Morgunblaðið - 02.11.2018, Page 30

Morgunblaðið - 02.11.2018, Page 30
Á hvaða tónlist hlustar þú á á laugardagskvöldi? „Góða danstónlist af plötu sem Maggi maðurinn minn gæti hafa keypt í Lucky Records. Sennilega eitthvert „one hit wonder“.“ Hvað er lúxus í þínum huga? „Að fá að vera alveg út af fyrir mig. Ekki of lengi samt.“ Ef þú þyrftir að bjarga einni flík úr elds- voða, hver yrði fyrir valinu? „Ég myndi stökkva í ullarsamfestinginn minn frá Steinunni. Bæði er hann mjög fallegur og svo tengist hann minningu látinnar vinkonu, ég hugsa hlýlega til hennar í hvert sinn sem ég fer í hann.“ Ragna fer ekki í fýlu og reynir að vera almennileg … Ragna Árnadóttir, fyrrverandi dómsmálaráðherra og nú aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, er ein smartasta kona Íslands í víðasta skilningi þess orðs. Hún er áberandi best klædd alltaf og svo læt- ur hún verkin tala á vinnumarkaðnum. Smartland gefur henni orðið. Marta María | mm@mbl.is 30 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2018 LOKAORÐIÐ SMARTLAND Hvert er besta ráð sem þú hefur fengið? „Ráð sem ég fékk frá ömmu minni, að fara ekki í fýlu og vera bara almennileg.“ Hvert sækir þú innblástur þegar kemur að tísku? „Ég fylgist með og blaða reglulega í gegnum ítalska, franska og breska Vogue. Ég veit hvað ég vil þegar ég sé það.“ Hvert er besta tískuráð allra tíma? „Spyrja sig: Er þetta viðbót við fataskápinn? (Ráð frá eiginmanninum!).“ Hvað getur fólk gert til að breyta heim- inum? „Barist gegn vitleysunni.“ Hvaða snyrtivöru getur þú ekki lifað án? „Chanel-augnblýantar í öllum litum eru í uppáhaldi.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.