Morgunblaðið - 29.12.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2018
Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
OPIÐALLA HELGINAGEGGJUÐ TILBOÐOPIÐ FRÁ
12-18
Morgunblaðið kemur næst út í
hefðbundinni mynd miðviku-
daginn 2. janúar. Á gamlársdag
kemur út sérblað Morgun-
blaðsins, Tímamót, í samstarfi
við The New York Times.
Að venju verður öflug frétta-
þjónusta á mbl.is yfir áramótin
og hægt er að senda ábend-
ingar um fréttir á netfangið
netfrett@mbl.is.
Þjónustuver áskriftardeildar
verður opið á gamlársdag kl. 8-
12. Lokað er á nýársdag. Þjón-
ustuverið verður aftur opnað
miðvikudaginn 2. janúar kl. 7.
Netfang er askrift@mbl.is.
Blaðberaþjónustan verður
opin á gamlársdag kl. 6-12.
Lokað verður á nýársdag.
Blaðberaþjónustan verður aft-
ur opnuð miðvikudaginn 2. jan-
úar kl. 5. Netfang blaðbera-
þjónustunnar er
bladberi@mbl.is.
Hægt er að bóka dánar-
tilkynningar á mbl.is.
Auglýsingadeildin verður
lokuð yfir áramótin og verður
hún aftur opnuð miðvikudaginn
2. janúar kl. 8. Netfang auglýs-
ingadeildar er augl@mbl.is.
Fréttaþjón-
usta mbl.is
um áramótin
Tímamót
Heimurinn 2019
ásamt
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Rannsaka tildrög slyssins
Ekki reyndist unnt að ræða við ökumanninn eða farþegann sem lifðu af í gær
Barnabílstóll var laus og ungbarnið ekki í honum þegar lögreglan kom að
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Lögreglan á Suðurlandi hefur enn ekki náð tali af
bræðrunum tveimur sem slösuðust alvarlega í bíl-
slysinu við Núpsvötn í fyrradag, vegna ástands
þeirra. Í tilkynningu lögreglunnar, sem send var á
fjölmiðla í gær, segir að aflað hafi verið upplýsinga
hjá þeim vitnum sem hafa gefið sig fram og að fyr-
ir liggi að taka skýrslu af ökumanni og farþega
þegar ástand þeirra leyfi slíkt.
Unnið var áfram að rannsókn umferðarslyssins
í gær og farið á vettvang með fulltrúa rannsókn-
arnefnda samgönguslysa. Þá hófst lögreglan
handa við rannsókn á bílnum sem fólkið var á, og
segir í tilkynningu lögreglunnar að sú rannsókn
miðist við að leiða í ljós hvort eitthvað sem finnist
við skoðun á bifreiðinni hafi átt þátt í slysinu eða
valdið því. Þá var hluti brúarhandriðsins sendu til
Selfoss til frekari rannsókna.
Þá segir í tilkynningunni að sérstaklega verði
kannað hvort og hvaða öryggisbúnaður og/eða ör-
yggisbelti hafi verið í notkun í bílnum, en fram
kom í gær að barnabílstóll sem var í bílnum hafi
verið laus og ungabarnið sem lést ekki í honum
þegar lögreglan kom að slysstað.
Þá var blóðsýni úr ökumanni sent í rannsókn í
gær og leiddi hún í ljós að hann var ekki ölvaður
við aksturinn. Segir í tilkynningu lögreglunnar að
slíkt sé alltaf gert þegar um alvarleg umferðarslys
sé að ræða. Þá mun réttarkrufning á líkum hinna
látnu fara fram 2. janúar.
Nöfn hinna látnu birt
Breskir fjölmiðlar nafngreindu í gær konurnar
tvær sem létust í umferðarslysinu, og birtu mynd-
ir af Facebook-síðum þeirra. Þær hétu Rajshree
Laturia og Khushboo Laturia, og voru svilkonur.
Eiginmenn þeirra, Sheeraj og Supreme Laturia,
eru bræður, en Sheeraj og Rajshree munu bæði
hafa unnið í fjármálahverfinu í Lundúnaborg. Þá
mun Supreme einnig starfa í fjármálageiranum
þar. Þau voru öll af indverskum uppruna en með
breskt ríkisfang.
