Morgunblaðið - 29.12.2018, Side 14

Morgunblaðið - 29.12.2018, Side 14
Skipulagssamkeppni um BSÍ-reit Umferðarmiðstöðvarreitur (U-reitur) afmarkast af Hringbraut í suðri, Gömlu-Hringbraut í norðri, Njarðar- götu í vestri og Nauthólsvegi/ Barónsstíg í austri. 60.000 fermetrar er möguleg heildarstærð bygginga á U-reit. Fyrirhuguð samgöngumiðstöð getur orðið 6.000 fermetrar. Að auki er gert ráð fyrir íbúðum, hóteli og atvinnustarfsemi. Mörk U-reits ná yfir lóðina Hringbraut 12, þar sem N1 er í dag. Leigusamningur rennur út 1. janúar 2022. Dæmi um brautarpall með akrein til framúraksturs. Fyrirhuguð borgarlínustöð verður yfirbyggð. Hugmynd að útliti lestarstöðvar. Mynd: fluglestin.is Grunnkort/Loftmyndir ehf. U A B C Mögulegt flughlað fyrir inn- anlandsflug. Með tengingu við samgöngumiðstöð. H R I N G B R AU T N J A R Ð A R G AT A N1 BSÍ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur lagt fram tillögu um samkeppni um deiliskipulag og þróun samgöngu- miðstöðvar og annarrar byggðar á svonefndum BSÍ-reit. Óli Örn Eiríksson, deildarstjóri at- vinnuþróunar hjá Reykjavíkurborg, segir næsta skref að bera tillöguna undir valda umsagnaraðila. Þeir hafi frest til 1. febrúar til að veita umsögn. Tillagan verði svo lögð fram á ný fyrir borgarráð í febrúar með tillögum frá umsagnaraðilum. „Þá í kjölfarið myndi borgarráð vísa tillögunni til umhverfis- og skipulags- ráðs og biðja það að halda utan um skipulagssamkeppnina. Umhverfis- og skipulagsráð myndi þá skipa dóm- nefnd sem myndi leggja lokahönd á skipulagslýsinguna. Það má ætla að samkeppnin fari fram í sumar og að úrslitin liggi fyrir í haust,“ segir Óli Örn um framhaldið. Eitt úrlausnarefnið varði framtíð BSÍ og hvort húsið verði friðað eða rif- ið. Eftir að samkeppni um deiliskipu- lag liggur fyrir sé hægt að efna til samkeppni um samgöngumiðstöð. Myndi þurfa að strípa húsið „Það eru rök með báðum kostum. Minjastofnun Íslands hefur gefið út að hún muni leggjast gegn tillögu um að rífa bygginguna. Við eigum eftir að ræða við fulltrúa stofnunarinnar til að fá fram skýrari afstöðu. Eigi að endur- byggja húsið er það svo illa farið að það þarf að strípa það alveg inn að steypu,“ segir Óli Örn um Um- ferðarmiðstöðina. Með tillögu borgarstjóra fylgir skýrsla frá Mannviti. Þar má m.a. sjá hæðartak- markanir á BSÍ- reitnum, eða svo- nefndum U-reit, og hvernig hámarks- hæð hækkar til austurs í 4-5 hæðir. Húsin mega vera 1-2 hæðir vestast og norðan við flugbrautina. Óli Örn segir aðspurður rætt um að ný samgöngumiðstöð verði um 6 þús- und fermetrar, eða álíka stór og áformað Hús íslenskra fræða, og sam- anlagt byggingarmagn á reitnum um 60 þúsund fermetrar. Þ.m.t. þjónusta, verslun, hótel og jafnvel 200 íbúðir. Stæðin verða neðanjarðar Hluti innviða verði neðanjarðar, til dæmis geti stæði fyrir hópferðabif- reiðar verið að hluta neðanjarðar. Borgarlína muni liggja frá nýrri Hringbraut, suður af fyrirhuguðum meðferðarkjarna nýs Landspítala, og inn á miðjan BSÍ-reitinn. Fyrsti áfangi samgöngumiðstöðvar verði ekki á mörgum hæðum. Nálægðin við flugbraut leyfi það enda ekki. „Það er ekki búið að staðsetja mið- stöðina á reitnum. Byggingin gæti orðið á lengdina. Vestan við hana gæti risið borgarlínustöð,“ segir Óli Örn og rifjar upp hugmyndir nefndar á vegum samgönguráðuneytis um að hafa nýja flugstöð í samgöngumiðstöð- inni. Slíkt myndi kalla á göng undir Hringbraut og biðstofu við flug- brautarendann. Þá geti brautarstöð fyrir fluglestina verið neðanjarðar suður af Hringbraut með tengingu við samgöngumiðstöð, sem yrði þannig tengd við Keflavíkurflugvöll. Til að setja þessi