Morgunblaðið - 29.12.2018, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2018
VÍNBÚÐIN DALVEGI
LOKUÐ 2.-11. JANÚAR
Vínbúðin Dalvegi verður
lokuð vegna framkvæmda frá
miðvikudeginum 2. janúar til
föstudagsins 11. janúar.
Við bendum viðskiptavinum á að næstu Vínbúðir
eru í Smáralind og í Kauptúni Garðabæ.
Vínbúðir með lengri opnunartíma eru í Skeifunni
og Skútuvogi: mán-fös 10-20, lau 11-18.
Við þökkum þolinmæðina og hlökkum til
að taka á móti ykkur í enn betri Vínbúð.
Tónleikar voru haldnir í Selja-
kirkju í fyrrakvöld til styrktar
Hjálpræðishernum í Reykjavík.
Tónleikarnir voru vel sóttir og
myndaðist góð stemning.
Fjöldi tónlistarmanna kom fram,
eða Rúnar Þór Pétursson og hljóm-
sveit hans, Ómar Ragnarsson,
skemmtikraftur og fréttamaður,
Blússveit Þollýjar, Kristinn
Svavarsson saxófónleikari, Doro-
thea Dam og Sylvía Rún.
Jólaball Hjálpræðishersins fer
svo fram í Mjóddinni í dag kl 15.
Til styrktar
Hjálpræðis-
hernum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hjálpræðisherinn Hljómsveit Rúnars Þór lék á tónleikunum í Seljakirkju.
Nokkur erill hef-
ur verið hjá flug-
stöðvardeild lög-
reglunnar á
Suðurnesjum
vegna ölvunar
farþega í Flug-
stöð Leifs Eiríks-
sonar.
Þannig var ný-
verið óskað liðsinnis lögreglu í flug-
stöðinni. Þar var ölvaður flugfarþegi
æstur og með ólæti. Hann hafði
meðal annars verið að áreita aðra
flugfarþega og bera sig fyrir framan
þá. Hafði fjöldi farþega tilkynnt
þessa ósæmilegu hegðun hans, segir
í dagbók lögreglunnar.
„Hann var óviðræðuhæfur og
ósamvinnuþýður vegna ölvunar og
var hann því færður í handjárn og
fluttur á lögreglustöð. Þar var hann
látinn sofa úr sér og síðan birt
sektargerð. Að því búnu ætlaði hann
að freista þess að komast í flug til
fyrirhugaðs áfangastaðar,“ segir
lögreglan enn fremur í dagbókinni.
Margir á leiðinni í frí
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni hefur annríki jafnan verið
mikið kringum jól og áramót þegar
farþegar eru á leiðinni í frí. Ekki sé
þó hægt að segja að ölvuðum flug-
farþegum hafi verið að fjölga í seinni
tíð. Flugfélögin hafi tekið harðar á
svona málum, í samráði við lögreglu-
yfirvöld.
Beraði sig
í Leifsstöð
Mikill erill vegna
ölvunar flugfarþega
Starfsfólk sorp-
hirðunnar í
Reykjavík hefur
haft í nægu að
snúast um hátíð-
arnar sem eru
mikill álagstími.
Unnið verður í
Vesturbæ og í
Breiðholti um
helgina og lokið
var við að hirða
Grafarvog í gær.
Unnið verður við losun á gráum
tunnum undir blandaðan úrgang í
Vesturbæ og Miðbæ í dag og á
morgun. Einnig verða tunnur undir
pappír og plast losaðar í Breiðholti.
Magn úrgangs eykst í kringum
hátíðirnar. Hægt er að kaupa sér-
merkta poka undir aukaúrgang sem
eru seldir fimm saman á rúllu hjá N1
stöðvum í Reykjavík og í Þjónustu-
veri Reykjavíkurborgar í Borgar-
túni 12-14. Einnig er hægt að fara
með úrgang á grenndar- eða endur-
vinnslustöðvar ef úrgangur rúmast
ekki í ílátum við heimili. Opið verður
á endurvinnslustöðvum SORPU á
milli hátíða í dag og á morgun.
Sorphirða
um áramótin
í borginni
Mikið er að gera
í sorphirðu.
Hringvegurinn liggur nú um Vaðla-
heiðargöng eftir að þau voru opnuð
fyrir umferð. Fyrir opnun ganganna
lá hringvegurinn um Víkurskarð, ut-
ar í Eyjafirði. Þetta kemur fram í
frétt á vef Vegagerðarinnar.
Auk þess að losna við farartálm-
ann Víkurskarð, velji vegfarendur
göngin, þá styttist hringvegurinn
um 16 kílómetra og að sama skapi
leiðin milli Akureyrar og Húsavíkur.
Eftir þessa breytingu verður hring-
vegurinn 1.323 kílómetrar. Vegurinn
á milli Akureyrar og Húsavíkur
styttist úr 91 kílómetra í 75.
Áfram verður hægt að fara veginn
um Víkurskarð eftir Grenivíkurvegi
(83) og Víkurskarðsvegi (84). Víkur-
skarð er 325 metra yfir sjávarmáli,
erfiður fjallvegur miðað við hæð og
hefur verið einn helsti farartálmi
hringvegarins. Brekkur eru erfiðar,
með 9% halla þar sem mest er.
„Aðalmarkmið með Vaðlaheiðar-
göngum er að losna við að fara yfir
Víkurskarð, styttingin kemur svo að
auki,“ segir í fréttinni á veg Vega-
gerðarinnar. Vaðlaheiðargöngin
verða formlega opnuð 12. janúar
næstkomandi. sisi@mbl.is
Hringvegur styttist
um 16 kílómetra