Morgunblaðið - 29.12.2018, Page 30

Morgunblaðið - 29.12.2018, Page 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2018 Stjórnarsamstarf Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra fer hér yfir fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. 4.9. | Sigfús Thorarensen NLHS flækjustigið margfaldast Ekki eru nýmæli að fram- kvæmdum seinki á Íslandi né erlendis. En að láta bráð- nauðsynlegar tilbúnar opin- berar byggingar standa ónot- aðar er a.m.k. afleit stjórnsýsla. 5.9. | Óli Björn Kárason Tækifæri og áskoranir Fjölskyldan er grunneining samfélagsins og þess vegna á stefna í skattamálum að taka mið af fjölskyldunni og styrkja hana en ekki veikja. 6.9. | Soffía Smith Krýsuvík áfram sem meðferðarstofnun Í dag get ég verið móðir, systir, dóttir, vel hæf í at- vinnu minni sem ég mennt- aði mig til. Ég borga mína skatta, er nýtur þjóðfélags- þegn en ekki baggi á þjóðfélaginu. 8.9. | Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Ólíkt hafast kratar að Það er mikilvægt að stjórn- mál fari aftur að snúast um staðreyndir og lausnir. Sjálfs- myndarstjórnmál snúast ekki um neitt nema sjálfsmynd þeirra sem þau stunda. 11.9. | Þórarinn V. Þórarinsson Að skjótast undan sköttum Það eru hins vegar fáir í að- stöðu til þess að skjótast til annarra landa til að losna undan þessum álögum eins og Landhelgisgæslan stundar. 12.9. | Áslaug Einarsdóttir Módel sem virkar Krýsuvíkursamtökin eru svar við þeirri neyð sem herjar á samfélag okkar í þessum töl- uðu orðum. 13.9. | Halldór Blöndal Nú dámar mér ekki, heilbrigðisráðherra! Stefna ráðherra liggur ljós fyrir: Það á að mismuna sjúk- lingum, láta einn borga meir en annan fyrir sömu þjón- ustuna! 14.9. | Hrafn Jökulsson Takk fyrir tuttugu ár! Og við lærðum að skákin er hið fullkomna verkfæri til að skapa ánægjustundir, því allir geta teflt: Ungir og gamlir, strákar og stelpur, blindir og sjáandi. Skákin er alþjóðlegt tungumál sem brúar öll bil. 15.9. | Ásta Sigríður Fjeldsted Sama verð þýðir ekki samráð Eðli markaða er ólíkt svo að einsleitni í verði getur verið misjöfn en niðurstaðan er engu að síður sú sama: Eins- leit verðlagning segir lítið sem ekkert um hvort samráð sé til staðar. 17.9. | Anna Sigríður Jökulsdóttir Kulnun álagstengd ofþreyta Það getur tekið langan tíma að ná sér á strik eftir að hafa lent í kulnunarástandi. Örlað getur á athygli-, einbeitingar- og minnisvanda eftir að önnur einkenni kulnunar hafa rénað. 18.9. | Björn Jón Bragason Sveitarfélög eru ekki ferðaþjónustufyrirtæki Landshlutasamtök sveitar- félaga geta ekki kennt hóp- ferðafyrirtækjum á frjálsum markaði um eigin ófarir. 19.9. | Halldóra Mogensen Framtíðina úr skotgröfunum Hvernig getum við tryggt áframhaldandi lífsgæði í framtíðinni án þess að ganga á þolmörk hvert annars og plánetunnar sem hýsir okkur og fæðir? 20.9. | Björg Ásta Þórðardóttir 50 ára afmæli MS-félags Íslands Félagið hefur í um hálfa öld einbeitt sér að því að veita MS-fólki og aðstandendum þess stuðning og standa fyrir öflugri fræðslu um sjúk- dóminn. 21.9. | Gunnar Alexander Ólafsson Gert út á góðmennsku Undanfarin ár hefur fjölgað á þessum biðlista, á meðan ríkið hefur ekki tryggt viðeig- andi fjármögnun á þeirri þjónustu sem SÁÁ veitir. 22.9. | Pétur J. Eiríksson Eitt sinn best, nú verst Flugstöð Leifs Eiríkssonar, sem eitt sinn var besta skipti- stöð í Evrópu, er nú sú versta og það er flugfélögunum dýrt. 25.9. | Reynir Arngrímsson Samningar um jafna aðstöðu til heilbrigðisþjónustu Samningar um sérhæfða heilbrigðisþjónustu lækna eru líka stjórntæki til að stýra og tryggja sanngjarnt greiðsluhlutfall almennings. 