Morgunblaðið - 18.12.2018, Síða 16

Morgunblaðið - 18.12.2018, Síða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2018 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn                        !"  #$%- "  #&% "'% Kolibri penslar ()#'% *+  /'   :$  #$%;   :# $% "'% <'%    =& #= > ?  Strigar frá kr. 195 18. desember 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 123.98 124.58 124.28 Sterlingspund 156.07 156.83 156.45 Kanadadalur 92.57 93.11 92.84 Dönsk króna 18.751 18.861 18.806 Norsk króna 14.376 14.46 14.418 Sænsk króna 13.616 13.696 13.656 Svissn. franki 124.37 125.07 124.72 Japanskt jen 1.0915 1.0979 1.0947 SDR 170.98 172.0 171.49 Evra 140.01 140.79 140.4 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 169.9909 Hrávöruverð Gull 1239.15 ($/únsa) Ál 1907.0 ($/tonn) LME Hráolía 61.53 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Bjartara virðist vera yfir þeim skuldabréfaeigendum sem lögðu fé í flugfélagið WOW air í haust en sam- tals nam skuldabréfaútgáfan á end- anum 50 milljónum evra. Að sögn við- mælenda sem Morgunblaðið ræddi við var fjárhagsstaða WOW air þrengri en menn höfðu búist við áður en farið var í skuldabréfaútgáfuna og þá hafi gjaldþrot Primera Air leitt til þess að þolinmæði kröfuhafa hafi minnkað töluvert. „Það var margt slæmt sem lagðist á eina sveif,“ segir heimildarmaður Morgunblaðsins sem ekki vill láta nafn síns getið. Því hafi staðan alls ekki litið vel út. Líkt og fram hefur komið er bandaríska flug- félagið Indigo Partners í samninga- viðræðum við íslenska flugfélagið um fjárfestingu í WOW air. Á föstudag- inn birtust fréttir þess efnis að fyr- irtækið hygðist setja allt að 9,3 millj- arða íslenskra króna í félagið. Er það þó háð ýmsum skilyrðum, m.a. nið- urstöðu áreiðanleikakönnunar. Fjár- festingin er þó einnig háð samþykki skuldabréfaeigenda WOW air á ýms- um skilmálabreytingum bréfanna. Töluvert betri staða Að sögn heimildarmanna Morgun- blaðsins eru skilmálabreytingarnar sem farið er fram á töluvert betri en margir vildu meina að þær yrðu. Þar skiptir miklu máli að ekki er farið fram á neina lækkun á höfuðstól bréf- anna. Allt útlit er fyrir að Skúli Mo- gensen, stofnandi og forstjóri WOW air, verði áfram í brúnni hjá flugfélag- inu og í ljósi þess að Indigo Partners er ekki að kaupa félagið að fullu meta heimildamenn Morgunblaðsins sem svo að því hafi ekki þurft að koma til afskrifta. Auk þess verða vaxtakjör skulda- bréfaflokksins óbreytt, eða um 9% og teljast slíkir vextir verulega góðir í evrum og samsvarar það um 14% krónuvöxtum vegna vaxtamunar. „Kjörin voru góð til þess að byrja með sem endurspeglaði áhættuna á útgef- andanum.“ Vilja falla frá greiðslu álags Þá séu skuldabréfaeigendur komn- ir með fjárhagslega sterkari mótaðila í viðskiptunum sem gerir stöðuna ennþá álitlegri. Á móti kemur þurfi skuldabréfaeigendur að aflétta þeim veðum sem þeir áttu í WOW air. Þá er sú hagnaðarvon sem tengdist áform- um Skúla um að setja WOW air á markað ekki lengur til staðar því nú er farið fram á að fallið verði frá öllum kauprétti sem samið var um í skuldabréfaútboðinu í september. Hann hefði mögulega getað tryggt skuldabréfaeigendunum ávinning hefði félagið hækkað í virði eftir skráningu á markað. Þá er þess einn- ig krafist að fallið verði frá upphaf- legum skilmálum skuldabréfaútgáf- unnar sem kváðu á um að útgefandi skuldabréfsins þyrfti að greiða 20% álag ofan á höfuðstól bréfsins yrði það ekki að veruleika að WOW air yrði skráð á markað. Bjartara yfir skulda- bréfaeigendum WOW air Morgunblaðið/Hari Skuldabréf Þeir sem settu fjármagn í skuldabréfaútgáfu WOW air í haust virðast vera í betri stöðu en á horfðist. WOW air » Vaxtakjör skuldabréfa- flokksins verða óbreytt, 9%. Ekki er farið fram á lækkun höfuðstóls. » Skuldabréfaeigendur þurfa að aflétta þeim veðum sem þeir áttu í WOW. » Sú hagnaðarvon sem skuldabréfaeigendur höfðu er tengist áformum um að skrá WOW air á markað er ekki lengur fyrir hendi.  Óbreyttir vextir og höfuðstóll veigamikil atriði  Falla þarf frá ýmsum kvöðum Japanska lyfjafyrirtækið Fuji Pharma fjárfesti í gær í alþjóðlega líftæknifyrirtækinu Alvotech en fyr- irtækið er með höfuðstöðvar hér á landi. Fjárfestingin nemur 50 millj- ónum bandaríkjadala, eða um 6,2 milljörðum króna en um er að ræða 4,2% eignarhlut í fyrirtækinu. Alvotech og Fuji Pharma til- kynntu nýlega um samstarf þar sem Alvotech þróar og framleiðir tækni- lyf fyrir Japansmarkað, sem er þriðja stærsta markaðssvæði heims. Fuji Pharma er skráð í kauphöll- ina í Tókýó og sérhæfir sig í fram- leiðslu og sölu lyfseðilsskyldra lyfja fyrir Japansmarkað en markaðsvirði fyrirtækisins er 60 milljarðar króna. „Fjárfesting Fuji Pharma nú styð- ur við okkar framtíðarplön, en er ekki síður til marks um þá trú sem erlendir fjárfestar hafa á fyrirtæk- inu. Framundan eru spennandi tímar hjá Alvotech. Klínískar rannsóknir Alvotech eru að hefjast og fyrirtækið er vel fjármagnað til frekari vaxtar og bakland fyrirtækisins er traust,“ er haft eftir Róbert Wessman, stofn- anda Alvotech í fréttatilkynningu. Stærstu hluthafar Alvotech eru Aztiq Pharma AB, Alvogen og Fuji Pharma. Róbert Wessman, forstjóri Alvogen og stofnandi Alvotech, leiðir hóp fjárfesta í gegnum fjárfesting- arfélagið Aztiq AB sem er meiri- hlutaeigandi í Alvotech. Stærstu eig- endur Alvogen eru tveir af stærstu fjárfestingasjóðum í heiminum í dag, CVC Capital Partners og Temasek, ásamt Astiq Pharma undir forystu Róberts. Lyf Markaðsvirði Fuji Pharma er metið á um 60 milljarða króna. Milljarða fjárfest- ing í Alvotech  Styður við framtíðaráætlanir fyrirtækisins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.