Morgunblaðið - 29.12.2018, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2018
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Staða Ís-lands erað mörgu
leyti öfundsverð
um þessar
mundir. Vissu-
lega hafa blikur verið á
lofti. Ýmsir hafa haft
áhyggjur af að gósentíð í
ferðamennsku væri á enda
og ekki er enn útséð um
hvernig ráðið verður fram
úr kröggum flugfélagsins
Wow.
Þá er fyrir höndum
samningalota um kaup og
kjör sem búast má við að
verði strembin. Eins og
fram kom í Morgun-
blaðinu í gær losna 82
samningar nú í lok þessa
árs og í lok mars renna út
152 samningar, einkum
hjá hinu opinbera.
Í fréttinni var einnig
greint frá því að þegar
hæst léti væru oft tugir og
jafnvel yfir hundrað samn-
ingamenn á fundum í
fundarsölum ríkissátta-
semjara. Í raun er með
ólíkindum hvað mikil orka
og tími fer í kjarasamn-
inga á Íslandi og má velta
fyrir sér hvernig öll sú
vinna er vegin og metin
þegar framleiðni í landinu
er reiknuð út.
Þegar horft er yfir svið-
ið á Íslandi er hins vegar
ekki hægt að komast að
annarri niðurstöðu en að
staðan sé góð. Jafnvel er
ástæða til að velta fyrir
sér að hvaða niðurstöðu
löndin sem oft er talað um
að við berum okkur saman
við kæmust ef þau bæru
sig saman við okkur.
Staðreyndin er sú að
þrátt fyrir að finna megi
brotalamir og gagnrýna
margt hefur á Íslandi tek-
ist að byggja upp velferð-
arsamfélag sem að mörgu
leyti stenst samanburð við
það sem best gerist í
heiminum. Það er ekki lít-
ið afrek í fámennu landi
og dreifbýlu. Ekki er víst
að íbúum Coventry á Eng-
landi sem eru rúmlega
þrjú hundruð þúsund
myndi lítast á blikuna yrði
þeim sagt að nú ættu þeir
að verða sjálfstæðir, reka
samgöngur, sjúkrahús og
skóla, opna sendiráð víða
um lönd, reka hálfan tug
háskóla, þrjár sinfóníu-
hljómsveitir og nokkur
leikhús og koma lands-
liðum í fótbolta, handbolta
og körfubolta í
úrslitakeppni
Evrópu- og
heimsmeistara-
móta.
Atvinnuleysi
er með minnsta móti í
landinu og mun minna en
gerist víðast hvar annars
staðar í Evrópu. Í ofaná-
lag er atvinnuþátttaka
mun meiri hér á landi en
gerist annars staðar. Það
þýðir að hlutfallslega
fleiri íbúar landsins eru
virkir í atvinnulífinu en
gengur og gerist.
Tekist hefur að halda
verðbólgu niðri um langt
skeið. Það er sérstaklega
merkilegt vegna þess að
launahækkanir hafa verið
talsverðar á undanförnum
misserum. Af ýmsum ytri
ástæðum urðu þær ekki til
þess að hleypa af stað
verðbólgu eins og ástæða
var til að óttast. Því ber
að fagna því að þess í stað
urðu þær til þess að skila
kaupmáttaraukningu, sem
teljast verður einstæð.
Hún kemur ekki síst til
góða þeim, sem minnst
hafa á milli handanna.
Lægstu laun á Íslandi eru
sennilega með því hæsta
sem gerist í heiminum og
jöfnuður hér mun meiri en
víðast hvar í kringum
okkur.
Rétt er samt að hafa í
huga að þótt tekist hafi að
mestu að innbyrða launa-
hækkanirnar án þess að
verðlag færi úr böndum
hafa þær reynst mörgum
fyrirtækjum erfiðar og
sum eru enn að vinna úr
þeim í rekstrinum.
Í komandi samningum
er mikilvægt að festa í
sessi kaupmáttaraukn-
inguna og kjarabæturnar,
sem hafa unnist. Þótt
staðan í efnahagslífinu sé
góð er hún líka viðkvæm.
Í raun er hægt að reikna
út svigrúmið til samninga
hvað atvinnulífið má við
miklum hækkunum án
þess að það fari úr bönd-
um. Sú staða breytist ekki
þótt gerðar séu óraunhæf-
ar ofurkröfur og enginn
vill samninga sem leiða til
þess að fólk beri minna úr
býtum en áður. Ef samið
verður af skynsemi er
þess hins vegar kostur að
framlengja yfirstandandi
hagvaxtarskeið öllum til
hagsbóta.
Ef samið verður af
skynsemi má festa
kjarabætur í sessi}
Einstök staða
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
2.1. | Sigríður Á. Andersen
Landsréttur tekur til starfa
Við þessi tímamót í íslenskri
réttarsögu óska ég Lands-
rétti allra heilla. Það verða
ekki allir alltaf sáttir við
niðurstöðu Landsréttar, eðli
dómsmála býður ekki upp á slíkt, en ef
dómurinn dæmir einungis eftir lögum get-
ur enginn kvartað yfir dómstólnum
3.1. | María Isabel Vicandi
Opið bréf til ritstjóra
Morgunblaðsins
Spánn er lýðræðisríki þar
sem enginn er saksóttur
vegna stjórnmálaskoðana
sinna, sem allir mega tjá á
hvaða vettvangi sem er.
