Morgunblaðið - 18.12.2018, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 18.12.2018, Qupperneq 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. DESEMBER 2018 ✝ Guðlaug Ingi-björg Sveins- dóttir fæddist 11. ágúst 1924 á Hryggstekk í Skriðdal. Hún lést 7. desember 2018 á Hrafnistu í Reykja- vík. Foreldrar henn- ar voru Steinunn Gunnlaugsdóttir, f. 11.11. 1895, d. 23.10. 1993, og Sveinn Guð- brandsson, f. 3.9. 1896, d. 15.9. 1981, bæði úr Breiðdal. Þau bjuggu á Hryggstekk 1921-1954 en eftir það í Egilsstaðaþorpi. Guðlaug var næstelst fimm systra sem eru 1) Oddný, f. 20.7. 1920, maki Knútur Þorsteins- son, 2) Guðrún, f. 18.10. 1928, d. 27.5. 2009, maki Gísli Hjörtur Gíslason. 3) Ásdís, f. 18.8. 1932, maki Gail Pierce. 4) Hjördís, f. 3.11. 1935, maki Ingimar Jó- hannsson. Guðlaug giftist tvisvar. Fyrri maður hennar var Helgi Lars- son, f. 2.1. 1922, d. 14.7. 1982, Steinunn Björg, f. 4.4. 1952, maki Þór Vigfússon, f. 11.3. 1954, sonur þeirra Helgi, maki Guðlaug Mía Eyþórsdóttir, börn hans Vigfús Þór og Guðbjörg Lilja. Börn Guðlaugar og Þor- steins eru tvíburar 1) Jóhann Sigurður, f. 21.10. 1955, maki Þórunn Guðlaug Bergsdóttir, f. 17.7. 1957. Börn þeirra fjögur; Þorsteinn Freyr, sonur hans Sindri Steinn, Daníel Ingi, maki Herdís Sólborg Haraldsdóttir, börn þeirra Eldey Fönn og Dag- ur Steinn, Bergdís Júlía, dóttir hennar Amelía Dögun og Fann- ar Logi, látinn. 2) Bergljót, f. 21.10. 1955, dætur hennar tvær; Steinunn Gunnlaugsdóttir, kær- asti Snorri Páll Úlfhildarson Jónsson, og Hrund Ólafsdóttir, kærasti Davíð Stefánsson. Guðlaug vann við barna- kennslu tvo vetur í Helgustaða- hreppi. Eftir það lauk hún ljós- mæðranámi árið 1947 og var ljósmóðir í um 40 ár á Fljótsdals- héraði og víðar. Hún var mikill náttúruunnandi og fagurkeri, las mikið og átti mikið safn góðra bóka. Einnig vann hún að margskonar listsköpun og hélt fjölda myndlistarsýninga. Útför Guðlaugar Ingibjargar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 18. desember 2018, klukk- an 15. bóndi á Útstekk í Helgustaðahreppi, Eskifirði, og bjuggu þau þar. Þau slitu samvist- um 1952. Seinni maður hennar var Jón Þorsteinn Jóhannsson, f. 11.5. 1930, d. 9.7. 1975, frá Eyrarlandi í Fljótsdal. Þau bjuggu á Egilsstöð- um. Börn Guðlaugar og Helga eru 1) Bergþóra, f. 4.9. 1948, maki Ómar Örn Jósepsson, f. 8.11. 1952. Börn þeirra eru Stefán Svan Stefánsson, maki Sunna Dís Kristjánsdóttir, börn Mikael Darri, Marikó Dís og Manúel Kató, og Tinna Guðlaug, kær- asti Elvar Guðmundsson. 2) Gunnlaugur, f. 20.9. 1949, d. 24.3. 1993. 3) Sveinn, f. 21.10. 1950, maki Þóra Karlsdóttir, f. 1.11. 1950, dóttir þeirra Guðrún Elva, maki Sigurbjörn Grétar Eggertsson, dætur þeirra Thelma Dögg og Daníela. 