Morgunblaðið - 03.12.2018, Qupperneq 32
Mikið úrval af
hundarúmum
Sími 511 2022
dyrabaer.is
Smáralind, Kringlunni,
Reykjanesbæ, Akranesi – fyrir dýrin þín
Leikhópur Borgarleikhússins leikles
samtal þingmanna á veitinga-
staðnum Klaustri á Litla sviðinu í
kvöld kl. 20.30. „Eitt af megin-
hlutverkum leikhússins er að
varpa ljósi á málefni líðandi
stundar. Með þessum viðburði
leitast leikhúsið við að skoða
ábyrgð og orðræðu kjörinna fulltrúa
í lýðræðislegu samhengi,“ segir í til-
kynningu. Aðgangur er ókeypis.
Klaustursamtal þing-
manna leiklesið í kvöld
MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 337. DAGUR ÁRSINS 2018
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 641 kr.
Áskrift 6.960 kr. Helgaráskrift 4.346 kr.
PDF á mbl.is 6.173 kr. iPad-áskrift 6.173 kr.
Íslenska kvennalandsliðið í hand-
knattleik vann ævintýralegan sigur
gegn Aserbaídsjan í undankeppni
HM í handbolta í Skopje í Makedón-
íu í gær. Ísland vann leikinn með 31
marks mun, 49:18, og með sigr-
inum tryggði íslenska liðið sér sæti
í umspilsleikjum um laust sæti á
HM sem fram fer í Japan á næsta
ári. »2
Ævintýralegur sigur
kvennalandsliðsins
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Já, mér finnst gaman að fylgjast
með veðrinu og hvernig allt í nátt-
úrunni breytist. Að undanförnu hef-
ur verið kuldi og snjókoma fyrir
norðan og á Vestfjörðum og nú er
útlit fyrir að veturinn sé að færast
yfir hér sunnanlands. Útlitið var
þannig þegar ég leit á kortin nú
áðan,“ segir Bjarki Kaldalóns Friis á
Veðurstofu Íslands.
Náttúra og norðurslóðir
Það bera sennilega fáir jafn-
kuldalegt nafn og Bjarki Kaldalóns
Friis, sem í gærmorgun var á vakt-
inni á Veðurstofunni og tók þar hlý-
lega á móti blaðamanni. Millinafnið
vakti eðlilega fyrstu spurningu um
uppruna, sem er sá að í móðurætt er
Bjarki langafabarn Sigvalda Kalda-
lóns, læknis og tónskálds. Fyrir öld
var Sigvaldi læknir vestur við Ísa-
fjarðardjúp og tók þá upp nafnið
Kaldalóns, með vísan til staðhátta
innst í Djúpinu.
„Ég fæddist í Danmörku en fór
svo rúmlega eins árs til Grænlands
með foreldrum mínum, Karen Okt-
avíu Jónsdóttur og Henrik Friis, til
Meistaravíkur á austurströndinni.
Þar var faðir minn, sem er danskur,
að vinna fyrir námufyrirtæki. Þótt
ég væri lítið barn þegar þetta var sí-
aðist eitthvað inn og vakti áhuga
minn á Grænlandi; náttúru og norð-
urslóðum,“ segir Bjarki, sem sex ára
gamall fluttist með foreldrum sínum
til Noregs þar sem þau búa enn.
„25 ára fór ég í jarðfræðinám og
stærstan hluta þess tók ég á Sval-
barða. Mér fannst frábært að vera
þar og eins þau þrjú ár sem ég var á
Grænlandi seinna, í hundasleðasveit
SIRIUS, sem danski herinn gerir út
í Daneborg,“ segir Bjarki, sem sneri
til Íslands 2008 og innritaðist í Há-
skóla Íslands til að ljúka meistara-
námi sínu í jarðfræði.
Les í ský og mælir hita
Á Íslandi segist Bjarki hafa fest
rætur; er fjölskyldufaðir og í
ábyrgðarstarfi sem náttúruvár-
sérfræðingur á Veðurstofunni. Í því
starfi felst að fylgjast með upplýs-
ingum frá mælitækjum sem eru
víðsvegar um landið; lesa í þær,
setja í samhengi og greina hvort
hætta sé yfirvofandi svo sem flóð,
jarðskjálftar eða eldgos. Einnig að
lesa í skýin, mæla hita og fleira slíkt,
en í Reykjavík er ein mikilvægasta
veðurathugunarstöð landsins.
Síðast en ekki síst er Bjarki
Kaldalóns Friis rödd veðráttunnar;
les veðurfréttir á Rás 1 í Ríkis-
útvarpinu fimm sinnum á sólarhring.
Við sem hlustum þekkjum rúntinn
til dæmis á vestanverðu landinu:
Bláfeldur, Gufuskálar, Stykkis-
hólmur, Ásgarður, Lambavatn og
Bjargtangar eru allt hljómmikil
staðarheiti sem bögglast geta í
munni Bjarka, sem er norska og
danska töm en íslenskan ekki eins.
Á Góðalandi
„Ég byrjaði hér á Veðurstofunni
árið 2015 og var strax settur í út-
varpslesturinn. Jú, ég fékk smáþjálf-
un í upphafi og vissulega hef ég
fengið athugasemdir fyrir framburð-
inn og sumt er réttmætt. Annars
sinni ég þessu bara eftir bestu getu
og les skýrt. En sumt getur vissu-
lega misskilist, til dæmis eru Básar
við Þórsmörk á Goðalandi en ekki
Góðalandi eins og einhverjum mis-
heyrðist,“ segir Bjarki Kaldalóns
Friis að síðustu.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Veðrabrigði Veturinn er að færast yfir, segir Bjarki, hér við hitamælana, og veðurstofuhúsið við Bústaðaveg í baksýn.
Rödd veðráttunnar
Kaldalóns í veðurfregnum Vaktar vá náttúru Hunda-
sleðahermaður á Grænlandi Er Íslendingur að hálfu
Dregið var í undankeppni Evrópu-
móts karlalandsliða í knattspyrnu í
Dublin á Írlandi í gær. Ísland leikur í
H-riðlinum ásamt heimsmeisturum
Frakklands, Tyrklandi, Albaníu, Mold-
óvu og Andorra. Riðlakeppnin hefst í
mars á næsta ári og lýkur í nóvem-
ber. „Þetta hefði getað verið betra og
líka verra,“ sagði Erik Hamrén, þjálf-
ari íslenska lands-
liðsins, eftir
dráttinn en
möguleikar Ís-
lendinga á að
ná öðru af
tveimur
efstu sæt-
unum
verða að
teljast
ágætir. »1
Ísland í riðli með
heimsmeisturunum