Morgunblaðið - 29.12.2018, Page 11
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Vel þekkt eru dæmi um að gæludýr,
þá sér í lagi hundar, fyllist ofsa-
hræðslu vegna sprengihljóða frá
skoteldum um áramótin og nokkuð
algengt er að dýrum séu gefin kvíða-
stillandi lyf þess vegna. Þetta segir
Katla Guðrún Harðardóttir, dýra-
læknir hjá Dýralæknastofu Reykja-
víkur, í samtali við Morgunblaðið og
segir: „Við reynum að sjálfsögðu
frekar að hvetja fólk til að nota aðrar
aðferðir. Það er svo mikilvægt að
venja dýrin við þetta.“
Katla segir að nærvera eigenda við
dýr sín skipti mestu máli til að
minnka kvíða dýranna en bætir við:
„En sumir hundar eru bara svo
hræddir við hljóðin og bjarmann að
þeir hreinlega sturlast af hræðslu. Þá
dugar [nærvera eigenda] ekki til.“
Þurfa að finna fyrir öryggi
„Við brýnum fyrir fólki að skilja
dýrin alls ekki eftir ein heima. Það er
mjög mikilvægt fyrir hundana að þeir
séu hjá okkur og finni fyrir öryggi.
Fyrir suma hunda er það nóg. Fyrir
aðra hunda eru hljóðin svo yfirþyrm-
andi, sérstaklega fyrir taugaveiklaða
hunda. Svo hræddum hundum gefum
við kvíðastillandi lyf til að hjálpa
þeim í gegnum þessar erfiðustu
stundir.“
Spurð hvaða áhrif eða aukaverk-
anir lyf sem þessi hafa á dýrin segir
Katla það vera mismunandi eftir
hverju dýri fyrir sig, enda sé það eins
með menn og dýr að þau þola lyf mis-
vel. „Sumir hundar þola ekki lyfið og
á aðra hunda hefur þetta lítil áhrif.
Svo verða enn aðrir hundar hálf-
slompaðir.“
Útikettir haldi sig innandyra
Katla segir að almennt séu köttum
ekki gefin kvíðastillandi lyf um ára-
mótin en hvetur eigendur „útikatta“
til að hafa þá inni meðan mesta
sprengjuæðið ríður yfir.
Spurð hvort hún búist við að þurfa
að taka til meðferðar fjölda hunda
sökum ofsahræðslu eftir áramót seg-
ir hún svo ekki vera. Það heyri til
undantekninga að hundar sturlist af
hræðslu en hins vegar geti margir
hundar verið hvumpnir fram í febr-
úar.
Kvíðnir málleysingjar
stilltir með lyfjagjöf
Algengt að hundum séu gefin kvíðastillandi lyf um áramótin
Geta verið hvumpnir allt fram í febrúar eftir flugeldahávaða
Thinkstock/Getty Images
Skelkaður Katla segir það mikilvægast að gæludýr séu ekki skilin ein eftir heima þegar haldið er í áramótateiti.
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2018
ÁRAMÓTATILBOÐ
AFSLÁTTUR AF
KJÓLUM
25%
companyskringlan
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Söfnum í neyðarmatar-
sjóð fyrir jólin til matarkaupa
hjá Fjölskylduhjálp Íslands
fyrir þá fjölmörgu sem lægstu
framfærsluna hafa.
Þeim sem geta lagt okkur lið
er bent á bankareikning
0546-26-6609,
kt. 660903-2590.
Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti
og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ.
Neyðarsöfnun í matarsjóðinn
fyrir jólin
Guð blessi ykkur öll
Gleðilegt nýtt ár
kæru landsmenn
Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
Útsalan
hefst 02. jan
kl. 13
Þökkum
viðskiptin
á liðnu ári
j
Við erum á facebook
Bæ arlind 6,
Gleðilegt ár Þökkum ánægjulegviðskipti á árinusem er að líða
Opið 11-15 í dag
Seðlabanki Íslands opnaði í gær í til-
efni af fullveldisafmælinu sérstakan
gagnavef á heimasíðu sinni, full-
veldi.sedlabanki.is, þar sem hægt er
að nálgast annál og hagtölur efna-
hagsmála frá 1918 til og með 1. des-
ember 2018. Miðar vefurinn að því
að aðstoða þá sem vilja glöggva sig á
þróun efnahagsmála á þessum tíma.
Í fréttatilkynningu á heimasíðu
bankans kemur fram að annállinn
byggi á áður birtum annálum sem ná
til áranna 1921-2013. Uppfærði
bankinn sinn eigin annál fram til 1.
desember þessa árs, en fékk hag-
sagnfræðinginn Magnús S. Magnús-
son, fyrrverandi skrifstofustjóra á
Hagstofu Íslands, til að taka saman
annál fyrir árin 1918-1920.
Þá var um leið ákveðið að taka
saman og birta helstu hagtölur fyrir
sama tímabil. Vefurinn er flokkaður
í efniskafla og honum fylgir sérstök
leitarvél. sgs@mbl.is
Seðlabankinn opnar fullveldisannál