Morgunblaðið - 29.12.2018, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 29.12.2018, Qupperneq 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2018 Er meistari Val- garður við? Spurn- inguna bar Alfreð Árnason líffræðing- ur iðulega upp þegar hann kom í heimsókn til að hitta vin sinn Valgarð. Þetta var það fyrsta sem kom upp í hugann þegar fréttin af andláti Valgarðs barst mér. Valgarður var sannarlega mikill meistari og margt til lista lagt. Hann var ekki síst góður læknir, rithöfundur, skáld og vís- indamaður. Það síðastnefnda var ástæða þess að við Valgarður kynntumst fyrir rúmum 32 árum. Þá var ég að flytja heim frá út- löndum eftir nám í sameindalíf- fræði. Frétti að hann ásamt Vil- mundi Guðnasyni lækni leituðu sérfræðings á því sviði því þeir Valgarður Egilsson ✝ Valgarður Eg-ilsson fæddist 20. mars 1940. Hann lést 17. desember 2018. Útför Valgarðs fór fram 28. desem- ber 2018. ætluðu að hefja rannsóknir á erfða- þætti krabbameina. Valgarður var sér- fræðingur í frumu- líffræði og hafði til margra ára notað gerfrumur til að rannsaka orkubú- skap í tengslum við krabbamein, fyrst við nám í London og síðan á Íslandi. Ekki gekk það þrautalaust og eftir töluverðar hremmingar komst Valgarður að þeirri nið- urstöðu að meiri skilningur yrði hjá ráðandi aðilum á rannsókn- um á mönnum. Á þessum árum hafði hann aðstöðu fyrir rann- sóknir sínar í Hjúkrunarskólan- um í Eirbergi. Man ég að heldur þóttu mér aðstæður bágbornar sem Valgarður í hæversku sinni lét sér og sínu starfsfólki nægja til rannsóknanna. En að taka þátt í því að byggja upp rann- sóknir á ættlægni brjóstakrabba- meins fannst mér mjög áhuga- vert verkefni og sló ég því til. Rannsóknastofa Valgarðs gekk undir nafninu frumulíffræðideild og þar starfaði einvalalið ljúf- menna sem áttu það sameigin- legt að hafa brennandi áhuga á vísindum. Valgarður var hlýr og einstaklega skemmtilegur maður og tókst að láta öllum líða vel. Það var mikil vinna fyrir okkur öll að setja þessar rannsóknir á stað en fyrr en varði vorum við búin að birta fyrstu vísindagrein- ina og fjallaði hún um H-RAS í fjölskyldulægu brjóstakrabba- meini. Ævintýri okkar á Frum- unni, eins og við kölluðum okkur gjarnan, byrjaði þó fyrir alvöru í framhaldi af fundi sem við Val- garður sóttum í London. Þar sagði Marie-Claire King frá rannsóknum sínum á ættlægni brjóstakrabbameins. Henni hafði tekist að staðsetja sterkan áhrifaþátt myndunar brjósta- krabbameins á litningi 17. Hún hvatti vísindafólk til að taka höndum saman og finna erfða- þáttinn. Við á frumulíffræðideild svör- uðum kallinu og tókum þátt í leit- inni að BRCA1. Við tókum einnig þátt í öðru og enn þá umfangs- meira samstarfi við að staðsetja og einangra BRCA2. Þáttur ís- lenskra vísindamanna í því afreki var þó nokkur. Þáttur Valgarðs var þar mikilvægur. Hann lagði mikið á sig við ættrakningar í leit að fjölskyldum með sterka sögu krabbameins og í framhaldinu öflunar lífssýna til rannsókna úr þessum fjölskyldum. Þegar ég lít til baka er að finna mjög margar bjartar og skemmtilegar minn- ingar frá þessum tíma og er ég þakklát forsjóninni fyrir að hafa fengið að kynnast Valgarði. Ég votta Katrínu og aðstandendum öllum innilega samúð. Rósa Björk Barkardóttir. Horfinn er úr okkar hópi Val- garður Egilsson. Valgarður var kjörinn varaforseti Ferðafélags- ins árið 1997 og