Morgunblaðið - 29.12.2018, Síða 34

Morgunblaðið - 29.12.2018, Síða 34
34 UMRÆÐAN Messur um áramót MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2018 Suðurlandsbraut 52 Sími 533 6050 www.hofdi.is Óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðilegs árs með þökk fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða Með kveðju starfsfólk Höfða fasteignasölu Óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum farsældar á nýju ári. Þökkum viðskiptin á liðnum árum. Starfsfólk Eignamiðlunar 588 9090 . www.eignamidlun.is . Grensásvegi 11 . 108 Reykjavík Fordæmalausar skattahækkanir á Ís- landi á undanförnum átta árum hjá Ríkis- sjóði Íslands og Reykjavíkurborg og hækkun launa æðstu embættismanna ríkis- ins hafa leitt til þess að fyrirtæki og ein- staklingar geta ekki lengur haldið uppi óhagkvæmum ríkisrekstri með yfirbyggingu sem ekki virkar. Skattar á Íslandi eru í hæstu hæðum og ríkisútgjöld hafa hækk- að um 200 milljarða króna á undanförnum átta árum þar sem framleiðni í dýrustu kerfunum er lítil og verðmætasköpun sáralítil eða engin í mörgum tilfellum. Í þeim samanburði er til að mynda áætlaður tekjuskattur einstaklinga 200 milljarða króna á árinu 2019. Í kjarasamningum á árinu 1990 var gerð þjóðarsátt á vinnumarkaði hjá þeim aðilum sem komu að kjarasamningum. Fulltrúum atvinnurekenda, verkalýðshreyfingarinnar og ríkis- stjórnarinnar tókst að binda enda á óreiðu sem hafði ríkt í efnahags- málum í nokkra áratugi. Það er ekki ólíklegt að við stöndum á svipuðum tímamótum á vinnu- markaði í dag og því sé mikilvægt á næstu misserum að ná breiðri þjóðarsátt á vinnumarkaði. Ríkis- sjóður hefur ekki nýtt tækifærið til að draga úr ríkisúgjöldum og lækka skatta en flestir skatt- stofnar eru fullnýttir og mjög háir í alþjóðlegum samanburði. Nýting og arðsemi fjármuna við rekstur og til fjárfestinga er slök á mörg- um sviðum. Stærsta sveitarfélag landsins er með alla skattstofna fullnýtta en á sama tíma nema heildarskuldir sem hlutfall af reglulegum tekjum 187%, sem er töluvert yfir lagaskyldu. Það liggur í augum uppi að það er kominn tími á verðmætasköpun og hagræðingu í opinberum rekstri á Íslandi. Opinberan rekstur á Íslandi þarf að endur- skoða með því að lækka útgjöld og auka fagmennsku við fjárfestingar sem eru oft á tíðum slakar. Skatt- greiðendur og almenningur á Ís- landi gera auknar kröfur til opin- bers rekstrar þar sem allir skattstofnar eru nú fullnýttir en árangurinn undanfarin átta ár er slakur og verðmæta- sköpun lítil. Þjóðar- sáttin gæti falist í meðal annars þjóðar- átaki í byggingu á einföldu og öruggu húsnæði fyrir alla landsmenn á öllum aldri, hækkun per- sónuafsláttar, hag- ræðingu í opinberum rekstri, lækkun ríkis- útgjalda um 5%, lækkun skatta tekju- lægstu hópa sam- félagsins, hagræðingu í bankakerf- inu með sölu Íslandsbanka og Landsbanka Íslands, aukinni sam- keppni á lánamarkaði og lækkun vaxta. Þjóðarátak í byggingu á húsnæði fyrir alla Mikilvægt er að hefja þjóðar- átak í íbúðarmálum Íslendinga með því að koma með einfaldar og hagkvæmar lausnir. Lífshættir fólks eru að breytast hratt þar sem fólk vill einfaldar og snjallar lausnir