5.1. | Rut Rebekka Sigurjónsdóttir
Loftmengun vegna flugelda
Hvar erum við Íslendingar
staddir í umhverfismálum?
Að við skulum leyfa öllum að
skjóta upp rakettum, að heil-
brigðisyfirvöld skuli ekki
stöðva þetta.
6.1. | Guðrún Hafsteinsdóttir
Ísland í fremstu röð
Við verðum að sjá til þess að
á Íslandi séu ávallt hin ákjós-
anlegustu skilyrði fyrir fyrir-
tæki til vaxtar.
8.1. | Atli Harðarson
Árangursmælikvarðar og
stél páfuglsins
Ef vísbendingar um árangur
skipta miklu fyrir afkomu
stofnana verður viðleitnin til
að láta þær líta vel út íþyngj-
andi líkt og stél páfuglsins.
9.1. | Kristín Anna Þórarinsdóttir
Afreksstefna íþróttafélaga og
samfélagslegt hlutverk
Vinnur áhersla íþróttafélaga
á árangur og afrek iðkenda
að einhverju leyti á móti því
lögbundna og samfélagslega
hlutverki sem félögin gegna?
10.1. | Óli Björn Kárason
Ætlar Sjálfstæðisflokkurinn
að nýta tækifærin?
Ætli sjálfstæðismenn að ná
árangri í kosningunum verð-
ur stefnan að vera skýr. Ein-
kunnarorðin eiga að vera val-
frelsi, lægri álögur og betri
þjónusta.
12.1. | Jóna Björg Sætran
Námsgleði og vinátta í stað
samskipta- og hegðunarvanda
Oft þróast samskipti innan
bekkja í ákveðna hópa og oft-
ar en ekki verða einhverjir
oftar útundan en aðrir. Kenn-
arar heyra ótal persónu-
leikalýsingar og oft miður uppörvandi þeg-
ar nemendur eiga að vinna saman.
13.1. | Heiðrún Lind Marteinsdóttir
Litlar og stórar sneiðar
af veiðigjaldi
Ef tryggja á þjóðinni réttlátan
hlut af arðsemi auðlindar-
innar verður því markmiði
aldrei náð ef umbunað er
sérstaklega fyrir lakari rekst-
ur í formi sérmeðferðar þegar kemur að
greiðslu veiðigjalds.
15.1. | Ásgerður Halldórsdóttir
Seltirningar ánægðir
með bæjarfélagið
Þessi jákvæða niðurstaða
undirstrikar jákvætt viðhorf
bæjarbúa til samfélagsþjón-
ustunnar og er starfsfólki og
stjórnendum bæjarins hvatn-
ing til að halda áfram á sömu braut.
16.1. | Albert Þór Jónsson
Hagræðing í ríkisrekstri
er verðmætasköpun
Í stafrænni veröld og með
aukinni sjálfvirkni ætti að
vera mögulegt að hagræða
enn frekar í ríkisrekstri, bæta
úrelt skipulag á mörgum sviðum og í
rekstri stofnana ríkissjóðs.
17.1. | Áslaug María Friðriksdóttir
Borgarstjórn felur
óþægileg gögn
Meirihlutinn ákvað að skella
við skollaeyrum, gera lítið úr
viðhorfum borgarbúa og svo
sem ekki í fyrsta sinn.
18.1. | Hjörleifur Guttormsson
Sveitarstjórnarstigið í ógöngum
hvað er til ráða?
Ég hef enn sannfæringu fyrir
að endurskoða ætti stjórn-
skipan landsins, koma á hér-
uðum sem þriðja stjórnsýslu-
stiginu og setja í lög ákvæði
um réttindi og skyldur Reykjavíkur sem
höfuðborgar.
20.1. | Kjartan Magnússon
Eign fyrir alla
Ófremdarástand ríkir í hús-
næðismálum í Reykjavík.
Undir stjórn Samfylkingar-
innar og annarra vinstri
flokka hefur sú stefna verið
mótuð að framboð lóða eigi að vera tak-
markað og íbúðaverð hátt.
24.1. | Birgir Þórarinsson
Heimsfriði ógnað á nýju ári
Fréttaskýrendum vestanhafs
ber saman um það að Banda-
ríkin séu nú nær því en
nokkru sinni að gera árás á
hernaðarlega mikilvæg skot-
mörk í Norður-Kóreu.
25.1. | Ásta Guðrún Guðbrandsdóttir
Hvað er það mikilvægasta
í lífinu?
Með því að læra og kafa vel í
hvern hæfnisþátt markþjálf-
unar getur hvaða einstak-
lingur sem er orðið færari
einstaklingur.
