Morgunblaðið - 03.12.2018, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 03.12.2018, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2018 21 Atvinnuauglýsingar            !"  # $ %  & ' ( )*&+ ,- . ( )*&+       -/ )/   0 11 !"  # $ %   & 2 3*&+ Félagsstarf eldri borgara Árbæjarkirkja Mánudaginn 3.desember 2018 eru 50 ár síðan Kven- félag Árbæjarsóknar var stofnað. Af því tilefni verður haldinn vegleg- ur jólafundur kl.19 í Safnaðarheimili kirkjunnar. Boðinn Leikfimi kl. 10.30. Bingó kl. 13.00. Myndlist kl. 12.30. Vatns- leikfimi kl. 14.30. Spjallhópur kl. 15.00. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10- 10:30. Fatasala Logy kl. 11.30-14. Leikfimi kl. 12:50-13:30. Anna Ragna Fossberg kl. 14:00 les úr bók sinni Auðna. Bútasaumshópur kl. 13:00- 16:00. Opið kaffihús kl. 14:30-15. Gjábakki Kl. 9.00 handavinna, kl. 9.00 boccia, kl. 9.30 Postulínsmál- un, kl. 10.50 Jóga, kl. 13.15 Canasta, kl. 16.30 Kóræfing Söngvina, kl. 19.00 Skapandi skrif. Gullsmári Postulínshópur kl. 9.00. Jóga kl. 9.30. Handavinna / Bridge kl. 13.00. Jóga kl. 17.00. Félagsvist kl. 20.00. Jólahlaðborð félagsmiðstöð Gullsmára 8. des. kl 18.00. Miðasala í Gullsmára. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, jóga með Carynu kl. 9, útvarpsleikfimi kl. 9.45, jóga með Carynu kl. 10 og samverustund kl. 10.30. Hádegismatur er kl. 11.30, tálgun og listasmiðja kl. 13, frjáls spilamennska kl. 13, liðleiki á stólum og slökun með Önnu kl. 13.30 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga með Ingibjörgu kl. 9 í Borgum, ganga kl. 10 frá Borgum, Grafarvogskirkju og Egilshöll, Skartgripa- gerð með Sesselju kl. 13 í Borgum og félagsvist kl. 13 í Borgum. Tréútskurður kl. 13 á Korpúlfsstöðum og kóræfing Korpusystkina kl. 16:00 í Borgum. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8:30, morgunleikfimi á 2. hæð kl. 9:45, lesið úr blöðum kl. 10:15, bókmenntahópur kl. 11, trésmiðja kl. 13-16, samverustund m.djákna kl. 13:30, ganga m.starfsmanni kl. 14:00, bíó á 2. hæð kl. 15:30. Uppl. sími 4112760. Seltjarnarnes Gler neðri hæð félagsheimilisins kl. 9. og 13. Leir Skólabraut kl.9. Billjard Selinu kl.10. Krossgátur og kaffi í króknum kl.10.30. Jóga með Öldu í salnum kl.11. Jólagjafa og föndurdagur í salnum á Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl.18.40. Í dag er síðasti skráningardagur á jólahlaðborðið á Örkinni þann 6. des. Skráning og uppl. hjá Kristínu í síma 8939800. Stangarhylur 4 Zumba Gold námskeið fyrir styttra komna/byrjendur kl. 9.45..ZUMBA Gold framhald kl. 10.30. STERK OG LIÐUG leikfimi kl.11.30.Tanya leiðiðir. Aðventuhátíð félagsins 6.desember kl.15.30. Boðið verður upp á óáfengt jólaglögg, kaffi og góðgæti. Söngur, Margrét Helga Kristjánsdóttir syngur nokkur lög, Kór FEB syngur undir stjórn Gylfa Gunnarssonar, hugvekja sr. Bjarni Karlsson, upp- lestur úr bókum og fl. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Til sölu LOK Á POTTA   HÖFÐABAKKA 1 SÍMI 777 2000 Bátar      Mikið úrval í bæði 12V og 24V. Flatahrauni 25 - Hafnarfirði Sími 564 0400 www.bilaraf.is Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Húsviðhald Tek að mér ýmis smærri verkefni fyrir jólin Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Rað- og smáauglýsingar        ✝ MargrétÁgústa Hall- grímsdóttir fæddist í Reykjavík 24. september 1936. Hún lést 24. nóvem- ber 2018 á hjúkr- unarheimilinu Boðaþingi í Kópa- vogi. Foreldrar henn- ar voru Hallgrímur Finnsson frá Kjal- vegi á Snæfellsnesi, f. 5.1. 