í íbúðarmálum sínum. Þar skiptir miklu máli að húsnæðið sé ódýrt og taki mið af kaupmætti fólks. Auk þess skiptir öryggi í húnæðismálum flesta einstaklinga miklu máli. Mikilvægt er að fyrstu kaup séu hagkvæm og skynsamleg fyrir sem flesta á íbúðamarkaði. Í ljósi þessa mikla ójafnvægis sem er nú á íbúðamarkaði er mikilvægt að sveitarfélög, stéttarfélög og líf- eyrissjóðir taki höndum saman í að lyfta grettistaki í húsnæðis- málum Íslendinga. Sveitarfélög þurfa að tryggja nægt lóðafram- boð af ódýrum lóðum, stéttarfélög að standa vaktina og tryggja hagsmuni sinna félagsmanna. Líf- eyrissjóðir geta veitt sjóðfélagalán sem eru mjög hagkvæmur kostur fyrir flesta sjóðfélaga þar sem lánstími er langur og vaxtakjör með því besta sem gerist á mark- aði. Þjóðarátak í byggingu á ein- földu og öruggu húsnæði fyrir alla landsmenn á öllum aldri er stærsta skrefið að breiðri sátt á vinnumarkaði. Flesta dreymir um einfalt og öruggt húsaskjól og að útborguð laun nægi fyrir mikil- vægustu nauðsynjum. Samtökum atvinnulífsins og verkalýðs- hreyfingunni ber skylda til að ná góðri sátt í þessu mikilvægasta hagsmunamáli allra landsmanna. Hækkun persónuafsláttar, hag- ræðing í opinberum rekstri og lækkun skatta eru atriði sem liðka fyrir þjóðarsátt á vinnumarkaði. Hækkun persónuafsláttar og lækkun skatta gæti aukið líkur á góðum árangri í samningum á vinnumarkaði. Mikilvægi þess að nálgast verkefnið með opnum hug fyrir snjöllum hugmyndum sem auka verulega líkur á góðum ár- angri. Undanfarin ár hefur ríkissjóður ekki nýtt færi til verðmætasköp- unar, hagræðingar og aukinnar framleiðni í rekstri og fjárfest- ingum. Með lækkun ríkisútgjalda um 5% væri hægt að lækka skatta tekjulægri hópa og trygging- argjald fyrirtækja verulega og koma þannig til móts við verka- lýðshreyfinguna og atvinnurek- endur í ljósi fordæmalausra hækk- ana hjá sumum hópum ríkis- starfsmanna með ákvörðunum Kjararáðs. Hagræðing í banka- kerfi með sölu ríkisbankanna, auk- inni samkeppni á lánamarkaði og lækkun vaxta gæti leitt til betri kjara fyrir þá sem eru að kaupa sér einfalt og hagkvæmt íbúðar- húsnæði. Nú þurfa allir sem hafa aðkomu að þessari „Nýju þjóðarsátt“ að bretta upp ermar og klára þetta mál þannig að Ísland geti mætt framtíðinni með raunhæfum og skynsamlegum lausnum sem er mikilvægasti þátturinn í árangri til lengri tíma. Góð byrjun væri að lækka skatta verulega, hagræða verulega í ríkisrekstri og ná ríkis- útgjöldum niður um 100 milljarða króna og auka framleiðni og verð- mætasköpun á öllum sviðum ríkis- rekstrar og sveitarfélaga. Mikil- vægt er að „menning“ hjá opin- berum aðilum verði tekin föstum tökum þannig að þeir sem stjórna og starfa í opinberum rekstri fyrir íslenska skattgreiðendur gæti hagsmuna Íslands og Íslendinga. Þjóðarsátt á vinnumarkaði Eftir Albert Þór Jónsson » Þjóðarátak í bygg- ingu á einföldu og öruggu húsnæði fyrir alla landsmenn á öllum aldri er stærsta skrefið að breiðri sátt á vinnumarkaði. Albert Þór Jónsson Höfundur er viðskiptafræðingur, með MCF í fjármálum fyrirtækja og 30 ára starfsreynsla á fjármálamarkaði albertj@simnet.is AKUREYRARKIRKJA | Æðruleysismessa sunnudag kl. 20. Prestur