Morgunblaðið - 03.12.2018, Qupperneq 23
djasstrommari sem lék og gerði plöt-
ur með tónlistarmönnum á borð við
Clare Fisher (First Time Out) og Don
Ellis (Essence).“
Pétur tók þátt í bítlabyltingunni
hér á landi sem trommuleikari
Hljóma frá Keflavík. Hann varð einn-
ig snemma mjög virkur í íslensku
djasslífi og lék hér m.a. með erlendum
gestum á borð við Art Farmer og
Booker Ervin 1969.
Í Svíþjóð hefur Pétur verið leiðandi
djasstrommuleikari og leikið með
flestum fremstu djassleikurum Svía
um áratuga skeið. Í seinni tíð hefur
hann leikið með Putte Wickman, m.a.
inn á átta hljómplötur og í hljómleika-
ferðum, s.s. til Japans, í Carnegie
Hall í New York og Barbican Centre í
London. Hann hefur leikið með feiki-
legum fjölda heimsfrægra djassleik-
ara, s.s. Pepper Adams, Benny Bail-
ey, Jaki Byard, Donald Byrd,
Adolphus Doc Cheatham, Al Cohn,
Ted Curson, Eddie Daniels, Buddy
DeFranco, Harry Sweets Edison,
Booker Ervin, Georgie Fame, Art
Farmer, Herb Geller, Mike Gibbs,
Benny Golson, Dexter Gordon, Steve
Gray, Johnny Griffin, Scott Hamil-
ton, Jimmy Heath, Illinois Jacquet,
Thad Jones, Clifford Jordan, Roger
Kellaway, Barney Kessel, Lee Kon-
itz, Yusef Lateef, Joe Lovano, Red
Mitchell, James Moody, Spigniew
Namyslowski, Walter Norris, Dick
Oats, Horace Parlan, Ken Peplowski,
Jerome Richardson, Mariu Schneid-
er, John Scofield, Tony Scott, Sahib
Shihab, Zoot Sims, Slam Stewart,
John Surman, Clark Terry, Toots
Thielemans, Charles Tolliver, Stan
Tracey, Art van Dam, Ernie Wilkins,
Kai Winding, Normu Winstone og
Niels-Henning Ørsted-Pedersen.
Pétur hefur leikið með stórsveitum
á borð við Mikael Råbergs Jazzorch-
estra, sem þá var talin ein albesta
djassstórsveit Evrópu, auk djass-
tríóa, s.s. Claes Crona’s trio sl. fjögur
ár og gerði með þeim þrjá diska.
Hann hefur leikið allt frá avant-
garde-djassi til tónlistar New Or-
leans-brassbanda og verið slagverks-
leikari með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands: „Og ég hef notið þessa alls til
hins ýtrasta!“
Pétur var aðaltrommusettskennari
Tónlistarháskólans í Stokkhólmi
1973-92 og segja má að flestir djass-
trommarar í Stokkhólmi og nágrenni
hafi verið nemendur hans eða nem-
enda hans. Hann hefur kennt við
Musikhögskolan i Örebro frá 2005.
Pétur hefur þróað eigin kennslu-
aðferðir í trommuleik. Hann gaf út
bókina A Small Book of Paradiddles
árið 1975: „Nú er ég að leggja loka-
hönd á rit um greiningarkerfi fyrir
trommuhreyfingar.“
Pétur var sæmdur titlinum
trommuleikari ársins á Íslandi árið
2012 og sambærilegum titli í Svíþjóð
2015.
Fjölskylda
Pétur er þríkvæntur. Fyrsta kona
hans var Júlía Olsen, f. 31.8. 1942, bú-
sett í Svíþjóð, og eru synir þeirra Ari
Georg, f. 29.6. 1962, tónlistarmaður í
Svíþjóð, og Jón Kristján, f. 21.5. 1964,
tónlistarmaður í Svíþjóð.
Önnur kona Péturs var Jódís
Ólafsdóttir, f. 17.11. 1949, d. 2.5. 1991,
en dóttir þeirra var María Rut, f. 10.6.
1968, d. 29.11. 1968.
Þriðja kona Péturs var Anja Notin,
en sonur þeirra er Sebastian Notin, f.
28.7. 1974, slagverksleikari og upp-
tökustjóri í Brasilíu.
Foreldrar Péturs voru George Öst-
lund, f. 25.12. 1901, d. 30.12. 1961, að-
stoðarforstjóri Consolidated Edison í
New York, og María Markan Öst-
lund, f. í Ólafsvík 25.6. 1905, d.16.5.
1995, óperusöngkona.
