Morgunblaðið - 18.12.2018, Síða 10

Morgunblaðið - 18.12.2018, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2018 ir til viðbótar eru grunaðir í Hol- landi og Póllandi. Spurður hvort sami fjöldi hafi enn réttarstöðu í málinu segir Karl Steinar svo vera. „Staðan er í raun óbreytt. Þegar rannsókn lýkur endanlega verður tekin lokaákvörðun um hvernig ákæran verður. Það hefur engin breyting orðið á réttarstöðu manna í málinu.“ Í ársskýrslu lögreglunnar kemur fram að rannsókn í málinu sé mjög umfangsmikil en lögreglan lagði m.a. hald á þrjár íbúðir í fjölbýlis- húsum, iðnaðarhúsnæði og fimm ökutæki, auk peninga á bankareikn- ingum sem og hlutabréf. 100 starfs- menn lögreglu og tollgæslu tóku þátt í aðgerðunum að meðtöldum fulltrúum pólsku lögreglunnar og Europol. Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Rannsókn lögreglunnar á höfuð- borgarsvæðinu á skipulagðri glæpa- starfsemi sem tengdist m.a. versl- unum Euro Market stendur enn yfir. „Málið er ennþá bara á loka- stigi,“ segir Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu. „Það er einhver tími eftir í rannsókn. Þetta átti að vera búið.“ Hann býst við að málið verði sent til saksóknara á nýju ári. Fimm einstaklingar voru hand- teknir hér á landi 12. desember 2017 í tengslum við málið og hefur rannsókn því staðið yfir í meira en ár. Um er að ræða viðamikla al- þjóðlega rannsókn á skipulagðri glæpastarfsemi sem teygði sig til Íslands. Ætluð brot snúa að inn- flutningi og framleiðslu á fíkniefn- um, peningaþvætti og fjársvikum. Tuttugu og átta einstaklingar og fjórir lögaðilar hafa réttarstöðu grunaðra hérlendis í málinu. Nokkr- Framsalsferli enn í gangi Pólsk yfirvöld óskuðu eftir því að einn sakborninganna yrði framseldur þangað til lands og í september í ár var greint frá því að íslensk yfirvöld hefðu sam- þykkt að framselja meintan höf- uðpaur málsins til Póllands. Mað- urinn hefur barist gegn framsalinu og fór málflutningur í málinu fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í september. Karl Steinar segir að framsalið standi enn til. „Það varð að fara í ferli upp á nýtt. Það er beiðni frá Pól- landi um framsal. Það er bara ferli sem tekur ákveðinn tíma.“ Euro Market-málið enn á lokastigi rannsóknar  Rannsókn lýkur líklega á nýju ári  Saksóknari tekur þá við málinu  Engin breyting á réttarstöðu og fjölda grunaðra Morgunblaðið/Eggert Blaðamannafundur Lögreglan, embætti tollstjóra og Europol héldu blaða- mannafund í desember í fyrra þegar tilkynnt var um handtökurnar. Euro Market-málið » Fimm voru handteknir 12. desember 2017. » Málið er enn til rannsóknar hjá lögreglu. » Fer til saksóknara á nýju ári. » Framsal meints höfuðpaurs til Póllands er enn í ferli. Suðurhrauni 4210 Garðabæ | Furuvellir 3 600 Akureyri | Sími 575 8000 | samhentir.is Heildarlausnir í umbúðum og öðrum rekstrarvörum fyrir sjó- og landvinnslu u KASSAR u ÖSKJUR u ARKIR u POKAR u FILMUR u VETTLINGAR u HANSKAR u SKÓR u STÍGVÉL u HNÍFAR u BRÝNI u BAKKAR u EINNOTA VÖRUR u HREINGERNINGAVÖRUR Allt á einum stað kr. 119.920,- AEG ÞVOTTAVÉL L7FBM862E - 8 kg - 1600 sn vrn. HT914 550 046 Jólaverð (áður 149.900,-) kr. 99.900,- AEG ÞURRKARI T6DEL821G - 8 kg. Barkarlaus vrn. HT916 097 952 Jólaverð (áður 119.900,-) kr. 84.900,-Jólaverð AEG UPPÞVOTTAVÉL FB41600ZW - HVÍT vrn. HT911 544 013 (áður 99.900,-) Ný ryksuga fyrir jól Verð frá 14.900,- LÁGMÚLA 8 - SÍMI 530 2800 FYRIR HEIMILIN Í LANDINU Stjórn Fasteigna Vesturbyggðar ehf., sem fer með íbúðarhúsnæði í eigu sveitarfélagsins Vestur- byggðar, hefur sent bæjarráði þess beiðni um að skoðað verði að færa niður 23 milljón króna skuld félagsins við sveitarfélagið, að því er fram kemur í fundargerð stjórnar. Spurð hvort beiðni stjórn- arinnar bendi til þess að félagið standi undir skuldbindingum svar- ar Rebekka Hilmarsdóttir, bæjar- stjóri Vesturbyggðar: „Strangt til tekið ekki, af því að viðhaldsþörfin hefur verið meiri en leigutekj- urnar sem koma inn til félagsins hafa getað staðið undir og fram- lög sveitarfélagsins ekki gríðar- lega há.“ Félagið Fasteignir Vestur- byggðar ehf. skuldar um 36 millj- ónir króna, þar af 23 til sveitar- félagsins, 17,1 milljón til Vestur- Botns, sem einnig er í eigu sveit- arfélagsins, og fimm milljónir í yfirdrátt. Rebekka segir ekki hættu á að félagið muni ekki standa í skilum. „Ef staðan verður metin þannig verður sveitarfélag- ið að grípa inn í. Eignir sveitarfélagsins voru færðar inn í þetta félag sem er einkahlutafélag og mikið af þeim eignum sem fóru þangað inn er búið að selja. Þá er töluvert af eignum komið að miklu viðhaldi. Það er skýringin á bak við þessa skuld við sveitarfélagið, sem hefur verið að greiða fyrir þetta viðhald á eignum. Félagið sem slíkt er al- farið í eigu sveitarfélagsins,“ út- skýrir bæjarstjórinn. gso@mbl.is Morgunblaðið/Guðlaugur Albert Patreksfjörður Mikið viðhald á eignum skapar rekstrarörðugleika. Glímt við skuldir í Vesturbyggð  Leigutekjur duga ekki fyrir viðhaldi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.