Morgunblaðið - 18.12.2018, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 18.12.2018, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2018 Verð 13.900 Str. 40/42-56/58 • 3 litir Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Við erum á facebook Síðar blúnduskyrtur Fallega jólaskeiðin frá ERNU Bakhlið Hönnuður Ragnhildur Sif Reynisdóttir Verð kr. 21.500 Silfurmunir og skartgripir síðan 1924 ERNA Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is GULL- OG SILFURSMIÐJA Söfnum í neyðarmatar- sjóð fyrir jólin til matarkaupa hjá Fjölskylduhjálp Íslands fyrir þá fjölmörgu sem lægstu framfærsluna hafa. Þeim sem geta lagt okkur lið er bent á bankareikning 0546-26-6609, kt. 660903-2590. Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ. Neyðarsöfnun í matarsjóðinn fyrir jólin Guð blessi ykkur öll Jólagjöfin hennar Tryggvagötu 18 - Sími 552 0160 - Opið alla virka daga kl. 13.00-18.00 Fold fasteignasala kynnir: Ca 330 fm frábært verslunar- húsnæði á horni Frakkastígs og Laugavegar. Húsnæðið er á þremur hæðum með lyftu. Húsið lítur vel út og getur nýst bæði til verslunar og ýmsa þjónustu. Mögu- leiki á fleiri inngöngum. Þrjú bílastæði fylgja. Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Foldar. Vinsamlegast hafið samband í síma 552 1400 og 694 1401 eða vidar@fold.is. Viðar Böðvarsson viðskiptafræðingur, lögg. fasteignasali Sóltúni 20, 105 Reykjavík, s. 552 1400 og 694 1401 Til leigu: Verslunarhúsnæði á horni Laugavegar og Frakkastígs Eyþór Þorláksson, gítarleikari, lést 14. desember sl. á öldr- unarlækningadeild K-1 á Landakotsspít- ala, 88 ára að aldri. Eyþór fæddist í Hafnarfirði 22. mars 1930, sonur hjónanna Maríu Jakobsdóttur og Þorláks Guðlaugs- sonar. Eyþór starfaði við tónlist alla starfs- ævina sem gítarleik- ari, útsetjari og kenn- ari. Fyrstu starfsárin lék hann í danshljómsveitum og var brautryðjandi í leik á rafmagnsgítar. 1953 og aftur 1958 fór hann til Spán- ar til náms í klassískum gítarleik, fyrstur Íslendinga og nam hjá þekktum kennara, Graciano Tar- ragó. Heimkominn árið 1961 hóf hann að kenna klass- ískan gítarleik og kenndi í áratugi fjölda nemenda. Hann dvaldi langdvölum á Spáni af og til alla ævi. Eyþór útsetti mikið fyrir gítar og var frumkvöðull í nótna- setningu með tölvu- tækni. Eftir hann liggur á netinu fjöldi gítar-útsetninga öll- um heiminum til af- nota. Eyþór lætur eftir sig tvo syni, Atla og Svein, og sam- býliskonu til áratuga, Maríu Teresu Belles. Eyþór var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Eldey (Ellý) Vil- hjálmsdóttir (1935–1995) en seinni kona hans var Sigurbjörg Sveins- dóttir (1941–1978). Andlát Eyþór Þorláksson TVG-Zimsen hefur fjárfest á þriðja tug milljóna króna í sérhæfðum og vottuðum lyfjaflutningabíl sem jafn- framt er sá fyrsti sinnar tegundar hér á landi. Um er að ræða Scania- flutningabíl með sérhönnuðum flutningakassa og hitastýringar- búnaði til þess að tryggja jafnt hita- stig. „Þetta er fyrsti bíllinn sem er sér- hannaður fyrir íslenskar aðstæður,“ segir Andrés Björnsson, faglegur forstöðumaður PharmaHealth hjá TVG-Zimsen, og vísar til þess að bíllinn er frábrugðinn hefðbundnum flutningabílum á þann máta að hann er með einangruðum hurðum að aft- an. „Það er gerð krafa um hitastig í flutningi og kröfurnar eru alltaf að verða meiri. Jafnramt þurfa menn að sýna fram á rekjanleika, sýna að hitastigið hafi staðist alla leið frá því að lyf eru sótt erlendis þangað til þau eru afhent hérna heima,“ út- skýrir Andrés. Hann segir að um 90% lyfja þurfi að flytja við 15-25 stiga hita og að við íslenskar að- stæður þurfi að tryggja að hægt sé að uppfylla þá kröfu. Þá bendir hann á að á heimsvísu sé talið að allt að 20% lyfjasendinga komist ekki heil á leiðarenda vegna frávika á hitastigi. Strangar kröfur Hingað til hafa þeir sem hafa sinnt inn- og útflutningi lyfja notað hefðbundna vöruflutningabíla sem ekki eru sérstaklega einangraðir og bætt við olíuhitunarkerfi. Erfitt er að hafa stjórn á hitastiginu við þær aðstæður, að sögn Andrésar, sem segir að verkferlar verði nú betri en áður. „Við afhendingu er einfaldlega prentað út hvert hitastigið var með- an á flutningum stóð.“ Hann segir Evrópulöggjöf frá 2013 gera strangar kröfur til hita- stigs við lyfjaflutninga frá framleið- anda til móttakanda. „Lyfjageirinn sjálfur er síðan oft með enn strang- ari skilyrði en yfirvöld.“ gso@mbl.is Lyfjaflutningar Bíllinn er útbúinn búnaði til þess að halda jöfnu hitastigi. Sérhæfður fyrir lyf  Fyrstur sinnar tegundar á Íslandi Atvinna Bílar Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.