Morgunblaðið - 29.12.2018, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 29.12.2018, Blaðsíða 24
BAKSVIÐ Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Olíuverð hefur sveiflast afar mikið á árinu sem er að líða. Í gærdag stóð verðið á tunnu af Brent-hráolíu í 52,21 bandaríkjadal. Á aðfangadag fór verðið á olíutunnu í 50,47 og hafði þá ekki verið jafn lágt í tæpa 18 mánuði eða síðan í lok júlí árið 2017. Á skömmum tíma hefur olíu- verð lækkað um tæp 42% eða frá því í byrjun októbermánaðar síðast- liðins er verðið fór í 86,29 banda- ríkjadali. Á þeim tíma veðjuðu ýms- ir fjárfestar á að verðið færi yfir 100 bandaríkjadala markið. Brynjólfur Stefánsson, sérfræð- ingur í hrávörum hjá Íslandssjóð- um, segir olíumarkaðinn hafa sveifl- ast með öðrum mörkuðum í Bandaríkjunum undanfarna daga. Hann segir helstu ástæður fyrir þessu lága verði vera áhyggjur fjár- festa af hægari hagvexti, viðskipta- stríði Kína og Bandaríkjanna, auk þess sem viðskiptaþvinganir Banda- ríkjanna á Íran urðu ekki eins þungar og talið var í fyrstu. Þá hafi Bandaríkjamenn verið öflugir í sinni framleiðslu og saman hafi þetta skilað sér í bættri birgðastöðu. Búast við hækkun á nýju ári „Þá voru einnig bundnar tölu- verðar vonir við þennan niðurskurð sem OPEC og Rússar tilkynntu fyr- ir jólin um að draga úr framleiðslu sem nemur 1,2 milljónum tunna á dag. En það gerist ekki fyrr en í byrjun janúar,“ segir Brynjólfur en tekur það fram að helstu greinend- ur geri ráð fyrir hækkun á nýju ári. „Verðið er vissulega dálítið lágt. En það er ástæða fyrir því og mikil óvissa á mörkuðum.“ Snorri Jakobsson, sérfræðingur í fjármála- og hagfræðiráðgjöf Capa- cent, segir íslenska neytendur finna lítið fyrir sveiflum á heimsmarkaðs- verði olíu og að innkaup á eldsneyti skipi sífellt minni hluta í vísitölu neysluverðs. „Neytendur finna voða lítið fyrir miklum breytingum á heimsmark- aðsverði á olíu. Það er bara þannig að skattar eru langstærsti hluti eldsneytisverðsins. Við finnum lítið fyrir þessum breytingum því þetta er svo lítill hluti olíuverðsins. Við sjáum kannski 2-3% lækkun ef það er 10-20% á lækkun á heimsmark- aði,“ segir Snorri í samtali við Morgunblaðið. Sífellt minni áhrif á vísitölu Í umsögnum greiningaraðila hér á landi á þeim tíma þegar olíuverðið var á hraðri niðurleið í lok nóv- ember kom fram að verðbólga yrði umtalsvert lægri vegna lækkunar- innar. Að sama skapi hefði hið háa verð á eldsneyti í byrjun október átt að hafa þó nokkur verðbólguáhrif á móti. „Ég var bara eiginlega ekki sam- mála þeim þegar þessi mikla hækk- un átti sér stað. Hlutfall eldsneytis í vísitölu neysluverðs er alltaf að verða minna og minna og það eru einu beinu áhrifin sem við höfum af eldsneyti,“ segir Snorri. Hann segir þó lækkunina á heimsmarkaðsverði vera jákvæða fyrir Íslendinga. „Þetta minnkar flutningskostnað á öllu hráefni til Íslands. Við flytj- um meira og minna allt inn. Lágt olíuverð er alltaf gott fyrir Ísland,“ segir Snorri sem leggur einnig áherslu á mikilvægi hins lága olíu- verðs fyrir flugfélögin. „Flugfargjöld eru miklu næmari fyrir þessu. Þetta hefur gríðarleg áhrif á flugfélögin. Rekstraraðstæð- ur þeirra eru gjörbreyttar,“ segir Snorri. Finna lítið fyrir breytingum á heimsmarkaðsverði olíu Olíuverð » Í gærdag var verð á tunnu af Brent-hráolíu 52,21 banda- ríkjadalur. » Í byrjun október var verðið á tunnu 86,29 bandaríkjadalir. » Ástæður lágs verðs eru m.a. áhyggjur fjárfesta af hægari hagvexti og viðskiptastríði Bandaríkjanna og Kína. » Þetta lága verð endurspegl- ast ekki í eldsneytisverði hér á landi að mati sérfræðings.  