Morgunblaðið - 03.12.2018, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.12.2018, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2018 ✝ Pétur Gunn-arsson fæddist í Reykjavík 18. mars 1960. Hann lést á líknardeild Landspítalans 23. nóvember 2018. Foreldrar: Ragnheiður Ásta Pétursdóttir, f. 28. maí 1941, og Gunnar Eyþórsson, f. 23. júní 1940, d. 18. ágúst 2001. Seinni maður Ragnheiðar Ástu, fósturfaðir Péturs, var Jón Múli Árnason, f. 31. mars 1921, d. 1. apríl 2002. Seinni kona Gunnars var Hjördís Guðbjartsdóttir, f. 11.10. 1933. Systkini Péturs: Eyþór, f. 9. september 1961, maki er Ellen Kristjánsdóttir, Birna Guðrún, f. 12. mars 1965, maki Árni Daníel Júlíusson, Sólveig Anna, f. 29. maí 1975, maki Magnús Sveinn Helgason. Dætur Jóns Múla, stjúpsystur Péturs, eru Hólmfríður, f. 6. ágúst 1947, Ragnheiður Gyða, f. 15. janúar 1957, og Oddrún Vala, f. 3. október 1962. 2009, og Kjartan Pétur, f. 31. október 2012. 3) Pétur Axel, f. 21. ágúst 1995. Systkini Önnu Margrétar eru Sigrún Erla Ólafsdóttir, f. 13. mars 1962, maki er Ágúst Birgisson, Guðrún Birna, f. 17. júní 1964, og Brynjar Marinó, f. 20. okt. 1974, maki Þórný Þórðardóttir. Pétur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1980. Fáein ár eftir stúdents- próf vann hann hjá lögreglunni í Reykjavík en hóf störf sem blaðamaður hjá Morgunblaðinu um miðjan níunda áratuginn. Pétur varð fyrsti fréttastjóri Fréttablaðsins við stofnun þess. Hann var fréttastjóri á Við- skiptablaðinu um hríð og starf- aði einnig á Fréttatímanum. Pétur stofnaði vefmiðilinn Eyjuna, ritstýrði henni og rit- aði pistla. Hann starfaði fyrir Framsóknarflokkinn og síðar Samfylkinguna. Síðast starfaði Pétur sem ritstjóri hjá SÁÁ. Allan starfsferil sinn sinnti Pétur ráðgjöf fyrir fjölbreytta hópa, m.a. stjórnmálafólk og ýmis félagasamtök. Útför Péturs fer fram frá Háteigskirkju í dag, 3. desem- ber 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. Pétur kvæntist æskuástinni, Önnu Margréti Ólafs- dóttur leikskóla- stjóra, 21. júní 1980. Foreldrar hennar eru Ólafur F. Marinósson, f. 13. nóvember 1933, d. 29. september 2010, og Annalise Jan- sen, f. 23. apríl 1939. Pétur og Anna Margrét eignuðust þrjú börn: 1) Ragn- heiður Ásta, f. 30. nóvember 1980, maki er Kristján Oddur Sæbjörnsson, f. 15. júlí 1979. Börn Ragnheiðar og Einars Arnar Þorvaldssonar eru Brynjar Bragi, f. 31. desember 2006, Sólrún Una, f. 6. mars 2009, og Þorsteinn Flóki, f. 23. október 2011. Dætur Kristjáns eru Sesselja Fanney, f. 24. febrúar 2007, og Ágústa Birna, f. 27. ágúst 2009. 2) Anna Lísa, f. 12. janúar 1983, maki er Hannes Pétur Jónsson, f. 14. nóvember 1982. Börn þeirra eru Eydís Anna, f. 29. júní Eftir vangadans á skólaballi við lagið And I Love Her með Bítl- unum varð ekki aftur snúið. Þetta var í febrúar 1975 og við Pétur ekki orðin 15 ára gömul. Ég vil trúa því að það hafi verið tilgang- ur með því að við urðum par svona ung, við áttum ekki að fá að verða gömul saman. Samband okkar varði í tæp 44 ár og fyrir það er ég óendanlega þakklát. Hlutirnir gerðust mjög hratt á okkar fyrstu árum. Þegar við vor- um 16 ára var Pétur fluttur til mín, 19 ára byrjuðum við að búa, giftum okkur