4) Mín elskuleg móðir Guðlaug Ingibjörg Sveinsdóttir ljósmóðir frá Egilsstöðum er látin í hárri elli. Ég sagði stundum við hana: „Geri aðrir betur“ og ekki ólst hún upp með silfurskeið í munni. Móð- ir mín var íslenskur kvenskörung- ur. Eftir því sem ég kynntist fleira fólki í lífinu, aðallega í gegnum mitt starf sem hjúkrunarfræðing- ur, því betur sannfærðist ég um að mamma var mjög merkileg mann- eskja. Einnig var hún langt á und- an sinni samtíð. Þau orð sem mér finnst lýsa henni best eru: Skörungur, klett- ur, úrræðagóð, réttsýn, óeigin- gjörn, ekki íþyngjandi, samvisku- söm, hjálpsöm, skapmikil, skemmtileg, gladdi fólk, kvartaði ekki, sá og skynjaði það sem aðrir sáu ekki, fylgin sér, skammaði ekki okkur börnin, afar listfeng, talaði og skrifaði fallega íslensku. Svona sá ég móður mína. Ég er elsta barn hennar og urð- um við fljótt nánar og síðar góðar vinkonur. Ég skynjaði í bernsku erfiðleika hennar þegar foreldrar mínir skildu. Ég fann til með henni og saknaði pabba mikið þá fimm til sex ára gömul. Mér líkaði samt mjög vel við seinni mann mömmu, Þorstein fóstra minn. Hann var mjög ljúfur og góður maður og alltaf syngjandi. Mamma bar harm sinn í hljóði þegar hann féll frá. Þá var ég á Hveravöllum á veðurathugunar- stöðinni og þau voru að undirbúa heimsókn þangað, sem aldrei varð af. Alltaf þegar mamma kom suð- ur frá Egilsstöðum notaði hún tækifærið og fór á námskeið í að mála myndir, vatnsliti, akrýl og olíu. Í eitt skiptið sótti ég hana í Myndlistaskóla Reykjavíkur um kl. 23 að kvöldi. Þá sagði hún: „Þetta var eins og að koma í himnaríki.“ Svo kom í ljós að hún hafði ekkert borðað allan daginn. Þetta var mömmu líkt. Þegar hún flutti hingað suður í Lautasmára 1, síðust af fjölskyldunni, var það hennar fyrsta verk að leita uppi Sigrúnu vefnaðarkennara frá Ísa- firði. Hún reyndist vera hinum meg- in við götuna í Gullsmára. Naut hún leiðsagnar hennar í mynd- vefnaði og gerði 10 stór veggteppi þá orðin 82 til 83 ára gömul. Um það leyti sem mamma flutti suður keyptum við saman sum- arbústað á grónu landi í Gríms- nesinu. Áttum við þar saman ófá- ar gleði- og vinnustundir sem komu í staðinn fyrir garðinn hennar glæsilega í Tjarnarlönd- um 15 á Egilsstöðum. Við mamma brölluðum margt saman og skemmtum okkur konunglega. Við fórum saman í margar ferðir til Portúgals, Krítar og Santorini- eyjunnar sem hún sagði vera einn fallegasta stað sem hún hefði komið á. Ég kveð þig, elsku mamma mín, með söknuði og þakklæti. Hvíl í friði. Þín dóttir Bergþóra. Þessi einstaka kona, sem var mér allt, er nú farin í Sumarlandið eða hvert þangað sem besta fólkið fær að fara þegar það hefur lokið tilveru sinni hér. Barnasöngurinn um ömmuna sem er á flakki, er lag sem passar einna best við ævi hennar, því æv- intýri og magnaður drifkraftur voru ríkjandi í hennar viðburða- ríka lífi. Ég man ekki eftir ömmu öðruvísi en að vera að gera eitt- hvað, hvort sem það var að ganga á fjöll, vinna í garðinum, steikja kleinur, tína ber og sveppi í Hall- ormsstaðarskógi og ekki má gleyma stóru heimsreisunni sem hún réðst í á áttræðisaldri. Nei, það var aldrei dauð stund hjá Guð- laugu ömmu. Sólríku dagana með ömmu í garðinum hennar í Tjarn- arlundinum, ásamt öllum öðrum stundum sem ég eyddi með henni geymi ég nú eins og dýrmætan fjársjóð. Við vökvuðum blómin, gróðursettum plöntur og amma kenndi mér hvað þær allar hétu. Mér þótti ekkert sjálfsagðara en að gróðursetja smápening í þeirri vissu að upp kæmi peningatré og amma yrði forrík. Hver veit nema núverandi eigendur njóti góðs af. Fyrir