Morgunblaðið - 02.11.2018, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2018
Hanna Stína er hrifin af
að nota lit með sem
tónar vel við hvert rými.
Veggfóður með
fiskibeina-
munstri rammar
inn forstofuna.
Í húsinu er mikið lagt í öll
smáatriði. Hér er til
dæmis veggfóður á bak
við hillurnar og lýsing.
Ég ákvað að hafa eyjuna með tveimur týpum af steini. Annars
vegar marmara og hinsvegar kvartssteini. Ég setti marmarann
barmegin því hann er viðkvæmari og hafði kvartssteininn vinnu-
megin því hann þolir meira álag. Ég gerði þetta bæði af prakt-
ískum ástæðum og líka til að brjóta upp eyjuna og formið á
henni. Ég hafði steininn misþykkan, marmarinn er með þykkum
kanti en ekki kvartssteinninn. Mér finnst það koma vel út. Loftið
fyrir ofan eyjuna er tekið niður og þar er engin vifta. Það þarf
ekki í svona opnum rýmum,“ segir Hanna Stína.
Eldhús og stofa eru stúkuð af með tréverki. Hanna Stína segir
að fólk sé farið að vilja stúka meira af hjá sér, ekki hafa allt flæð-
andi í opnu rými.
„Það er hægt að fara mismunandi leiðir til að stúka af rými
eða afmarka þau. Fólk vill síður að allt flæði og vill í dag meiri
stúkun án þess að fara yfir í það að hafa hús samsett af endalaus-
um herbergjum. Ég er mjög hrifin af trérimlum og glerveggjum
og öðrum sniðugum lausnum sem gera eitthvað fyrir heild-
armyndina,“ segir Hanna Stína.
Ekki allt flæðandi
Á heimilinu er til dæmis borðstofa og stofa stúkuð af og svo
setur borðið úr Norr11 og stólarnir svip sinn á þetta rými.
Ljósakrónurnar tvær frá Flos eru heldur ekkert að eyðileggja
stemninguna. Á sömu hæð er arinstofa með barskáp. Hanna
Stína segir að þetta rými sé fyrir foreldrana og í raun ekki sjón-
varpsherbergi hússins heldur sé það á neðri hæðinni. Það var
þess vegna sem hún hannaði sérstakan fleka sem er spegla-
klæddur til þess að geta dregið fyrir sjónvarpið þegar það er
ekki í notkun.
„Mér finnst speglar vera mikið skraut element þegar þeir
þeim er skipt upp og hafðir í renningum. Eins er sniðugt að
speglaklæða svona fleka eins og er í þessari arinstofu. Í húsinu
er svo önnur stofa þar sem ekkert sjónvarp er til staðar heldur
meiri svona selsskapsstofa.“
Ertu mikið í því að fela sjónvörp bak við speglafleka?
„Nei, ég segi það nú ekki en sjónvarp er aukahlutur, ekki mið-
punktur alls. Mér finnst sniðugt að hafa það bak við speglafleka
eins og gert er þarna. Veggirnir í arinstofunni eru veggfóðraðir
með silkistrigaveggfóðri frá Arte. Mér finnst það dempa stemn-
inguna í rýminu. Ég nota líka þetta veggfóður í svefnherbergið,“
segir Hanna Stína. Þessi innanhússarkitekt sem kýs að fara allt-
af nokkrum skrefum lengra með allt segir að fólk verði að fara
að setja fókus á svefnherbergi sín. Þau eigi það til að gleymast.
„Í hjónaherbergið setti ég sérsniðinn rúmgafl á vegginn frá
Alter London. Hann er þannig gerður að tekið er úr fyrir inn-
stungum og öllu því.“
Það er óhætt að segja að strigaveggfóðrið, rúmgaflinn, lýs-
ingin og allt það sé nokkuð vel heppnað og skapi mikinn hlýleika.
Hanna Stína er hrifnæm og hnýtur stöðugt um eitthvað nýtt og
spennandi. En hvað er það sem hrífur hana mest þessa dagana?
„Ég er alltaf að skoða nýjar lendur í því að klæða veggi og loft
með einhverju hvort sem það er efni, leður, speglar, flísar, viður
eða einhverjar aðrar áhugaverðar áferðir. Mér finnst það gera
meira en að hafa bara kaldan vegg með einni mynd á. Þetta
dressar heimilið upp og setur í nýjan búning. Ég er hrifin af því
að nota nýjar leiðir til að nota nýja hluti – ekki bara mála vegg-
ina. Mér finnst húsgögn skipta miklu máli og hvernig þau nýta
rýmið. Dýnamíkin í réttum húsgögnum getur verið ótrúleg en
svo geta vitlaus húsgögn líka skemmt fyrir. En svona það sem
hrífur mig alltaf er fallegur steinn, flísar og veggfóður. Ég
þreytist ekki á að klæða veggina í hlý föt,“ segir hún.
Veggfóðrið á svefnherberginu býr
til hlýleika og það gerir rúmgaflinn
líka sem kemur frá Alter London.
Hanna Stína segir að fólk eigi að
leggja meira upp úr því að hafa
svefnherbergi hlýleg.