tvítug og 22 ára vor- um við orðin tveggja dætra for- eldrar. Það var okkur svo mikil blessun þegar sonur okkar kom í heiminn þegar við vorum 35 ára. Eins og gengur á langri göngu saman var vegurinn alls konar og þótt hann hafi oftast verið frekar greiðfær urðu nokkur stórgrýti á vegi okkar. Í stað þess að gefast upp fluttum við þau af veginum og héldum göngunni áfram hönd í hönd margfalt sterkari eftir. Pétur var einstakur maður, hann var minn besti og nánasti vinur. Það var svo gott að leita til hans með allt því hann var svo ráðagóður og hafði oftast rétt fyr- ir sér þótt stundum hafi verið erf- itt fyrir mig að viðurkenna það. Ég hef fengið alls konar hug- myndir í gegnum tíðina og það var nánast sama hver hugmyndin var, hann hvatti mig alltaf áfram og studdi. Þegar ég 31 árs ákvað að fara í leikskólakennaranám stóð hann eins og klettur á bak við mig þótt heimilið yrði fyrir tekjumissi og hann þyrfti að taka á sig meiri vinnu. Þegar ég ákvað að opna leikjavef fyrir börn hjálpaði hann mér með styrkumsóknir og annað sem þurfti til að koma vefnum á laggirnar. Fyrir örfáum vikum eyddi hann með mér góðum tíma í að fara yfir vefinn og ræða næstu skref. Það verður erfitt að stíga þau án hans. Það var öllum mikið áfall þegar Pétur veiktist í lok sumars á síð- asta ári og um páskana varð ljóst hvert stefndi. Pétur var æðrulaus í veikindum sínum, sagðist ekki óttast dauðann, hann væri fyrst og fremst þakklátur fyrir lífið og fólkið sitt. Síðustu nánu samskipti okkar voru á líknardeildinni tveimur dögum fyrir andlát hans. Hann vaknaði stutta stund, tók utan um andlit mitt og kyssti mig síðasta kossinn. Hann greip um hálsmen sem ég bar og ég sagði við hann að ég hefði fengið það frá honum. „Ég veit“ sagði hann og það voru hans síðustu orð til mín. Pétur var stóra ástin í lífi mínu og tilhugsunin um framtíðina án hans er mér óbærileg en á sama tíma er ég full þakklætis fyrir öll árin okkar og ríkidæmið sem fólg- ið er í börnum okkar og barna- börnum. Megi æðri máttur veita okkur öllum styrk til að halda áfram göngunni um veginn án þessa ein- staka manns. Sofðu rótt, elskan mín, takk fyrir að hafa verið svona þétt við hlið mér öll þessi ár og gefið mér svo margar góðar minn- ingar til að ylja mér við núna og um ókomna tíð. Ég veit að hvar sem þú ert núna muntu bíða eftir mér þegar minn tími kemur. Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til að greina þar á milli. (Reinhold Niebuhr) Anna Margrét Ólafsdóttir. Elsku besti pabbi minn er farinn frá okkur allt of snemma. Eftir er stórt tómarúm í lífi okkar fjölskyldunnar og vina. Í mínum huga var pabbi minn klárasti og minnugasti maður í öllum heiminum og það var ekk- ert sem ég gat ekki leitað til hans með. Það leið ekki sá vetur á öll- um mínum námsferli þar sem ég leitaði ekki til hans, við ritgerða- skrif, yfirlestur á verkefnum eða til að útskýra fyrir mér flókna hluti. Þegar kom að fréttum og samfélagsmálum var alltaf hægt að stóla á pabba til að draga sam- an aðalatriðin eða útskýra ítar- legar það sem var að gerast, hvort sem um var að ræða fréttir hér heima eða úti í heimi. Þetta var líf hans og yndi. Síðast en ekki síst var alltaf hægt