Morgunblaðið - 18.12.2018, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2018
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
í miklu úrvali
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
Nú fástS s vinnuföt í
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Eitthvað fer illa fyrir brjóstið á þér og
þú þarft að halda sjálfstjórn. Fáðu útrás fyrir
listrænar tilhneigingar þínar með einhverjum
hætti.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú hefur svo margt á þinni könnu að þú
þarft að gæta þess að lofa ekki upp í ermina á
þér. Leitaðu eftir hverju tækifæri til að gjalda
góðmennsku sem þér hefur verið sýnd.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú þarft að vera á varðbergi svo þú
missir ekki af tækifærum til að bæta aðstöðu
þína. Taktu þér tíma til þess að hugsa um
málið og helst leysa það sem fyrst.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Leyfðu öðrum að njóta kunnáttu
þinnar en varastu allt oflæti, því fyrr en varir
ert þú sú/sá sem lærir af öðrum. Mundu bara
að gjalda líku líkt þegar þar að kemur.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú gætir öðlast nýja sýn á vin þinn í dag
eða komist að einhverju óvæntu um hann.
Láttu aðra um að leysa sín mál og sinnt þú
þínum eigin.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Breyttu um stíl og taktu tæknina í þína
þjónustu; þá stendur enginn þér á sporði.
Hugsaðu þig vel og vandlega um áður en þú
tekur ákvörðun um að fjárfesta.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú ert hrókur alls fagnaðar og allir vilja
vera nálægt þér. Notaðu daginn til að leita
leiða til að bæta samskipti þín við maka þinn
og vini.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þér fylgir einstök byrj-
endaheppni, þess vegna áttu að byrja upp á
nýtt í stað þess að eyða tímanum í miðju og
endi. Velgengnin virðist hreinlega leita þig
uppi.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Dagurinn í dag er mjög heppileg-
ur til að eiga við yfirvald og yfirboðara því
þeir eru opnir fyrir hugmyndum þínum og til-
lögum í dag.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Láttu það vera að flýta þér um of
því það býður hættunni heim og þú skilar
verri vinnu fyrir vikið. Vertu öðrum glaðvært
fordæmi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þér munu sárna ummæli sem falla
í samtali innan fjölskyldunnar. Láttu ekki hug-
fallast þótt hugmyndir þínar hafi ekki fallið í
góðan jarðveg.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Finndu þér trúnaðarvin sem þú getur
létt af þér áhyggjunum við. Treystu innsæi
þínu og gerðu það sem þér finnst rétt. Flýttu
þér hægt því flas er ekki til fagnaðar.
Sigfús Bjartmarsson rithöfundurhefur óskað eftir leirvist og er
tekið fagnandi. Hann hefur gefið út
nokkrar órímaðar ljóðabækur,
skáldverk svo sem „Vargatal“ og
„Sólskinsrútan er sein í dag“. Auk
þess vísnakverið „Andræði“ og nú
síðast „Homo economicus“. Með um-
sókninni var vísa úr nýjustu bókinni:
Nú lýgur enginn lengur því
að ljótt sé að vera ríkur.
Að fátæktin sé fín og góð
og fátækur sem slíkur.
Á laugardaginn birti Ólafur Stef-
ánsson „Vetrarblús“ á Leirnum:
Í Biskupstungum er byrgð nú sól,
birta lítil um heimsins ból.
Enginn fer hér með fjallatól,
því fönn er horfin af dal og hól.
Bráðum fer þá að birta á ný
þótt bændaangarnir kvíði því,
að Þorri taki þrælslega í,
og þunglega veltist stormaský.
Vorið á svo að verma grund
veita fólkinu yndisstund.
Þá ógiftir vona á ástafund,
– ef ekki það fer í kött og hund.
„Nálgast ferðalok,“ segir Ármann
Þorgrímsson:
Vitum hvorki stund né stað
stefnan þó sé tekin heim
okkar forlög eru það
enginn getur hrundið þeim.