Þá var einnig greint frá því í breskum fjölmiðl-
um að verið væri að vinna í því að útvega bróður
þeirra, Sarvesh Laturia, vegabréfsáritun til Ís-
lands, og hafði indverska dagblaðið Times of India
eftir Armstrong Changsan, sendiherra Indlands á
Íslandi, að íslenskir embættismenn væru að að-
stoða við þá vinnu. Fjölskylda fólksins sendi frá
sér yfirlýsingu í gærkvöldi, sem birt var á vef
breska ríkisútvarpsins BBC, þar sem sagði að
slysið væri hræðilegt áfall fyrir alla vini og vanda-
menn fólksins, og voru fjölmiðlar beðnir um að
gefa þeim svigrúm til þess að syrgja í friði.
Skjáskot/Daily Telegraph
Banaslys Breskir fjölmiðlar nafngreindu fólkið
og birtu myndir af Facebook-síðum þess í gær.
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Manni hefði fundist það eðlilegra ef
Dagur B. [Eggertsson borgarstjóri]
væri ekki í þessum hópi enda beinist
þetta náttúrulega að einhverju leyti
að honum sjálfum,“ segir Grétar Þór
Eyþórsson, prófessor í stjórnmála-
fræði við Háskólann á Akureyri.
Vísar hann í máli sínu til þriggja
manna hóps sem ætlað er að rýna í
niðurstöður skýrslu innri endur-
skoðunar Reykjavíkurborgar um
kostnað vegna endurgerðar bragga
við Nauthólsveg í Reykjavík. Málið
hefur vakið mikla athygli undanfarið
og hafa meðal annars þrír oddvitar
minnihlutans í
Reykjavík kallað
eftir afsögn
borgarstjóra þar
sem skýrslan er
sögð varpa ljósi á
gríðarlega sóun á
fjármunum
borgarbúa. Ný-
verið sagði einn
þessara oddvita, í
viðtali við
Morgunblaðið, greinilegt að Dagur
B. hefði brugðist sem borgarstjóri.
Tveir fulltrúar meirihlutans og
einn fulltrúi minnihlutans mynda
rýnihópinn. Grétar Þór segir enga
þörf á því að Dagur B. taki þátt í
vinnunni. Í Morgunblaðinu í gær
sagði Líf Magneudóttir, borgar-
fulltrúi Vinstri grænna, það hins
vegar „eðlilegt því hann er æðsti
yfirmaður stjórnsýslunnar“.
„Ég sé ekki neina knýjandi þörf á
því að hann [Dagur B.] sé í þessari
rýni, enda veit ég ekki hverju það á
að breyta,“ segir Grétar Þór og held-
ur áfram: „Þó að hann sé æðsti yfir-
maður borgarinnar þá þarf hann
ekki að vera með nefið ofan í öllu.
Hann getur skipað einhvern annan
úr sínum flokki sem fulltrúa sinn í
hópnum.“
Þá segir Grétar Þór erfitt fyrir
hópinn að sinna starfi sínu þegar
„aðalpersóna skýrslunnar er þarna“.
Eðlilegra fyrir borgarstjóra
að standa utan rýnihópsins
Erfitt að rýna í skýrsluna með aðalpersónuna innanborðs
Grétar Þór
Eyþórsson
Samkvæmt vef Veðurstofu Íslands
er búist við stífri norðlægri átt um
norðanvert landið á gamlársdag
með snjókomu og hitinn nálægt
frostmarki. Sunnanlands verður
slydda á köflum og gert ráð fyrir að
hitinn verði á bilinu 0-5 stig. Þar
verður hins vegar stytt upp fyrir
miðnætti.
Veðrið á gamlársdag
„Ég hef nú oft skotið upp flugeldum en mér
finnst þetta mjög góður valkostur að geta stutt
við starf björgunarsveitanna og um leið stutt við
skógrækt,“ sagði Katrín Jakobsdóttir forsætis-
ráðherra í gær, þegar hún varð fyrst til þess að
kaupa „Rótarskot“ í flugeldasölu björgunar-
sveitanna í gærmorgun, en það er hugsað sem
valmöguleiki fyrir þá sem vilja styðja björg-
unarsveitirnar án þess að kaupa flugelda.
Katrín skaut rótum hjá björgunarsveitunum
Morgunblaðið/Árni Sæberg