1892, d. 23.8. 1969, skipstjóri og vegg- fóðrarameistari, og Ingveldur Andrésdóttir, húsmóðir frá Ingjaldshóli á Snæfellsnesi, f. 1.8. 1894, d. 30.7. 1961. Margrét var yngst í röð þriggja systkina, en bræður hennar voru Haukur, f. 5.9. 1920, kona hans var Ásta Jenný Guðlaugsdóttir, og Andr- és, f. 12.8. 1923, eru þeir báðir látnir. Hallgrímur og Ingveldur slitu samvistum og kvæntist Hallgrímur aftur og eignaðist soninn Friðgeir, f. 12.2. 1950, eiginkona hans er Ragnheiður Magnúsdóttir. Margrét ólst upp í Reykjavík Hannes Jónas Jónsson frá Þór- eyjarnúpi V-Húnavatnsýslu, kaupmaður, f. 26.5. 1892, d. 21.7. 1971, og Ólöf Guðrún Stef- ánsdóttir frá Kotleysu í Stokks- eyrarhreppi, húsmóðir, f. 12.5. 1900, d. 23.7. 1985. Börn Margrétar og Björgvins eru: 1) Andrés smiður, f. 24.8. 1961. Dóttir hans er Anna Mar- grét, f. 1989. 2) Ingveldur Ólöf forstöðumaður, f. 7.6. 1963, maður hennar er Eyþór Egg- ertsson, f. 1961. Dætur þeirra eru Arna Björk, f. 1985, Elísabet Katla, f. 1989, Katrín Hrund, f. 1991, og Alexandra Björg, f. 1992. Fyrir átti Björgvin soninn Magnús Helga, f. 21.5. 1961. Margrét hafði áður eignast synina Ríkharð skipstjóra, f. 1.9. 1957, og Árna smið, f. 2.10. 1958. Eiginkona Ríkharðs var Auður Pétursdóttir, f. 1957, d. 2012. Börn þeirra eru Pétur, f. 1978, Ríkharður Björgvin, f. 1985, og Margrét, f. 1990. Nú- verandi sambýliskona hans er Kristín Anna Ingólfsdóttir, f. 1955. Eiginkona Árna er Lára Sigríður Jónsdóttir, f. 1961, dætur þeirra eru Guðný Lára, f. 1985, og Anna María, f. 1989. Barnabarnabörnin eru 11 tals- ins. Útför Margrétar fer fram frá Grensáskirkju í Reykjavík í dag, 3. desember 2018, klukkan 13. og stundaði þar nám. Árið 1955 hóf hún nám við Íþróttaskólann á Laugarvatni og út- skrifaðist þaðan sem íþróttakennari 1956. Margrét átti glæstan feril sem íþróttamanneskja bæði í frjálsum íþróttum og hand- knattleik og átti mörg Íslandsmet í þeim grein- um. Margrét stundaði ýmis störf á sínum yngri árum, bæði versl- unarstörf og afleysingar við kennslu. Árið 1971 hóf hún störf sem íþróttakennari við Álfta- mýrarskóla í Reykjavík og var þar m.a. brautryðjandi við íþróttakennslu fatlaðra barna. Hún vann ýmis trúnaðarstörf fyrir Íþróttafélag fatlaðra. Mar- grét kenndi við Álftamýrarskóla í 32 ár og lauk starfsferli sínum þar árið 2003. Margrét giftist Björgvini Hannessyni, f. 20.6. 1930, d. 3.2. 2007, starfsmanni Flugleiða, 25.2. 1961. Foreldrar hans voru Elsku mamma. Nú er hvíldin komin og þú komin í sólina í Sumarlandinu þar sem allt er fallegt og öllum líður vel. Þú varst mér og minni fjöl- skyldu stoð og styrkur í gegn- um lífið og varst alltaf tilbúin að rétta okkur jafnt sem öðrum hjálparhönd. Þú lifðir bæði gleði- og sorgartíma á lífsleiðinni en tókst á við erfiðu stundirnar af miklu æðruleysi. Þú varst vina- mörg og ræktaðir vináttuna af bestu getu til síðasta dags. Þú hafðir gaman af því að ferðast jafnt hér á landi sem og erlendis og kynntist fólki á ferðalögum erlendis sem þú hélst alltaf tryggð við. Það var alltaf gaman hjá okkur þegar við fórum sumarferðina okkar vestur á Snæfellsnes að vitja mömmu þinnar og annarra ætt- ingja í kirkjugarðinum á Ingjaldshóli. Þá var spjallað mikið um liðna daga og stoppað var í öllum bakaríum á leiðinni því vínarbrauð var í uppáhaldi hjá þér. Nú er komið að leiðarlokum og þú farin í þitt síðasta