mér var amma visku- brunnurinn mikli. Hún kunni allt og vissi allt. Hvað sem það var sem maður þurfti svar við þá gat maður leitað til hennar. En amma var ekki bara klár, hún var ein- staklega ljúf manneskja. Hún sýndi öðrum virðingu og auðmýkt, reyndist manni alltaf vel og var ávallt tilbúin að gera fólki greiða. En á sama tíma var hún sjálfstæð, skapstór og mikil kona sem sagði alltaf sína meiningu. Það var eitt- hvað líknandi við töfrahendurnar á henni ömmu. Allt sem hún snerti fékk líf, heilun og lit. Fótanuddið hennar fræga var dásamlegt og endurnærandi. Forvitni mína og áhuga á list- sköpun má að miklu leyti rekja til augnablika sem við áttum saman því amma var líka listakona og málaði af miklu listfengni með innblæstri úr náttúrunni, sem hún var í svo góðri tengingu við. Þeir voru ófáir göngutúrarnir sem við fórum í saman í Grímsnesinu fyrir sunnan til að finna fyrir þeirri gríðarlegu orku sem náttúran hef- ur upp á að bjóða. Við lágum í mosanum hlið við hlið og fundum straumana líða upp úr jörðinni og í gegnum líkama okkar og amma kenndi mér að leita í náttúruna fyrir innblástur. Náttúran fyllti okkur heilandi orku. Þetta voru einstakar stundir sem hún færði mér og ég bý nú að í gegnum lífið. Elsku amma, það er sárt að horfa á eftir þér, en góðu minning- arnar og þakklætið eru sorginni yfirsterkari. Þú hefur bætt og fært gleði í líf mitt og fjölda ann- arra og sá sem auðgar líf annarra hefur vissulega lifað góðu og þýð- ingarmiklu lífi. Takk fyrir samveruna. Þín nafna og barnabarn, Tinna Guðlaug. Elsku amma Guðlaug. Það kemur fullt af minningum upp í hugann þegar ég hugsa til baka um tímann sem ég var hjá þér. Ég hlakkaði alltaf til að koma til þín austur hvort sem það var sumar eða vetur, á sumrin var maður frekar frjáls og á veturna stalst maður upp á þak og hoppaði ofan í skaflana sem höfðu mynd- ast við stofugluggann. En það er einkum þrennt sem stendur upp úr, það var svo geggjað þegar maður fór upp í Subaru-inn og þú startaðir honum, fannst alltaf eins og þú værir að kveikja á rosaleg- um kagga, ég heyrði þvílíkar drunur í honum og hugsaði því- líkur töffari sem ég á fyrir ömmu, rúntar með mig á geggjuðum kagga! Önnur minningin er þessi, ég man að það var föstudagur og það var venjan að ég mætti velja eitt- hvað öðruvísi að borða fyrir sunn- an. Þverhausinn ég vildi hafa þetta eins og heima, þannig að ég vildi fá hamborgara. Þarna mætt- ust stálin stinn, upphófst störu- keppni, þið getið ímyndað ykkur senu úr kúrekamynd. Allt í einu stóðst þú upp og gramsaðir í ís- skápnum og sagðir: „Ég skal gefa þér hamborgara.“ Ég trúði þessu varla, ég vann! Reyndar var þetta borið fram í venjulegu brauði en það var ostur og vel þykkur borg- ari og allt eins venjulega, þessu skóflaði ég í mig og var sæll og glaður. Þangað til ég spurði hvernig borgari þetta væri. Svarið var einlægt, þetta var lifrarborg- ari. Kvöldið áður hafði ég neitað að borða það sem þú eldaðir. Lif- ur, kartöflur og rófur. Ég sagðist aldrei ætla að borða þetta. En þarna varð mér ljóst að ég átti aldrei séns að vinna þessa störu- keppni. Ég var skák og mát, eftir þetta smakkaði