Morgunblaðið - 03.12.2018, Side 4

Morgunblaðið - 03.12.2018, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2018 Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að ve rð ge tur br ey st án fyr irv ar a. 595 1000 . heimsferdir.is Beint flug til Trieste 23 kg taska og 10 kg handfarangur innifalið í verði Börnin fljúga frítt með Heimsferðum í júní til Króatíu og Ítalíu Brottfarir: 8., 18. og 29. júní Veður víða um heim 2.12., kl. 18.00 Reykjavík -4 léttskýjað Hólar í Dýrafirði -5 skýjað Akureyri -4 snjókoma Egilsstaðir -4 léttskýjað Vatnsskarðshólar -3 heiðskírt Nuuk -3 snjókoma Þórshöfn 2 heiðskírt Ósló 4 rigning Kaupmannahöfn 5 rigning Stokkhólmur 4 þoka Helsinki -2 skýjað Lúxemborg 11 súld Brussel 13 skúrir Dublin 12 skúrir Glasgow 6 súld London 12 skýjað París 14 súld Amsterdam 12 skýjað Hamborg 9 súld Berlín 6 súld Vín 0 þoka Moskva -5 snjókoma Algarve 17 heiðskírt Madríd 8 þoka Barcelona 16 léttskýjað Mallorca 17 heiðskírt Róm 11 léttskýjað Aþena 10 skýjað Winnipeg -6 alskýjað Montreal 1 rigning New York 10 rigning Chicago 6 rigning Orlando 26 léttskýjað  3. desember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:52 15:45 ÍSAFJÖRÐUR 11:28 15:18 SIGLUFJÖRÐUR 11:13 14:59 DJÚPIVOGUR 10:29 15:07 VEÐUR KL. 12 Í DAG Á þriðjudag Vestlæg eða breytileg átt, 3-10 m/s, og snjókoma eða él, einkum um vestanvert landið fyrri- partinn. Frost 0 til 18 stig, kaldast norðaustantil en mildast við suðvestur- og suðurströndina. Breytileg átt 5-13 og dregur úr éljum fyrir norðan en þykknar upp með snjókomu á köflum vest- anlands undir kvöld, einkum suðvestantil. Frost herðir, mest norðantil. Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Kalt var og vindasamt á laugardag- inn þegar þess var minnst víða um land að 100 ár voru liðin frá því að Ísland varð frjálst og fullvalda ríki. Setti veðurfarið nokkurt strik í reikninginn við hátíðahöld þau sem fram fóru við stjórnarráðið. Þrátt fyrir það var nokkur hópur fólks sem lét kuldann og trekkinn ekki á sig fá og fylgdist með hátíðahöld- unum, en einnig var hægt að horfa á þau í beinni útsendingu á RÚV. Álíka fjöldi virðist hafa sótt sam- komuna og var við stjórnarráðs- húsið þegar fullveldi var lýst yfir 1. desember 1918. Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra setti athöfnina með ávarpi þar sem hún sagði meðal annars að saga Íslands á síðustu 100 árum hefði ekki verið saga „værðar og hvíldar“. Sagði hún að kynslóð fram af kynslóð hefði unnið sleitu- laust til að „koma Íslandi í hóp þeirra sjálfstæðu ríkja í heiminum þar sem velmegun er mest. Margir draumar hafa ræst og Ísland trónir nú á toppi ýmissa þeirra lista sem mæla hagsæld og velferð“. Katrín sagði einnig að Íslend- ingar ættu fullveldinu mikið að þakka, en að um leið legði það rík- ar skyldur á herðar okkar, meðal annars þær „að standa vörð um þau einstöku náttúruverðmæti sem við eigum og nýta auðlindir okkar með sjálfbærum hætti“, að tryggja að allir íbúar landsins fái notið samfélagslegra gæða og að skyn- samlega sé haldið utan um stjórn efnahagsmála og verðmætasköpun til að tryggja lífsgæði í landinu. Þá legði fullveldið þá skyldu á herðar landsmanna að varðveita og tala ís- lensku og tryggja „að við notum hana ekki einungis um forna kappa og kvenskörunga heldur líka um það sem gerist í tölvuleikjum, fjár- málamarkaði, veðurfræði og geim- vísindum,“ sagði Katrín meðal ann- ars í ávarpi sínu. Meðal gesta við setningarathöfn- ina voru Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Eliza Reid for- setafrú, Margrét II. Danadrottning og Lars Løkke Rasmussen, for- sætisráðherra Danmerkur. Auk Katrínar fluttu þau Krist- björg Mekkín Helgadóttir og Mathias Ölvisson, fulltrúar Ungmennaráðs Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna, og Jelena Ci- riæ tónlistarkona einnig ávörp við athöfnina og var þeim vel tekið af viðstöddum. Um átta kórar fluttu lög við há- tíðina við undirspil og voru ýmis ættjarðarljóð sungin. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Afmælisfagnaður Nokkur hópur fólks safnaðist saman við Stjórnarráðið til þess að minnast afmælis fullveldisins, þrátt fyrir að kalt væri og vindasamt. Athöfnin var einnig sýnd beint. Álíka fjöldi var viðstaddur 1918  100 ára afmælis fullveldis minnst Ljósmynd/Magnús Ólafsson Fullveldi Líklega voru litlu færri við Stjórnarráðið 1. desember 1918 en á 100 ára afmælinu á laugardaginn. Fullveldi Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Eliza Reid forsetafrú tóku á móti Margréti Þórhildi Danadrottningu, fyrir miðju, í Hörpunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.