26.9. | Hannes Hólmsteinn Gissurarson Beiting hryðjuverkalaganna var Bretum til minnkunar Allar fullyrðingar breskra ráðamanna í samtölum við íslenska starfsbræður þeirra um ólöglega fjármagnsflutn- inga frá Bretlandi til Íslands reyndust haldlausar. 27.9. | Valgarð Briem Estonia mesta sjóslys í sögu Evrópu Estonia lagði af stað frá Tall- inn klukkan rúmlega sjö um kvöldið með 989 manns um borð. Af þeim komust 852 aldrei til hafnar. 28.9. | Sigurjón Hafsteinsson Er hið framsækna og fjölskylduvæna Icelandair komið á villigötur? Ágætu stjórnendur, verið meðvitaðir um að ákvörðun sem þessi er bara til þess fallin að skapa óánægju sem er Icelandair ekki til fram- dráttar. 29.9. | Sigurður Ingi Jóhannsson Þjóðareign Hvalfjarðargöngin eru dæmi um vel heppnaða fram- kvæmd og eru mikil sam- göngubót fyrir íslenskt sam- félag í heild. Gjaldtöku hefur verið hætt. 1.10. | Håkan Juholt Hvernig gengur eiginlega í Svíþjóð? Á þessu ári fagnar lýðræðið 100 ára afmæli í Svíþjóð. Við höfum langa hefð fyrir sam- starfi og að vinna fyrir landið og hag fólksins. Það mun einnig verða útkoman af nýafstöðnum kosningum. 2.10. | Guðmundur Ingi Guðbrandsson Metnaðarfull áform í loftslagsmálum Loftslagsmál snúast ekki bara um töluleg markmið og flóknar skuldbindingar, held- ur um betra líf og tryggari framtíð. 3.10. | Hannes Hilmarsson Atlanta fylgdi í öllu lögum og reglum Fjórum mánuðum eftir út- gáfu skýrslu ráðuneytis um að Atlanta hafi í einu og öllu fylgt öllum lögum og reglum hefur enginn fjölmiðill leið- rétt fréttir sínar. 4.10. | Guðni Ágústsson Er Dagur B. Eggertsson borgarstjóri heyrnarlaus? Verður kannski hótel byggt í Hólavallakirkjugarði við Suð- urgötu og skítt með nokkrar grafir sem verður að rjúfa af því að staðurinn liggur svo vel við miðborginni og ferðamönnum? 5.10. | Birna Bjarnadóttir Virðing og réttindi aldraðra í Evrópu Sameinuðu þjóðirnar og samtök aldraðra í Evrópu vekja athygli á mannrétt- indum allra án tillits til aldurs á tímum ört fjölgandi íbúa 80 ára og eldri. 6.10. | Ólafur Ísleifsson Framfærsluviðmið og skattleysi lægstu tekna Markmið tillögunnar er að jafna skattbyrði milli tekju- lágra og hátekjufólks þannig að þeir sem hafa tekjur undir 300.000 kr. verði undan- þegnir skatti. 8.10. | Gunnar Örn Gunnarsson Mannauðsstjórnun eða þrælahald Bætt starfskjör skila árangri og hið opinbera mun fá um- rædda breytingu margfalt til baka í bættri heilsu sjúkraliða og miklu meiri starfsánægju eins og hefur sýnt sig annars staðar. 10.10. | Jón Bjarnason Ráðherrann með bogin hné Nú þarf að hlaupa til og setja á ráðherrann spelkur og snúa undanhaldi í vörn og sókn fyrir íslenskan landbúnað og matvælavinnslu í landinu. 11.10. | Katrín Atladóttir Lægri skatta í Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn mun leggja til í borgarstjórn að fasteignaskattar á fyrirtæki lækki strax á næsta ári um 0,05%. 13.10. | Halldór Ármann Sigurðsson Nauðsynlegar og ónauðsynlegar reglur um mannanöfn Gera þarf skynsamlegar breytingar á mannanafnalög- unum en ýmsar reglur um nöfn eru þó áfram nauðsyn- legar. 15.10. | Ágúst Andrésson 75 ára stjórnmálasamband Íslands og Rússlands Kannski var það þannig að víkingarnir sem fóru til Garðaríkis skildu eitthvað meira eftir en orðspor og sverð? 16.10. | Jónas Garðarsson Hvorki gráðugt tröll né meinlaus rolla Ari fróði mælti: þá er skylt að hafa það heldur, er sannara reynist. Fylgjum ráði hins mikla sagnaritara fremur en slag við vindmyllur og rollur. 