Morgunblaðið - 29.12.2018, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 29.12.2018, Blaðsíða 44
44 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2018 Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Heiðnar grafir í nýju ljósi – sýning um fornleifarannsókn á Dysnesi við Eyjafjörð Kirkjur Íslands: Skrúði og áhöld. Straumar og stefnur í Bogasal Kirkjur Íslands: Með augum biskups og safnmanna í Myndasal Heiða Helgadóttir – NÆRandi á Vegg Leitin að klaustrunum í Horni Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú grunnsýning Safnahússins Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Bókverk og Kveisustrengur úr Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Júlía & Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210 www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/ Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17 SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið þriðjud.-sunnud. kl. 10-17 VÉFRÉTTIR – KARL EINARSSON DUNGANON LÍFSBLÓMIÐ - FULLVELDI ÍSLANDS Í 100 ÁR FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR Valin verk úr safneign BÓKFELL eftir Steinu í Vasulka-stofu SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Listasafn Íslands er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 10-17 LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR TENGINGAR – SIGURJÓN ÓLAFSSON OG NOKKRIR SAMFERÐAMENN HANS Opið allar helgar frá kl. 13-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is Kaffistofa – heimabakað meðlæti SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR - HEIMILI LISTAMANNS OG SÝNINGAR KORRIRÓ OG DILLIDÓ - ÞJÓÐSAGNAMYNDIR ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Opið alla daga nema mánudaga frá kl. 13-17. Bergstaðastræti 74, sími 515 9625, www.listasafn.is VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ég get ekki sagt að ég eigi mér ein- hver ákveðin draumahlutverk, en ég skal alveg viðurkenna að um leið og ég frétti að Brynhildur ætti að leik- stýra þessu verki fór ég strax og tal- aði við hana og bað hana að hafa mig í huga því Ríkharður er svo ógeðslega skemmtilegur karakter,“ segir Hjörtur Jóhann Jónsson, sem túlkar Ríkharð III í samnefndu verki Willi- ams Shakespeare sem Borgarleik- húsið frumsýnir á Stóra sviðinu í kvöld. „Og ég tjáði honum að ég væri þegar búin að biðja um hann,“ segir Brynhildur Guðjónsdóttir, leikstjóri uppfærslunnar. Blaðamaður settist niður með leikstjóranum og aðal- leikaranum fyrr í mánuðinum til að heyra allt um nálgun þeirra á einu frægasta illmenni leikbókmennt- anna. Brynhildur, við ræddum saman snemma á þessu ári þegar tilkynnt var um verkefnavalið og upplýst að þú myndir leikstýra. Í því viðtali sagðir þú að það væri spennandi ferðalag fram undan. Síðan eru liðnir tíu mánuðir. Hvert hefur ferðalagið leitt þig og hefur sýn þín á verkið breyst eitthvað á æfingaferlinu? „Þessu er fyrst til að svara að það er alltaf vandasamt að setja draumana sína inn í raunheiminn. Í samspili við áhöfnina verður útkom- an á leiksviðinu aldrei nákvæmlega eins og sýn manns heimavið. En upp- hafssýn mín á þetta verk er enn til staðar og hún felst í því að skoða verkið út frá átökum Ríkharðs við konurnar í verkinu,“ segir Brynhild- ur sem í samvinnu við Hrafnhildi Hagalín, dramatúrg Borgarleikhúss- ins, vann aðlögun á verkinu þar sem bæði var stytt nokkuð og texti færður milli persóna til þess, meðal annars, að gefa Elísabetu yngri rödd. Velur ný plott út frá konunum Ríkharður III, sem Shakespeare er talinn hafa skrifað um 1593, fjallar um baráttu valdasjúks manns sem svífst einskis til að ná æðstu met- orðum og verða konungur Englands. Til að ná markmiðum sínum vílar hann ekki fyrir sér að myrða þá sem ryðja þarf úr vegi og kvænast til að komast yfir krúnuna. Í þessum átök- um eru það, að sögn Brynhildar, valdamiklir karlar sem setja leik- reglur heimsins sem valdalitlar kon- ur eiga ekki annarra kosta völ en að hlýða. „Munurinn á birtingarmynd kynjanna í verkinu birtist skýrt í tungumálinu,“ segir Brynhildur og hrósar Kristjáni Þórði Hrafnssyni sem í þýðingu