26.1. | Þór Whitehead
Er ekki nóg komið?
Eyþór Arnalds til forystu
Það sem einkum vekur traust
mitt á Eyþóri er að hann er
maður, sem er ekki aðeins
fær um að tala við fólk, held-
ur hefur þegar látið verkin
tala í öðru bæjarfélagi.
29.1. | Vala Pálsdóttir
Jafnrétti: Stundum en
ekki alltaf jákvætt?
Jafnara kynjahlutfall meðal
dómara er til þess fallið að
efla traust til dómstóla, til
dæmis þegar kemur að með-
ferð kynferðisbrotamála fyrir
dómi.
30.1. | Tryggvi Gíslason
Ljóð dýrmætustu perlur málsins
Er ástæða til að gefa út sýn-
isbók íslenskra ljóða þegar
íslenskt fullveldi byggist á lif-
andi tungumáli, en dýrmæt-
ustu perlur íslenskrar tungu
eru ljóð.
1.2. | Ævar Halldór Kolbeinsson
Margir fengu uppreisn
æru í fyrra
Góðar umbætur hafa átt sér
stað í þessum málaflokkum, í
kjölfar leiðréttingar á um-
ræddum málum. Umbæt-
urnar ættu að hafa aukið
traust þjóðarinnar í þessum efnum.
3.2. | Svana Helen Björnsdóttir
Ný persónuverndarlöggjöf
verndar neytendur betur en áður
Markmið reglugerðarinnar er
að vernda neytendur betur
en áður gegn misnotkun per-
sónuupplýsinga og draga úr
söfnun þeirra og útbreiðslu.
5.2. | Páll Gíslason
Raunverulegur árangur
í umhverfismálum
Í aðalhlutverki í þessari sögu eru mennta-
stofnanir sem mennta tæknimenn og sér-
fræðinga, sem skilgreina
auðlindirnar og hanna og
stýra uppbyggingunni.
6.2. | Ari Skúlason
Eldra fólk er unglingar nútímans
Fjölgun eldra fólks er ein
stærsta samfélagsbreytingin
sem Íslendingar og flestar
aðrar þjóðir munu standa
frammi fyrir á næstu árum
og áratugum.
7.2. | Margrét Sanders
Íslensk verslun nýtur trausts
Íslensk verslun er í sóknar-
hug. Fram undan eru miklar
áskoranir í síbreytilegu um-
hverfi, umhverfi sem tekur
meiri og hraðari breytingum
en nokkru sinni fyrr.
9.2. | Vilborg G. Hansen
Lýðræðishallinn í borginni
er sláandi og óþolandi
Er virkilega ekki kominn tími
til að hverfin í það minnsta
kjósi sér hverfisráð rétt eins
og við fáum nú að kjósa um
hvort við viljum tré, bekki
eða ruslatunnur sett upp í hverfunum
okkar?
10.2. | Halldór Benjamín Þorbergsson
Að stytta sér leið
en enda úti í skurði
Á almennum vinnumarkaði
væri því eðlilegt að byrja á
aðgerðum til að fækka unn-
um yfirvinnustundum og
með því stytta heildar-
viðverutíma starfsmanna á vinnustað.
12.2. | Ásmundur Friðriksson
Auðlindagjald, skattur eða
greiðsla fyrir aðgang
Með nánari útfærslu gæti hér
verið skýr, einföld og sýnileg
leið til að innheimta náttúru-
og eða veiðigjöld. Samfélagið
á að njóta afrakstrar auð-
linda sem nýttar eru til tekjuöflunar í at-
vinnuskyni.
13.2. | Sigríður Dögg Arnardóttir og
Anna Lotta Michaelsdóttir
Stöndum faglega að
alhliða kynfræðslu
Það hlýtur að
teljast mikilvægt
að nemendur fái
alhliða fræðslu
um kynheilbrigði
þar sem lögð er áhersla á samskipti, sam-
þykki og sjálfsmynd.
14.2. | Sigurbjörn Þorkelsson
Ástin fellur ekki úr gildi
Ástin er ekki umbúðir eða út-
lit. Hvorki girnd né losti, held-
ur bál sem kviknar. Henni
þarf að halda við svo glóðin
kulni ekki og slokkni.
15.2. | Guðrún Egilson
Liðir
Nú er ég mjög illa ferðafær,
ekki síst í þeirri hálkutíð sem
gengur hefur yfir. Á þessari
vegferð hafa greinilega verið
gerð mistök sem ég sit nú
uppi með án þess að bót sé sýnileg.
16.2. | Sonja Ýr Þorbergsdóttir
Minni vinna og allir vinna
Með því að stytta vinnuvik-
una má þannig stuðla að
auknu öryggi og betri heilsu
launafólks, fjölskylduvænna
samfélagi og auknu jafnrétti.
17.2. | Kristín Bjarnadóttir
Hvað er PISA?
PISA mælir læsi í víðum
skilningi: getu til að beita
þekkingu og hæfni og til að
greina, skilja og tjá lausnir á
viðfangsefnum í mismunandi
aðstæðum.