Morgunblaðið - 02.11.2018, Blaðsíða 6
Þ
að er ýmislegt að gerast í förðunarheiminum um þessar mundir. Við er-
um hægt og rólega að færast aftur yfir í náttúrulegri förðun og þetta
massíva Instagram „make-up“ er að verða úrelt. Auðvitað er ég ekki
að segja að þessi ýktu förðunartrend verði horfin á fáeinum mánuðum
en tískuheimurinn er allavega búinn að gefa það út að þetta þyki ekk-
ert sérstaklega smart. Trendin eru að verða náttúrulegri og raunveru-
legri. Það gleður mig,“ segir Harpa, aðspurð hvað sé að gerast í förð-
unarheiminum.
Hvað er alveg nýtt og ferskt sem við höfum ekki séð áður?
„Það sem er að koma mjög sterkt inn núna eru mattar áferðir. Brúnn litur í alls konar
blæbrigðum er afar áberandi og „make-up“-trendin leita örlítið í 90’s-tískustraum-
ana. Allt er að verða aðeins hrárra.“
Hvernig hugsar þú um húðina á þessum árstíma?
„Vanalega hugsa ég mjög vel um húðina á þessum árstíma en sökum mikillar
vinnu og álags hef ég ekki staðið mig eins og vanalega. Ég er að byrja að bæta úr
því þessa dagana því að ég finn fyrir gífurlegum mun. Þegar kólnar í veðri reyni ég
að passa upp á að taka inn olíur líkt og hörfræolíu og lýsi, drekk nóg af vatni og
færi mig yfir í feitari rakakrem. Ég notast einnig töluvert við rakamaska og sef
reglulega með þá. Ég var að byrja að taka inn Joint Rewind collagen frá Feel Ice-
land og bind miklar vonir við það. Ég heyri það frá konum í kringum mig að þessar
töflur geti hjálpað húðinni alveg svakalega mikið og hún verði stinnari og mýkri.“
Hvaða krem og húðdropar eru ómissandi?
„Þessa dagana er ég að nota Skin food frá Weleda. Það er algjör rakabomba og hentar mér mjög vel
þessa dagana því að ég er gjörsamlega að skrælna. Eight hour krem frá Elizabeth Arden er líka
nauðsynjavara í mínu lífi. Það nota ég á varir og á alla þurrkubletti. Hef notað það krem í 20 ár.“
Hvaða farði er í mestu uppáhaldi og hvers vegna?
„Face and body-farðinn frá MAC er uppáhaldsfarðinn minn. Ég nota hann alls ekki alla daga en ég
nota hann einnig mjög mikið í verkefnum og á kúnna. Hann er mjög léttur og náttúrulegur en auð-
velt að byggja hann upp í meiri þekju. Hann myndast einnig mjög vel og það skiptir mig augljóslega
miklu máli í starfi mínu sem sminka. Einnig kenni ég á hann í förðunarskólanum mínum og hafa
nemendur mínir náð ótrúlega góðu taki á honum og eru orðnir framúrskarandi í góðri
húðvinnu. En það er mikilvægast í starfi förðunarfræðings.“
Instagram-förðun
Harpa Kára-
dóttir, förð-
unarmeistari
og eigandi
Make Up Stud-
io Hörpu Kára.
Tískuheimurinn er
búinn að gefa það út
að hún þyki ekkert
sérstaklega smart og
sé að verða úrelt
Harpa Káradóttir er einn þekktasti förð-
unarmeistari landsins. Hún opnaði nýlega
förðunarskólann Make Up Studio Hörpu
Kára. Hún segir að förðunartískan sé að
breytast mikið þessa dagana.
Marta María | mm@mbl.is
Hvernig berðu hann á þig?
„Ég er mjög hrifin af því að bera farða á með höndunum, þá hita ég farðann inni í lófunum þannig
að hann hitni vel og ber hann síðan á. Þannig bráðnar hann inn í húðina og gefur fallegustu áferð-
ina. Svo er bara hægt að byggja upp eftir smekk og tilefni. Ég er ekkert mjög hrifin af svömpum,
nota þá stundum í hyljara eða til þess að dúmpa yfir farða. Þá nota ég svampinn blautan. Ég er alls
ekki hrifin af of meikuðu útliti og persónulega finnst mér enginn líta vel út með teppalagað andlit af meiki.“
Hvernig skyggir þú andlitið?
„Ég skyggi andlitið vanalega með ljósum og köldum skyggingarlitum. Uppáhaldsskyggingarliturinn minn heitir
Gotham og fæst í Nola. Heitustu varalitirnir núna eru mattir brúnir litir. Sjálf er ég mjög hrifin af glossum ofan á
og mæli með að prófa Stone-varablýantinn frá MAC við alla brúnu tónana sem eru í gangi.“
Nú hafa stór augnhár verið mikið í móð, er það þannig ennþá í vetur eða eru þau að
minnka?
„Ég er ekki rétta manneskjan til að ræða stór augnhár opinberlega. Ég þoli þau yfirleitt ekki. Ég vil horfa í
augun á fólki, ekki á þykk og fáránlega löng gerviaugnhár sem stela allri athyglinni. Tek það samt fram að
ég er mikill aðdáandi gerviaugnhára og nota þau mjög mikið. En ég held mig við styttri og náttúrulegri út-
gáfurnar.“
Hvert er besta bjútítrix allra tíma?
„Ávaxtasýrur og að drekka mikið vatn. Ég elska ávaxtasýrur og áhrifin sem þannig krem hafa á húðina
mína. Húðin verður stinnari, sléttari og jafnari. Hún Jenna Huld Eysteinsdóttir, húðlæknir á Húðlækna-
stöðinni, kynnti mér áhrif krema og meðferða sem innihalda ávaxtasýrur. Ávaxtasýrur eru samt ekki fyrir
alla en ég mæli með að kynna sér þessi mál fyrir þá sem vilja vinna á öldrunarmerkjum og óhreinindum í
húð. Svo þurfum við bara að muna að húðin okkar þarfnast raka, þannig mun hún alltaf líta best út.“
1. Skin food frá Weleda 2. Face and body frá MAC 3. Gotham frá Nabla 4. Stone varalitablýandur frá MAC 5. Joint Rewind collagen frá Feel Iceland.
1
2
5
3
4
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2018
Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is
Díana prinsessa klædd-
ist gráum jakka úr
ullarefni með svörtum
efri kraga þegar hún
mætti til að sinna góð-
gerðarmálum árið 1984.
Jakkinn var tvíhneppt-
ur og undir honum var
hún í hvítri skyrtu og
með svarta slaufu. Nú
hefur Katrín hertoga-
ynja af Cambridge fetað
svipaðar slóðir en hún
klæddist nánast eins
jakka á dögunum.
Hennar er bara köfl-
óttur en svarti efri krag-
inn er mjög svipaður.
Díana prinsessa
klæddist þessum
jakka árið 1984.
Allt eins og 1984
Hertogaynjan af
Cambridge í
svipuðum jakka.
FÖRÐUN
SMARTLAND