Morgunblaðið - 18.12.2018, Side 18

Morgunblaðið - 18.12.2018, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2018 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Það bar tiltíðinda íliðinni viku að Rússar ákváðu að senda tvær sprengju- flugvélar af gerðinni Tu-160 í stutta heimsókn til Venesúela. Tekið var eftir komu vélanna víða á Vest- urlöndum, ekki síst í Wash- ington, þar sem stjórnvöld hafa verið á síðustu mán- uðum að herða afstöðu sína gagnvart óstjórn og of- stjórn Nicolas Maduros og Chavista í landinu. Koma vélanna, sem geta meðal annars borið kjarn- orkuvopn, var í vestrænum fjölmiðlum sett í beint sam- hengi við heimsókn Mad- uros til Moskvu í upphafi desember, en Venesúela hefur í ríkari mæli þurft að halla sér að bæði Rússum og Kínverjum, eftir því sem efnahagur landsins hefur sokkið dýpra. Koma vél- anna er því táknræn að því leyti að hún sýnir að Moskvustjórn ætlar sér ekki að láta sér örlög Chav- istanna í léttu rúmi liggja. Það er svo sem skiljan- legt, þar sem Rússar hafa í síauknum mæli verið að tryggja sér ríkan aðgang að helstu auðlindum landsins í olíu- og námavinnslu, og er mikið undir í þeim efnum. Á sama tíma er efnahagur Venesúela á hraðri niður- leið. Alþjóðagjaldeyrissjóð- urinn spáir því til að mynda að samdráttur á næsta ári verði um 5%, sem væri nóg jafnvel þó að efnahagurinn hefði ekki dregist saman um 18% á árinu 2018. Ástandið hefur verið vont lengi, og er farið að sverfa rækilega að almenningi í Venesúela, sem annars ætti að vera eitt ríkasta land Suður-Ameríku. Nauð- synjavörur á borð við mat og lyf eru af skornum skammti í þessari paradís sósíalismans, og fólksflótti er brostinn á. Það er áhyggjuefni, hvað flótta- mannavandinn frá Vene- súela hefur fengið litla at- hygli miðla á Vestur- löndum, en áætlað hefur verið að meira en þrjár milljónir Venesúelabúa hafi þegar flúið land og þar af dvelji um ein milljón í Kól- umbíu. Á sama tíma er ekkert sem bendir til þess að ríkjandi stjórn- völd muni hverfa frá á næstunni. Maduro vann glæstan sigur í forsetakosningum á árinu sem er að líða, enda var bú- ið að ganga svo kirfilega frá málum að kosningarnar mundu aldrei skila annarri niðurstöðu, sama hvað kjósendur segðu. Stjórn- arandstaðan sniðgekk því kosningarnar. Sú aðgerð hefur þó ekki bjargað helstu leiðtogum hennar frá því að vera varpað í fangelsi fyrir litlar sem engar sakir. Og ofsóknir Maduros gegn andstæðum skoðunum taka á sig ýmsa mynd. Á föstudaginn ákvað til að mynda El Nacional, síðasta dagblaðið í Venesúela sem vogaði sér að gagnrýna Maduro og Sósíalistaflokk- inn, að leggja upp laupana. Rekstur blaðsins hefur ver- ið þungur í áraraðir, bein- línis vegna þrýstings frá stjórnvöldum, auk þess sem prentblek hefur verið skammtað til landsins. Rit- stjóri blaðsins sagði að það myndi hefja aftur göngu sína þegar lýðræðið sneri aftur til Venesúela. Það virðist hins vegar vera mjög langt í að El Nacional komi aftur út. Það er því kannski ekki að undra, að Ernesto Araujo, tilvonandi utanríkisráð- herra Brasilíu og náinn bandamaður Jairs Bolson- aros sem þar er að taka við valdataumum, hafi lagt til um helgina að Venesúela yrði „frelsuð“ úr klóm Chavistanna, og mátti lesa út úr því fróma bón um að sú frelsun yrði af harðhent- ari taginu. Óvíst er hvort að slík að- gerð hlyti miklar undir- tektir heimsbyggðarinnar, jafnvel þótt neyð almenn- ings í Venesúela sé orðin nánast óþolandi. Heim- sóknir frá tignum gestum eins og sprengjuvélunum rússnesku í síðustu viku virka heldur ekki hvetjandi fyrir þá, sem á annað borð gætu hugsað sér slíka lausn. Hitt er hins vegar víst, að til lengdar gengur núverandi ástand ekki upp. Verður Venesúela frelsað úr klóm Chavistanna?