sinni noti íslenskt af- brigði af bragarhætti Shakespeare. „Orðræða kynjanna er ólík, karlasen- urnar eru plottdrifnar og stefna fram á við en kvennasenurnar byggjast oft á endurtekningu og hringhreyf- ingum,“ segir Brynhildur. En þó konurnar taki ekki þátt í hinu pólitíska plotti verksins hafa orð þeirra engu að síður afgerandi áhrif á aðalpersónuna eins og sést bersýni- lega í formælingum annars vegar Margrétar, fyrrum Englandsdrottn- ingar, og hins vegar móður Ríkharðs, hertogafrúarinnar af Jórvík. „Konurnar hafa einmitt mjög mikil áhrif,“ segir Brynhildur og bendir á að Ríkharður III sé fyrsta leikrit Shakespeare þar sem framvindan er drifin áfram af aðalpersónunni. „Í mörgum leikritum Shakespeare er það þannig að auðveldlega má strika kvennaheiminn út án þess að það hafi nein áhrif á framvinduna,“ segir Brynhildur og nefnir í því samhengi Hinrik V. „En ef konurnar væru teknar út úr Ríkharði III væri hann valdalaus af því að þar liggur hreyf- ing verksins. Hann velur sér sífellt ný plott út af kvennaheiminum,“ segir Brynhildur. Þrífst á að láta ögra sér „Konurnar bera líka uppi tilfinn- ingasögu verksins. Það eru þær sem sitja eftir með dáin börn og dána eig- inmenn og bera allan harminn. Það eru líka þær sem formæla Ríkharði mest og kalla hann öllum ljótustu nöfnum verksins, eins og villigölt, sóðasvín og kónguló,“ segir Hjörtur. „Það eru þær sem brjóta hann nið- ur og hann stjórnast af því sem sagt er við hann. Það verður hrein og klár hnignun hjá honum eftir að hann hitt- ir móður sína sem formælir honum. Orð hennar virkja samvisku hans sem aftur leiði til svefnleysis og kvíða,“ segir Brynhildur og bendir á breytingin sem verði á persónu Rík- harðs sjáist skýrt í textameðferð höf- undar. „Fyrsta eintal Ríkharðs er samsett úr löngum hugsunum þar sem eru allt að 14 línur milli punkta. Í eintali hans eftir vofusenuna og fundinn við móður sína, sem er eitt af síðustu ein- tölum hans, eru hugsanir hans stutt- ar og samsettar úr aðeins örfáum orðum. Á þeim tímapunkti hefur hann ekki lengur fast land undir fót- um og sér ekki til enda,“ segir Bryn- hildur og bendur á að Ríkharður komi alltaf breyttur út úr sérhverri viðureign við konur verksins. „Kon- urnar eru þær sem ögra honum mest og hann þrífst á því að láta ögra sér,“ segir Hjörtur og bendir á að þannig megi skýra hvers vegna Ríkharður sitji undir formælingum þeirra. „Þetta er líka einhver masókismi. Hann er sadisti í sér, en nærist á masókistanum,“ segir Brynhildur og bendir á að Ríkharður sé siðleysingi sem víli ekki fyrir sér að ljúga og svíkja. „Hann er kaldur og útsmog- inn í upphafi verksins, en svo fjarar undan honum og í lokin er hann jafn- vel farinn að trúa eigin lygum,“ segir Brynhildur. Heimagerð kryppa með lóðum Hvernig nálgist þið bæklun Rík- harðs sem leikur stórt hlutverk? „Mig langaði alltaf til að fara lík- amlega leið að þessu hlutverki í stað þess að vera með einhver hjálpartæki á borð við spelkur, hækjur eða sand- poka á öxlinni til að mynda kryppuna. Það að útfæra bæklunina með lík- amanum setur ákveðna skorður á hreyfigetuna sem hjálpar mér við að raungera persónuna og finna hvað Ríkharður hefur þurft að kljást við,“ segir Hjörtur og minnir á að í fjórleik Shakespeare um Rósastríðin sé Rík- harður stríðsmaður. „Þó að hann fæðist bæklaður hefur hann haft alla ævina til að breyta veikleikum sínum í styrkleika. Þá þarf maður að finna leið til þess að geta verið skakkur og skældur, en samt hreyfanlegur og sterkur. Ég hef farið þá leið að byggja upp mikinn styrk í baki til að geta haldið þessari stellingu án þess að skemma mig,“ segir Hjörtur og sýnir blaðamanni heimagerðu krypp- una sem hann hefur byggt upp með lóðum í ræktinni. Það er væntanlega töluverð áskor- un að geta leikið skakkur og skældur án þess að hljóta skaða af? „Já, það er mikil áskorun. Ég hef verið mér mjög meðvitandi um að eyðileggja mig ekki,“ segir Hjörtur og bendir á að óháð útfærslunni á bækluninni reyni það mjög á líkam- lega að leika Ríkharð. „Það er algjör fjallganga að flytja þennan texta, því Shakespeare-texti er mjög erfiður í flutningi,“ segir Brynhildur. „Og textaflutningurinn þarf góðan líkam- legan stuðning. Á æfingaferlinu próf- aði ég ýmsar líkamlegar útfærslur á bæklun hans sem reyndust ræna mig nauðsynlegum stuðningi fyrir rödd- ina,“ segir Hjörtur og tekur fram að þó að bæklun Ríkharðs sé fræg líti hann ekki á hana sem aðalatriði. „Þetta er notað í niðrandi tali um hann, en við megum ekki gleyma því að verkið gerist á miðöldum. Afstaða til fötlunar var allt önnur en núna,“ segir Brynhildur. „Konur verksins kalla hann broddgölt, halakörtu og afskræmdan fyrirbura,“ segir Hjört- ur og bendir á að viðhorf fólks á mið- öldum til fötlunar var að líkamlegt af- brigði frá hinu eðlilega væri til merkis um illt innræti. „Í þessu samhengi er áhugavert að velta fyrir sér hvort illt innræti Rík- harðs sé afleiðing af neikvæðum við- brögðum umheimsins gagnvart hon- um allt frá fæðingu. Ef komið er fram við þig eins og slímugt ógeð allt frá barnæsku þarf ekkert að undrast að á einhverjum tímapunkti gangist manneskjan hreinlega við því. Í Hinriki VI, þar sem persóna Rík- harðs kemur fyrst fyrir segir hann: „Ástin sór fyrir mig í móðurkviði.“ Hann hefur verið fyrirlitinn alla tíð,“ segir Hjörtur og bendir á að þar sem um sé að ræða tiginborið fólk hafi við- horf þess tíma verið að slíkt fólk ætti að standa nær guði í tignarleika. „Í því samhengi stingur Ríkharður al- veg sérstaklega í stúf,“ segir Hjörtur. Viljastyrkurinn aðlaðandi En hvernig nálgast maður persónu sem þarf allt í senn að vera sjarm- erandi og vægðarlaus? Í viðtali okkar Brynhildar fyrr á árinu sagði hún að þú, Hjörtur, byggir yfir góðri líkams- tjáningu, hefði einstakt vald á texta- meðferð auk þess sem í þér væri skemmtilegur eldur og svolítill dólgur. „Mér fannst mjög gaman að heyra það. Lykillinn að hlutverkinu er að finna fegurðina í ljótleikanum og ljót- leikann í fegurðinni. Það sem er svo gaman við að fara inn í þetta hlutverk er að geta leyft sér öll þessi blæbrigði og allan þennan dólgshátt,“ segir Hjörtur og bendir á að Ríkharður sé einnig sinn eigin sögumaður. „Þrátt fyrir að vera mesti svikari og lygalaupur er hann á sama tíma hreinskilnasta persóna verksins og talar algjörlega grímulaust, til dæmis í upphafi verksins þegar hann upp- lýsir um allt sem hann ætlar sér,“ segir Hjörtur og tekur fram að Rík- harður sé ekki aðeins mikill plottari heldur líka mikill leikari eins og sjáist skýrt í senunni þegar Ríkharður bið- ur lafði Önnu að kvænast sér yfir líki tengdaföður hennar sem Ríkharður drap, en undir lok senunnar er hin syrgjandi Anna orðin heitmey hans. „Það er mjög áhugavert að skoða af hverju sumar konur laðast að sið- lausum ofbeldismönnum sem hafa jafnvel myrt aðrar konur á undan þeim,“ segir Brynhildur og bendir á að Shakespeare hafi í leikritum sín- um náð með undraverðum hætti að fanga mannlegt eðli. „Ríkharður býr yfir brjáluðum viljastyrk sem ég held að sé mjög að- laðandi. Hann býr yfir fítonskrafti sem minnir á náttúruafl sem hrífur aðra með sér. Manneskja sem er óhrædd við að gera það sem henni sýnist er heillandi,“ segir Hjörtur. „Svo má ekki gleyma því að Rík- harður er valdamikill. Við erum í verkinu að fást við valdastrúktur sem við á Íslandi þekkjum ekki þar sem leikritið fjallar um tiginborið fólk. Það er mikið í húfi í verkinu þar sem tvær stríðandi fylkingar hafa barist um völdin í landinu í Rósastríð- unum,“ segir Brynhildur og rifjar upp að Ríkharður III sé síðasta verk- ið í fjórleik Shakespeare um Rósa- stríðin. „En verkin voru öll frumsýnd í tíð Að setja draumana sína inn  Ríkharður III eftir Shakespeare frumsýndur í Borgarleikhúsinu í kvöld  Leikstjórinn skoðar leikritið út frá átökum Ríkharðs við konurnar í verkinu Ný sýn „Ef einhver gengur útúr leikhúsinu með nýja sýn á verkið gæti ég ekki verið ham- ingjusamari,“ segir leikstjór- inn Brynhildur Guðjónsdóttir. Fegurð „Lykillinn að hlutverkinu er að finna fegurðina í ljótleik- anum og ljótleikann í fegurðinni,“ segir Hjörtur Jóhann Jónsson um Ríkharð III. Í baksýn er Sólbjört Sigurðardóttir í hlutverki Elísabet- ar yngri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.