að leita til hans með hluti úr daglega lífinu, vinnumál, sam- skipti, barnauppeldi og allt þar á milli. Pabbi elskaði fjölskylduna sína og dáði barnabörnin sín. Hann hafði yndi af því að heyra sögur af þeim og fylgjast með skólagöngu þeirra og áhugamálum. Pabbi mætti á danssýningar hjá Eydísi og naut þess að spjalla um fót- bolta við Kjartan. Stoltur og með óbilandi trú á þeim, talaði um þeirra styrkleika og hvatti þau áfram. Pabbi var heiðarlegur og rétt- sýnn maður og saman gáfu þau mamma okkur systkinunum yndislegt, kærleiksríkt og gott uppeldi. Elsku pabbi, ég veit ekki hvort ég muni nokkurn tímann venjast því að tala um þig í þátíð. Hvernig þú tókst á við ólækn- andi sjúkdóm með óskiljanlegum styrk og æðruleysi mun gefa okkur styrk og æðruleysi í sorg- inni. Mikið vildi ég að þú værir enn hjá okkur. Ég elska þig og sakna þín. Þín, Anna Lísa. Elskulegur tengdapabbi minn, Pétur Gunnarsson, hefur nú kvatt okkur í hinsta sinn. Á ég honum margt að þakka. Það fyrsta sem kemur mér til hugar þegar ég hugsa um Pétur, er hve góður afi hann var og hve innilega hann naut samvista við barnabörn sín og fjölskyldu. Það er ekki sjálfgefið að vera hluti af góðri fjölskyldu en þegar ég kynntist Önnu Lísu, dóttur hans, tók hann mér strax opnum örmum. Fjölskylda Péturs hefur ávallt verið samrýnd og náin. Fórum við gjarnan saman í ferðalög og í sumarfrí. Fjölskyldan fór oft sam- an í sumarbústað og áttum við Pétur það til að spila golf, tókst þá með okkur mikil vinátta. Pétur var alltaf ráðagóður og hvetjandi. Hann hefur ávallt stutt mig og fjölskyldu mína. Hann hvatti mig til dáða í öllu sem ég tók mér fyrir hendur. Hvort sem það var á námsárum mínum eða seinna þegar ég hóf störf. Mér þótti mjög vænt um þá óbilandi trú sem hann hafði á mér. Hetjuleg barátta og æðruleysi Péturs við erfið og alvarleg veik- indi vakti aðdáun mína sem og annarra. Kæri Pétur, ég kveð þig með þakklæti í hjarta. Takk fyrir að reynast börnum mínum ómetanlegur. Takk fyrir að hafa alltaf haft trú á mér. Hannes Pétur. Afi okkar var skemmtilegur, góður, hjálpsamur, vingjarnlegur og hugsaði alltaf vel um okkur. Hann kenndi okkur ýmislegt, t.d. um fótbolta, stjórnmál, íslensku og sögu og var alltaf til í að spjalla um heima og geima. Hann sýndi því sem við vorum að gera mikinn áhuga, t.d. fannst honum gaman að fylgjast með okkur í handbolta, heyra Sólrúnu spila á básúnu og dansa, spjalla við Brynjar um bakstur, íþróttir og heimsmálin og hlusta á Þorstein syngja og segja frá og skrifa með honum sögur, eins og t.d. „Gull í mold“, „Hreindýrið fæddist“ og „Valur vann“, sem við lesum áfram til að muna eftir afa. Afi vissi rosalega mikið, eigin- lega allt, og vann alltaf í spurn- ingakeppnum. Við fórum í ferða- lög með afa og ömmu, bæði á Íslandi og líka í skemmtilega ferð til Danmerkur og Svíþjóðar þar sem við fórum í Tívolí og Astrid Lindgren-garð þar sem afi sagði okkur margar sögur af sögunum hennar og rifjaði upp minningar frá því hann las þær fyrir mömmu okkar. Afi hvatti okkur alltaf til að gera hluti sem við vorum hrædd við, t.d. fara á hestbak, í tívolítæki og hitta kisur og hunda og studdi okkur í því þegar við prófuðum það. Við söknum