Morgunblaðið - 02.11.2018, Blaðsíða 30
Á hvaða tónlist
hlustar þú á á
laugardagskvöldi?
„Góða danstónlist
af plötu sem
Maggi maðurinn minn
gæti hafa keypt í Lucky Records.
Sennilega eitthvert „one hit wonder“.“
Hvað er lúxus í þínum huga?
„Að fá að vera alveg út af fyrir mig. Ekki of
lengi samt.“
Ef þú þyrftir að bjarga einni flík úr elds-
voða, hver yrði fyrir valinu?
„Ég myndi stökkva í ullarsamfestinginn minn
frá Steinunni. Bæði er hann mjög fallegur og
svo tengist hann minningu látinnar vinkonu,
ég hugsa hlýlega til hennar í hvert sinn sem
ég fer í hann.“
Ragna fer ekki í fýlu og
reynir að vera almennileg …
Ragna Árnadóttir, fyrrverandi dómsmálaráðherra og nú aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, er ein
smartasta kona Íslands í víðasta skilningi þess orðs. Hún er áberandi best klædd alltaf og svo læt-
ur hún verkin tala á vinnumarkaðnum. Smartland gefur henni orðið.
Marta María | mm@mbl.is
30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2018
LOKAORÐIÐ
SMARTLAND
Hvert er besta ráð sem þú hefur fengið?
„Ráð sem ég fékk frá ömmu minni, að fara
ekki í fýlu og vera bara almennileg.“
Hvert sækir þú innblástur þegar kemur að
tísku?
„Ég fylgist með og blaða reglulega í gegnum
ítalska, franska og breska Vogue. Ég veit
hvað ég vil þegar ég sé það.“
Hvert er besta tískuráð allra tíma?
„Spyrja sig: Er þetta viðbót við fataskápinn?
(Ráð frá eiginmanninum!).“
Hvað getur fólk gert til að breyta heim-
inum?
„Barist gegn vitleysunni.“
Hvaða snyrtivöru getur þú ekki lifað án?
„Chanel-augnblýantar í öllum litum eru í
uppáhaldi.“