17.10. | Heiðar Ingi Svansson Bjartsýnisbyr fyrir íslenskar bækur Frumvarpið er mikilvægt skref í þá átt að blása bjart- sýnisbyr í trosnandi segl bókaútgefenda, stuðla að meira rými fyrir sköpun höf- unda, auka fjölbreytni og snúa við þessari neikvæðu þróun. 18.10. | Rúna Gísladóttir Gamall kennari um mælt mál Sögnin að elska er okkur flestum mjög kær, svo kær að við erum farin að nota hana í tíma og ótíma. 19.10. | Jón Steinar Gunnlaugsson Rökræður ekki leyfðar Þetta er fólk sem greinilega kýs að taka enga ábyrgð á skoðunum sínum og tjáningu jafnvel þó að einhverjar þús- undir manna hlusti á. 20.10. | Sigurður Árni Þórðarson Árnabiblían Nokkrum dögum áður en ég hóf störf var Biblían afhent kirkjunni að gjöf. Svo tók hún á móti mér. Hvaða verkfæri fær prestur betra en Biblíu við upphaf prestsstarfs? 22.10. | Gústaf Adolf Skúlason Tugir milljóna í byltingar- rómantík 68 kynslóðarinnar Ég hef oft hugsað um það, að engu máli hefði skipt hvert tilefni heilaþvottarins var, við vorum allir reiðubúnir til að fylgja leiðtoganum í gröfina. 23.10. | Birna Varðardóttir Flæðandi orkudrykkjaæði Það er gulls ígildi að unga fólkið okkar þekki inn á samspil þessara þátta. Þá er með öllu óþarfi að sækja sér aukaorku eða örvandi áhrif í litskrúðugar dósir. 24.10. | Anna Kristín Kristjánsdóttir, Hjálmtýr Heiðdal og Sigurður Skúlason Að ritskoða söguna Fagrar hugsjónir sósíalismans um bætt mannlíf voru sumum sendiráðstökumanna ofarlega í huga, en enginn þeirra ellefu- menninga sem vildu við okkur tala í mynd- inni var talsmaður blóðugs ofbeldis. 25.10. | Helgi Áss Grétarsson Akademískt frelsi er mikilvægt og ber að vernda Sjálfstætt þenkjandi háskóla- fólki ber ávallt skylda til að vernda hið akademíska frelsi fullum þunga en nú á tímum virðist það enn brýnna en áður. 26.10. | Þórhallur Jónsson Uppbygging Akureyrarflugvallar Nauðsynlegt er að hefja milli- landaflug um Akureyrarflug- völl til að jafna tækifæri í ferðaþjónustu og dreifa ferða- mönnum betur um landið. 27.10. | Viðar Hreinsson Hvalárvirkjun byggð á vanþekkingu Ekki voru forsendur til að setja Hvalá í nýtingarflokk. Hvalárvirkjun leysir ekki orkuvanda Vestfjarða og styðja þarf Árneshrepp eftir nýjum leiðum. 29.10. | Ingibjörg Gísladóttir Um gyðingahatur og fréttamennsku RÚV Óvild og hatur er beinist gegn gyðingum eykst stöð- ugt í heiminum. RÚV hefur með hlutdrægum fréttaflutn- ingi skapað slíkt andrúmsloft hérlendis. 30.10. | Ole Anton Bieltvedt Engin raunveruleg uppbygging og hvergi mark VG að sjá Hvernig á umhverfis-, um- bóta- og jafnaðarafl, sem VG á að vera, að ná nokkru fram í samstarfi við fulltrúa helstu sérhagsmuna- og íhaldsafla landsins? 31.10. | Gunnar Þórarinsson Á gervigreind erindi stjórnmál? Það eru siðferðilegar spurn- ingar sem helst hamla því að notkun gervigreindar verði hagnýtt við ákvarðanatöku í meiri mæli. 1.11 | Óskar Þór Karlsson Íslenskan okkar mál Við sem eldri erum orðin munum eftir því að sum góð orð, sem mikið eru notuð í daglegu máli, báru allt annað heiti í upphafi. Þannig lifði orðið þrýstiloftsflugvél í þó nokkur ár, áður en orðið þota kom til. 2.11 | Rósa María Hjörvar Ferð án fyrirheits Það er skýr stefna ríkis- stjórnarinnar að halda aftur af öllum kjarabótum þar til tekist hefur að troða svoköll- uðu starfsgetumati í gegn. 3.11. | Þór Magnússon Enn um gamla kirkjugarðinn Og enn er sótt að gamla kirkjugarðinum. Grafnar eru upp jarðneskar leifar fólks vegna hótelbyggingar. Kirkjugarðurinn hefur um árabil verið steinlögð stétt, þar trampa hundruð manna eða þúsundir daglega.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.