afa mikið og elskum hann og finnst skrýtið að hann sé ekki lengur heima hjá ömmu í horninu sínu í sófanum. Þú varst besti afi í heimi og við munum aldrei gleyma þér og verðum dugleg að rifja upp góðar minningar. Brynjar Bragi, Sólrún Una og Þorsteinn Flóki. Pétur mágur minn er fallinn frá. Við fengum fréttirnar í fyrra- sumar um að hann væri kominn með illvígan sjúkdóm. Honum var ekki ætlaður langur tími, en hann barðist eins og hetja og af ein- stöku æðruleysi gegn sjúkdómn- um, og fyrstu spádómarnir reynd- ust of svartsýnir. Engu að síður varð hann loks að lúta í lægra haldi. Ég kynntist Pétri fyrir sautján árum. Pétur var þá í ábyrgðar- miklu starfi á vettvangi stjórn- mála og fjölmiðla, og fór svo nokkru síðar að vinna við upp- byggingu á vefmiðlinum Eyjunni. Hann sinnti þeirri uppbyggingu af einstökum dugnaði. Pétur reyndist ákaflega geðfelldur í við- kynningu. Hann var bæði ljúfur og vingjarnlegur við nýjan með- lim fjölskyldunnar og tók einstak- lega vel á móti mér – eins og fjöl- skyldan öll. Fljótlega varð mér ljóst að Pétur hafði yfirburða- þekkingu á stjórnmálum og sam- tímamálefnum almennt og það var alltaf sérstaklega gaman að skeggræða við hann um þau mál- efni þegar við hittumst í fjöl- skylduboðum, heima hjá Ragn- heiði Ástu móður hans eða annars staðar. Það var líka gaman að fylgjast með því hvernig hann færðist sífellt lengra til vinstri í skoðunum eftir því sem hann eltist. Stundum er talað um að það sé aðallega ungt fólk sem er róttækt og eftir því sem fólk eldist verði það íhaldssamara, en það gilti ekki um Pétur. Eitt sinn var ég beðinn um að skrifa grein um þekktan hérlend- an stjórnmálamann fyrir tímarit nokkurt hér í bæ. Ég var alveg til í það þótt ég hefði aldrei skrifað slíka grein áður, alltaf til í allt, og fékk ýmsar góðar upplýsingar hjá innanbúðarmönnum, fræðimönn- um og fleirum, en það var ekki fyrr en ég mér datt í huga að hringja í Pétur mág og heyra hvað hann hefði að segja um málið að ég fékk verulega gott sam- hengi í greinina. Ég spurði hann um efnið og það stóð ekki á svörum: Ég hefði getið skrifað upp orðrétt það sem hann sagði og það hefði ekki þurft að breyta einu einasta orði, og það hefði orð- ið frábær grein. Svo skýr var greining hans og svo vel máli far- inn var hann að það var einstakt. Þegar tilveran tætist í sundur við fráfall fólks á besta aldri verð- ur stundum fátt um varnir. Maður stendur frammi fyrir grimmd dauðans og lýtur höfði. Það er erf- itt að líta upp og horfa á veru- leikann sem eftir stendur; það er tóm þar sem eitt sinn var líf, minningin ein þar sem eitt sinn var maður sem manni þótti vænt um – og sífellt vænna eftir því sem tíminn leið og árin liðu. Ekki minnkaði sú væntumþykja í veik- indum hans. Þótt Pétur væri sár- lasinn tók hann alltaf á móti manni af hlýju og rólyndi manns sem var sáttur við líf og menn. Hann tók því sem að höndum bar af aðdáunarverðu æðruleysi. Við sem eftir stöndum í hringiðu sorg- arinnar getum ekki gert annað en reyna að leita að og finna í okkur brot af þeim kjarki sem slíkir menn búa yfir. Við reynum að brúa bilið, við reynum af veikum mætti að viðhalda vef lífsins sem hefur rofnað svo ægilega, þangað