Morgunblaðið - 02.11.2018, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. NÓVEMBER 2018
Eftir að hún lenti í slysinu tók við átakanlegur tími sem í raun sér
ekki enn fyrir endann á þrátt fyrir að hún geri sitt besta í þessum
aðstæðum.
„Þetta er búið að vera langt og strangt ferli en ég ákvað strax
þegar ég vissi hver staðan væri, að ég væri lömuð, að líta ekki í
baksýnisspegilinn. Ég yrði bara að læra að lifa með lömuninni.
En það hefur ekki verið auðvelt. Ég hef upplifað allan tilfinninga-
skalann. Að mestu hef ég reynt að halda í jákvæðnina og vera
bjartsýn. Ég fékk aldrei neina staðfestingu á því hversu slæmt
ástandið væri fyrr en ég kom heim til Íslands og læknarnir á
Grensási mátu skaðann. Þá var mér tjáð að þetta væri alskaði,
þetta væri þverlömun. Ég er lömuð fyrir neðan brjóst. Þótt ég
hefði verið búin að gera mér grein fyrir þessu allan tímann með-
an ég var úti, þar sem ég gat mig hvergi hreyft og var ekki með
tilfinningu í fótunum, var það sjokk að fá staðfest að ég gæti aldr-
ei gengið framar. Ég grét þegar læknarnir á Grensási sögðu mér
hvernig staðan væri,“ segir Sunna Elvíra.
Hún dvaldi í 12 vikur á spítala á Spáni, bæði í Malaga og í Se-
villa, og þegar við ræðum þann tíma segir Sunna Elvíra að þessi
tími sé þokukenndur eins og margt annað í þessu ferli.
„Þessi tími er svolítið í móðu hjá mér. Ég skil samt ekki hvernig
ég komst í gegnum þetta. En undir lokin fékk ég taugaáfall á spít-
alanum. Þá gjörsamlega brotnaði ég niður, það var enginn sér-
stakur aðdragandi, það bara þyrmdi yfir mig, mér sortnaði fyrir
augunum og ég gat ekki dregið andann. Mér fannst ég vera að
kafna og það spratt fram kaldur sviti. Mér leið eins og ég væri að
deyja. Svo á endanum kom læknir inn og ég var sprautuð niður,“
segir hún og er þá að lýsa atviki sem gerðist á spítalanum í Malaga
þar sem hún lá hreyfingarlaus og enginn vissi nákvæmlega hver
staðan á henni var. Síðar var hún flutt á sjúkrahús í Sevilla á Spáni.
„Maður fer ósjálfrátt í að reyna að lifa af. Þegar ég lá á sjúkra-
húsinu á Malaga í 10 vikur leið mér eins og hreyfingarlaus bíll í
bílastæði. Ég var alveg afskiptalaus. Maður fer í ákveðið hugar-
ástand að komast í gegnum hvern dag fyrir sig. Ég fann ekki fyrr
en ég var komin til Sevilla hvað það að komast á fætur og komast
í hjólastól gerði mér gott. Í Sevilla máttum við fara út á laugar-
dögum og sunnudögum. Mamma mín var með mér allan tímann
úti og þegar hún fór með mig í göngutúr í Sevilla sá ég spegil-
mynd mína í fyrsta skipti. Það var rosalega skrýtið og ég hugsaði
með mér: „Núna er þetta ég.“ Þetta er sterk minning að sjá speg-
ilmynd mína í glugganum,“ segir hún.
Hvernig fannst þér að sjá sjálfa þig í hjólastól?
„Það var rosalega skrýtið. Þótt ég hafi strax ákveðið að taka
þessu með jafnaðargeði og líta ekki í baksýnisspegilinn hefur
þetta verið mikill tilfinningarússíbani. Ég er ennþá að vinna úr
áfallinu. Það rennur meira og meira upp fyrir mér hvað þetta er
langt og strangt ferli. Mér finnst ég vera komin vel á veg að lifa
með þessu. Það að hafa útskrifast svona snemma af Grensási og
geta fengið að búa ein með dóttur minni hefur gefið mér mikið.