Pétur
Östlund
Helga Arnórsdóttir
húsfr. í Rvík og á Eyri
Árni Böðvarsson
barnakennari í Rvík og prófastur á Eyri í Skutulsfirði, bróðursonur
Þuríðar, langömmu Vigdísar Finnbogadóttur, af Presta-Högnaætt
Kristín Árnadóttir
húsfr. í Ólafsvík og í Rvík
María Markan Östlund
óperusöngkona víða um heim,m.a. í Metropolitan
óperunni
Metta Einarsdóttir
húsfr. á Stafafelli
Markús Gíslason
pr. á Stafafelli í Lóni
Helga Einarsdóttir húsfr. í Rvík
Markús Einarsson kaupm. og heildsali í Rvík
Sigríður Einarsdóttir húsfr. í Kaupmannahöfn
Elísabet Einarsdóttir húsfr. í Rvík
Einar Markan söngvari og listamaður í Rvík
Einar Markússon
kaupm. og útgerðarm. í Ólafsvík,
síðar aðalbókari ríkisins
Einar Markús
Markan skipherra
Sigurður
Markan
erkstj. í
Rvík
María Huld
Markan
Sigfúsdóttir
tónlistar-
kona og
tónskáld
v
Rolf Markan
árnsteypum.
í Rvík
j
Ingrid
Markan
þýðandi
og
prófarka-
lesari
Úr frændgarði Péturs Östlund
Inger Nielsen
húsfr. á Seyðisfirði, Rvík og í
Vesturheimi, af norskumættum
David Östlund
ritstj. á Seyðisfirði, trúboði og verksmiðjustj. í Rvík og síðar íVesturheimi
Georg Östlund
aðstoðarforstjóri Consolidated Edison í NewYork
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Tveir snillingar Pétur Östlund og
Sigurður Flosason.
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2018
Ástríður Guðmundsdóttir fædd-ist 1770 í Sauðeyjum á Breiða-firði. Foreldrar hennar voru
hjónin Guðmundur Einarsson, bóndi,
smiður og sjómaður, , síðast í Hergils-
ey, f. um 1730, d. 1784, og Guðrún
elsta Ólafsdóttir, f. um 1748, d. 19.7.
1801.
Þrettán ára flutti Ástríður ásamt
fjölskyldu sinni til Hergilseyjar, en
aðeins ári síðar lést faðir hennar. Voru
þá fimm börn af átta enn á heimilinu
og var Ástríður elst þeirra.
Ástríður giftist 15.9. 1792 Einari
Ólafssyni, f. 1768, d. 17.7. 1843, bónda
í Skáleyjum og síðar sáttaleitarmanni.
Þau eignuðust þrettán börn og var
yngst þeirra Guðmundur, alþingis-
maður og prófastur í Dalasýslu. Sex
barnanna dóu í frumbernsku en fimm
lifðu móður sína. Eitt þeirra drukkn-
aði ársgamalt ásamt móðurömmu
sinni. Meðal barnabarna Ástríðar má
nefna Matthías Jochumsson, skáld-
systurnar Herdísi og Ólínu Andrés-
dætur og systurnar Ástríði Thor-
steinsson og Theodóru Thoroddsen.
Eftir brúðkaupið flutti Ástríður til
Skáleyja og gegndi þar húsmóður-
störfum í hálfa öld. Hún var ljósmóðir
í Flateyjarhreppi þótt hún hefði ekki
lært þau fræði. Fjölmenni bjó í
hreppnum á tímum Ástríðar, árið
1789 voru þar 45 heimili með 287
manns og 1816 voru heimilin 32 með
245 manns. Barnsfæðingar voru þá
tíðar og því nóg að gera hjá Ástríði í
ljósmóðurstörfunum.
Matthías segir um ömmu sína:
„Var hennar leitað til margra ráða,
lækninga og líknar í vandræðum,
þótti hún og eiga drjúgan þátt í
hreppstjórn og sveitarmálum, því
hún var bæði skarpvitur og góð-
gjörn.“ Sem dæmi um það er það talið
að þegar sveitarstjórnarmálum á Ís-
landi var breytt árið 1808 hafi Ástríð-
ur kynnt sér nýju lögin og skýrt þau
fyrir bændunum í Breiðafjarðareyj-
unum og kennt þeim að starfa sam-
kvæmt þeim.
Síðustu æviárin bjó Ástríður hjá
dóttur sinni, Guðrúnu ljósmóður, í
Miðbæ í Flatey. Þar lést Ástríður 3.
desember 1865.
Merkir Íslendingar
Ástríður Guðmundsdóttir
Morgunblaðið/KHJ
Í Flatey Landnámsbærinn Miðbær
er talinn hafa verið þar sem ösku-
hóllinn er, austan kirkjugarðsins.