áform í samhengi jafnast 60 þúsund fermetrar hér um bil á við Kringluna. Fram kemur í kynningargögnum að lóðaleigusamningur vegna bensín- stöðvar N1 gegnt BSÍ geti gilt með framlengingu til 1. janúar 2022. Borgin geri ekki ráð fyrir að fram- lengja samninginn umfram það. Borgarlínustöð á reitnum á að veita sömu upplifun og þegar gengið er í lest. Brautarpallar verði undir þaki og aðgengi að almenningsvögnum þrep- laust. Veittar verði rauntímaupplýs- ingar um komur og brottfarir. Byggð á við Kringluna á BSÍ-reit  Umsagnaraðilar fá tillögu borgar- stjóra  Rætt er um 60 þúsund fer- metra, sem jafnast á við Kringluna Morgunblaðið/Árni Sæberg Horft yfir svæðið Bílastæði sérmerkt Landspítala hafa verið gerð norður af BSÍ vegna framkvæmda á svæðinu. Óli Örn Eiríksson 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2018 Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is Starfsfólk Fakó óskar ykkur gleðilegs nýs árs og farsældar á komandi ári Fram kom í Morgunblaðinu í gær að markmiðið með breyttu deiliskipulagi á aðliggjandi lóð við hús Frímúrara- reglunnar í Bríetartúni sé „m.a. að stuðla að þéttingu byggðar til styrkingar miðborginni og veita fyrirtækjum og stofnunum á svæðinu svigrúm til aukinnar uppbygg- ingar og stækkunar“. Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður skipulags- og samgönguráðs, segir aðspurð að Hlemmsvæðið sé dæmi um þéttingarsvæði þar sem mögulegt sé að þétta byggð í miðborginni. Horft sé til þess að stór borgarlínustöð verði á Hlemmi í framtíðinni. „Þá er mikilvægt að hafa góðan þéttleika á Hlemmsvæðinu til að styðja við borgarlínuna,“ segir Sigurborg Ósk. Hún segir aðspurð að svigrúm til þéttingar ráðist af aðstæðum hverju sinni. „Hluti af markmiðinu er að styrkja atvinnulíf í miðborg- inni. Reitir á borð við svæðið í kringum Hlemm henta vel til þess,“ segir Sigurborg Ósk, sem telur bílastæðið norðan við Lögreglustöðina koma til greina í þessu efni. Hún segir að meðfram fyrirhugaðri legu borgarlínu, frá Lækjartorgi og yfir á Kársnesið, með viðkomu í Hlíðarendabyggð og svæði Háskóla Reykjavíkur, séu miklir möguleikar á þétt- ingu byggðar. „Þar má segja að sé næsta uppbyggingar- svæði. Þar gæti orðið sambærileg uppbygging og á Vals- reitnum,“ segir hún og nefnir Flugvallarveg sem dæmi um mögulegt uppbyggingarsvæði nærri borgarlínu. Svo vill til að Guðni Pálsson, arkitekt, hefur gert tillögu að hóteli við Öskjuhlíð, nánar tiltekið fyrir framan Keilu- höllina með útsýni yfir Vatnsmýrina. Gerði hann ráð fyrir 100 herbergja hóteli í nýbyggingu til vesturs. Þá setti hann fram hugmynd um stríðsminjasafn í gömlu olíu- geymslugryfjunum suður af Keiluhöllinni. Birtist hér mynd af hótelinu í fyrsta sinn í fjölmiðlum. Hugmyndir um þéttingu byggðar við Öskjuhlíðina  Horft til Flugvallarvegar  Arkitekt teiknaði þar hótel Teikning/GP arkitektar Hótel við Öskjuhlíð Hér má sjá drög að 100 herbergja hóteli vestan við Keiluhöllina, ofan Flugvallarvegar. Óli Örn Eiríksson segir aðspurður að eftir þessa uppbyggingu verði ekki lengur stór opin bílastæðasvæði á BSÍ-reitnum. Hafa þau verið allt í kringum Umferðarmiðstöðina. Þess í stað verði bílastæði neðanjarðar. Fram kemur í kynningargögnum að 34-52 strætisvagnar muni aka gegnum nýtt Landspítalasvæði á háannatíma á klst. Á háannatíma í júlí fari 5.000 farþegar með flugrútunni á dag, samtals í báðar áttir. Miðað við farþegaspá megi ætla að 2040 verði farþegarnir orðnir 11.600 á dag í júlí. Það samsvarar rúmlega 480 farþegum á klukkustund. Bílastæðin munu víkja ÁSÝND SVÆÐISINS MUN BREYTAST

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.