Það var lóðið! – Breki Karlsson
yrkir um alræmd tíðindi:
Þeir sumbluðu karlarnir kláru
á Klaustri og upp síðan skáru
eins og þeir sáðu
því ei að sér gáðu
að þarna var borð fyrir Báru.
Það er gamalt orð, að flestir séu
bændur til jóla. – Ingólfur Ómar
sver sig í ættina og segir að nú líði
að jólum og þá byrji fengitíminn.
Þó að myrkur byrgi bólin
birtir senn við helgan yl.
Bráðum koma blessuð jólin
og bændur fara að hleypa til.
Jósefína Meulengracht Dietrich
orti á þriðjudagsmorgun:
Víst er að flest getur fokið
mér finnst það samt ansi hart
hvað tekur í rófuna rokið
og rífur í ótalmargt.
Hér er bjart yfir Gunnari J.
Straumland:
Norðurljósabjarmabál
bylgjast yfir heiði.
Allt sem vekur von í sál
vex af sama meiði.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Fjölgar á Leir
og Vetrarblús
„ég missi alltaf jafnvægiÐ ÞEGAR
ÉG DREKK ÁFENGI - ÉG ER MEÐ GIN OG
KLAUFAVEIKI.”
„BORGARINN ER Í BOÐI HÚSSINS. ÞÚ ERT
FYRSTI VIÐSKIPTAVINURINN SEM HEFUR
KOMIÐ AFTUR.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... skrifuð í sandinn en
jafn traust og bjarg.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
TRÉÐ ER
KOMIÐ UPP!
TRÉÐ ER Á
GÓLFINU
ÞETTA GERA
KETTIR
AÐ SJÁ YKKUR! ÞAÐ HRYNUR MEIRA AF MAT
ÚT ÚR YKKUR EN FER UPP Í YKKUR!
ÞAÐ VAR
ÆTLUNIN!
Iðulega getur verið munur á þvíhvaða fréttir eru mest lesnar og
hvaða fréttir eru „mikilvægastar“. Í
gær var til dæmis mest lesna fréttin
á fréttavef breska blaðsins Guardian
um það að dagatal með myndum af
Vladimír Pútín Rússlandsforseta
seldist vel í Japan og væri vinsælla
en dagatöl með myndum af þekktum
heimamönnum. Þegar glöggt var
skoðað sagði ekki einu sinni í frétt-
inni að um væri að ræða mest selda
dagatalið í Japan, það virtist ein-
ungis vera mest selda dagatalið með
myndum af nafngreindum ein-
staklingum.
x x x
Fylgdi fréttinni að sumir keyptudagatalið vegna þess að þeim
þætti það kostuleg gjöf, en aðrir
hefðu einlægan áhuga á Rússlands-
leiðtoganum.
x x x
Víkverja fannst hins vegar merki-legast við fréttina að hún skyldi
vera sú mest lesna á einum stærsta
fréttavef heims.
x x x
Rifjaðist upp fyrir honum að fyrirnokkrum árum gerði Morgun-
blaðið tímaás um áramót þar sem
öðrum megin voru raktar „helstu“
fréttir ársins og hinum megin þær
sem á sama tíma voru mest lesnar á
mbl.is. Fór þar nánast aldrei saman
hljóð og mynd og voru mest lesnu
fréttirnar yfirleitt nokkru léttvægari
en þær sem „helstar“ þóttu.
x x x
Víkverji ætlar ekki að setja sig áháan hest og gera lítið úr smekk
og alvöruleysi lesenda á netinu.
Hann er sjálfur ginnkeyptur fyrir
léttvægum fréttum, hvort sem þær
snúast um að Keith Richards sé
hættur að staupa sig eða að Pútín
(hann aftur!) vilji koma böndum á
rússneska rappara.
x x x
Slíkar fréttir eru stundum kallaðarsmellabeitur og verður Víkverji
að játa að þegar hann fór inn á frétt-
ina í Guardian var ekki örgrannt um
að honum þætti sem hann hefði verið
plataður til að smella. vikverji@mbl.is
Víkverji
Ég hef elskað yður eins og faðirinn hef-
ur elskað mig. Verið stöðug í elsku
minni
(Jóhannesarguðspjall 15.9)