} Sprengjuvélar í heimsókn V ið græðum öll á að fólk vilji búa sem víðast á Íslandi. Vissulega eru margir kostir við að búa úti á landi þar sem frelsið er meira, náttúran nær og streitan minni en á Reykja- víkursvæðinu. Höfuðborgin hefur samt líka upp á margt að bjóða sem eðli málsins samkvæmt er erfitt að veita alls staðar á landinu. Þar er boðið upp á margvíslega menningu, mat og drykk, skemmt- un sem bæði þeir sem búa í borginni og aðrir landsmenn hafa gaman af að njóta öðru hvoru. Í Reykjavík er líka fjöldinn allur af sérfræðingum á ýmsum sviðum lækninga og heilsuverndar sem eiga erfitt með að veita liðsinni nema undir fjög- ur augu. Góðir stjórnmálamenn reyna að skapa sem best skilyrði til atvinnurekstrar almennt og láta fólk svo ráða því sjálft hvað það starfar. Ef styrkja á fólk til þess að búa á ákveðnum stöðum, sem getur vel verið skyn- samlegt, er heillavænlegast að styrkja innviði, ekki ákveðnar atvinnugreinar. Meginatriði er að samgöngur og fjarskipti séu sem allra best alls staðar á landinu. Þess vegna leggjum við vegi, bor- um göng og leggjum ljósleiðara um land allt. Við styrkjum ferjur og sjúkraflug, sem og beint flug í nokkur fámenn byggðarlög. Vegna þess að flugfar er of dýrt fljúga færri og farið verður enn dýrara en ella. Flugið ætti að vera hluti af almenningssamgöngum, en almenningur hikar við vegna verðsins. Ég er eindregið þeirrar skoðunar að það sé skynsamlegt að ríkið styðji þá sem búa fjarri höfuðborginni til þess að kaupa flugmiða. Fyrir kosningarnar 2016 sömdum við Hildur Betty Kristjáns- dóttir, frambjóðendur Viðreisnar, þennan texta sem hún flutti á fundi á Egilsstöðum: „Viðreisn telur að brýnt sé að auka lífsgæði þeirra sem búa á landsbyggðinni með því að lækka flugfargjöld þeirra sem þar búa. Við teljum eðlilegt að greiddir verði niður flug- miðar þeirra einstaklinga sem búa á lands- byggðinni, þannig að fargjaldið lækki um ákveðna prósentu hjá öllum. Fyrirmynd er að finna í Skotlandi þar sem íbúar í byggðum fjarri höfuðborginni fá far- gjöld lækkuð um helming. Það er áfram far- þeganum í hag að velja ódýrasta fargjaldið og Samkeppniseftirlitið gæti til dæmis haft eftirlit með því að flugfargjöld hækki ekki við slíka að- gerð. Með þessu móti er stórt skref stigið til þess að jafna aðstöðu þeirra sem búa á landsbyggðinni við hina sem búa á höfuðborgarsvæðinu. Hvernig ætlum við að fjármagna þetta? Jú, við viljum að ákveðinn hluti aflaheimilda verði seldur á markaði og sölu- verðið sett í sjóð til þess að byggja upp innviði á því land- svæði sem aflaheimildirnar voru áður á.