Morgunblaðið - 26.10.2018, Síða 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. OKTÓBER 2018
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
„Ég skil ekki af hverju Þrymskviða
hefur ekki verið sett oftar upp. Það
eru ekki til margar íslenskar óperur
og gamanóperan Þrymskviða var sú
fyrsta sem sett var á svið. Þetta er
alveg frábær ópera sem sýnd var í
fyrsta og eina skiptið á sviði 1974,“
segir Bjarni Thor Kristinsson, bassi
sem leikstýrir Þrymskviðu sem flutt
verður í Norðurljósasal Hörpu í
kvöld og annað kvöld kl. 20.
Bjarni segir að höfundur Þryms-
kviðu, tónskáldið, Jón Ásgeirsson,
hafi fagnað 90 ára afmæli nýverið
og það hefði þótti tilhlýðilegt í til-
efni þess og 100 ára fullveldis Ís-
lands að setja óperuna á svið aftur.
„Það er mikið lagt í sýninguna
sem skartar átta góðum einsöngv-
urum auk Háskólakórsins sem fer
með hlutverk ása og þursa. Í kórn-
um syngja 70 manns og 40 manna
Sinfóníuhljómsveit unga fólksins
sér um tónlistina,“ segir Bjarni
Thor og bætir við að mikil áhersla
hafi verið lögð á að breyta Norður-
ljósum Hörpu í framúrstefnulegt
leikhús og það verði spennandi að
sjá hvernig áhorfendur taki þeim
breytingum.
Stjórnandi Þrymskviðu er Gunn-
steinn Ólafsson, stjórnandi Há-
skólakórsins. Einsöngvarar í óper-
unni eru þau Guðmundur Karl
Eiríksson baritónn í hlutverki Þórs,
Keith Reed bassa-baritónn í hlut-
verki Þryms, Margrét Hrafnsdóttir
sópran í hlutverki Freyju og Agnes
Þorsteinsdóttir mezzósópran í hlut-
verki Grímu. Þorsteinn Freyr Sig-
urðsson tenór syngur hlutverk
Heimdallar, Eyjólfur Eyjólfsson
tenór hlutverk Loka, Gunnar Björn
Jónsson hlutverk 1. áss og Björn
Þór Guðmundsson hlutverki 2. áss.
Þór í kvennmannsgervi
Óperan Þrymskviða fjallar á
gamansaman hátt um það þegar
þrumuguðinn Þór uppgötvar að
hamar hans, Mjölnir, er horfinn.
Þrymur þursadrottinn hefur rænt
Mjölni og heimtar Freyju í lausn-
argjald en hún er ófáanleg til þess
að fórna sér fyrir hamarinn. Þór
bregður þá á það ráð að fara til Jöt-
unheima í kvenmannsgervi í því
skyni að endurheimta vopn sitt í
fylgd Loka Laufeyjarsonar.
Bjarni segist finna fyrir gríðar-
legum áhuga á sýningunum og það
kæmi ekki á óvart að uppselt yrði á
þær báðar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gamanópera Háskólakórinn og Sinfóníuhljómsveit unga fólksins á æfingu
með hljómsveitarstjóranum Gunnsteini Ólafssyni í Norðurljósum Hörpu.
Þrymskviða flutt af
120 listamönnum
Hunter Killer
Spennutryllir í leikstjórn Donovan
Marsh. Þegar rússneskur hershöfð-
ingi gerir uppreisn, fangar forseta
Rússlands og gerir tilraun til að
koma þriðju heimsstyrjöldinni af
stað, þurfa bandarísk stjórnvöld að
bregðast skjótt við. Meðal leikara
eru Billy Bob Thornton, Gerard
Butler og Gary Oldman.
Halloween
Fjörutíu árum eftir að Michael
Myers myrti þrjá á hrekkjavökunni
snýr hann aftur til að ljúka verkinu.
En nú er Laurie Stroder, sem slapp
undan honum 1978, við öllu búin.
Leikstjóri hrollvekjunnar er David
Gordon Green. Meðal leikara eru
Jamie Lee Curtis og Judy Greer.
Belleville Cop
Gamanmynd í leikstjórn Rachid Bo-
uchareb. Þegar æskuvinur lög-
reglumannsins Sebastians „Baaba“
Bouchard er myrtur af glæpamönn-
um í Miami í Flórída hyggur
„Baaba“ á hefndir. Meðal leikara
eru Omar Sy og Luis Guzmán.
Dywizjon 303
Dramatísk stríðsmynd um ótrúlega
sögu herdeildar 303 í Konunglega
breska flughernum, RAF, sem sam-
anstóð að mestu af pólskum her-
mönnum. Leikstjóri er Denis Delic.
Meðal leikara eru Piotr Adamczyk
og Kirk Barker.
Den skyldige
Dönsk spennu- og glæpamynd í
leikstjórn Gustavs Möller. Dag einn
fær lögreglumaðurinn Asger Holm
símtal frá konu sem hefur verið
rænt og upphefst þá æsispennandi
atburðarás. Meðal leikara eru
Jakob Cedergren, Jessica Dinnage
og Omar Shargawi.
Bíófrumsýningar
Hrollvekja Jamie Lee Curtis leikur Laurie Stroder í Hrekkjavöku.