Verð á Brent-hráolíu hefur lækkað um tæp 42% frá því í byrjun október 80 70 60 50 80 70 jan. feb. mars. apríl maí júní júlí ágúst sept. okt. nóv. des. Brent-olíuverð síðustu 12 mánuði ($/tunnu) 52,34 Heimild: www.bloomberg.com 24 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2018 Omega 3 Liðamín Hyal-Joint® vinnur gegn stífum liðum og viðheldur heilbrigði þeirra. Með þér í liði Alfreð Finnbogason Landsliðsmaðu attspyrnu „Tækifærið er núna.“ r í kn Registered trademark licensed by Bioiberica 29. desember 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 116.37 116.93 116.65 Sterlingspund 146.95 147.67 147.31 Kanadadalur 85.45 85.95 85.7 Dönsk króna 17.76 17.864 17.812 Norsk króna 13.294 13.372 13.333 Sænsk króna 12.881 12.957 12.919 Svissn. franki 117.45 118.11 117.78 Japanskt jen 1.0494 1.0556 1.0525 SDR 161.37 162.33 161.85 Evra 132.63 133.37 133.0 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 161.0847 Hrávöruverð Gull 1271.1 ($/únsa) Ál 1898.0 ($/tonn) LME Hráolía 54.65 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Heildarviðskipti með bréf félaga sem skráð eru á aðalmarkað í Kaup- höll Íslands reynd- ust 992 milljónir króna. Var það síð- asti viðskiptadagur ársins 2018 en Kauphöllin mun ekki opna aftur fyrr en þriðjudaginn 2. janúar næstkomandi. Mest voru við- skipti með bréf Regins eða 313 millj- ónir króna. Hækkuðu bréf félagsins um 1,44% í viðskiptunum. Þá var velta með bréf Marel 257 milljónir króna og hækk- uðu bréf félagsins um 0,54%. Bréf Skeljungs lækkuðu um 0,55% í 148 milljóna viðskiptum. Mest lækkuðu bréf Símans í gær eða um 1,71% í 7 milljóna viðskiptum. Næstmest var lækkun bréfa Arion banka eða 0,7%. Úrvalsvísitalan lækkaði um 1,3% á árinu sem senn er liðið. Heildarvísitalan lækkaði hins vegar um 5,6%. Síðasti viðskiptadagur ársins reyndist rólegur STUTT Flutningafyrirtækið Samskip hefur verið valið til að leiða verkefni þar sem þróa á næstu kynslóð sjálfbærra skipaflutninga á styttri sjóleiðum. Þetta kemur fram í fréttatilkynn- ingu frá félaginu. Verkefnið nefnist „Seashuttle“ og er styrkt af norskum stjórnvöldum um nálægt 800 milljónir íslenskra króna, samkvæmt tilkynningunni. Þar segir einnig að verkefnið gangi út á að hanna sjálfvirk gáma- skip sem gefa ekki frá sér mengaðan útblástur, en eru um leið hagkvæm. Hluti af mun stærra verkefni Þá segir að „Seashuttle“ sé eitt sex verkefna í PILOT-E þróunar- verkefninu, sem í heildina nýtur 100 milljóna evra stuðnings, um 11,6 milljarða króna. Að því komi meðal annars Rann- sóknaráð Noregs, Innovation Norway og Enova. „Verkefnið snýst um að flýta hönnun og nýtingu tækni sem henti umhverfisvænum iðnaði framtíðar. Að fjármögnun Sea- shuttle standa fjögur norsk ráðu- neyti, ráðuneyti matvæla og fisk- veiða; loftlags og umhverfis; jarðolíu og orku; og samgangna og fjar- skipta,“ segir í tilkynningunni. Are Grathen, framkvæmdastjóri Samskipa í Noregi, segir í tilkynn- ingunni að félagið sé himinlifandi yf- ir því að taka forystu í þessum mál- um. „Það sem greinir þetta verkefni frá öðrum og verður lykillinn að vel- gengni þess er samsetning eldneytis og tækni sem mun gera það sam- keppnisfært í kostnaði við hlið nú- verandi lausna,“ segir Grathen m.a. tobj@mbl.is Morgunblaðið/Eggert Þróun Verkefnið gengur út á sjálf- virk umhverfisvæn gámaskip. Samskip leiðir sjálfbæra þróun  Hluti af 11,6 milljarða króna al- þjóðlegu verkefni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.