“ Með aukinni eftirspurn verður innanlandsflugið ódýrara, ekki bara fyrir landsbyggðarfólk heldur alla landsmenn, ferðum mun fjölga og flugið verður eftirsóknarverðari ferðamáti. Þá græða allir. Benedikt Jóhannesson Pistill Ódýrt flug er allra hagur Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen BAKSVIÐ Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Jólakortum fækkar á milli ára.og margir sakna þess í des-ember að fá ekki jólakortinn um bréfalúguna. „Við vitum að almennum bréf- um hefur fækkað til muna og jafn- framt virðist rafrænum kveðjum hafa fjölgað á kostnað jólakorta. Jólakortum virðist fækka í takt við minnkandi magn bréfapósts,“ segir Anna Katrín Halldórsdóttir og bæt- ir við að samdráttur í bréfapósti hafi verið 15% það sem af sé þessu ári og það sé töluverður samdráttur. Hún segir að ekki sé hægt að sjá magn bréfapósts í desember fyrr en eftir áramót og því erfitt að sjá hvernig desember komi út miðað við fyrri ár. „Fækkun bréfapóstsendinga hófst árið 2000 og hefur sú þróun haldist áfram allar götur síðan en ástandið var sérstaklega slæmt í kringum hrunið,“ segir Anna og bendir á að kostnaður við sendingar sé ekki það eina sem hafi hækkað, það hafi kort, umslög og myndatök- ur líka gert. Ávinningur orðinn of lítill Svölurnar – góðgerðarfélag flugfreyja og -þjóna hafa um árabil selt jólakort til fjáröflunar en eru nú hætt að láta framleiða jólakort. „Við eigum enn kort á lager og erum að selja þau. Það er mikil vinna sem fylgir því að láta hanna, prenta og selja jólakort. Eftir að fyrirtæki drógu mjög úr jólakorta- sendingum varð afrakstur allrar vinnunnar of lítill til þess að hægt væri að halda áfram,“ segir Guðrún Ólafsdóttir, formaður Svalanna. Að hennar sögn var jólakorta- salan góð tekjulind sem Svölurnar létu renna til góðgerðarmála. Guð- rún telur að meginástæðan fyrir fækkun jólakortasendinga sé að póstburðargjöld hafi hækkað of mikið og sé sendingin jafnvel orðin dýrari en kortin sjálf. Burðargjöld of há „Salan á jólakortum hefur gengið prýðilega í ár en hún hefur minnkað frá því sem áður var,“ seg- ir Anna Björk Eðvarðsdóttir, for- maður Kvenfélagsins Hringsins, en félagið selur jólakort í þágu Barna- spítalasjóðs Hringsins. Anna segir að póstburðargjöld séu allt of há í hlutfalli við kortin og fyrirtæki og einstaklingar nýti samfélagsmiðlana frekar til þess að senda jólakveðjur „Það eru mörg fyrirtæki sem styrkja okkur með peningum í stað þess að kaupa af okkur jólakort og fyrir það erum við þakklátar,“ segir Anna og bætir við að á meðan jóla- kortin seljist, þá haldi Hringurinn áfram með þau. Persónuleg samskipti „Okkur í Hugarafli finnst öllu máli skipta að vera í persónulegum samskiptum við fólk. Við notum jólakort eftir Stefán Jörgen Ágústs- son heitinn en það er ekki mikil sala í jólakortum hjá okkur,“ segir Auð- ur Axelsdóttir hjá Hugarafli og bæt- ir við að Íslendingar vanræki það að vera persónulegir hver við annan. Deyja ekki ráðalaus Þegar tekjur vegna jólakorta- sölu dragast saman bjóða líknar- og styrktarfélög upp á nýjar leiðir. Hjartaheill býður í fyrsta skipti upp á sölu rafrænna jólakorta í fjáröfl- unarskyni. Kaupendur fara á heimasíðu Hjartaheilla og senda með rafrænu jólakorti persónulegar kveðjur og styrkja um leið félagið. Sífellt fleiri senda rafrænar jólakveðjur Bréfasendingar 2008-2018 50 40 30 20 10 0 200 160 120 80 40 0 Burðargjald (kr.) Milljónir bréfasendinga 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 49 22 Fjöldi 0-50g bréfasendinga Burðargjald: A-póstur B-póstur 75 195 180 Biðröð Hár sendingarkostnaður, bið á pósthúsum og samfélagsmiðlar er meðal þess sem gerir rafræn jólakort vinsæl á kostnað hefðbundinna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.