er Hildur Eir Bolla- dóttir. Hermann Arason og Eyþór Ingi Jóns- son flytja tónlist og leiða söng. Molasopi í Safnaðarheimilinu að messu lokinni. Gamlársdagur. Aftansöngur kl. 18. Prestur er Hildur Eir Bolladóttir. Klassíski kór Akur- eyrarkirkju syngur. Organisti er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir. Nýársdagur. Hátíðarmessa í Akureyrarkirkju kl. 14. Prestur er Svavar Alfreð Jónsson. Sindri Geir Óskarsson guðfræðingur prédikar. Jakobskór Akureyrarkirkju syngur. Organisti er Eyþór Ingi Jónsson. ÁRBÆJARKIRKJA | Gamlársdagur. Hátíðar- guðsþjónusta kl. 17. Sr. Þór Hauksson þjón- ar fyrir altari og prédikar. Kór Árbæjarkirkju leiðir hátíðarsöng. Organisti er Péter Maté. Nýársdagur. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari og prédikar. Kirkjukórinn leiðir hátíðarsöng. Organisti er Guðmundur Ómar. ÁSKIRKJA | Gamlársdagur. Aftansöngur kl. 18. Séra Ása Laufey Sæmundsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Fluttir verða Hátíðar- söngvar sr. Bjarna Þorsteinssonar. Kór Ás- kirkju syngur. Föstudagur 4. janúar. Guðsþjónusta í Norður- brún 1 kl. 14. Séra Sigurður Jónsson préd- ikar og þjónar fyrir altari. Þrettándinn, 6. janúar 2019. Messa kl. 11. Séra Sigurður Jónsson sóknarprestur prédik- ar og þjónar fyrir altari. Kór Áskirkju syngur. Organisti er Bjartur Logi Guðnason. BESSASTAÐAKIRKJA | Gamlársdagur. Sameiginlegur aftansöngur Garðaprestakalls í Bessastaðakirkju kl. 17. Sr. Henning Emil Magnússon. Félagar úr Álftaneskórnum syngja undir stjórn Ástvaldar Traustasonar organista. BREIÐHOLTSKIRKJA | Gamlársdagur. Aftansöngur kl. 18. Prestur er Magnús Björn Björnsson. Organisti er Örn Magnússon. Kór Breiðholtskirkju syngur. BÚSTAÐAKIRKJA | Gamlársdagur. Aftan- söngur kl. 18. Einsöngvari er Guðbjörg Tryggvadóttir. Trompet Gunnar Kristinn Ósk- arsson, Kammerkór Bústaðakirkju, Jónas Þórir og sr. Pálmi. Nýársdagur. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Ræðumaður er Óttar Guðmundsson geð- læknir. Einsöngur Jóhanna Þórhallsdóttir. Gospelkórinn syngur undir stjórn Þórdísar Sævarsdóttur. Kantor Jónas Þórir og sr. Pálmi. Messuþjónar þjóna í öllum athöfnum. DIGRANESKIRKJA | Sunnudag, 30. des., kl. 14. Jólastund eldri borgara í Hjallakirkju. Gamlársdagur. Aftansöngur í Digraneskirkju kl. 16, prestur er Gunnar Sigurjónsson, organisti er Sólveig Sigríður Einarsdóttir. Kammerkór Digraneskirkju syngur. DÓMKIRKJA Krists konungs, Landakoti | Laugardagur. Messa á spænsku kl. 16 og á íslensku kl. 18. Sunnudagur, 30. desember. Messa á pólsku kl. 8.30, á íslensku kl. 10.30, á pólsku kl. 13 og á ensku kl. 18. Gamlársdagur. Messa á íslensku kl. 8 og 18. Nýársdagur. Stórhátíð Maríu guðsmóður. Messa á íslensku kl. 10.30, á pólsku kl. 13 og á ensku kl. 18. DÓMKIRKJAN | Messa 30. desember kl. 11. Sr. Elínborg Sturludóttir prédikar og þjón- ar fyrir altari. Gamlársdagur. Aftansöngur kl. 18, sr. Sveinn Valgeirsson prédikar og sr. Elínborg Sturlu- dóttir þjónar fyrir altari. Nýársdagur. Hátíðarmessa kl. 11. Biskup Ís- lands, Agnes M. Sigurðardóttir, prédikar og dómkirkjuprestar þjóna fyrir altari. Dómkórinn syngur og Kári Þormar, dómorganisti, leikur á orgelið við guðþjónusturnar. Bílastæði við Al- þingi. EGILSSTAÐAKIRKJA | Gamlársdagur. Aftansöngur kl. 16. Kór Egilsstaðakirkju syngur og leiðir almennan söng. