Morgunblaðið - 29.12.2018, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 29.12.2018, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2018 www.apotekarinn.is - lægra verð 20mg, 14 og 28 stk. – fáanlegt án lyfseðils í næsta apóteki Omeprazol Actavis, 20 mg magasýruþolin hörð hylki, innihalda virka efnið ómeprazól. Lyfið er ætlað fullorðnum til skammtíma- meðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræð- ings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverk- anir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. OmeprazolActavis – Við brjóstsviða og súru bakflæði H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA / A ct av is 5 1 2 1 2 2 H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA / A ct av is 5 1 2 1 2 2 .apotekarinn.is - lægra verð ÚR BÆJARLÍFINU Þórshöfn Líney Sigurðardóttir Enn einn söluskálinn á Þórshöfn er nú kominn í fullan rekstur eftir nokkurt hlé og alvöru sjoppu- menning aftur að myndast í litla miðbænum. Nýir rekstraraðilar fóru af stað af fullum krafti og opnuðu skálann með pomp og prakt í lok nóvember undir nafn- inu Enn 1 skálinn og er almenn ánægja í plássinu með framtakið.    Það eru hjónin Karen Rut Konráðsdóttir og eiginmaður hennar, Ólafur Birgir Vigfússon, sem hafa tekið við rekstrinum en þau hjón reka jafnframt Gisti- heimilið Lyngholt á Þórshöfn. Sjoppureksturinn á Þórshöfn hefur verið gloppóttur síðan sölu- skáli N1 brann til grunna í desem- ber 2016 og var því engin sjoppa á staðnum í tæp tvö ár. N1 byggði nýjan skála sem er töluvert minni en sá gamli. Það var mat margra heimamanna að verið væri að hugsa of smátt varðandi nýju bygginguna sem hefur nú komið á daginn að er of lítil og þar með lé- legur rekstrargrundvöllur. Nýi skálinn var tilbúinn í vor en ekki opnaður fyrr en í júlí með nýjum rekstraraðila sem starfaði aðeins í nokkra mánuði og var þá skál- anum lokað og enn var sjoppu- laust á Þórshöfn. Aftur var þá auglýst eftir framtakssömu fólki til að reka skálann. „Þegar N1 byrjaði í upphafi að leita eftir rekstraraðilum að nýja skálanum settumst við hjónin yfir málið enda höfðum við mikinn áhuga á rekstrinum. Okkar niður- staða varð hins vegar sú á end- anum að við treystum okkur ekki í að reka skálann í þeirri stærð sem hann var byggður, með enga möguleika á eldhúsi eða matsölu,“ sagði Karen Rut. „En núna nokkrum mánuðum og einum rekstraraðila seinna, ákváðum við að hafa samband við N1 og lýsa yfir áhuga á rekstr- inum miðað við ákveðnar for- sendur sem við kynntum fyrir þeim. Okkur til mikillar ánægju var tekið vel í hugmyndir okkar og menn tilbúnir að koma til móts við okkur þannig að við létum slag standa og tókum við rekstrinum stuttu seinna og opnuðum form- lega 30. nóvember.“    Á Þórshöfn hefur alla tíð verið rík sjoppumenning, skálinn er vel staðsettur í hjarta bæjarins. Þar hefur fólk hist og spjallað og jafn- an verið heimilislegur hádegis- verður á boðstólum sem var vel sóttur. Það var því mikils að sakna eftir að skálinn brann og þessi félagsmiðstöð þorpsbúa ekki lengur til staðar. Karen og Ólafur Birgir ráðast af krafti í það sem þau taka sér fyrir hendur og bæjarbúum til ánægju er sjoppumenningin byrj- uð að blómstra aftur. „Við höfum útbúið okkur lítið eldhús sem verið er að standsetja þessa dagana. Í janúar eigum við von á að rafmagnsmálin verði kláruð og hægt verði að opna eld- húsið að fullu upp úr því. En núna til að byrja með flytjum við mat á milli húsa svo hægt sé að bjóða upp á hádegismatinn,“ sagði Kar- en og þau hjónin eru ánægð með viðbrögð hjá N1 varðandi hug- myndir þeirra:    „Stjórnendur N1 hafa tekið vel í hugmynd okkar um viðbygg- ingu við skálann og við bindum vonir við að hún verði að veruleika fyrr en síðar enda öllum ljóst að það verður ekki hjá því komist eigi reksturinn að geta borið sig og blómstrað.