til okkar eigið kall kemur. Árni Daníel Júlíusson. Tryggðatröllið Pétur Gunnars- son vinur minn er allur. Um hann var auðvelt að segja allt sem prýða má einn mann. Hann hugg- aði okkur hin í banalegunni, sem fyrr sá klettur sem nafn hans merkir. Eins og títt er um kærleiksríkt fólk varð hann róttækari með ár- unum. Svo háttaði til í uppvexti hans að nærtækasta leiðin fyrir ungan mann til að sýna sjálfstæði sitt og gera uppreisn var að ger- ast hægrimaður. En leiðin lá ann- að og seinni árin sló hjartað mest með nýrri róttækri forystu verka- fólks og hugsjónabaráttu fyrir grundvallarbreytingum með nýrri stjórnarskrá. Áhugi hans á nýjum hugmyndum og leiðum skiluðu sér vel í störfum hans. Hann hafði mótandi áhrif sem stjórnandi á nýjum fjölmiðlum og naut þess þar að vera bæði forvit- inn og fróðleiksfús. Greiningar- hæfni blaðamannsins sýndi sig jafnvel í veikindum hans sjálfs í skilmerkilegum skýringum um framgang þeirra, sem hann setti sig auðvitað vel inn í alveg fram í andlátið. Pétur tók að sér að vera kosningastjóri minn árið 2006. Upp úr samvinnu okkar spratt einlæg vinátta sem hélst æ síðan. Það var margt brallað og alltaf var hægt að sækja til hans stuðn- ing og ráð í stóru og smáu. Það auðgaði vináttuna við Pétur hve gott hann átti með að samgleðjast fólki og sjá kosti hvers og eins. Fram í síðasta sam- tal á líknardeildinni var hann að segja manni frá starfsfólki spítal- ans og hve gott það væri í sínu. Hitt gladdi hann þó mest að segja frá fjölskyldunni og hennar mikla stuðningi. Mikill er þeirra missir en eftir standa ótal dýrmætar minningar um góðan dreng. Ég þakka fyrir þann vin sem Pétur var. Önnu Margréti, börn- um þeirra hjóna og fjölskyldunni allri færi ég mínar dýpstu sam- úðarkveðjur. Helgi Hjörvar. Elskulegur vinur minn, Pétur, er farinn og það er sárt. Aðeins örfáum dögum fyrir andlát hans áttum við spjall um sameigin- legan vin og kunningja. Ég vissi að hann lá á líknardeild og þegar við kvöddumst vissum við bæði að hvorki fundir í síma á förnum vegi né samskiptamiðlum yrðu fleiri. Lífsloginn var að fjara út og það var svo sárt að kveðja og segja: „Bless, kæri vinur, við eigum eftir að hittast aftur.“ Ég vil endilega trúa því að þannig verði það, þótt ég viti ekki hvar eða með hvaða hætti fundum okkar ber saman aftur. Aðeins vissan um að við og allir sem á undan okkur eru gengnir muni finnast að lokum. Ég hef ekki hugmynd hvers vegna Pétur stóð mér nær en flestir aðrir samstarfsmenn mínir. Það var eitthvað sem við fundum bæði, virðing og væntum- þykja á okkar liðlega árs samveru á Fréttablaðinu. Pétur var ráðinn fréttastjóri frá upphafi og tók þátt í að móta blaðið. Og það var gott að vinna undir stjórn Péturs. Ein- staklega vænn og sanngjarn, hvað sem á gekk og það var oft raf- magnað, en afar ljúft andrúmsloft á ritstjórninni, þar sem unnið var myrkranna á milli fyrsta árið í Þverholtinu. Enginn kvartaði og við unnum eins og einn hugur að því að gera þetta blað að því sem það varð; gott og trúverðugt fréttablað sem mark var tekið á. Pétri á ég mikið að þakka; að hafa deilt með mér af eigin visku- brunni og síðan og ekki síst að treysta mér fyrir mörgum verk- efnum sem