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Prestur er Ólöf Mar- grét Snorradóttir. FELLA- og Hólakirkja | Gamlársdagur. Aft- ansöngur kl. 18. Sr. Guðmundur Karl Ágústs- son þjónar og prédikar, kór kirkjunnar syngur. Kristín R. Sigurðardóttir syngur einsöng og Reynir Þormar spilar á saxófón. Nýársdagur. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar og prédikar, kór kirkjunnar syngur. Organisti við guðsþjónusturnar er Arnhildur Valgarðsdóttir. Fyrsta messa nýs árs verður 13. janúar kl. 11. GRAFARVOGSKIRKJA | Gamlársdagur. Aftansöngur kl. 18. Prestur er Sigurður Grét- ar Helgason. Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. Einsöngur: Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú. Organisti: Hákon Leifsson. Nýársdagur. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Prestur er Guðrún Karls Helgudóttir. Kór Graf- arvogskirkju leiðir söng. Einsöngur: Hallveig Rúnarsdóttir. Organisti: Hákon Leifsson. GRENSÁSKIRKJA | Gamlársdagur. Aftan- söngur kl. 18. Nýársdagur. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Fé- lagar úr Kirkjukór Grensáskirkju leiða söng og flytja Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar ásamt sr. Maríu Ágústsdóttur og Ástu Har- aldsdóttur organista. GRINDAVÍKURKIRKJA | Aðfangadagur. Aftansöngur kl. 18. Melkorka Ýr Magn- úsdóttir söngkona syngur Ó, helga nótt ásamt Kór Grindavíkurkirkju. Organisti er Erla Rut Káradóttir. Miðnæturmessa kl. 23.30. Kór Grindavíkur- kirkju leiðir sönginn ásamt Erlu Rut organ- ista. Jóladagur. Í Víðihlíð í matsalnum verður há- tíðarguðsþjónusta kl. 11 og eru allir velkomn- ir þangað. Kór og organisti Grindavíkurkirkju leiða sönginn. Gamlársdagur. Hátíðarguðsþjónusta kl. 17. Kór Grindavíkurkirkju ásamt Erlu Rut leiðir sönginn. Séra Elínborg Gísladóttir leiðir allt helgihald. GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Gamlársdagur. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14 í umsjón Fríkirkjunnar í Reykjavík. Prestur er Hjörtur Magni Jóhannsson. Sönghópur Frí- kirkjunnar syngur undir stjórn Gunnars Gunn- arssonar söngstjóra. Nýársdagur. Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Prestur er Auður Inga Einarsdóttir. Grundar- kórinn leiðir söng undir stjórn Kristínar Waage organista. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Gamlársdagur. Aftansöngur kl. 17. Athugið tímann. Prestur er Stefán Már Gunnlaugsson. Organisti er Guðmundur Sigurðsson. Barbörukórinn syng- ur. Einsöngvari er Þórunn Vala Valdimars- dóttir. Nýársdagur. Hátíðarmessa kl. 14. Prestur er Jón Helgi Þórarinsson. Egill Friðleifsson flytur hátíðarræðu. Organisti er Guðmundur Sig- urðsson. Barbörukórinn syngur. Einsöngvari er Hugi Jónsson. HALLGRÍMSKIRKJA | 30. desember. Vonarlestrar og söngvar á jólum kl. 11. Sr. Sigurður Árni Þórðarson þjónar fyrir altari. Kór Menntaskólans við Hamrahlíð syngur. Orð dagsins: Símeon og Anna (Lúk. 2) Frá Þingvöllum Þingvallakirkja.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.