Sjálfstraustið jókst mjög mikið þegar ég fann að ég gæti eldað
mat og baðað hana og gert þetta hversdagslega sem fólk gerir.
Allt þetta daglega sem manni finnst sjálfsagt. Það eru litlu hlut-
irnir sem gefa manni mikið og ég er þakklát fyrir það,“ segir
Sunna Elvíra.
Á meðan Sunna Elvíra dvaldi á sjúkrahúsi á Spáni var ekki
vitað hvort hún væri varanlega lömuð eða ekki.
„Ég átti í mjög góðu sambandi við læknana hér heima á meðan
ég var úti. Þeir voru búnir að gera mér ljóst hvernig í pottinn
væri búið, en þeir urðu samt að rannsaka mig sjálfir. Bara upp á
eigin geðheilsu ákvað ég að leyfa mér ekki að hugsa að þetta
væru bara bólgur í kringum mænuna eins og er algengt eftir
svona slys sem fara hjaðnandi með tímanum. Ég ákvað að leyfa
mér ekki að festa mig of mikið í þeim hugsunum að þetta myndi
ganga til baka. Þrátt fyrir að ég hafi innst inni gert mér grein fyr-
ir hvernig væri komið fyrir mér var það áfall að fá þetta staðfest,“
segir Sunna Elvíra.
Lærir eitthvað nýtt á hverjum degi
Hún kom heim til Íslands 9. apríl og var lögð inn á legudeild
Grensás, þar sem hún dvaldi til miðbiks maímánaðar. Þá flutti
hún í sérútbúna íbúð fyrir fatlaða. Hún segir að það hafi verið
gott að verða sjálfstæð en líka mjög erfitt.
„Við mamma erum mjög nánar og bestu vinkonur. Hún hefur
staðið við hliðina á mér eins og klettur og hjálpar mér alla daga.
Hún keyrir mig á milli staða og fer til dæmis með dóttur mína á
leikskólann á morgnana og sækir hana,“ segir Sunna Elvíra.
„Eftir að ég flutti fór fyrst að reyna á getuna mína. Í dag er ég
að læra eitthvað nýtt á hverju degi. Það kemur mér á óvart hvað
ég get mikið. Þetta er bara þjálfun og æfing. Ég er í sjúkraþjálfun
þrisvar í viku, æfi sund tvisvar í viku og er í einkaþjálfun tvisvar í
viku. Íþróttirnar hjálpa mér með andlegu hliðina og líka líkamlega.
Ég er mikil A-manneskja sem þrífst best í rútínu. Mér finnst gott
að vakna á morgnana og hafa eitthvað fyrir stafni,“ segir hún.
Fjölmiðlafár
Slys Sunnu Elvíru vakti mikla athygli hérlendis. Þegar hún
kom í sjúkraflugi til Íslands í apríl var vélinni lent á öðrum stað
en venjulega vegna fjölmiðla. Þegar hún kom á Grensás biðu fjöl-
miðlar fyrir utan til að mynda hana þegar hún var borin inn á
endurhæfingarstöðina. Hún segist finna fyrir því að fólk þekki
hana en að hún mæti jákvæðu viðmóti frá fólki.
„Ég áttaði mig ekki alveg á því fyrr en ég var komin hingað
heim þótt það hafi verið áreiti frá fjölmiðlum meðan ég var úti.
Um leið og ég lenti heima voru mættir ljósmyndarar á Grensás.
Ég finn fyrir því að fólk þekkir mig og horfir á mig. Ég brosi bara
til fólks og er vingjarnleg. Svo gerist það alveg að fólk gefi sig á
tal við mig og talar fallega til mín. Mér þykir bara vænt um það.“
Sunna Elvíra lærði lögfræði í Háskólanum í Reykjavík og tók
meistarapróf þaðan og í Háskólanum í Lundi í Svíþjóð. Með námi
starfaði hún hjá Momentum en fór svo að vinna hjá Inkasso eftir
útskrift. Hún segir að óskastaðan væri að geta farið að vinna sem
fyrst.