gegndi því emb- ætti um tíu ára skeið. Eftir að Valgarður hvarf úr stjórn félags- ins var leitað til hans með ýmis trúnaðarstörf, m.a. formennsku í uppstillinganefnd, og má af því ráða hversu mikils Valgarður var metinn. Í okkar hópi bar Valgarður Egilsson mörg viðurkenningar- og sæmdarheiti. Hann var lækn- ir, rithöfundur, skáld, sagna- meistari, fararstjóri, lífskúnst- ner, varaforseti, leiðtogi, goðsögn í lifanda lífi og fleira mætti telja en umfram allt hafði Valgarður til að bera leiftrandi og litríkan persónuleika. Við vor- um stolt af því að hafa slíkan mann í okkar liði og nutum starfskrafta hans. Mörg ritverk liggja eftir Val- garð en fyrir Ferðafélag Íslands skrifaði hann bróðurpart árbók- arinnar ársins 2000. Þar fjallaði Valgarður um úthafsbyggðir Mið-Norðurlands frá Úlfsdölum vestan Siglufjarðar og austur um Náttfaravíkur við Skjálfanda. Þar með fylgdu Flatey á Skjálf- anda og Grímsey. Það var ómet- anlegt að fá til þessa verks ekki aðeins ritsnilling heldur einnig þann sem ólst upp á slóðum ár- bókarinnar og átti þar ættir að rekja. Jafnhliða staðþekkingu og sögulegum fróðleik fléttaði Val- garður inn í fásögnina listrænan þráð og næman skilning á örlög- um fólks í úthafsbyggðunum. Með árbók Valgarðs var bjargað miklum sögulegum heimildum og skilningi á þessum harðbýlu hér- uðum Íslands, heimildum sem ella hefðu sundrast eða jafnvel glatast að fullu. Ferðafélag Íslands hefur ávallt kappkostað við að farar- stjórar félagsins séu í fremstu röð. Sennilega er ekki á neinn hallað þegar fullyrt er að Val- garður Egilsson hafi skarað fram úr á því sviði, ekki aðeins hvað þekkingu á landi og sögu varðaði heldur miklu fremur einstakan frásagnarmáta þar sem leiðsögn- in var í raun leikrænn gjörning- ur. Í fjögurra daga ferð með Val- garði varð hver dagur nýr kafli í því leikriti sem Valgarður bar fram. Hann hóf hvern dag á vandlegum undirbúningi, gjarn- an í einrúmi, þar sem hann setti niður fyrir sér orðfæri og rullur í bland við fas leikarans og magn- aða kímni. Enginn sem með hon- um fór í ferð gleymir leiðsögn Valgarðs. Vinsældir hans má meta af því að ferðafólk spurði iðulega hvort ekki mætti örugg- lega búast við að Valgarður yrði leiðsögumaður í ferðum á Flat- eyjardal og í Fjörður og það yrði að komast í slíka ferð áður en hann hætti leiðsögn þangað, ekki aðeins til að kynnast landsvæð- inu heldur til þess að fá að njóta ferðar með Valgarði. Frægð hans fór víða og stundum tók fólk sig saman í hóp sem bað hann um að koma sérstaklega í ferð um fyrrnefndar slóðir. Meðal ferða- félagsfólks eru oftlega rifjaðar upp sögur um frumleg uppátæki og tilsvör Valgarðs. Mikið liggur eftir Valgarð. Ferðafélag Íslands minnist hans með mikilli virðingu og þakklæti fyrir þá leiðsögn sem hann veitti bæði í ferðum og í stefnumótun félagsins. Stjórn Ferðafélagsins sendir Katrínu Fjeldsted og fjöl- skyldu innilegar samúðar- kveðjur. Ólafur Örn Haraldsson, forseti Ferðafélags Íslands. Fjörður og Flateyjardalur verða ekki samir eftir. Sameiginlegar ferðir Valgarðs Egilssonar og Félags eldri borg- ara í Reykjavík og nágrenni í Fjörður og á Flateyjardal verða ekki fleiri. Náttúrubarnið Val- garður Egilsson er farinn í sína síðustu ferð, hvert sem hún mun leiða hann. Við sem áttum skipu- lagða enn eina ferðina í Fjörður! Í starfi framkvæmdastjóra FEB hef ég farið eftir og jafnvel nýtt mér orð Valgarðs sem sagði eitt sinn: „Það eru forréttindi að fá að sýna fólki landið okkar.