Hrollur og spenna
glens og glæpir
The Guilty
Metacritic 82/100
IMDb 7,9/10
Bíó Paradís 18.00, 22.20
Dywizjon 303
IMDb 5,4/10
Bíó Paradís 17.45, 22.00
Mæri
Metacritic 78/100
IMDb 7,2/10
Bíó Paradís 20.00
Dazed and Confused
Metacritic 78/100
IMDb 7,7/10
Bíó Paradís 20.00
Cutterhead + Q&A
IMDb 6,9/10
Bíó Paradís 20.00
Mandy
Metacritic 81/100
IMDb 6,8/10
Bíó Paradís 22.10
Kler
IMDb 7,8/10
Bíó Paradís 17.30
Hunter Killer 12
Lítt reyndur bandarískur
kafbátaskipstjóri vinnur
með bandarískum sérsveit-
armönnum við björgum for-
seta Rússlands, sem hefur
verið rænt af uppreisnar-
manni.
Metacritic 39/100
IMDb 6,6/10
Sambíóin Egilshöll 17.30,
20.00, 22.30
Sambíóin Kringlunni 16.50,
19.40, 22.15
Sambíóin Akureyri 19.50,
22.20
Sambíóin Keflavík 20.00,
22.30
Halloween 16
Metacritic 68/100
IMDb 7,5/10
Laugarásbíó 17.00, 19.50,
22.10
Sambíóin Álfabakka 17.00,
19.20, 21.40
Sambíóin Keflavík 20.00,
22.30
Smárabíó 19.20, 19.50,
21.50, 22.20
Háskólabíó 21.00
Bad Times at the El
Royale 16
Metacritic 60/100
IMDb 7,5/10
Laugarásbíó 22.15
Smárabíó 19.30, 22.35
Háskólabíó 17.40, 20.40
Borgarbíó Akureyri 21.30
Billionaire
Boys Club 12
Metacritic 30/100
IMDb 5,6/10
Sambíóin Egilshöll 22.40
Sambíóin Akureyri 22.20
Undir halastjörnu 16
Morgunblaðið bbbmn
IMDb 6,8/10
Smárabíó 22.25
Háskólabíó 18.10, 20.30
Borgarbíó Akureyri 17.30
Johnny English
Strikes Again Metacritic 36/100
IMDb 6,6/10
Laugarásbíó 16.00, 18.00,
20.00
Sambíóin Álfabakka 16.00,
18.00, 20.00, 22.10
Sambíóin Keflavík 18.00
Smárabíó 15.10, 17.30
Háskólabíó 18.30
Borgarbíó Akureyri 19.30
First Man 12
Metacritic 84/100
IMDb 7,7/10
Sambíóin Kringlunni 17.30,
20.30
Night School 12
Metacritic 43/100
IMDb 5,5/10
Sambíóin Álfabakka 20.00,
22.20
The Nun 16
Metacritic 46/100
IMDb 5,7/10
Sambíóin Álfabakka 20.00
The House with a
Clock in Its Walls
Metacritic 57/100
IMDb 6,3/10
Sambíóin Álfabakka 15.20,
17.40
Sambíóin Akureyri 17.15
Smáfótur Metacritic 60/100
IMDb 6,8/10
Sambíóin Álfabakka 15.30,
17.50
Sambíóin Egilshöll 17.30
Sambíóin Akureyri 17.20
Sambíóin Keflavík 17.50
Grami göldrótti
Trausti er ungur drengur
sem er óvart sendur yfir til
annars heims þar sem hann
verður að eiga við illgjarnan
galdrakarl, Grami að nafni.
IMDb 5,5/10
Laugarásbíó 17.00
Smárabíó 15.00, 17.20
Hin Ótrúlegu 2 Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 80/100
IMDb 8,1/10
Sambíóin Álfabakka 15.20
Mamma Mia! Here
We Go Again Sophie rekur nú gistiheimilið
og lærir um fortíð móður
sinnar en er ófrísk sjálf.
Morgunblaðið bbbbn
Metacritic 60/100
IMDb 7,1/10
Laugarásbíó 19.50
Eddie er sífellt að reyna að ná sér niður á snill-
ingnum Carlton Drake. Árátta Eddie gagnvart
Carlton hefur haft vægast sagt slæm áhrif á
starfsferil hans og einkalífið.
Morgunblaðið bbnnn
Metacritic 35/100
IMDb 7,0/10
Laugarásbíó 22.00
Sambíóin Egilshöll 17.30, 20.00, 22.30
Smárabíó 16.30, 16.40, 19.40, 22.10
Borgarbíó Akureyri 19.30, 21.30, 21.50
Venom 12
A Star Is Born 12
Kvikmyndastjarna hjálpar ungri söngkonu og leikkonu að slá í
gegn.
Morgunblaðið bbbbm
Metacritic 88/100
IMDb 8,3/10
Sambíóin Álfabakka 17.40,
20.30, 22.00
Sambíóin Egilshöll 18.00,
20.00, 21.00
Sambíóin Kringlunni 16.45,
19.30, 22.15
Sambíóin Akureyri 19.30
Lof mér að falla 14
Þegar Magnea 15 ára kynnist
Stellu 18 ára breytist allt.
Stella leiðir Magneu inn í
heim fíkniefna sem hefur al-
varlegar afleiðingar fyrir þær
báðar.
Morgunblaðið bbbbn
IMDb 8,8/10
Smárabíó 16.30, 19.30
Háskólabíó 18.00, 20.50
Borgarbíó Akureyri 17.00
Nánari upplýsingar um sýningar og sali má finna á heimasíðu kvikmyndahúsanna
Kvikmyndir
bíóhúsanna
mbl.is/bio