Morgunblaðið - 18.12.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2018
FALLEG OG VÖNDUÐ
LEIKFÖNG
Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
úr náttúrulegum efnivið,
tré og silki
Jólaopnun
í dag kl. 17-20
Veður víða um heim 17.12., kl. 18.00
Reykjavík 7 alskýjað
Hólar í Dýrafirði 5 skýjað
Akureyri 5 alskýjað
Egilsstaðir 2 rigning
Vatnsskarðshólar 6 rigning
Nuuk -8 skúrir
Þórshöfn 7 léttskýjað
Ósló -2 skýjað
Kaupmannahöfn 0 þoka
Stokkhólmur -1 snjóél
Helsinki -1 snjókoma
Lúxemborg 4 rigning
Brussel 8 léttskýjað
Dublin 11 skúrir
Glasgow 7 skýjað
London 8 heiðskírt
París 6 heiðskírt
Amsterdam 8 léttskýjað
Hamborg 2 þoka
Berlín 2 skýjað
Vín -1 alskýjað
Moskva -14 snjókoma
Algarve 14 léttskýjað
Madríd 8 heiðskírt
Barcelona 14 léttskýjað
Mallorca 14 heiðskírt
Róm 8 skýjað
Aþena 12 heiðskírt
Winnipeg -16 léttskýjað
Montreal 0 súld
New York 6 skýjað
Chicago 1 léttskýjað
Orlando 12 heiðskírt
18. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:20 15:30
ÍSAFJÖRÐUR 12:07 14:53
SIGLUFJÖRÐUR 11:52 14:34
DJÚPIVOGUR 10:59 14:50
VEÐUR KL. 12 Í DAG
Á miðvikudag Austlæg átt, 3-10 m/s, hvassast
syðst. Skýjað með köflum, en rigning syðra og
eystra. Hiti kringum frostmark.Á fimmtudag Hæg
austlæg eða breytileg átt. Sums staðar stöku skúrir.
Austlæg átt, 5-13 m/s, og rigning eða skúrir en úrkomulítið á Vesturlandi. Hiti 2 til 8 stig en kóln-
ar heldur í kvöld.
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Öflugir dráttarbátar bættust nýver-
ið í flotann er Icetug keypti þrjá
slíka frá Hollandi. Bátarnir eru 30
metrar að lengd og átta metra breið-
ir. Þeir hafa fengið nöfnin Herkúles,
Grettir og Kolbeinn grön. Sá síðast-
nefndi var einn Dufgussona, sem
voru fjórir þekktir bræður á Sturl-
ungaöld, liðsmenn Sturlunga og
frændur.
Ægir Örn Valgeirsson, stjórnar-
formaður Icetug og framkvæmda-
stjóri Skipaþjónustu Íslands, segir
að ýmislegt sé í bígerð varðandi
skipin og verkefni virðist næg með
auknum siglingum stærri skipa til
landsins. Margir hafi spurst fyrir
um bátana síðan fréttist af kaup-
unum, en fyrst fari þeir í slipp hver
af öðrum hjá Vélsmiðju Orms og
Víglundar í Hafnarfirði strax upp úr
áramótum.
Skipin voru smíðuð hjá Damen-
skipasmíðstöðinni í Hollandi fyrir 20
árum, en að sögn Ægis eru Damen-
dráttarbátar viðurkenndir fyrir
gæði og styrk. Þau hafa síðustu
misseri verið í verkefnum í Miðjarð-
arhafi og við Afríku og koma hingað
frá Nígeríu. Þar var þeim siglt inn í
flutningaskip sem kom með þau til
Hafnarfjarðar fyrir viku síðan.
Að sögn Ævars verða 3-4 í áhöfn
nýju bátanna, eftir því hvort verið er
að sinna verkefnum við ströndina
eða á úthafinu. Ekkert mæli á móti
því að vinna verkefni t.d. í Fær-
eyjum og Grænlandi. Með komu
bátanna muni starfsfólki fjölga. Fyr-
ir tveimur árum keypti Skipaþjón-
ustan dráttarbátinn Togarann og í
fyrra bættist stór olíuprammi við, en
hann ber heitið Barkur og er í eigu
Skipaþjónustunnar og Skeljungs.
Kaupa þrjá dráttarbáta
Morgunblaðið/SiSi
Dráttarbátar Tveir liggja við bryggju í Reykjavík og sá þriðji í Hafnarfirði.
Voru smíðaðir
í Hollandi 1998
Freyr Bjarnason
freyr@mbl.is
Bára Halldórsdóttir, sem hljóðritaði
samtal sex þingmanna á kránni
Klaustri 20. nóvember, var boðuð til
þinghalds í Héraðsdómi Reykjavík-
ur í gær. Fjöldi fólks var þar mættur
til að sýna Báru stuðning.
Reimar Pétursson, lögmaður fjög-
urra þingmanna Miðflokksins,
þeirra Sigmundar Davíðs Gunn-
laugssonar, Gunnars Braga Sveins-
sonar, Önnu Kolbrúnar Árnadóttur
og Bergþórs Ólasonar, sem komu við
sögu í Klausturmálinu, lagði fyrir
dóminum áherslu á mikilvægi þess
að myndefni úr öryggismyndavélum
Alþingis og Dómkirkjunnar yrði lagt
fyrir dóm.
Mikilvægt væri að tryggja tilvist
myndefnisins áður en varðveislutími
þess rynni út en viðmiðunarregla
Persónuverndar er 90 dagar. Sá
varðveislutími væri ekki nægjanleg-
ur ef til dómsmáls kæmi. „Umbjóð-
endur mínir vilja tryggja sönnun um
það hvernig að brotinu gegn þeim
var staðið,“ sagði Reimar.