„Í sumar var ég í sumarfríi með dóttur minni í fjórar viku og
var orðin mjög óþreyjufull að fara að gera eitthvað. Ég var komin
með nóg af því að vera í fríi, var staðráðin í að taka annan master,
ætlaði að demba mér í fullt nám strax í haust. Bara af því að ég
verð að hafa eitthvað fyrir stafni en svo hugsaði ég málið aðeins
betur, sem betur fer, og ákvað að taka mér tíma í endurhæf-
inguna. Því það er svo mikið áfall að vera orðin lömuð frá brjósti
og vera bundin í hjólastól. Að þurfa að læra á lífið alveg upp á
nýtt. Ég ákvað að gefa mér góðan tíma í það. Ófatlað fólk tekur
því sem sjálfsögðum hlut að komast í sturtu, fara á klósettið, setj-
ast í sófann og setjast við matarborðið. Þetta eru allt hlutir sem
ég hef þurft að læra og æfa og æfa og æfa. Í dag er þetta ekkert
mál en fyrst var þetta óyfirstíganlegt,“ segir Sunna Elvíra.
Hefur þú fengið einhverja andlega hjálp?
„Ég hef verið hjá sálfræðingi sem hefur hjálpað mér rosalega
mikið. Ég er með mikla áfallastreitu. Fyrst þegar ég kom á
Grensás var ég látin taka próf, tékklista, þar voru ákveðin atriði
nefnd sem ég átti að haka við. Ég gat hakað við hvert einasta at-
riði á listanum. Af því að ég hafði ekki fengið neina aðstoð þarna
úti. Það var ekkert þannig í boði á spítalanum á Spáni,“ segir hún.
Sunna Elvíra talar mikið um þakklætið. Hún er til dæmis mjög
þakklát fyrir að hafa lifað slysið af og líka þakklát fyrir að hafa
mátt í höndunum eða fyrir ofan brjóst. Spurð hvort hún hafi ekki
verið þakklát áður segist hún hafa tekið lífinu sem sjálfsögðum
hlut.
„Veistu, ég held að fólk taki lífinu sem sjálfsögðum hlut. Það
spáir enginn ófatlaður í það hvað það eru mikil forréttindi að
koma upp í rúm án hjálpar og geta séð um sig,“ segir hún.
Varð að gera hlutina sjálf
Sunna Elvíra og Sigurður skildu í maí. Hún segir að skrefin
hafi verið þung en jafnframt hafi ekki verið neitt annað í stöð-
unni.
„Ég leit á það sem tækifæri til að fá að hefja nýtt líf og hef
spurt mig spurninga á þá leið hvað ég vilji fá út úr þessu nýja lífi.
Ég þurfti að ákveða hvað ég vil og hvað ég vil ekki. Ég vil halda
áfram með líf mitt á mínum forsendum og vera besta útgáfan af
sjálfri mér. Mér finnst ég vera að nálgast það markmið. Eins
erfitt og þetta er búið að vera hefur þetta á sama tíma gefið mér
mjög mikið því ég hef fengið tækifæri til að vinna meira í sjálfri
mér,“ segir hún.
Spurð um skilnaðinn segir hún að það hafi ekki komið neitt
annað til greina en að fara í sitthvora áttina og að það hafi verið
sameiginleg ákvörðun.
„Það lá ljóst fyrir að við yrðum að skilja, en þetta voru þung
skref inn á skrifstofu sýslumanns því það er erfitt að skilja. Við
vorum búin að vera saman í fimm ár og eigum dóttur saman.
Þetta voru ákveðin kaflaskil. Ég ákvað eiginlega fljótlega eftir
slysið að ég yrði að setja sjálfa mig í fyrsta sæti, minn bata og
mína endurhæfingu. Fyrir mitt leyti var betra fyrir mig að ganga
í gegnum þetta ein svona eftir á að hyggja.“
Ertu reið út í fyrrverandi maka?