90 ára
Einar Þorbjörn Jónsson
Eydís Bjarnadóttir
Kristín Hauksdóttir
Svandís Hannesdóttir
85 ára
Ásgrímur Geirs Gunnarsson
Fjóla Sigríður Tómasdóttir
Ingunn Hjördís Jónasdóttir
80 ára
Hreiðar Anton
Aðalsteinsson
Karl Sighvatsson
75 ára
Paul Newton
Pétur Davíð Georgsson
Östlund
Sigríður Lilja Guðjónsdóttir
70 ára
Anna Þóra Einarsdóttir
Ari Trausti Guðmundsson
Guðrún Sólborg
Tómasdóttir
Ingunn Eide Árnadóttir
Jóna Björg Heiðdalsdóttir
Jón Magnús Ívarsson
Kristján A. Ágústsson
Stefán Gunnarsson
60 ára
Arnþór Einarsson
Erna Bjarnadóttir
Ingólfur Sveinsson
Kristín Björk
Guðmundsdóttir
Margrét Gísladóttir
Páll Ármann Eggertsson
Snorri Þór Snorrason
Valur Harðarson
Þormar Birkir Ástvaldsson
Þorsteinn G. Þorsteinsson
50 ára
Guðrún Dröfn
Birgisdóttir
Guðrún Pétursdóttir
Hallveig Gróa
Ragnarsdóttir
Hannes Guðbjörn
Sigurðsson
Ingvar Guðmundsson
László Petö
Martin Hauksson
Michaela Matejicková
Smári Viðar Grétarsson
Sólbjartur Óli Utley
Valdimar Gestur
Hafsteinsson
Þórður Ingi Guðjónsson
40 ára
Arnar Erwin Gunnarsson
Gréta Helgadóttir
Haukur Örn Birgisson
Jacquelyn Trinidad Abando
Jón Smári Pétursson
Kamila Lesniewska
Kristín Vilborg Þórðardóttir
Stefán Örn Viðarsson
Úlfhildur Guðjónsdóttir
30 ára
Dominik Franciszek Dziki
Encho Plamenov Stoyanov
Fannar Freyr Magnússon
Hiu Yan Lau
Lucia Magali Ramirez
Gonzalez
Lukasz Mroz
Marcin Zelek
Martin Knapovský
Sandra Guðnadóttir
Sigurjón Már Einarsson
Sveinbjörn Ingi Erlendsson
Tinna Freysdóttir
Til hamingju með daginn
40 ára Jón Smári er frá
Káranesi í Kjós en býr í
Mosfellsbæ og er rafvirki.
Maki: Ása Dagný Gunn-
arsdóttir, f. 1975, sjúkra-
þjálfari hjá Heilsuborg.
Börn: Gunnar Smári, f.
2005, Arnar Dagur, f.
2007, og Steinar Kári, f.
2010.
Foreldrar: Pétur Lárus-
son, f. 1937, d. 2017,
bóndi, og Marta Finns-
dóttir, f. 1943, búsett í
Káranesi.
Jón Smári
Pétursson
40 ára Kristín er Reykvík-
ingur og hjúkrunarfræð-
ingur og starfar hjá Lyfju.
Maki: Ingi Björn Ágústs-
son, f. 1978, sölustjóri hjá
Vodafone.
Börn: Ágúst Örn, f. 1996,
Ingibjörg Lilja, f. 2007, og
Jóel Freyr, f. 2009.
Foreldrar: Þórður H.
Jónsson, f. 1944, fv.
partasali, og Ingibjörg Ó.
Hjaltalín, f. 1950, hús-
móðir. Þau eru bús. í
Reykjavík.
Kristín Vilborg
Þórðardóttir
30 ára Fannar er Reyk-
víkingur en býr á Akur-
eyri. Hann er sjávar-
útvegsfr. að mennt og er
skrifstofustj. Svalbarðs-
strandarhrepps.
Maki: Tinna Dagbjarts-
dóttir, f. 1991, BS í sál-
fræði og skíðaþjálfari.
Börn: Hekla Ýr, f. 2014,
og Agla, f. 2018.
Foreldrar: Magnús R.
Kristjánsson, f. 1967, og
Ingunn S. Bragadóttir, f.
1969, bús. í Hollandi.
Fannar Freyr
Magnússon
Njóttu töfra hátíðanna á köldustu
mánuðum ársins. Stílfögur S8 kaffivél
sem uppfyllir draum sérhvers kaffi-un-
nanda og hellir upp á alla sígildu og
vinsælustu kaffidrykkina eins og þaul-
reyndur kaffibarþjónn. Vélin tilheyrir
nýrri og tilkomumikilli kynslóð kaffivéla,
er með notendavænum 4.3" litaskjá og
stútfull af tækninýjungum eins og P.E.P.®
og fínfroðutækni sem skila sér í óvið-
jafnanlegri lokaafurð í bollanum, allt frá
ristretto og latte macchiato til flat white.
JURA – If you love coffee.
Fangaðu hátíðleikann með
dásamlegu kaffi –
nýmalað,
engin hylki.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón