Morgunblaðið - 03.12.2018, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2018
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Þótt samfélagið hafi gjörbreyst á
einni öld og skólastarf sé í endalausri
þróun og breytist hratt er meginhlut-
verkið og sérstaða þessa skóla merki-
lega lík því sem
var fyrir hundrað
árum,“ segir Vil-
hjálmur Egilsson,
rektor Háskólans
á Bifröst í
Borgarfirði. Þess
verður minnst við
hátíðlega athöfn í
dag að öld er frá
stofnun þeirrar
menntastofnunar
sem Bifrastar-
skólinn er. Efnt verður til samkomu í
Borgarfirðinum af því tilefni þar sem
haldið er upp á þessi tímamót sem
sannarlega eru stór, því fáir skólar á
landinu eru enn komnir eru á svo
virðulegan aldur sem Bifröst er.
Stigið feti framar
Það var á haustdögum 1918 sem
stofnað var til skólahalds á vegum
Sambands íslenskra samvinnufélaga,
þar sem Jónas Jónsson frá Hriflu var
upphafsmaður og skólastjóri. Hlut-
verk skólans var að mennta fólk til
forystustarfa í atvinnulífinu og í þjóð-
málum eins og gekk eftir. Nám við
skólann, þar sem viðskiptagreinar og
félagsmál voru kjarnafög, þótti hag-
nýtt og samvinnuskólafólk varð eftir-
sótt til starfa.
Það var árið 1955 sem starfsemi
skólans var flutt í Borgarfjörðinn úr
Reykjavík. Námið var tveir vetur og
var kennslan á framhaldsskólastigi.
Seinna var námsleið til stúdentsprófs
og framhaldsdeild bætt við skólann,
sem um 1990 var færður á há-
skólastig.
Margar námsleiðir
„Að Bifröst yrði háskóli var í
raun svar við því að þegar hér var
komið sögu var stúdentspróf orðin al-
geng menntun og því varð að stíga
feti framar. Brugðist var við að-
stæðum og núna síðustu árin hefur
samfélagið raunar breyst með meiri
hraða en við höfum áður orðið vitni
að. Skólastarfið hefur breyst veru-
lega frá því ég kom hingað til starfa
2013. Í haust innrituðust um 80%
nemenda okkar í greinar sem ekki
voru til fyrir fimm árum,“ segir Vil-
hjálmur.
Í dag eru um 650 nemendur við
Háskólann að Bifröst, þar sem marg-
ar námsleiðir eru í boði. Fyrst má
nefna háskólagáttina sem er fornám
fyrir fólk sem vill fara í langt nám, en
vantar undirstöðuna. Í grunndeild
má svo nefna verslunarstjórn, BA-
nám í heimspeki, hagfræði og stjórn-
málafræði og svo miðlun og almanna-
tengsl. Forysta og stjórnun og
diplómanám í opinberri stjórnsýslu
er sömuleiðis nýlegar námsleiðir og
vinsælar. Þá er við skólann kennd
viðskiptafræði með ýmsum sértæk-
um áhersluþáttum og loks við-
skiptalögfræði. Flestar þessara
greina, og fleiri til raunar, eru svo
kenndar til meistaragráðu við skól-
ann. Er þá sitthvað af námsframboði
skólans ónefnt.
Í dag eru um 85% nemenda skól-
ans í fjarnámi; eru heima og hlusta
þar á fyrirlestra yfir netið og vinna
verkefni, en taka svo nokkurra daga
námslotur í Bifröst nokkrum sinnum
á hverju skólaári.
„Fjarnemar hafa aldrei verið
jafn margir en reynslan er góð. Í fjár-
námi tekur fólk námið á sínum for-
sendum og hraða og finnur lausnir. Í
útskriftarræðu hér við skólann nú í
vor nefndi ég að aðalsmerki Bifrest-
inga væri að geta leyst vandamál og
það er engin tilviljun. Kennslan hér
er til þess fallin að þjálfa nemendur í
sjálfstæðum vinnubrögðum; afla sér
upplýsinga og leita svara við spurn-
ingum sem upp koma og leggja gagn-
rýnið mat á alla þekkingu. Slíkt er
raunar aldrei mikilvægara en nú,
þegar upplýsingar streyma að okkur
úr öllum áttum.“
Sérstaðan hefur haldist
Háskólinn á Bifröst á sér aldarlanga sögu og er tímamótanna minnst í dag. Viðskiptagreinar og þjálfun til
forystu hafa alltaf verið áhersluþættir í starfi skólans sem samvinnuhreyfingin stofnaði og rak lengi. Svara er
leitað og lausnir fundnar á vandamálunum, en mikilvægt er að spyrja gagnrýnna spurninga, segir rektorinn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bifröst Samvinnuskólinn var fluttur úr Reykjavík í Norðurárdal í Borgar-
firði árið 1955. Í dag er mikill meirihluti nemenda í fjarnámi.
Ljósmynd/aðsend
Brautskráning Nemendur frá Bifröst fara til fjölbreyttra starfa úti í þjóð-
félaginu, enda er tæpt á mörgu í náminu sem er því góð undirstaða.
Ljósmynd/úr safni
Fortíðin Nemendur í kennslustund hjá Jónasi Jónssyni frá Hriflu sem átti
mjög stóran þátt í stofnun skólans og stýrði starfi hans um áratugaskeið.
Vilhjálmur
Egilsson
Vox feminae heldur sína árlegu að-
ventutónleika í Háteigskirkju næst-
komandi laugardag, 8. desember, kl.
17. Listrænn stjórnandi kórsins frá
upphafi, Margrét J. Pálmadóttir,
stjórnar kórnum og aðrir listamenn
sem koma fram eru Hanna Björk Guð-
jónsdóttir söngkona, Emilía Rós Sig-
fúsdóttir flautuleikari, Ólöf Sesselja
Óskarsdóttir sellóleikari, Arnhildur
Valgarðsdóttir píanóleikari og Erla
Rut Káradóttir sem leikur á orgel. Nú
eins og oft áður syngur kórinn sér-
staklega til heilagrar Maríu en meðal
annars mun kórinn ásamt einsöngv-
ara og hljómlistarmönnum flytja
kafla úr óperunni Systur Angelicu
eftir Puccini. Klassísk íslensk og er-
lend jólalög í fallegum útsetningum
eru á dagskránni.
Heilög María
Vox feminae á æfingu í Háteigskirkju.
Aðventa hjá Vox feminae
Morgunblaðið/Eggert
Í Lífsstílskaffi Borgarbókasafnsins –
Menningarhússins Gerðubergs næst-
komandi miðvikudag, 5. desember,
klukkan 20 mun Edda Ýr Garðars-
dóttir kynna hvernig hægt er að gera
fallega jólapakka, kort og skraut úr
gömlum bókum, tímaritum og jóla-
kortum. Farið verður yfir hvernig
nota má nánast allt sem til fellur af
heimilinu og nýta í eitthvað fallegt.
Gestir taka með sér gömul jólakort
og fallegar bækur en á staðnum
verða bækur, tímarit, gömul jólakort,
skæri, lím, heftarar, skapalón og
fleira.
Allt má nota
Lífsstíll í Gerðubergi
Á morgun, þriðju-
daginn 4. desem-
ber, kl. 12 kemur
sópransöngkonan
Dísella Lárus-
dóttir fram á há-
degistónleikum í
Hafnarborg í
Hafnarfirði ásamt
Antoníu Hevesi
píanóleikara. Andi
jóla svífur yfir
vötnum á þessum desember-
tónleikum Hafnarborgar sem eru síð-
ustu hádegistónleikar ársins. Yfir-
skriftin er Maríur og fleiri en þær
stöllur flytja ýmsar Ave Maríur fyrir
tónleikagesti sem og aríuna Quan do
men vo úr óperunni La Bohème.
Dísella syngur
í Hafnarborg
Dísella
Lárusdóttir
Hádegistónleikar
Afmælishátíðin á Bifröst í dag
hefst með því að tekið verður á
móti Guðna Th. Jóhannessyni
forseta Íslands sem kynnir sér
skólann og starf hans. Formleg
dagskrá hefst klukkan 13.40
þar sem ávörp verða flutt af
fólki sem hvað með sínu móti
tengist sögu og starfi skólans.
Þá flytur karlakórinn Söng-
bræður í Borgarfirði nokkur val-
inkunn lög. Fyrrverandi rektorar
og skólastjórar Samvinnuskól-
ans og Háskólans á Bifröst
stíga svo á svið og minnast tíma
síns við skólann. Formlegri dag-
skrá lýkur um kl. 16.
Ræður og
kórsöngur
HÁTÍÐ HALDIN Í DAG