„Eins og mér líður í dag þá óska ég honum alls hins besta og
vona að hann hafi það gott. Ég er búin að losa mig við alla gremju
og búin að ganga í gegnum allan tilfinningaskalann. Vigfús
sjúkrahúsprestur sagði við mig að það væri eðlilegt að eiga
slæma daga og það væri í lagi að gráta og losa tilfinningarnar út.
Og svo líður mér betur daginn eftir. Það er mannlegt að eiga sína
góðu og sína slæmu daga. Góðu dagarnir eru fleiri en slæmu dag-
arnir,“ segir hún.
Hvað hefur lífsreynsla síðustu mánaða kennt þér?
„Það að við megum ekki taka lífinu sem sjálfsögðum hlut. Ég
hef alltaf verið frekar auðmjúk og verið mjög lánsöm í lífinu. Og
ég tel það ekki hafa breyst þrátt fyrir að ég sé lömuð. Ég er þakk-
lát fyrir að vera á góðum stað núna. Ég er komin vel á veg með
endurhæfingu mína. Ég er ekki með mikla verki og lít þess vegna
ekki á mig sem sjúkling. Þegar ég var á spítalanum var ég mjög
verkjuð. Íþróttirnar hjálpa mér mjög mikið að halda verkjunum í
skefjum. Rútínan hjálpar mér að hafa lífið í jafnvægi,“ segir hún.
Áður en Sunna Elvíra varð lömuð elskaði hún að ferðast um
fjöll og firnindi. Hún gekk á fjöll og elskaði alls kyns útiveru.
Núna hefur sundið tekið við en hún æfir það í sundlauginni á
Grensási. Þótt hún hafi ekki mátt í fótunum hefur hún náð góðum
tökum á sundinu og er orðin mjög sterk í efri hluta líkamans.
„Í dag finnst mér mjög gaman að synda. Það kom mér svo mik-
ið á óvart að ég gæti synt en ég get synt bringusund og baksund
og tel mig vera nokkuð góða í því og er að ná að synda á mjög
góðum tíma,“ segir hún.
Þú endar kannski á ólympíuleikum fatlaðra?
„Það getur vel verið,“ segir hún og brosir og bætir við:
„Rúnar Björn eldri bróðir minn er líka í hjólastól. Hann slas-
aðist fyrir 15 árum og er lamaður frá hálsi. Hann hefur stutt við
bakið á mér allan tímann, sem er ómetanlegt, og gott að geta leit-
að í reynslubankann hans. Hann er ötull baráttumaður fyrir rétt-
indum fatlaðra og er formaður NPA-miðstöðvarinnar. Hann hef-
ur veitt mér innsýn í þennan heim sem réttindabaráttan er og
hvernig víða er pottur brotinn í þessum málaflokki. Við urðum
mikið nánari eftir að ég slasaðist, en við erum einu systkinin á Ís-
landi sem eru bæði mænusködduð. Þá eru einnig einir bræður
sem eru mænuskaddaðir,“ segir hún.
Sunna Elvíra þráir að geta verið virkur samfélagsþegn og vill
ekki láta líta á sig sem sjúkling. Spurð hvernig hún sjái framtíð-
ina fyrir sér segist hún vilja byrja að vinna um leið og hún hefur
náð nægilega góðu þreki.
„Ég held að góðir hlutir gerist hægt og ég myndi þurfa að
byrja að vinna í 50% vinnu því það tekur allt miklu meiri tíma í
dag en áður. Bara að klæða mig á morgnana og koma mér út úr
húsi tekur óratíma. Ég lít ekki á mig sem öryrkja sem ætlar að
sitja heima. Ég ætla mér út á vinnumarkaðinn. Ég hef unnið í
einkageiranum en hef áhuga á beita mér fyrir málefnum fatlaðra
eða vinna í stjórnsýslunni.“
Hér er Sunna Elvíra
ásamt móður sinni,
Unni Birgisdóttur.