ég alltaf allt. Þriðja og seinasta minningin er lýsismálið mikla. Ég var vanur að fá lýsi í venjulegri skeið, en það var ekki til nein „venjuleg“ skeið hjá þér, eða kannski var þetta svo- leiðis í þínum augum. En fyrir mér var þetta dýpsta skeið sem ég hef nokkru sinni séð. Eftir þetta kom ég alltaf með skeið að heim- an. Ætlaði sko aldeilis ekki að teyga lýsi aftur. En mér var greinilega ekki meint af þessu og eftir á að hyggja þá hafði ég gott af þessu. Ég á eftir að sakna þín, amma mín, en ég veit að þú ert komin á góðan stað þar sem þú getur mundað pensilinn aftur og haldið áfram að vera mesti töffarinn á staðnum! Ég veit líka að þú munt vaka yfir okkur öllum. Þinn Stefán Svan Stefánsson. Guðlaug Ingibjörg Sveinsdóttir ✝ Jón IngimarMagnússon fæddist í Norð- urbotni í Tálkna- firði 17. nóvember 1942. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Akra- nesi, 6. desember 2018. Foreldrar hans voru Guðrún Torfadóttir, f. 11.6. 1924, d. 20.7. 2005, og Jón Magnús Valdimarsson, f. 4.8. 1916, d. 7.3. 1972, þau skildu. Fósturfaðir Ingimars er Björg- vin Sigurbjörnsson, f. 7.7. 1928. Ingimar átti 7 systkini og var hann elstur þeirra. Albróðir Ingimars er Halldór, f. 8.3. 1945. Hálfbræður Ingimars, sammæðra, eru Örn Sveinsson, f. 6.5. 1948, og Sigurbjörn Björgvinsson, f. 1.6. 1951. Hálf- systkini Ingimars, samfeðra, eru Jóna, f. 27.3. 1948, Erlend- ur, f. 6.7. 1949, d. 10.1. 1970, og Aðalheiður f. 14.11. 1950 Bjargmundsson, f. 25.3. 1966. Einar á frá fyrri sambúð tvö börn og tvö barnabörn. Ingimar var sjómaður mest- alla sína tíð og fór í sjómanna- skólann á Ísafirði 1974 og í framhaldi fór hann í Skip- stjóra- og stýrimannaskólann í Reykjavík. Hann var á hinum ýmslu bátum frá Tálknafirði og Patreksfirði þangað til fjöl- skyldan flutti til Akraness árið 1979. Þar var hann á bátum frá útgerð Haraldar Böðvarssonar á Akranesi. Árið 1982 byrjaði hann á sementsskipinu Skeið- faxa sem silgdi milli Akranes og Reykjavíkur og varð síðar skipstjóri á því skipi, þar til því var lagt. Ingimar lét talsvert að sér kveða í félagsstarfi. Hann var í kór Akraneskirkju í meira en tvo áratugi, þar af var hann tvisvar formaður kór- stjórnar. Hann var í sóknar- nefnd Akraneskirkju álíka lengi. Hann var virkur í FEB- AN, félagi eldri borgara á Akranesi, og var formaður FEBAN í 5 ár eða allt þar til hann hafði ekki lengur heilsu til. Útför Ingimars fer fram frá Akraneskirkju í dag, 18. des- ember 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. Ingimar kvænt- ist Ásthildi Theo- dórsdóttur, f. 8.4. 1942, hinn 6. októ- ber 1963. Börn Ingimars og Ást- hildar eru: 1) Ágúst Grétar, f. 10.8. 1963, maki Guðríður Sigur- jónsdóttir, f. 1.7. 1970, eiga þau 3 börn, a) Rúnar Freyr, f. 8.1. 1992, maki Sigrún Ágústa, f. 9.8. 1995, þau eiga einn son, Hlyn Ágúst, f. 19.9. 2017. b) Ingimar Elfar, f. 5.1. 2003, og c) Hilmar Veigar, f. 7.9. 2007. 2) Brynjar Ingimarsson, f. 13.9. 1965, maki Unnur Eygló Bjarnadóttir, f. 28.1. 1978. Brynjar á frá fyrra hjónabandi tvö börn, a) Valdimar Ingi, f. 14.5. 1994 og b) Selma Bríet, f. 25.3. 1999. Unnur á fjórar dæt- ur frá fyrra hjónabandi. 