur Kristins Ketilssonar, bónda í Mikla- garði, og k.h., Salóme Hólmfríðar Pálsdóttur, en Guðlaug var dóttir Hjörleifs Einarssonar, prófasts á Undirfelli, og s.k.h., Bjargar Ein- arsdóttur. Guðlaug var hálfsystir, samfeðra, Einars H. Kvaran rithöf- undar og Sigurðar Kvaran, læknis, ristjóra og alþingismanns. Eiginkona Hjörleifs var Else Mia Einarsdóttir, f. Figenschou, bóka- vörður Norræna hússins, en hún ĺést 2016. Börn þeirra eru Einar og Hjördís. Hjörleifur lauk stúdentsprófi frá MR 1945 og lærði myndlist í Stokk- hólmi um tveggja ára skeið. Hann var í París 1948-50 og varð fyrir áhrifum af evrópskri myndlist, sem komu skýrlega í ljós í geometrískum verkum hans á sjötta áratugnum. Í París kynntist hann konu sinni og flutti með henni til Noregs og síðan til Íslands 1952. Hjörleifur sinnti ýmsum störfum framan af en vann að list sinni á kvöldin og um helgar. Frá 1980 vann hann hins vegar eingöngu að mynd- list. Hann vann brautryðjendastarf með því að kynna skólanemendum myndlist og alþýðumenningu, starf- aði hjá MFA og var forstöðumaður Listasafns alþýðu. Hjörleifur hélt fjölda einkasýn- inga auk þess sem hann tók þátt í mörgum samsýningum, bæði hér og erlendis. Þá skrifaði hann fjölda greina í tímarit og dagblöð, auk þess sem hann gerði útvarps- og sjón- varpsþætti um myndlist. Hann var virkur í hagsmunabaráttu myndlist- armanna og var formaður FÍM. Sjálfsævisaga Hjörleifs, Listmál- araþankar, kom út árið 1997. Hjörleifur fluttist með konu sinni til Noregs árið 2005. Hann lést í Osló 10.1. 2010. Merkir Íslendingar Hjörleifur Sigurðsson 95 ára Ólafur Þórarinsson 90 ára Anna Þorsteinsdóttir Guðrún Guðmundsdóttir Jakob Gísli Þórhallsson Sigríður Pétursdóttir 85 ára Sigríður Hjartardóttir Steinunn Steinarsdóttir 80 ára Helga Gíslína N. Guðmundsdóttir Lilja Karlsdóttir Stefán Finnbogi Siggeirsson 75 ára Bára Þórðardóttir Hilda Torfadóttir Sigríður Guðrún Sigurðardóttir Vilhjálmur Jónsson Þorgeir Jósep Yngvason 70 ára Bettý Guðmundsdóttir Guðrún Árnadóttir Kristbjörn Theódórsson Margrét Einarsdóttir Munda K. Jóhannsdóttir Van Thu Nguyen 60 ára Bergljót Benónýsdóttir Björn Eiríksson Jens Ragnar Linberg Gústafsson 50 ára Álfrún Guðríður Guðrúnardóttir Björg Leifsdóttir Davíð Jónsson Einar Aðalsteinn Brynjólfsson Karl Ingi Karlsson Lamduan Sridokmai Magný Ósk Arnórsdóttir Skúli Thorarensen Þórunn Grétarsdóttir 40 ára Bára Brandsdóttir Hafliði Jón Sigurðsson Halldór Sigfússon Innocent Uche Nwadike Ívar Már Daðason Jakobína Gunnarsd. Michelsen Margrét Einarsdóttir Mihla Phiri Ragnar Eyþórsson Sigríður Þórdís Bergsdóttir Steinunn Anna Halldórsdóttir Wannika Sinsok Ægir Þór Viðarsson 30 ára Almar Týr Haraldsson Arnar Sveinsson Ásdís Magnea Egilsdóttir Davíð Berndsen Bjarkason Eysteinn Hjálmarsson Jacek Depta Kristinn Rúnar Víglundsson Mihai Finariu Nanna Fanney Björnsdóttir Nanna Guðlaugardóttir Rochdi Aboulkacem Til hamingju með daginn 30 ára Nanna ólst upp í Reykjavík, er búsett þar og starfar hjá Reykjavík- urborg. Maki: Snorri Guðmunds- son, f. 1983, þróunarstjóri hjá Eldum rétt. Systir: Hildur Gunnlaugs- dóttir, f. 1979, skipulags- fulltrúi hjá Faxaflóa- höfnum. Foreldrar: Guðlaug Kjart- ansdóttir, f. 1954, kennari, og Fjölnir Ásbjörnsson, f. 1951 (stjúpfaðir) kennari. Nanna Guðlaugardóttir 30 ára Nanna ólst upp í Reykjavík, býr á Hvols- velli, lauk prófi í ferða- málafræði, hefur starfað á Hótel Rangá en er nú í fæðingarorlofi. Maki: Halldór Hrannar Hafsteinsson, f. 1985, raf- virki. Dóttir: Birna Fold Hall- dórsdóttir, f. 2018. Foreldrar: Guðrún F. Helgadóttir, f. 1956, og Björn Sigurbjörnsson, f. 1938. Nanna Fanney Björnsdóttir 30 ára Kristinn ólst upp á Dæli í Víðidal í Vestur- Húnavatnssýslu, býr þar, lauk námi í húsasmíði og er bóndi á Dæli. Maki: Hallfríður Sigur- björg Óladóttir, f. 1990, húsfreyja og bóndi á Dæli. Sonur: Víglundur Bolli, f. 2016. Foreldrar: Víglundur Gunnþórsson, f. 1957, bóndi á Dæli, og Sigrún Valdimarsdóttir, f. 1955, húsfreyja og bóndi á Dæli. Kristinn Rúnar Víglundsson Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.