ferða- lag sem við förum öll í á end- anum. Ég veit að það hefur ver- ið tekið vel á móti þér þegar þú komst á áfangastað. Þú skilar kveðju frá mér. Takk fyrir allt, elsku mamma Þinn sonur, Ríkharður. Að eiga góða og trausta vini er mikil gæfa. Vinkona okkar Maggý, sem við kveðjum í dag, var dæmi um slíkan vin. Við kynntumst fyrir tæpum 60 ár- um. Ungt fólk að koma sér upp fyrsta húsnæði í nýbyggðu fjöl- býlishúsi í Vesturbænum. Öll á sama aldri og börn okkar einnig. Þarna hófst vinátta þrennra hjóna sem hefur enst fram á þennan dag, en því mið- ur höfum við séð á eftir Björg- vini, eiginmanni Maggýjar, sem lést fyrir nokkrum árum. Á þessum árum var sam- gangur milli fjölskyldnanna mikill og ýmislegt brallað. Minnisstæð er ferð okkar þriggja eiginkvennanna saman til Keflavíkur í þeim tilgangi að heimsækja sameiginlega vin- konu okkar. Í þá daga var ekki algengt að konur ættu bíla, en Maggý átti einn slíkan af gerð- inni Austin Mini sem farið var á í ferðina. Hún var alvanur bíl- stjóri og hafði m.a. verið einka- bílstjóri Guðmundar blinda, for- stjóra Víðis. Eins er okkur minnisstæð sameiginleg ferð okkar allra til Þingvalla á fögr- um sumardegi, þar sem endað var í veislu í sumarbústað for- eldra Auðar, Maríustöðum. Árin liðu, við héldum hvert í sína áttina á höfuðborgarsvæð- inu en vináttan hélst óbreytt. Samgangur var milli fjölskyldn- anna þegar haldnar voru af- mælisveislur, fermingar eða aðrir stórir viðburðir. Þegar á eftirlaunaaldur kom tókum við konurnar upp þann reglu- bundna sið að hittast á fjögurra til fimm vikna fresti á veitinga- húsi og borða saman í hádeginu. Héldum við þeirri venju á með- an heilsa Maggýjar leyfði. Hápunktur þessara ferða var þegar sonardóttir Maggýjar og nafna, yfirkokkur á einu veit- ingahúsinu, matreiddi fyrir okk- ur vinkonurnar. Þá var okkar kona stolt. Það var reisn yfir Margréti, hún var flott kona, ætíð vel til fara og vel snyrt. Hún var mik- ill fagurkeri, átti fallega muni og bar heimili hennar því glöggt vitni. Hún var í okkar huga eins konar sólarbarn, naut sín þar sem sólin skein hvort sem var í útlöndum eða hér heima. Fyrir örfáum árum tók heilsu Maggýjar að hraka vegna sjúk- dóms sem á endanum lagði hana að velli. Var það sláandi að sjá hversu grátt sjúkdóm- urinn lék hana með tímanum. Þrátt fyrir hrakandi heilsu hélt hún hins vegar góðri sjón og heyrn. Hugsunin var skýr, enda þótt hún ætti í erfiðleikum með að tjá sig. Við vinkonurnar erum afar þakklátar fyrir að hafa átt góð- ar samverustundir með Maggý síðustu ævidaga hennar þrátt fyrir veikindin erfiðu. Við og eiginmenn okkar þökkum elsku Maggý áralanga vináttu og tryggð. Börnum hennar og öðrum ættingjum og vinum sendum við innilegar samúðarkveðjur. Auður og Guðbjörg. Margrét Ágústa Hallgrímsdóttir  Fleiri minningargreinar um Margréti Ágústu Hall- grímsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, SIF AÐALSTEINSDÓTTIR, Geitlandi 1, Reykjavík, andaðist laugardaginn 24. nóvember í faðmi ástvina. Útför hennar verður frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 4. desember klukkan 15. Jón B. Stefánsson Ívar Már Jónsson Svandís Íris Hálfdánardóttir María Birna Jónsdóttir Baldur Þór Sveinsson Vilborg Mjöll Jónsdóttir Friðrik Magnússon Margrét Lára Jónsdóttir Steinar Örn Sigurðsson og barnabörn Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja við- hengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.