3) Guðrún Ingimarsdóttir, f. 13.3. 1973, maki Einar Pétur Kveðjustund Ó vertu sæll ég kveð þig kæri vinur klökk af þrá ég bið þig gleymdu mér. Vertu sæll við sjáumst aldrei, aldrei á ný því ást mín er horfin með þér. Ég aldrei framar elska mun neinn annan eilíf þrá í huga mínum er. Ó vertu sæll um eilífð elsku vinur og ást mín er horfin með þér. Þegar sól er sest á bak við fjöllin sérhvert kvöld þá hugsa ég til þín. Minningin hún lifir þó að annað hverfi mér allt það eina er huggunin mín. Kveðju mína kvöldsólin þér færi krossinn minn í geislum hennar er. Ó vertu sæll um eilífð elsku vinur og ást mín er horfin með þér. (Höf. ók) kveðja frá eiginkonu, Ásthildur Theódórsdóttir. Nú hefur Ingimar fengið hvíld- ina eftir erfiða baráttu við veik- indi sín. Mig langar að leiðarlok- um að þakka 30 ára vinskap og einstaka tryggð. Við Einar kynntumst Ingimar og Ásthildi þegar við vorum ná- grannar á Einigrundinni. Margs er að minnast eftir öll þessi ár, kaffispjall, ferðalög inn- anlands og utan og ótal samveru- stundir. Þau hjónin reyndust mér og fjölskyldu minni einstakleg vel í veikindum Einars á sínum tíma og fyrir það erum við ævinlega þakklát. Nú eru þeir félagarnir saman á ný og hafa eflaust um margt að spjalla. Nú kveðja þig vinir með klökkva og þrá því komin er skilnaðarstundin. Hve indælt það verður þig aftur að sjá í alsælu og fögnuði himnum á, er sofnum vér síðasta blundinn. (Hugrún.) Ég votta Ásthildi og fjölskyldu mína innilegustu samúð og sendi góðar kveðjur frá Noregi. Auður S. Óskarsdóttir. Kveðja frá FEBAN Við ferðalok vil ég fyrir hönd Félags eldri borgara á Akranesi og nágrenni (FEBAN) senda þakkar- og samúðarkveðjur. Ingimar, eins og hann var kall- aður, var við formennsku í félag- inu um fimm ára skeið. Hann tók við stjórnartaumum skömmu eft- ir efnahagshrun og stýrði félag- inu allt til ársins 2016. Ég und- irritaður átti ekki því láni að fagna að sitja með Ingimar í stjórn en við áttum hins vegar í nánu samstarfi varðandi eitt helsta baráttumál félagsins, þ.e. húsnæðismál, betri aðstöðu. Þar fékk ég að kynnast mannkostum Ingimars og hve vel þeir nýttust félaginu. Hann var vakinn og sof- inn yfir öllu því sem verða mætti því til eflingar. Hreinskilinn var hann og ýtinn en um leið ljúfur í öllu viðmóti. Málafylgjan var honum svo eiginleg að eigi varð undan vikist að bregðast við henni. Það var honum því mikið fagn- aðarefni þegar hann sá nú á síð- ustu árum hilla undir uppbygg- ingu glæsilegrar félags- og tómstundaaðstöðu fyrir aldraða og öryrkja hér á Skaga. Þakkarskuld okkar sem nú kveðjum er því mikil, því starf hans fyrir félag okkar var í reynd einbeitt og árangursrík barátta fyrir öflugra félagsstarfi og nýrri og breyttri framtíð öldrunarþjón- ustu á Akranesi, sem nú sér hilla undir. Ásthildi og afkomendum Ingi- mars eru hér með sendar einlæg- ar samúðarkveðjur. Blessuð sé minningin um góðan dreng og liðsmann. F.h. Félags eldri borgara á Akranesi og nágrenni, Jóhannes Ingibjartsson varaformaður. Jón Ingimar Magnússon Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Minningargreinar Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.