“ Ferðir innanlands og erlendis eru eitt af aðalsmerkjum félags- ins og er skemmst frá því að segja að allar ferðir á vegum þess bókast hratt og biðlistar myndast. Þannig hefur það jafn- an verið í þeim fjölda ferða sem skipulagðar hafa verið í Fjörður og á Flateyjardal, með Valgarð sem fararstjóra. Þrátt fyrir eins og nafn félagsins segir, að ferð- irnar séu fyrir eldri borgara hef- ur það ekki verið nein fyrirstaða að fara slíka „svaðilför“ sem ferð á þessar slóðir getur verið. Síð- asta ferðin sem reyndar var mín fyrsta og eina á þessar slóðir, er sérlega minnisstæð. Ekki bara fyrir góðviðrið og einstöku fjalla- sýnina á Sprengisandi, sprungna dekkið á fjallabílnum, nestið sem við snæddum undir berum himni í uppáhaldsbrekkunni þinni, heldur kannski fyrir fótafimi þína og skótauið. Þú æddir upp brekkur og óðst lækjarsprænur, í skóm sem kannski hefðu frekar Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Lára Árnadóttir, umsjón útfara Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996 ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er. Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir Ástkær móðir okkar, amma og langamma, INGIBJÖRG ÁRNADÓTTIR, Látraströnd 50, Seltjarnarnesi, andaðist á Landspítalanum sunnudaginn 9. desember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Þorbjörg Nanna Haraldsdóttir Kristjana Edda Haraldsdóttir Heimir Haraldsson Ágúst Fjeldsted Ilia Anna Haarde Hermann Sigurðsson Sigríður Dögg Arnardóttir og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir, stjúpmóðir, dóttir, systir og frænka, ERLA SIGRÚN VIGGOSDÓTTIR, Garðhúsum 3, lést á Landspítalanum, Hringbraut, fimmtudaginn 20. desember. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtudaginn 3. janúar klukkan 13. Bragi Valgeirsson Brynhildur Íris Bragadóttir Sandra Björk Bragadóttir Anna Eir Bragadóttir Viggo Mortensen Bergþóra Þórðardóttir Gerða Jenný Viggosdottir Halldór Garðarsson Magni Þór Mortensen Hrefna Arnardóttir Auður, Elín, Baldur Örn, Kári Hrafn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, PÁLMI STEINAR SIGURBJÖRNSSON stýrimaður, Sléttuvegi 31, lést sunnudaginn 23. desember. Útförin verður auglýst síðar. Ólafía Guðlaug Þórhallsdóttir Halla Bergþóra Pálmadóttir Björn Steinar Pálmason Johanna E. Van Schalkwyk Ariadne Líf, Embla Elizabeth og Harpa Emilía Shelagh Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ERLA FRIÐBJÖRNSDÓTTIR frá Grenimel, Grenivík, lést á Grenilundi sunnudaginn 23. desember. Útför hennar fer fram frá Grenivíkurkirkju laugardaginn 5. janúar klukkan 14. Anna Pétursdóttir Kristinn Skúlason Birgir Pétursson Aðalheiður Jóhannsdóttir Sigurbjörg H. Pétursdóttir Jón Bragi Skírnisson Friðbjörn Axel Pétursson Jón Ásgeir Pétursson Elín Berglind Skúladóttir Guðrún Hildur Pétursdóttir Helgi Teitur Helgason ömmu og langömmubörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐBJÖRG FLYGENRING, Hringbraut 67, Hafnarfirði, andaðist fimmtudaginn 27. desember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Ingólfur Flygenring Magnús Flygenring Hildur Guðfinnsdóttir Þóra Flygenring Sigurður Arnórsson Unnur Flygenring Gunnlaugur Bjarnason barnarbörn og barnabarnabörn HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.