kröfðust mikils og skiptu hann miklu máli að væru vel unnin. Það var stærsta gjöf hans til mín; gjöf sem byggði upp traust á sjálfri mér og mínum störfum sem efldu mig, styrktu og hvöttu til dáða. Um svipað leyti og ritstjórnin flutti á Suðurgötuna úr Þverholt- inu hélt Pétur út í lífið í nýja vinnu með aðsetur í miðbænum. Ég hef ekki tölu á því hve oft við rákumst á hvort annað í bæn- um og tókum jafnan tal saman, en tilviljanir eru oft undarlegar, því suma samferðamenn hittir maður aldrei. Aðra rekst maður á hvar sem maður stígur niður fæti. Pétur var einn þeirra og jafnvel eftir að ég flutti af höfuðborgarsvæðinu til Hveragerðis þá varð Pétur þar einnig á vegi mínum oftar en einu sinni. Ég vissi að ég átti í honum góð- an vin sem ég gat leitað til og spurt ráða. Pétur hafði dóm- greindina í lagi og þekkingu á samfélagsmálum. Hann sá því oft- ar en ekki flöt sem ég hafði ekki áttað mig á og ég treysti honum hundrað prósent. Mér er illt í hjartanu núna því það er svo sárt að sjá á eftir stórum manneskjum eins og hon- um sem hafa mikið að gefa; ekki aðeins þeim sem næst honum stóðu, heldu öllum þeim sem áttu samleið með honum. Menn eins og Pétur eru vandfundnir og eru okkur hinum ávinningur. Ofur- stórar manneskjur eins og Pétur eru þessu litla samfélagi okkar svo mikilvægar. Hann dreifði frá sér gæsku með tilvist sinn og störfum, um leið sáði hann frjó- kornum visku og mannkærleika til okkar allra. Anna Margrét var honum kær og glitti jafnan í glampa í augum þegar hann nefndi hana. Fjöl- skyldunni allri sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Bergljót Davíðsdóttir. Það er ljúfsárt að skrifa minn- ingargrein um góðan vin og félaga til margra ára en leiðir okkar Pét- urs lágu fyrst saman á unglings- árum sem nemendur við sama skóla. Sú samleið hélst lengi í okk- ar skólagöngu og lukum við báðir námi frá fornmáladeild MR vorið 1980. Eitthvað vorum við að fást við háskólanám eftir það, bæði hvor í sínu lagi sem og saman, eða þang- að til við hófum störf í lögreglu þar sem við lukum báðir námi frá Lögregluskóla ríkisins vorið 1985. Eftir að hafa verið saman á vökt- um í almennri löggæslu, hvar gott var að hafa Pétur sér við hlið, var hann síðan færður yfir í umferðardeild, en þar lauk hann störfum nokkru eftir að hafa lent í slæmu umferðarslysi á lögreglu- bifhjóli. Við það sneri Pétur sér að blaðamennsku hvar gáfur hans, glöggskyggni og heiðarleiki í samskiptum fengu notið sín sem og góð söguþekking og djúpt innsæi í flest málefni samfélags- ins. Þótt stundum tognaði um of á okkar vinaböndum, einkum vegna daglegs amsturs hjá okkur báð- um, reyndum við eftir föngum að hittast í ró og næði yfir máltíð, ræða daginn og veginn sem og Pétur Gunnarsson HINSTA KVEÐJA Elsku afi. Við munum alltaf elska þig. Við söknum þín svo mikið. Okkur fannst gott að hafa þig. Þú varst besti af- inn. Það var gaman á fót- boltamótinu og ég, Kjartan, skoraði tvö mörk fyrir þig. Ég, Eydís, fór á handbolta- mót og skoraði fyrsta markið mitt, fyrir þig. Þú varst með gott og kærleiksríkt hjarta. Við elskum þig óendan- lega mikið. Þín Eydís Anna og Kjartan Pétur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.