„Umbjóðendur mínir telja að frek-
lega hafi verið brotið á rétti þeirra til
einkalífs. Þetta hafi gerst þegar
einkasamtal á Klaustri var hljóðritað
að þeim óafvitandi og gert opinbert.
Í því hafi falist brot gegn 229. grein
almennra hegningarlaga,“ sagði
hann. „Auk þess telst þessi háttsemi
varða skaða- og miskabótaskyldu.
Á þessu myndefni ætti að vera
hægt að sjá nákvæmlega hvernig
varnaraðili framkvæmdi þetta brot,“
sagði Reimar og nefndi að hægt væri
að sjá hvernig Bára hefði haldið upp-
tökunum leyndum og sömuleiðis
sannanir fyrir því „hversu styrkur
ásetningur hennar var til brotsins“.
„Einnig ef svo ber undir hvort ein-
hverjir framkvæmdu brotið með
henni. Beiðnin snýst um að fá vitn-
eskju um þetta,“ sagði hann.
Verjendur Báru mótmæltu kröfu
sóknaraðila. Þeir bentu á umfjöllun
Stundarinnar um málið og sögðu
Báru þar hafa greint ítarlega frá því
hvernig atvikum var háttað.
Reimar sagði mjög einkennilegt
að varnaraðili skyldi mótmæla. Síð-
ustu daga hefði Bára gefið sig óspart
út í fjölmiðlum fyrir að vera boðberi
gagnsæis á kostnað einkalífs en þeg-
ar spjótin beindust að henni sjálfri
venti hún kvæði sínu í kross.
„Hverju hefur varnaraðili að leyna?“
sagði Reimar og taldi þetta myndu
vekja auknar grunsemdir hjá um-
bjóðendum sínum um að frásögn
Báru af atvikum „sé ekki fyllilega
heiðarleg“.
Reimar sagði „algjörlega óásætt-
anlegt“ ef bjóða ætti dómstóli seinna
meir að fjalla um málið án þess að
hafa myndefnið til skoðunar.
Dómari ætlar að taka málið til úr-
skurðar og sagði hann að vonandi
yrði hann kveðinn upp í vikulok. Það
gæti þó dregist.
Myndefnið verði lagt fyrir dóm
Lögmaður Miðflokksmanna sem voru á Klausturfundinum vill að myndefni úr öryggismyndavélum
Alþingis og Dómkirkju verði varðveitt Verjendur Báru Halldórsdóttur mótmæltu kröfu lögmannsins
Klausturmálið
» Sex þingmenn, fjórir úr Mið-
flokki og tveir úr Flokki fólks-
ins, sátu að sumbli á barnum
Klaustri 20. nóvember.
» Rúmri viku síðar fóru DV og
Stundin að birta fréttir byggð-
ar á upptöku af samtali þing-
mannanna.
» Stundin upplýsti 7. desem-
ber að Bára Halldórsdóttir
hefði hljóðritað samtalið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Héraðsdómur Reykjavíkur F.v. í fremri röð: Lögmennirnir Ragnar Aðalsteinsson og Auður Tinna Aðalbjarnar-
dóttir og Bára Halldórsdóttir, sem var kvödd fyrir héraðsdóm í gær. Ragnar og Auður Tinna veita Báru aðstoð.
Kertasníkir er uppáhaldsjólasveinn
Íslendinga, sá næstvinsælasti er
Stúfur og í þriðja sæti vinsældalista
jólasveina situr Hurðaskellir. Þetta
eru niðurstöður könnunar MMR
þar sem spurt var um hver af jóla-
sveinunum þrettán væri í mestu
uppáhaldi.
29% þeirra sem svöruðu sögðu
Kertasníki vera sitt uppáhald, en
þetta er fjórða árið í röð sem hann
reynist njóta mestrar hylli. Reynd-
ar hafa vinsældir hans dalað eilítið
síðan í fyrra þegar 30% sögðu hann
uppáhaldsjólasveininn og árið 2015
var hlutfallið 35%.
Stekkjarstaur er í fjórða sæti vin-
sældalistans, þar á eftir koma
Gluggagægir, Ketkrókur, Skyr-
gámur, Giljagaur, Bjúgnakrækir,
Gáttaþefur og Askasleikir. Lestina
reka svo Þvörusleikir og Pottaskef-
ill sem báðir eru uppáhalds-
jólasveinar 1% þjóðarinnar.
Kertasníkir er vinsælasti jólasveinninn
Vitlaust veður var í Mýrdalnum og
undir Eyjafjöllum síðdegis í gær og
í gærkvöld. Á Steinum undir Eyja-
fjöllum kom 44,1 m/s vindhviða
klukkan 18.10 og vindhraði þar var
þá 24,6 m/s. Lögreglan á Suður-
landi hafði ekki heyrt af neinum
óhöppum vegna óveðursins þegar
rætt var við hana kl. 20.30 í gær.
Veðurstofa Íslands gaf út gula
viðvörun vegna austanhvassviðris
eða storms á Suðurlandi og Suð-
austurlandi. Á vef Vegagerðar-
innar voru vegfarendur beðnir að
vera ekki á ferðinni á hringvegi 1 á
milli Hvolsvallar og Víkur milli
klukkan 18 og 22 því þar var von á
miklu hvassviðri. Eins var varað við
að vera á ferðinni í Öræfasveit milli
klukkan 18 og 22.
Óveðursmerki voru á korti Vega-
gerðarinnar allt austan úr Öræfum
og svo frá Vík og vestur eftir Suð-
urlandsundirlendinu og vestur í
Hvalfjörð. Dyrhólavegi (208) var
lokað síðdegis í gær en þá var 30-50
sentimetra djúpt vatn á veginum.
gudni@mbl.is
Óveður var á Suðurlandi í gær