Morgunblaðið - 29.12.2018, Side 1

Morgunblaðið - 29.12.2018, Side 1
L A U G A R D A G U R 2 9. D E S E M B E R 2 0 1 8 Stofnað 1913  305. tölublað  106. árgangur  Opið til klukkan 18 á gamlársdag í Lágmúla og á Smáratorgi. Tilboðið gildir til og með 31. desember. 25% afsláttur 25% afsláttur af öllum ilmum, ilmkössum, snyrti- vörum og sokkabuxum ÁTÖK RÍK- HARÐS III. VIÐ KONURNAR TILEFNI TIL HEILABROTA DANSSÝNINGAR ÁRSINS 47NÝ SÝN Á VERKIÐ 44 Allt fram streymir endalaust, bæði áin sem fellur í jöfnum straumi til sjávar og tímans þungi niður sem enginn fær stöðvað. Árið 2018 er nú að renna sitt skeið í skaut aldanna; bráðum 365 dagar með alls konar ævintýrum, uppákomum, sorgum og sigrum, rétt eins og alltaf er í mannlífinu. Hrím var á trjánum í Elliðaárdalnum og umhverfið allt með svip- móti töfralands þegar ljósmyndari Morgunblaðsins var þar á ferð við sólarupprás í gærmorgun. Aðeins er daginn nú farið að lengja og því fylgja eðlilega vonir og væntingar í hjörtum mannfólksins. Mest er þó eftirvæntingin gagnvart árinu 2019, óskrifuðu ævintýri sem hver og einn getur að nokkru mótað eftir sínu höfði. Áfram streyma áin og tímans þungi niður Morgunblaðið/Árni Sæberg Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Drífa Snædal, forseti ASÍ, segir að ýmsar hækkanir á gjöldum sem taka gildi nú um áramót „tali beint inn í kjarasamningsviðræður“ fram und- an. Ýmis opinber gjöld hækka, hvort tveggja hjá ríki og sveitarfélögum. „Allar hækkanir, breytingar á gjaldskrám og hreyfingar hjá hinu opinbera sem hafa áhrif á kjör fólks tala inn í kjarasamninga. Nú bera all- ir ábyrgð á því að ná settum mark- miðum, þ.e.a.s. að þyngja ekki róður- inn heldur létta hann fyrir tekju- lægstu hópana. Fjármálaráðherra hefur lýst því yfir að það skuli stefnt að því að hækka laun þeirra lægst launuðu. Við verðum öll að róa í sömu átt,“ segir Drífa. Aðspurð segir hún ASÍ hafa viljað sjá frekari aðgerðir af hálfu stjórn- valda, einkum í húsnæðis- og skatta- málum. „Ríkisstjórnin hreykir sér af því að hafa hækkað persónuafslátt umfram verðlag. Þetta eru rúmlega fimm hundruð krónur og þær vega ekki rosalega þungt. Barnabætur eru ekki orðnar það sama og þær voru fyrir tíu til fimmtán árum,“ segir hún. Almennar hækkanir í kortunum „Almennt þarf að vinda ofan af gjaldtöku í velferðarkerfinu, hvort sem það er í heilbrigðis-, mennta-, leikskólamálum eða hverju sem er. Gjaldtaka í velferðarkerfi er í raun nefskattur og kemur niður á þeim sem hafa verstan fjárhag [...],“ segir Drífa. Meðal gjalda sem hækka um ára- mót eru áfengis- og tóbaksgjöld auk eldsneytisgjalda. Samkvæmt útreikn- ingum Félags íslenskra bifreiðaeig- enda mun bensínverð hækka um 3,3 krónur á lítra og dísilolía um 3,1 krónu á lítra um áramót. Hjá Reykjavíkurborg hækka m.a. gjöld fyrir lánsskírteini á Borgarbók- arsafni Reykjavíkur og gjald fyrir staka sundferð fullorðinna. Leik- skólagjöld hækka um 2,9% sem og fæðisgjöld og gjald vegna þjónustu frístundaheimila. Hækkanir hafi áhrif í viðræðum  Gjaldskrárbreytingar handan við hornið hjá hinu opinbera MÁfengi, tóbak og eldsneyti » 16 Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, for- maður skipulags- og samgönguráðs Reykjavíkur, segir næsta þétt- ingarsvæði í borginni munu liggja meðfram borgarlínu frá Lækjar- torgi og yfir fyrirhugaða brú yfir á Kársnesið. „Þar má segja að sé næsta upp- byggingarsvæði. Það gæti orðið sambærileg uppbygging og á Vals- reitnum,“ segir Sigurborg Ósk og nefnir Flugvallarveg sem dæmi um mögulegt uppbyggingarsvæði nærri borgarlínu. Til upprifjunar eru allt að 930 íbúðir áformaðar við Hlíðarenda. Guðni Pálsson arkitekt hefur teiknað 100 herbergja hótel ofan við Flugvallarveg. Verkefnið hefur verið kynnt borginni. Fjöldi verkefna er í pípunum við Vatnsmýrina. Meðal þeirra er ný samgöngumiðstöð en með vorinu verður efnt til skipulagssamkeppni. Óli Örn Eiríksson, deildarstjóri at- vinnuþróunar hjá borginni, segir niðurstöðu í keppninni að vænta næsta haust. baldura@mbl.is »14 Byggt hjá Öskjuhlíð Teikning/GP arkitektar Hótel í Öskjuhlíð Arkitektar hafa teiknað 100 herbergja hótel í hlíðina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.