“ Þau hafa nú birgt skálann upp af vörum og hyggjast þjón- usta t.d. sjómenn og verkamenn með vinnufatnað, auk þess að vera með helstu bílavörur og olíur. Sælgætisúrval verður fjölbreytt en rúsínan í pylsuendanum er svo ísvélin frá Kjörís sem þegar er farin að gleðja bæjarbúa á öllum aldri enda hefur yfirleitt ekki ver- ið boðið upp á ís úr vél yfir vetrartímann á Þórshöfn.    Heimilismaturinn er á boð- stólum í hádeginu eins og áður og ekki er komið að tómum kofunum hjá Karen sem rekur jafnframt mötuneyti grunnskólans. Pitsur verða einnig í boði og fótboltaunn- endur gleðjast yfir því að enski boltinn er líka kominn í gang í skálanum. Karen og Ólafur hafa ráðið tvo starfsmenn í fullt starf í sölu- skálanum og eru bjartsýn á fram- haldið og ánægð með viðtökur bæjarbúa sem hafa verið mjög góðar þessa fyrstu daga. „Við telj- um að þessi starfsemi sem við er- um nú þegar með geti farið ljóm- andi vel með nýja rekstrinum og stefnum einnig á að flytja starf- semi kaffihússins í gistiheimilinu Lyngholti yfir sumartímann í sölu- skálann,“ sagði Karen, en litla kaffihúsið í Lyngholti var sett á laggirnar sumarið 2017 þar sem þeim hjónum leist ekkert á að enginn staður væri í boði fyrir ferðamenn til að hoppa inn og fá sér kaffi og með því þegar enginn söluskáli var á staðnum. Þetta litla kaffihús reyndist svo skemmtilegt verkefni að það er komið til að vera.    Enn 1 skálinn stendur nú upp- ljómaður jólaljósum í litla mið- bænum á Þórshöfn og aftur hægt að líta þar inn í kaffi og með því, heimilislegan mat í hádeginu og heimabakaða rúgbrauðið hennar Karenar þykir hreint engin ómynd. Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Karen Rut Konráðsdóttir tekur hlýlega á móti gestum N1. Alvöru sjoppu- menning aftur í litla miðbænum Skákfélagið Hrókur- inn og Kalak, vina- félag Grænlands og Íslands, bjóða vinum, vandamönnum og liðsmönnum til jóla- gleði í Pakkhúsi Hróksins, Geirsgötu 11 við Reykjavíkur- höfn í dag, laugar- dag, frá kl. 14-16. Tónlist og tafl, kakó og kleinur og andríkt spjall, segir í tilkynn- ingu. Hin unga og hæfi- leikaríka Sjana Rut Jóhannsdóttir flytur eigin tónlist og Birkir Blær Ingólfsson, verðlaunahöfundur og Grænlandsfari, þenur saxófóninn. Þá verður slegið upp Air Iceland Connect - Jólaskákmóti Hróksins 2018. Hrókurinn og Kalak hafa í sam- einingu staðið að sjö ferðum til Grænlands á árinu, auk þess að senda ógrynni af fatnaði og öðrum gjöfum til okkar næstu nágranna. Þá kom þrettándi árgangur 11 ára barna frá litlu þorpunum á Austur-Grænlandi á vegum Kalak, til að læra sund og kynnast ís- lensku samfélagi. Eru allir vinir skákgyðjunnar og Grænlands hvattir til að mæta í dag. Hrókurinn Efnt verður til skákmóts í Jólagleðinni í dag. Jólagleði Hróksins  Hrókurinn og Kalak bjóða til jóla- gleði í dag  Skákmót haldið um leið Birkir Blær Ingólfsson Sjana Rut Jóhannsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.